Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Blaðsíða 49
DV Sport MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2008 49 ACOUSTA HAFNAÐIARSENAL Lautaro Acosta, nýr liðs- maður Sevilla, segist hafa hafnað því að fara til Arsenal þar sem hann vildi feta í fótspor Diegos Maradona og spila á Spáni. Sevilla keypti hann á fimm milljónir punda í síðustu viku. Acousta er tvítugur Argentínumaður sem vakið hefur nokkra athygli með Atletico Lanus í heimalandinu.„Það hefur löngum verið draumur minn að spila í sama landi og Marad- ona gerði. Ég hef séð marga leiki í spænsku knattspyrnunni og ég mun ekki eiga í miklum vandræðum með að laga minn venjulega leik að þeim spænska," segir Acousta. GUARDIOLA LANGARITREZEGUET Nýr stjóri Barcelona, Josep Guardiola, ætlar sér að fá markamaskínuna David Trezeguet samkvæmt La Stampa sem er dagblað á Spáni. Juventus fékk nýlega Amauri frá Palermo og talið er að hann muni annað- hvort slá Trezeguet eða Alessandro Del Piero úr byrjunarliðinu. Fyrir vikið ku Trez- eguet vera farinn að kíkja í kringum sig en hann var ekki valinn í franska landsliðs- hópinn fýrir EM. Hann þykir vera afbragðs staðgengill Samuels Et'oo sem líklega er á leið frá Barcelona. Guardiola ku vera tilbúinn að bjóða háar fúlgur (Trezeguet. LESTUNUNA SPORTIÐA DV.IS! ur voru á því á þeim tímapunkti að hann væri á leið til AC Milan. Ýms- ar forsendur hafa breyst síðan þá þar sem forráðamenn AC Milan segja að félagið hafl ekki bolmagn til þess að ganga að uppsettu kaupverði Barce- lona og launakröfum Ronaldinhos. Það hefur hins vegar Manchester City sem jafnframt er í samstarfi við Nike en Ronaldinho er á samningi hjá fyrirtækinu og enginn skal van- meta það hvernig viðskiptasambönd stjórna í knattspyrnuheiminum. Kaka hæstur - Bent í nítjánda sæti Ronaldinho er sem stendur næst- launahæsti leikmaður heims. Hér fyrir neðan er listi yfir 25 launahæstu leikmenn heims í mars árið 2008. Á listanum eru nokkur athyglisverð nöfn og upp úr stendur að Darren Bent, leikmaður Tottenham, er í m'tj- ánda sæti yfir launahæstu leikmenn heims, eða sæti á undan Carloz Te- vez, leikmanni Manchester Unit- ed. Iker Cassillas hjá Real Madrid er launahæsti markvörðurinn. John Terry hjá Chelsea er launahæsti varnarmaðurinn og Frank Lampard í Chelsea er launahæsti miðjumað- urinn. Athygli vekur að David Beckham, sem er launahæstur þegar auglýs- ingatekjur eru reiknaðar með, er í 45. sæti yfir launahæstu leikmenn heims með 4,5 milljónir evra í árslaun. Árslaun 20 launahæstu leikmanna heims 1. Ricardo Kaka (ACMilan) 1,1 milljarður króna 2. Ronaldinho Gaucho (Barcelona) 1 milljarður króna 3. Frank Lampard (Chelsea) 974 milljónir króna 4. John Terry (Chelsea) 974 milljónir króna 5. FernandoTorres (Liverpool) 945 milljónirkróna 6. Andriy Shevchenko (Chelsea) 931 milljón króna 7. Michael Ballack (Chelsea) 931 milljón króna 8. Cristiano Ronaldo (Manchester Utd) 917 milljónir króna 9. Thierry Henry (Barcelona) 917 milljónirkróna 10. Steven Gerrard (Liverpool) 917 milljónir króna 11. Didier Drogba (Chelsea) 881 milljón króna 12. Wayne Rooney (Manchester Utd) 874milljónirkróna 13. Iker Casillas (Real Madrid) 841 milljón króna 14. Michael Owen (Newcastle Utd) 832 milljónirkróna 15. Sol Campbell (Portsmouth) 788 milljónirkróna 16. Raul Gonzalez (Real Madrid) 766 milljónirkróna 17. Ruud Van Nistelrooy (Real Madrid) 766 milljónir króna 18. Rio Ferdinand (Manchester Utd) 723 milljónirkróna 19. Darren Bent (Tottenham Hotspur) 709 milljónir króna 20. Carlos Tevez (Manchester Utd) 702 ftANSlOt4 / 600 milljóna króna skuld neyðir fótboltalið úr deildarkeppni: GRETNA HÆTT VEGNA SKULDA Skoska liðið Gretna er hætt í skosku deildarkeppninni vegna fjár- hagsörðugleika. Gretna lék í skosku úrvalsdeildinni síðustu ár en féll í ár þegar það endaði langneðst, 27 stig- um á eftir næsta liði. Það var neytt niður í 3. deildina vegna peninga- skorts en vegna skulda félagsins, sem nema 600 milljónum króna, sér félagið sér ekki fært að halda áffam í skoskri deildarknattspyrnu. Gretna er ekki ýkja gamalt félag, aðeins 52 ára. Það lék fyrst í ensku deildinni en fékk inngöngu í skosku 3. deildina árið 2002. Eftir það lá leið- in ekkert nema upp á við. Það vann 3., 2. og 1. deildina á fyrstu þremur árunum með glæsibrag. Á þessum þremur árum skoraði liðið 297 mörk þarf af 130 tímabilið 2004-2005. Það vakti hvað mesta athygli á sér 2006 þegar það komst í úrslit skoska bikarsins en það ár var ævintýri lík- ast fýrir félagið. Það þótti mörgum ffábært afrek að komast í undanúr- slit bikarsins það ár en liðið lék þá í neðri deildunum. Það gerði sér lítið fyrir og lagði Dundee, 3-0, en þurfti að sætta sig við tap gegn Hearts í úr- slitum í vítaspymukeppni. Þar sem Hearts fékk Evrópusæti í gegnum deildina það sama ár fór Gretna í Evrópukeppni sem neðri deildar lið en tapaði í fyrstu umferð gegn liði frá frlandi. Gretna komst svo upp í skosku úr- valsdeildina þar sem það hefur leik- ið síðustu t\'ö ár en nú er draumnum iokið. Skoska knattspyrnusamband- ið sá sér ekki annað fært en að senda Gretna niður í 3. deildina aftur þar sem það gat ekki gefið ákveðna skýrslu um hvernig það ætíar að hag- ræða sínum fjármálum. Liðið stend- ur svo illa að 600 milljóna króna skuldin er einfaldlega of mikil og mun því liðið leika í utandeildinni á næsta ári. Skoska sambandið leitar nú eft- ir nýju liði í 3. deildina og hver veit nema annað lið í líkingu við Gretna mæti til leiks. tomas&dv.is MOLAR FRAM VANTAÐI MARKIÐ FRÁ JÓNI Fram tapaði, 2-0, fyrir KR í 5. umferð Landsbankadeildarinnar í fyrradag. Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, sagði íviðtölum eftirleikað Fram hefði átt að vera yfir í hálfleik en þarleiddi KR, 1- 0. Fram vantaði sárlega Jón Þor- grím Stefáns- son sem hefur verið meiddur frá því hann fór út af í fyrsta leik gegn Fylki í maí. Jón hefur nefnilega einstakt lag á að skora í Frostaskjóli en hann hefur sett mark þar næstum á hverju ári. Með FH skor- aði hann í Frostaskjóli 2003 og 2005 en árið 2006 lék hann í 1. deild með HK. Þegar hann kom svo í Frostaskjól með HK á síðasta tímabili tókst honum einnig að skora. Jón Þorgrímur skoraði einmitt (fýrsta leik sínum með Fram í ár gegn Fylki sem var nálaegt því að vera fyrsta mark sumarsins. Sá heið- ur féll þó í hlut Prince Rajcomar hjá Breiðabliki. Jón fór út af vegna meiðsla í þeim leik og hefur verið frá síðan. FH HALDIÐ HREINU FJÓRUM SINNUM FH er komið aftur á toppinn í Lands- bankadeildinni eftir 3-0 sigur sinn á Grindavík í fyrradag. FH hefur enn ekki tapað en það hefur gert eitt jafntefli og sigrað fjór- um sinnum. Það sem meira er erað'FH hefur haldið hreinu í fjórum leikjum affimm. Öllum nema leiknum gegn Þrótti þar sem það fékk á sig fjögur mörk.Talið var fyrir mót að vörnin yrði vandamál fýrir FH í sumar þar sem það hefur orðið fýrir skakkaföllum þar vegna meiðsla ofan á annað. Það virðist lítið hafa aftrað bikarmeistur- unum sem spila góða vörn og gefa fá færi á sér. FH hefur nú verið á toppi Landsbankadeildinnar í 62 af síðustu 66 umferðum. SKRÁNING HEFST Á SUNNUDAGINN Skráning á (slandsmót 35 ára og eldri í golfi hefst á sunnudaginn og Iýkur20. júní. Mótið ferfram 25.-28. júní á Kiðja- bergsvelli. Leikfýrirkomulagið er högg- leikur en keppt er bæði í karla- og kvennafokki. Leiknarverða 54holuráfjór- um dögum en keppendum verður skipt upp í flokka þegar skrán- ingu er lokið. Hámarks grunnforgjöf karla er 24 en 28 hjá konum. Mikill undirbúningur hefur verið á Kiðjabergsvelli fýrir mótið en þetta er stærsta mót sem þar hefur verið haldið. Skráningargjald á mótið er 8.000 krónur og fer skráningin fram á golf.is ATHYGLISVERÐIR FYRIRLESTRAR (S(, menntamálaráðuneytið og íþróttanefnd ríkisins bjóða upp á tvo athyglisverða fyrirlestra föstu- daginn ó.júní næstkomandi klukkan 15.00 í E-sal fþrótta- miðstöðvarinn- aríLaugardal ' (ihijfeg .Annarsvegar er um að ræða fýrirlestur um brottfall úr íþróttum sem verður í umsjá Jari Lámsá frá Finnlandi og hins vegarfýrirlesturum hvernig finna megi og halda í leiðtoga fýrir barna- og unglingastarf sem Karin Redelius frá Svíþjóð sér um. Aðgangur erókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.