Frjáls Palestína - 01.07.2001, Blaðsíða 6

Frjáls Palestína - 01.07.2001, Blaðsíða 6
FRJÁLS PALESTÍNA 7 Þótt margir segi mérað umfjöllun ís- lenskra fjölmiðla um átökin í Palestínu og Ís- rael sé hlutlausari og réttlátari í dag en hún var fyrir nokkrum árum, þegar fyrri Intifada upp- reisn Palestínumanna stóð yfir, er ég alls ekki sáttur. Þó fréttir frá svæðinu litist ef til vill minna af áróðri Ísraela, blaðamenn virðist al- mennt sæmilega upp- lýstir og athyglinni sé stundum beint að málstað Palestínumanna er ýmislegt í ólagi. Fjölmiðlar hér- lendis fylgja sömu línu og flestir fjölmiðlar á Vesturlöndum, þar sem ýmsu sem viðkemur óhæfuverkum Ísraela í Palestínu er sleppt og oft látið í það skína að barátta Palestínumanna byggist á hryðjuverkum á meðan Ísraelar reyni að viðhalda stöðugleika á svæðinu. Það vantar ekki að nóg sé fjallað um nýjustu uppreisn Palestínumanna og átökin á herteknu svæðunum í fjölmiðlum. Nánast daglega er farið yfir það hve margir hafi verið skotnir og særðir síðasta sólarhringinn og smám saman verður maður ónæmur fyrir öllum þeim fjölda barna, unglinga og fullorðinna sem drepinn er og limlestur. Minna er hins vegar fjallað um ástæður átakana og þá staðreynd að uppreisn Palestínumanna beinist gegn kúgun og hernámi Ísraelsmanna í heimalandi þeirra sem staðið hefur yfir í 34 ár á Vesturbakkanum og Gazasvæð- inu. Einnig gengur umfjöllun fjöl- miðlanna oft út á að allt byggist á því að Palestínumenn taki því sem Ísraelar bjóða í friðarumleit- unum og gefi þar með eftir kröfur sínar um að fá aftur hluta af landi sínu (Vesturbakkinn og Gaza eru 22% af upprunalegri Palestínu) til umráða, að brottreknir Palestínu- menn fái að snúa aftur til heimalands síns og að austurhluta Jerúsal- ems (sem ekkert ríki jarðar viðurkennir sem hluta af Ísrael) verði skilað. Í raun byggjast kröfur Palestínumanna einfaldlega á því að Ís- raelar fari eftir alþjóða- lögum og samþykktum S.þ. þar til friður verði saminn sé hins vegar sjálfsagt að Palestínumenn hafi sig hæga og spilli ekki friðarferlinu með upp- þotum og hryðjuverkum. Palest- ínska þjóðin er ekki að ana út í andspyrnu við ofurefli Ísraela að gamni sínu. Þjóðin hefur fengið nóg af hernáminu og rís því upp gegn kúgurum sínum. Það er athyglisvert að fylgjast með því orðalagi sem fjölmiðlar nota þegar fjallað er um átökin í Palestínu og Ísrael. Á meðan Pal- estínumenn eru „skotnir til bana“ eða „felldir“ af „Ísraelskum öryggisveitum“ eða hermönnum eru Ísraelsmenn án undantekn- inga „myrtir“. Einnig er gerður mikill munur á óhæfuverkum Ís- raela og Palestínumanna. Það skiptir litlu máli hve hart Ísra- elska hernámsliðið gengur gegn óbreyttum borgum og hversu marga þeir skjóta, limlesta eða sprengja m.a. með eldflaugaárás- um úr herþyrlum og sprengju- vörpum á íbúðarbygðir. Talað er um „aðgerðir Ísraelsmanna“ eða „harðar aðgerðir“ þegar hrotta- skapurinn er hvað mestur. Á meðan eru árásir palestínskra hópa, sem stimplaðir eru sem „öfgamenn“ á íbúðabyggðir í Ísra- el kölluð „hryðjuverk“. Mótmælin í Reykjavík Þegar fyrstu mótmælin gegn fjöldamorðunum í Palestínu og Ísrael voru haldin hér á landi um miðjan október 2000 höfðu rúm- lega 70 Palestínumenn verið myrtir. Viku síðar, við næstu mót- mælastöðu, voru morðvígin orðin 90. Margir fjölmiðlar sáu sér ekki fært að birta tilkynningu eða segja frá fyrirhuguðum mótmælum og reyndist vera minna mál að lýsa eftir vitnum af árekstri á kyrr- stæðri bifreið en að láta fólk vita af mótmælum gegn voðaverkum Ís- raelsmanna. Ekki þýðir að vera bitur út af því, enda tókust báðar mótmælagöngurnar mjög vel. Verra er hins vegar hvernig um- fjöllun fjölmiða um mótmælin var háttað. Í fyrri mótmælunum kveikti ungur Palestínumaður í eftirlík- ingu af ísraelska fánanum. Hann er búsettur á Íslandi og horfir á fjölskyldu sína og vini þjást við hernám Ísraela í heimalandi sínu. Fyrir vikið gerðu langflestir fjölmiðlar mótmælunum skil með ósmekklegri æsifréttamennsku og Sjónvarpið sagði í inngangi fréttar um þau að nú væru átökin á Vesturbakkanum og Gaza kom- in til Íslands. Hvað er að gerast?! Eru morð og limlestingar á fólki allt í einu orðin sambærileg við fánaíkveikju á Laugaveginum? Þar sem kröfur í báðum mót- mælunum, fyrir sjálfsögðum sjálfsákvörðunarrétti Palestínu- manna og gegn fjöldamorðum Ís- raelshers, komust ekki almenni- lega til skila í fjölmiðlum er rétt að þær komi fram hér. Kröfurnar voru, og eru enn, þessar: *„Að Ísraelsstjórn stöðvi blóðbaðið þegar í stað!“ *„Að Ísrael dragi her sinn til baka og skili öllum herteknum svæð- um, þar á meðal Jerúsalem!“ *„Að palestínskir flóttamenn fái að snúa heim og fái skaðabætur fyrir það sem þeir hafa misst!“ *„Að allir pólitískir fangar verði tafarlaust látnir lausir!“ *„Að gengið verði til samninga um raunverulegan frið sem byggist á tilverurétti beggja þjóða, álykt- unum Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalögum!“ Á síðari fundinum var því bætt við að „ríkisstjórn Íslands slíti öll tengsl sín við Ísrael.“ Eldar Ástþórsson Átökin í Pal- estínu komin til Íslands? Undarleg um- fjöllun íslenskra fjölmiðla Eldar Ástþórs- son skrifar

x

Frjáls Palestína

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls Palestína
https://timarit.is/publication/1150

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.