Lögmannablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 12
áfrýja. Tveir skjólstæðingar í kyn-
ferðisbrotamálum sögðu við mig að
þeir vildu áfrýja og ég sagði þeim
að fara annað, sagðist ekki koma
nálægt því. Hæstiréttur þyngdi
dóminn á þeim báðum um eitt og
hálft ár.
60 pundum þyngri en
Sonny Liston!
Hefur þú aldrei verið hræddur við
skjólstæðing?
Ég svaraði þessu einu sinni
þannig: Ég held að þeir viti, þessir
menn sem ég hef verið að aðstoða,
12 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2005
alltaf eftir því þegar Halldór Þor-
björnsson var sakadómari í Reykja-
vík og var boðið til Rússlands
ásamt Sigurði Baldurssyni. Áður en
Halldór fór sagði ég við hann:
„Jæja Halldór, taktu nú eftir einu
í Rússlandi. Það er sama system og
hér, dómarinn rembist eins og
rjúpa við staur við að sanna sök og
svo dæmir hann á eftir.“
Þegar Halldór kom aftur til baka
þá spurði ég:
„Jæja Halldór minn, var þetta
eins og ég sagði?“
„Nei, ekki alveg!“ svaraði hann,
„Hver var munurinn?“
„Þeir voru með ólöglærða dóm-
ara!“
Það var eini munurinn í Rúss-
landi og á Íslandi!!!
Áttu eftirminnilega skjólstæðinga
eða mál?
Þau væru eflaust mörg ef maður
byrjaði að hugsa. Ég segi nokkrar
sögur úr lögmennskunni í bókinni.
Það eru til skjólstæðingar sem telja
sig hafa meira vit á hlutunum en
við höfum og heimta t.d. áfrýjanir
út í loftið. Ég neita alltaf og segi
þeim að fá sér annan lögfræðing.
Ég fer í áfrýjun ef ég tel að þær eigi
rétt á sér en ekki ef menn vilja
að ég er sextíu pundum þyngri en
Sonny Liston þegar hann vann
Cassius Clay! Þess vegna held ég að
þeir leggi ekki í það. Menn hafa
komið hingað inn og verið að rífa
kjaft. Ég hef sagt við þá: Þarna eru
dyrnar, ég er ekki eins snöggur og
ég var en ég er snöggur samt! Nú er
bara spurningin: Hvað ert þú
snöggur út? Þá verða þeir svo
hræddir að þeir hlaupa!
Hvað finnst þér um kollega þína,
lögmenn?
Ég dró eitt sinn lögfræðingastétt-
ina í dilka. Ég var í slysamáli uppi í
Borgardómi á Túngötu og þar voru
Bíóauglýsingar frá þeim
tíma þegar Örn var
framkvæmdastjóri
Trípólíbíós.
Á skrifstofu Arnar er
skipulögð óreiða þar
sem hver hlutur er á
sínum stað!