Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 Umræða DV ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaöiö-Vísir útgáfufélag ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir RITSTJÓRAR: JónTrausti Reynisson og ReynirTraustason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og (gagnabönkum án endurgjalds. öll viötöl blaösins eru hljóðrituð. AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 7040. SANDKORN ■ Arna Schram, formað- ur Blaðamannafélags fs- lands, er snjall bloggari sem sér skemmtilega vinkla. Hún fjallar um þá áráttu fjölmiðla að taka viðtöl við Jón Baldvin Hannibalsson, íyrrverandi ráðherra, í hvert sinn sem hann kemur í heimsókn til íslands frá Spáni. f því samhengi bendir hún á fréttamann- inn fyrrverandi Árna Snævar sem starfar erlendis en dúkkar reglulega upp og þá gjarnan í fjölmiðlum. „Ég var að leita að Árna og númerinu hans um daginn og sendi smáskila- boð til eins fjölskyldumeðlims. Sá skrifaði til baka: „Árni er á landinu, kveiktu á einhverj- um ljósvakanum og þú finnur hann örugglega!"" ■ Annar ekki síður snjall bloggari er Össur Skarphéð- insson iðnaðarráðherra sem leyfir sér það sem honum dett- ur í hug hverju sinni. Pistill hans um Gísla Martein Bald- ursson vakti þjóðarathygli en þar hraunaði ráðherrann af grimmd yfir borgarfulltrúann. Pistillinn kom inn á bloggið aðfaranótt miðvikudags og fór strax í hámæli. Á miðvikudags- morgun birtist svo nýr pistill um það yndi sem hlytist af Food & Fun. Nánast einsdæmi er að ráðherrann bloggi svo títt og má víst telja að hann hafi haft veruleg óþægindi af pistl- inum um Gísla. ■ Brotthvarf Baldurs Guðna- sonar af forstjórastóli Eim- skips kemur ekki á óvart. Stóll hans hefur verið heitur undan- farið og vinsældir forstjórans innan fyrirtækis takmarkaðar. Baldur var hluti af þeim þotu- förmum sem fóru í lúxusferð á vegum Landsbankans til Míl- anó í fyrra- sumar. Þar var einnig Sigurjón Árnason, bankastjóri Landsbank- ans, sem er systurfyrir- tæki Eim- skips. Athygli vakti að þeim félögum lenti harkalega saman í ferðinni og þótti það vísbend- ing um hugsanlegt brotthvarf Baldurs. ■ Þorstcinn Már Baldvins- son, forstjóri Samherja, kom svo sannarlega með lúðra- þyt í stól stjórnarformanns Glitnis. Bankinn hefur orð á sér fyrir örlæti við stjórnend- ur og að horfa ekki í útgjöldin. En nú er orðin breyting þar á því nýi stjórnarformaðurinn lét það verða sitt fýrsta verk að skera niður sín eigin laun sem stjórnarformanns um nær helming úr rúmri milljón í 550 þúsund á mánuði. Laun ann- arra stjórnarmanna voru einn- ig skorin mjög niður. Þorsteinn Már er greinilega kominn til þess að gæta aðhalds. [l] Borgarstjóri afturhalds JÓNTRAUSTIREYNISSON RITSTJÓRISKRIFAR. „Afturluililsstcfnan sem Ólafurframfylgir... erslórskaðlegfyrirfjárhag og lífsgœði komandi kynslóða." Fólk í borginni og þjóðfélagið í heild sinni tapar peningum á mínútu hverri vegna uppbyggingar borgarinnar. Hún er of dreifð til þess að þar geti þrifist boðlegar almenningssamgöngur. Þéttleiki byggðarinnar er svipaður í Fellahverfí og í miðborginni. Borgin er án kjama. Þetta vita verslunarmenn við Laugaveg, sem grátbiðja borgaryfirvöld um að miðbærinn fái að þróast með þéttari byggð. Borgin vex í afmyndun vegna inngripa manna eins og Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra. Það eru menn eins og hann sem ríghalda í sérhagsmuni og tilfinningar, þvert gegn hinum veigamiklu sameiginlegu hagsmunum sem kalla á þéttingu byggðar. Afturhaldsstefnan sem Ólafúr framfylgir, án til þess bærs lýðræðislegs stuðnings, er stórskaðleg fyrir fjárhag og Iífs- gæði komandi kynslóða. Hann leiðir okkur á villigötur, flest nauðug, með því að drepa upp- byggingu miðborgarinnar. Það kostar tugmilljarða að halda flugvellinum í Vatnsmýri. Engin knýjandi þörf er fyrir hann að vera þar frekar en annars staðar í nágrenni borgarinnar. Vatnsmýrin er bjargræði borgarinnar, síðasta hálmstráið. Þar getur staðið háreist hverfi með blöndu atvinnu- og íbúðahúsnæðis, þannig að fjöldi fólks geti búið og starfað á sama stað. Ekki skortir eftirspurnina eftir því að búa í miðborginni. Verð á gömlum íbúðum miðsvæðis er mun hærra en á nýbyggingunum í úthverfúnum. Ástæðan er einföld: Það kostar einstaklinginn mun meira að búa í úthverfinu, vegna ferðakostnaðar. Sem dæmi kostar hátt í milljón krónur á hverju árí að eiga og reka tveggja milljóna króna bíl. Bensínverð mun ekki lækka, og margt bendir til þess að það muni margfaldast í nálægri framtíð, því olíuauðlindir heimsins takmarkast meira með hverjum deginum. Lífsgæði felast í því að geta gengið í vinnuna og geta nýtt sér almenningssamgöngur. Hvort sem við keppum að lifsgæðum eða hagkvæmni er næsta skref að þétta byggðina og þar með styrkja almenningssamgöngur.Skoðumlestiraffúllrialvöru og byggjum ekki einbýli eða úthverfi í Vatnsmýrinni, ef Ólafúr F. eftirlætur okkur hana einhvem daginn. POKERSPILARIMEÐ BARNSANDLIT s SVARTHÖFÐI varthöfði hefur yndi af hversl- ags spilamennsku og notar hvert tækifæri til að slá í spil með nágrönn- um og félög- um. Aldrei hefur hann þó náð svo langt að keppa um Berm- úda- skál eða á þeim stalli að hann sé velkominn við spilaborð Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra og Jóns Stein- ars Gunnlaugssonar, hæstaréttar- dómara og eins helsta hugmynda- fræðings vorra tíma. Svarthöfði hefur heldur ekki komist á póstlista Birkis Jóns Jónssonar al- þingismanns sem staðinn hefur verið að því að hagnast verulega á pókerspili og hefur yndi af því að dnasa línudans á mörkum laga og lögleysu. Það er reyndar undarlegt að þjóðin skuli ekki skilja að Birkir Jón þarf að fá útrás fyrir spennu- fíkn sína. Hann lifir örugglega fremur tilbreytingarlitlu lífi sem alþingismaður og há- skólanemi á fullum laun- um. Birkir Jón á að baki um og á örugglega eftir að láta að sér kveða í enn ríkara mæli. Hann var aðstoðarmaður Páls Péturssonar, fyrrver- andi félagsmálaráð- herra, og þeir félagar voru samstiga íað trufla ekki fjárstreymi til Byrgisins þar sem óhefðbundið starf á sviði meðferðar var stundað af kappi fremur en forsjá. Svarthöfði grípur gjarn- an í spil í vinnuskúrum með samstarfsmönnum og stundum á heimili sínu. Spilað er upp á matadorpen- inga eða baunir. Fjárhagurinn leyfir ekkert meira vegna þess hve taxtar verkalýðshreyfing- arinnar eru lágir. Stundum hafa baunirnar tapast en þeir dagar hafa komið að þær hafa beinlínis hrúgast upp. Þannig er lífið, skin og skúrir. Stundum skilar áhættan sér en stundum ekki. En í vinnu- skúrnum hefur Svarthöfði náð stöðugt betri tækni í að sýna engin svipbrigði þegar hann leggur baunirnar sínar undir. Það er lyk- ilatriði að mótspilar- arnir sjái ekki hvernig andstæðingunum er innanbrjósts. Þessi tækni Svarthöfða hefur vakið í senn athygli og öf- und félaganna. Þótt Svarthöfði nötri innra með sér eru andlits- drættirnir óhagganlegir, eins og hjá Clint Eastwood í eðalvestra. Birkir Jón Jónsson hefur þennan sama styrkleika og Clint og Svarthöfði þótt það sé af öðrum ástæð- um. Þingmað- urinn er með andlit sem er svo slétt, fellt og einlægt að það myndi sóma sér á hvaða barni sem er. Við spilaborðið kemur þetta sér örugglega vel þegar spilað er upp á búnt af fimmþúsundköllum. Hið geislandi andlit er alltaf eins með þessu glaðværa fasta brosi. Heið- arleikinn skín úr hverjum drætti þótt hið innra sé að finna sál hins óforskammaða pókerspilara. Andstæðingarnir eru sem berskjaldaðir þegar engin leið er að sjá hvort þing- maðurinn ungi sé með fullt hús eða tvennu. Og hann vinnur yfirleitt eins og fram kom í viðtölum við hann í gær. Svarthöfði hefði svo sannarlega gaman af því að fá Birki Jón til einvígis í vinnu- skúrnum þar sem harðir og áunn- ir andlættisdrættir hans myndu mæta ásjónu barnisins. Vandinn er hins vegar sá að Svarthöfði spilar aðeins upp á baunir og það er ekki boðlegt fyrir þingmanninn. „Já, umferðin á milli Reykjavíkur og Keflavíkur er mikil. Ég myndi hiklaust nýta mér þær ef þær væru fyrir hendi." Rafn Stefán Rafnsson, 29 ára sölumaður „Já, ég er mjög hlynntur þeim hugmyndum. Bílarnir eru að kæfa okkur. Ég ferðast nú minna til Keflavíkur en áður en myndi nýta mér þæreftll þess kæmi." Sigurður Þór Jónsson, 77 ára eftirlaunaþegi „Já, samgöngurnar á milli eru ekki nógu góðar. Þetta er framtíðin og þætti mérekki ólíklegt að við sjáum lestarsamgöngur á milli eftir 20 ár." Baldvin Páll Rúnarsson, 28 ára sölumaður „Mérflnnst sjálfsagt að skoða það. Samgönguþörfin ertil staðar, en það er spurning hvort þetta borgi sig bæði fjárhagslega og samfélagslega." Sigurður Steinarsson, 35 ára viðskiptaráðgjafi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.