Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNf 2008 NORÐURLAND DV Kappróður Þessir ungu sveinar æfðu kappróður fyrir keppni á sjómannadag á meðan meðiimir í björgunarsveitinni Strönd undirbjuggu skemmtiatriðin. Björgunarsveitin Strönd fór í mörg útköll í vetur: VEÐRIÐVAR ERFITTIVETUR Björgunarsveitin Strönd á Skaga- strönd sinnir hafsvæðinu frá Horni og út fyrir Staðartá. „Við erum býsna vel mannaðir," segir Bjarni Ottósson meðstjórnandi í sveitinni. „Á svona litlum stöðum standa allir saman og flestir sem vettlingi geta valdið eru í sveitinni." Þegar blaðamann bar að garði við höfnina á Skagaströnd voru nokkrir meðlimir sveitarinnar í óða önn að undirbúa hátíðarhöld sjó- mannadagsins. „HáU'ðin hérna er á laugardegi fyrir sjómannadag, með balli um kvöldið. Við erum að græja hérna stærðar drumb. Á hon- um verður koddaslagur þar sem sá Við höfnina Guðmundur, Bjarni, Kristján, Alex Þór, Magnús og Brynjar voru í óða önn að undirbúa skemmtiatriði sjómannadagsins. sem tapar endar í köldu baði," held- ur hann áfram. Strákarnir benda út fyrir höihina þar sem lítinn bát ber við sjóndeildarhring. „Þarna eru krakkarnir að æfa kappróður. Þetta verður hörkukeppni." Strákarnir segja að nokkuð mikið hafi verið um útköll í vetur enda hafi veður verið válynd. „Við þetta bæt- ist að við sjáum um Hveravelli inni á Kili og förum þangað aðra hverja helgi," bætir Kristján Guðjónsson við. Strönd hefur yfir tveimur bát- um að ráða og prýðilegum bílakosti, þar á meðal nýlegum Land Cruiser- jeppa með nauðsynlegustu breyt- ingum. Björgimarsveitin Strönd sinnir margvíslegum verkefnum, allt frá því að leita uppi hraktar rjúpna- skyttur og upp í að bjarga skips- áhöfnum í stórviðrum. Fjáröflun fyrir sveitina fer fram meðal sam- hentra bæjarbúa. „Það er haldinn basar með reglulegu millibili þar sem allir leggja eitthvað til. Svo sjá- um við náttúrulega um flugelda- söluna hérna þegar dregur nær áramótum," segir Bjarni. Á meðan björgunarsveitarmennirnir bisa við að koma trjádrumbinum í horf fyrir koddaslaginn liðast róðrarbáturinn inn í höfnina með taktföstum köll- um kafteinsins. • imr b. rr\(krc A /•■ IV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.