Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Blaðsíða 4
Fréttir DV 4 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2008 mJL/ Rafmagnsleysi á Kjalarnesi Malarbíl var ekið með pallinn upp í háspennulínu sem orsak- aði tímabundið rafmagnsleysi á Kjalarnesi í gær. Viðgerð tók ekki langan tíma eða rétt rúma þrjá stundarfjórðunga og var rafmagn komið á aftur um fjögurleytið. Kom þetta títið við íbúa Kjalar- ness enda veðrið með eindæm- um gott. Flestir voru úti að leika og skemmta sér. Malarbíllinn skemmdi háspennulínuna en engum sögum fer af pallinum. með flösku Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær þrítuga konu, Duangnapha Wisetrit, í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfellda hkamsárás sem átti sér stað árið 2004. Konan var sakfelld fyrir að hafa slegið rúm- lega þrítugan karlmann í hnakk- ann með flösku með þeim afleið- ingum að hann fékk skurð. Óskar Bergsson, borgarfull- trúi Framsóknarflokksins, lét færa til bókar mótmæli gegn „tilhæfulausri uppsögn" Guð- mundar Þóroddssonar, for- stjóra Orkuveitu Reykjavíkur, í gær. Fram kemur í bókuninni að Sjálfstæðisflokkurinn og F-listinn beri fulla ábyrgð á uppsögninni. Fyrirtækin hafi mátt þola árásir og ófrægingarherferðir pólitískr- ar yfirstjórnar síðan flokkamir tveir tóku við stjórnartaumun- um í Orkuveitunni og REI. Þá segir Óskar að stjórnarformaður Orkuveitunnar hafi ekki rökstutt ákvörðun sína um uppsögn Guð- mundar. Hjónin Helga Júlíusdóttir og Gústaf Finnbogason hafa kvartað til bæjaryfirvalda Kópavogs eftir að nágranni þeirra gróf upp hluta af blómabeði þeirra á síðasta ári. Þau segja enga grenndarkynningu hafa farið fram áður en nágranninn fór að byggja hús við hliðina á þeim. Yfir þrjátíu ára gamlar aspir eru í hættu vegna málsins. GRÓFUPPBLÓMABEÐ „Við viljum bara réttlæti." VALUR GRETTISSON blaðamadur skrifar: valuriöidv.is „Trén eru öll að drepast," segir Gústaf Finnbogason, íbúi á Skjól- braut lla í Kópavogi, en nágranni hans, sem er að reisa hús þar við hliðina á, gróf upp hluta af beðinu á síðasta ári vegna framkvæmda. Hjónin Gústaf og Helga Júlíusdótt- ir eru afar ósátt við þetta og hafa sent bæjaryfirvöldum erindi vegna þessa. Þau vilja meina að granni þeirra hafi ekki verið með grennd- arkynningu áður en hann hóf fr am- kvæmdir og þar af leiðandi sé bygg- ingin í raun ólögleg. Sjálf vilja þau aðeins fá blómabeðið sitt bætt. Eða eins og Helga orðar það: „Við viljum bara réttlæti." Engin grenndarkynning Hjónin Gústaf og Helga hafa búið við Skjólbraut lla í tuttugu og átta ár. Þau byggðu húsið sjálf á sínum tíma og hafa hingað til unað sér vel. Það var svo síðasta sumar sem nágranninn hóf að byggja hús við Skjólbraut 13. Sjáif vilja hjónin Gústaf og Helga meina að enginn hafi verið látinn vita af fr amkvæmd- unum þar sem engin grennd- arkynning fór fram. Samkvæmt skipulags- og byggingarlögum ber landeiganda að kynna nágrönn- um fyrirhugaðar framkvæmdir eða deiliskipulagsbreytingu skriflega og skal þeim gefinn kostur á að tjá sig um málið innan ákveðins frests sem ekki má vera skemmri en 4 vik- ur. Slíkt var ekki gert við Skjólbraut að sögn Gústafs og Helgu. Gróf upp blómabeðið Við upphaf firamkvæmdanna var grafa notuð til þess að skera af blómabeði þeirra hjóna. Skaðinn er augljós og talsvert sjáanlegur enda standa rætur út úr sárinu. Talsverð- ur gróður var í beðinu og vildi Gúst- af meina að þar hafi Helga haldið úti skrautblómum áður en beðið var eyðilagt. Hjónin hafa óskað eftir því við bæjaryfirvöld Kópavogs að lóðamörkin verði mæld og í kjölfar- Ræturnar rofnar Rætut trjáa liggja slitnar í beðinu eftir ágang gröfu sem gróf í beðið. Hjónin Gústaf Finnbogason og Helga Júlíusdóttir vona að það rigni ekki því þá mun beöið falla inn á lóð grannans. r \ n j JlmS ið verði þeim á einhvern hátt end- urgreiddur sá skaði sem hefur orð- ið á beðinu. Bæjaryfirvöld vísuðu málinu til byggingarfulltrúa í upp- hafi maí síðasthðins. Tilfinningalegur skaði „Við viljum að það verði gengið almennilega frá þessu," segir Helga en bæði eru þau á níræðisaldri og segjast ekki hafa þrek eða þor tU þess að sækja rétt sinn fyrir dóm- stólum. Beðið er ekki sjón að sjá þessa dagana og lítið þarf til þess að það leki allt niður og eyðileggist endanlega því ekkert styður við það nágrannamegin. Að sögn Gústafs hafa þau hjón- in reynt að ræða við eiganda húss- ins en lítið hafi verið um svör. Þess vegna þurfa þau að horfa upp á trén deyja án þess að nokkuð verði gert. Þarna eru meðal annars heljarinn- ar aspir sem dóttir þeirra gróður- setti fyrir þrjátíu árum. Drepist þær er lítið hægt að gera tU þess að bæta skaðann. Vill almennilega úttekt „Mér skfist að húsið sé hærra en teikningar segja til um,“ segir Gúst- af sem tekur þó sérstaklega fram að hæðin plagi hann ekkert sérstak- lega. Aftur á móti þurfi menn að fara eftir lögum og reglum og þeir geti ekki einfaldlega byggt hærra en leyfilegt er. Ekki náðist í byggingafúUtrúann Gísla Norðdahl en hann er í fríi. Fyrirspurnir voru sendar á stað- gengU hans en engin svör höfðu borist fyrir prentun. Nágranni hjónanna er staddur erlendis og ekki náðist í hann þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir. HÚSEIGENDUR - HÚSBYGGJENDUR Viö getum bætt viö okkur verkefnum. Bjóöum upp á aihliöa þjónustu í byggingariðnaði nýsmíði og viöhaldsverkefni. Má þar nefna uppslátt, uppsteypu húsa og annara mannvirkja, endurnýjun þaka, viðgerðir utanhúss og klæöningar, endurnýjun glugga og hurða, smíöi innveggja, uppsetning lofta, smíöi sólpalla og fl. Gerum föst verðtilboö. Áratuga reynsla meistara og fagmanna. Sími: Gunnar Þór 891 6591 og 891 6590 Fyrirspurnir má einnig senda á netfangið alhlida@yahoo.com Bæjarstjórar ekki á einu máli um olíuhreinsistöð við Arnarfjörð: Óvissa um olíuhreinsistöð „Það eru 99,9 prósent líkur á því," segir Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri í Vesturbyggð, um líkurnar á því að ohuhreinsistöð rísi á Vestfjörðum. f sjónvarpsfréttum Ríkisútvarpsins í gær sagði Ragnar að nú biðu menn aðeins eftir niðurstöðu þeirra sem ætluðu að reisa verksmiðjuna. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á ísafirði, var ekki jafn viss og kollegi hans í Vesturbyggð þegar DV náði tali af honum. „Það hefur ekki enn fengist uppgefið hverjir eru fjárfest- ar. Eg sagði í vetur að ef þetta væru tíu punktar sem þyrfti að vinna að, þá værum við einhvers staðar á öðr- um punkti núna. Ég held að það hafi ekkert breyst," segir Halldór. Á fundi bæjarráðs fsafjarðar á mánudag var lagt fram bréf fiá fs- lenskum hátækniiðnaði þar sem greint var frá því að frekari athugan- ir á olíuhreinsistöð beindust nú að landi Hvestu í Arnarfirði. Aðspurð- ur hvað Hvesta hafi fram yfir Dýra- Qörð segh Halldór að landgæð- in virðist vera meiri í Hvestu. „Það virðist vera að landgæðin séu meiri í Hvestu en í Dýrafirði. Það er einn- ig meira skjól og betri siglingaleið. Á móti kemur að þar er miklu minni vinnumarkaður" segh Halldór en á því svæði eru tólf hundruð manns en í nágrenni Dýrafjarðar rúmlega fimm þúsund. einar@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.