Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2012, Page 77

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2012, Page 77
77 Fries leggur til að tilfinningar verði greindar sem „semíótískar eining- ar“ (þ. semiotischen Entitäten).29 Nálgun Fries endurómar að mörgu leyti áherslu Lutz á orðræðu, en áhugi hans beinist hins vegar að vísindalegri kerfisgreiningu á notkun tilfinningaorða í texta fremur en framsetningu tilfinninga í skáldskap. Þar sem tilfinningar í texta verða til, ef svo má að orði komast, í huga lesandans þá takmarkast tákngildi þeirra ekki við orðið sem semíótíska einingu, heldur koma þar margir þættir saman, bæði í miðlun og túlkun tilfinninga í texta. Tilraunir til að nálgast tilfinningalíf sem birtist í textanum á forsendum þess hugmyndaheims sem hann miðlar er þá háður notkun slíkra orða í samhengi innan textans. Slík orð gætu því haft ákveðnar aukamerkingar eða jafnvel hliðraða merkingu innan hins textalega (og frásagnarfræðilega) samhengis. Carolyne Larrington bendir til að mynda á framsetningu og notkun fornenska orðsins „gebol- gen“ (þrútinn) og forníslensku orðanna „þrunginn móði“ og „þrútinn“ í Bjólfskviðu (Beowulf) og Ragnars sögu loðbrókar.30 Í báðum textunum eru orðin notuð til að lýsa miðaldaskilningi á reiði og þeim líkamlegu áhrifum sem reiðin var talin hafa á sögupersónur. Hún bendir á að „hin lífeðl- isfræðilegu einkenni reiði geta verið ýkt eða stílkennd, en þau eru engu að síður þekkjanleg“.31 Nútímalesandinn er því fær um að túlka tilfinninguna sem býr að baki lýsingunni réttilega.32 dierung von Emotionen in Texten. Teil 1: Grundlagen“, Journal of Literary Theory 1/2007, bls. 293–337, bls. 296, skáletrun er í frumtexta.) Sjá einnig Norbert Fries, „die Kodierung von Emotionen in Texten. Teil 2: die Spezifizierung emotionaler Bedeutung in Texten“, Journal of Literary Theory 3/2009, bls. 19–71, þar sem hann leitast við að greina tilfinningar í texta kerfisbundið út frá þeim kenningum sem settar eru fram í fyrri greininni. 29 Norbert Fries, „die Kodierung von Emotionen in Texten. Teil 1: Grundlagen“, bls. 297. 30 Carolyne Larrington, „The Psychology of Emotion and Study of the Medieval Period“, bls. 254–255. 31 „The physiological symptoms of anger can be exaggerated or stylised, but they are none the less recognisable“, (sama heimild , bls. 254). 32 Sjá til að mynda umfjöllun um reiði í Anger’s Past: The Social Uses of an Emotion in the Middle Ages, ritstj. Barbara H. Rosenwein, Ithaca: Cornell University Press, 1998. Um reiði sem sálfræðilegt fyrirbæri, sjá til dæmis James R. Averill, Anger and Aggression. An Essay on Emotion, New York: Springer-Verlag, 1982. Um reiði í Íslendingasögum, sjá grein Auðar G. Magnúsdóttur, „Ill er ofbráð reiði: tilfinn- ingar, saga og félagsleg þýðing reiðinnar í Njáls sögu“, Heimtur: ritgerðir til heiðurs Gunnari Karlssyni sjötugum, ritstj. Guðmundur Jónsson, Helgi Skúli Kjartansson og Vésteinn Ólason, Reykjavík: Mál og menning, 2009, bls. 50–63. HUGRÆN FRÆðI, TILFINNINGAR OG MIðALdIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.