Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 2

Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 2
2 Bestu þakkir fá: Árgangur 1966 Berglind Agnarsdóttir Björn Jónsson Bragi Bergþórsson Erlingur Jóhannesson Gígja Sólveig Guðjónsdóttir Guðrún Gunnarsd. Michelsen Guðrún Íris Valsdóttir Grétar Helgi Geirsson Helena Stefánsdóttir Ingunn Þráinsdóttir Jóhanna Kristín Hauksdóttir Jónína Óskarsdóttir María Óskarsdóttir Óskar Andri Óskar Þór Guðmundsson Serge Lambert Sindri Már Smárason Sólveig Eiríksdóttir Sólveig Þorleifsdóttir Vilborg Björnsdóttir Vilborg Eiríksdóttir Vilborg Elísdóttir Vilborg Friðriksdóttir Vilberg Marinó Jónasson Þórhildur Helga Þorleifsdóttir Þórunn Guðmundsdóttir og síðast en ekki síst þeir sem gera Fáskrúðsfjörð snyrtilegri ár frá ári og allir þeir sem lagt hafa hönd á plóg við undirbúning Franskra daga frá upphaf i. Blaðið og eldri blöð má nálgast á timarit.is undir Franskir dagar Blað Franskra daga, 14. árgangur 2016 Útgefandi: Franskir dagar Ritstjóri: Albert Eiríksson, albert.eiriksson@gmail.com Umbrot og prentun: Héraðsprent Forsíðumynd: Hafdís, hinn nýi og glæsilegi björgunarbátur Björgunar- sveitarinnar Geisla og hluti sjóflokks sveitarinnar. Frá vinstri: Ólafur Atli Sigurðsson, Hörður Árnason, Sigurður Jón Ragnarsson og Hans Óli Rafnsson. Í stýrishúsinu sést glitta í Óskar Þór Guðmundsson. Mynd: Jóhanna Kr. Hauksdóttir, júní 2016. SECURITAS / FJARÐANET BÍLAFELL FELLABÆ / MANNVIT ÞÖKKUM EFTIRTÖLDUM AÐILUM STUÐNINGINN VIÐ FRANSKA DAGA Frá vinstri: Oddrún Ósk Pálsdóttir, Katrín Lea Hjálmarsdóttir, María Ósk Óskarsdóttir, Bjarnheiður Helga Pálsdóttir, Elsa Guðjónsdóttir og Eva Ösp Örnólfsdóttir. Á myndina vantar Guðbjörgu Steinsdóttur, Elvu Rán Grétarsdóttur, Maríu Björk Stefánsdóttur og Arnfríði Hafþórsdóttur. Mynd: Steinn B. Jónasson. Kveðja ritstjóra Margir þekkja hve sjálfboðaliðastarf getur verið gef- andi. Bæjarhátíðir í minni sveitarfélögum ganga vel vegna þess að fólk leggur þeim lið á fjölbreyttan hátt. Við Fáskrúðsfirðingar getum svo sannarlega verið stolt af okkar Frönsku dögum sem hafa vaxið og dafnað í tvo áratugi. Á þeim tíma hefur bærinn tekið stakkaskiptum. Í aðdraganda Franskra daga brettir fólk upp ermar, tekur hressilega til og fegrar, svo eftir er tekið langt út fyrir fjórðunginn. Engum er hollt að sitja lengi og telja sig ómissandi. Allt hefur sinn tíma og maður kemur í manns stað. Þetta er níunda og síðasta blaðið sem ég ritstýri. Það hefur verið gefandi að taka þátt í að skrásetja söguna. Allir hafa verið boðnir og búnir að skrifa greinar, veita viðtöl, lesa yfir og deila myndum og minn- ingum. Margt smátt gerir eitt stórt. Um leið og ég þakka öllum sem aðstoðað hafa við blaðið, óska ég gestum ánægjulegra Franskra daga og hátíðinni alls hins besta um komandi ár. Með þakklæti sjálfboðaliðans í hjarta geng ég nú til annarra verka og þakka fyrir mig. Albert Eiríksson Kveðja frá undirbúningshópnum Ágætu Fáskrúðsfirðingar og gestir, velkomnir á Franska daga 2016. Í ár höldum við okkar 21. Frönsku daga á Fáskrúðsfirði til að minnast veru franskra sjómanna á Íslandsmiðum og eins og undanfarin ár er von á góðum gestum í heimsókn í fjörðinn fagra. Að undirbúningi hátíðarinnar í ár hefur staðið samhentur hópur sjálfboða- liða og verður þeirra framlag til hátíðarinnar seint fullþakkað því í þessum málum gerist ekkert að sjálfu sér. Hátíðin verður fjölbreytt að venju og byggð upp með svipuðu sniði og verið hefur um árabil. Margir dagskrárliðir hafa unnið sér fastan sess og er það vel, en mest er þó um vert að heimamenn og gestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi og skemmt sér saman því maður er jú manns gaman. Með von um að þú, lesandi góður, sem og allir aðrir gestir njóti hátíðarinnar. Góða skemmtun. Fyrir hönd undirbúningshóps Franskra daga, María Óskarsdóttir. Franskir dagar Les jours français

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.