Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Blaðsíða 16
FERGUSON MEÐ AUGASTAÐ Á TVEIMUR Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, er aö fara á fullt í sumar- kaupunum en fyrstir á dagskrá eru Walesverjinn Aaron Ramsey og franski framherjinn Karim Benzema. Ramsey er 17 ára og leikur með Cardiff í ensku Championship-deildinni.Talið er að Cardiff hafi nú þegar samþykkt tilboð frá Arsenal og United og þarf því strákurinn að velja á milli. Þá ætlar Ferguson að eyða háum fjárhæðum til að klófesta Karim Benz- ema hjá Lyon. Benzema er einn eftirsóttasti framherji Evrópu en hann varð markakóngur í Frakklandi í ár. 16 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2008 Sport DV ROMA BIKARMEISTARI Roma varð (talskur bikarmeistari í knattspyrnu annað árið í röð á laugar- daginn þegar liðið lagði Inter, 2-1, í úrslitaleik. Varnarmaður- inn Phillip Mex- es skoraði fyrra mark Roma en Simone Perotta það síðara. Pele minnkaði mun- inn fyrir Inter sem lékán Zlatans Ibrahimovic i leikn- um Sömuleiðis var Roma án Frances- cosTotti og Mancinis. ARSENAL OGTOTTENHAM VILJA HENNESEY Arsenal ogTottenham berjast um starfskrafta Waynes Hennesey, hins velska markvarðarsem leikurmeð Wolves (ensku 1. deildinni. Fleiri lið ku vera á eftir markverðinum unga en Everton, Aston Villa og Middles- brough fylgjast náið með gangi mála hjá Hennesey. Hann er þegar búinn að leika tíu landsleiki fyrir Wales þrátt fyrir að vera einungis 21 árs að aldri. Sök- um þess hve eftirsóttur Hennesey er, er talið liklegt að 8 milljóna punda boð þurfi til þess að tryggja sér markvörð- inn unga. Ef það er verðið sem Wol- ves setur upp þykir liklegt að Arsene Wenger sé eini maðurinn sem tilbúinn ertil þess að spreða slíkri upphæð. CANNAVARO EKKIMEÐ A EM Fabio Cannavaro, fyrirliði knattspyrnu- liðs ftaliu, verðurekki með á EM 2008 eftir að hann skaddaði liðbönd í ökkla þegar hann lenti í tæklingu við Chiellini, leikmann Juventus, á æfingu landsliðsins. Chiellini grét þegar hann frétti af því að Cannavaro myndi missa af EM fyrir vikið. Cannavaro er ekki þekktur fyrir að kveinka sér undan hverju sem er og um leiö og hann byrjaði að„emja" í grasinu var Ijóst að kappinn myndi ekki verða með á mót- inu, sagði Alessandro Del Piero við fjöl- miðla á Italíu. Fregnir herma að gamla brýnið Christian Panucci sé líkegastur til að byrja í hjarta varnarinnar ásamt Andrea Barzagli. Marco Materazzi á við smávægileg meiðsli aö stríða. BOSTON VANN Á ÚTIVELLI Boston Celtics lagði Detroit Piston, 94- 80, í þriðja leik liðanna í úrslitum Aust- urdeildar NBA í fyrrinótt. Staðan er nú 2-1 fyrir Boston í einvígi liðanna en sigurinnvar ekki síst athyglis- verðurfyrirþær sakirað þetta var fyrsti útileikur- inn sem Boston vinnurí úrslita- keppninni. Bos- ton hafði áður en að leiknum kom tapað fyrir Detroit á heimavelli en það var einnig sá fyrsti sem það tapar í Boston í allri úrslita- keppninni. Það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki fer (úrslitin gegn annaðhvort San Antonio eða Lakers. Nasistahórurnar ekki nóg til að velta forsetanum af stalli: MOSLEY HÉLT VELLI Max Mosley verður áfram for- seti alþjóðasambands akstursíþrótta þrátt fyrir að hafa náðst á myndband í groddalegu kynlffi með hórum klæddum sem nasistar. Fundað var í höfuðstöðvum sambandsins í gær- dag en Mosley hafði beðið um að at- kvæðagreiðsla myndi fara fram til að ákveða framtíð hans. Atkvæðagreiðslan sýndi að Mos- ley hefur enn mikið traust en hann fékk 103 atkvæði gegn aðeins 55. Mosley sagðist eftir fundinn vera mjög ánægður með útkomuna en þessi 68 ára maður er sonur gamla breska fasistaleiðtogans sir Oswald Mosley. Ekki voru allir ánægðir með að Mosley héldi starfi en þýska aksturs- sambandið brýndi raust sína strax eftir atkvæðagreiðsluna og lýsti yflr mikilli reiði með útkomuna. „Við lýsum yflr mikilli sorg og óánægju með þá niðurstöðu að Max Mosley hafi haldið starfi sínu. Þessi úrskurð- ur sýnir hversu slæmt það er fyrir stærsta aksturssamband Evrópu að lá'.a sín mál liggja alltaf fyrir á heims- grundvelli," sagði talsmaður þýska sambandsins eftir fundinn. Formaður bandaríska aksturs- íþróttasambandsins, Robert Dal- benet, sagði fjolmiðlum frá þessu á tröppum höfuðstöðvanna í París í gær. Dalbelnet tók undir kvartanir Þjóðverjanna og lýsti sjálfur yfir mik- illi óánægju með að Mosley skyldi halda starfi sínu. Dalbenet gekk svo langt að segja möguleika á að hann dragi Bandaríkin út úr alþjóðasam- bandinu vegna úrskurðarins. tomas@dv.is ESSIEN EKKIÁ LEIÐTILINTER Umboðsmaður Michaels Essien segir hann ekki á leið til Inter Milan eins og sögusagnir hafa verið um að undan- förnu. Vitað er að Jose Mourinho er mikill aðdá- andi Essiens og hefur látið hafa eftir sér að vinnufram- lag kappans sé engu likt og hann sé besti miðjumaður heims.„Ég hef lesið um þetta (enskum götublöðum og séð orðróm hér og þar. Ég get hins vegar sagt það með vissu að Inter hefur aldrei gert til- raun til þess að kaupa Essien. Hann er mjög ánægður í London og á fjögur ár eftir af samningi sinum, því sé ég ekki í hendi mér að hann fari nokkuð," segir umboðsmaður Essiens. ''A'SUNG mobkU Thaksin Shinawatra, eigandi Manchester City, er tilbúinn að bjóða Brasilíumanninum Ronaldinho fúlgur fjár fyrir að koma til félagsins. Raunar myndi hann verða langlauna- hæsti leikmaður heims ef af þessum ólíklegu skiptum yrði. DV-sport fór yfir launahæstu leikmenn heims og velti vöngum yfir nútimaknattspyrnu. VIÐAR GUÐJÓNSSON bladamaður skrifar: Thaksin Shinawatra, eigandi Manchester City, á sér þá ósk heit- asta að fá brasilíska undrið Ronald- inho til félagsins. Talið er að hann sé tilbúinn að borga knattspyrnumann- inum stórtennta 200 þúsund pund í vikulaun en það jafngildir um 30 milljónum íslenskra króna á viku. Vart þarf að taka það fram að brosmildi sambadansarinn myndi verða launahæsti leikmaður heims og jafnframt taka fram úr Brasilíu- manninum Kaka sem launahæsti leikmaður heims. Laun Ronaldinhos hjá Barce- lona eru ekkert slor en hann fær 8,52 milljónir evra í árslaun en það jafn- gildir um milljarði íslenskra króna. Hér ber að nefna að nefna að ein- ungis er um að ræða þær tekjur sem hann fær frá félaginu. Ofan á þetta bætast svo auglýsingatekjur sem eru stór hluti tekna hans. Einungis samlandi hans Kaka er með hærri árslaun frá félaginu sínu en AC Milan borgar honum 9 millj- ónir evra eða tæplega 1,1 milljarð króna á ári. Ef svo ólíklega vildi til að Ronald- inlio fari til Manchester City og fengi 200 þúsund pund í vikulaun verð- ur hann langlaunahæsti leikmaður heims með 10,4 milljónir punda í árslaun eða tæplega 1,6 milljarða ís- lenskra. Barcelona samþykkti tilboð Manchester City fyrir um mánuði en þá afþakkaði Ronaldinho samninga- viðræður við City þar sem miklar lík-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.