Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 37

Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 37
37 Franskir dagar Les jours français George Walker Fyrstur til að varpa ljósi á jarðlög og uppbyggingu Austurlands var breski jarðfræðingurinn George P. L. Walker. Hann kom fyrst til Íslands árið 1954 og kom reglulega aftur í 11 ár í rannsóknarskyni. Hann skrifaði margar greinar um athuganir sínar og kortlagði meðal annars Breiðdalseldstöðina. Á Breiðdalsvík er Breiðdalssetrið í Gamla kaupfé- laginu. Þar er að finna safn þar sem meðal annars er hægt að sjá skýrslur, kort og dagbækur úr fórum Walkers ásamt fræðslu um íslenska jarðfræði og þá sérstaklega jarðfræði Austurlands. Jarðlagahalli Jarðlagahalli á Austfjörðum er ríkjandi til vest- urs. Jarðlög á Íslandi halla oftast inn að gosbelti þar sem farg ungra hrauna þrýsta landinu niður þannig að þau halla inn undir gosbeltið. Hallinn er mestur við annesin eða allt að 10 gráður og minnkar inn firðina. Á heiðunum er hallinn um 6 til 8 gráður og yngstu jarðlögin eru því sem næst lárétt, líkt og kring um Snæfell, en þar er hallinn 1 til 4 gráður. Eldstöðvar Megineldstöð er staður þar sem kvika kemur upp og er tengd kvikuþró eða kvikuhólfi neðar í skorpunni. Fjölmargar megineldstöðvar hafa verið á Austurlandi sem hafa nú grafist undir hraun. Þar á meðal er Reyðarfjarðareldstöð, Breið- dalseldstöð, Álftafjarðareldstöð, Þingmúlaeld- stöð og Barðsneseldstöð. Þessar eldstöðvar eru allar kulnaðar en voru virkar á tertíer tímabilinu. Reyðarfjarðareldstöð er sú megineldstöð sem næst er Fáskrúðsfirði og menjar hennar dreifast þvert á firðina frá Stöðvafirði allt norður í Norð- fjörð. Reyðarfjarðareldstöð gaus með hléum og af mismiklum krafti og myndaði meðal annars Kumlafell sem er innst í Eyrardal, suðvestur af Sandfelli og Örnólfsfjall sem er á Norðurbyggð- inni, fyrir ofan Brimnes. Ekki er vitað með vissu hvar miðja eldstöðvarinnar var nákvæmlega enda geta kvikuhólf verið misstór, eða allt að nokkrum kílómetrum að breidd, lögun getur verið mismun- andi og mis erfitt að greina ummerki þeirra vegna rofs. Hins vegar eru til jarðfræðileg fyrirbæri sem gefa vísbendingar um nálægð miðju eldstöðvar, dæmi um það er meðal annars silfurbergsnáman í Eskifirði og Rauðafell í Berutindi. Rauðafell er rhýólítgúll sem myndaðist þegar seig, súr kvika braust upp á yfirborðið, hrúgaðist upp yfir gosop- inu og myndaði keilulaga fjall. Í lok gostímabils Reyðarfjarðareldstöðvarinnar hófst stórt gos þar sem kvika var bæði basísk og súr. Þetta gos kom upp um tvær samsíða sprungur beggja vegna Fáskrúðsfjarðar og leifar frá því koma fyrir í Gráfelli, austan við Stöðvaskarð, í Ketti, Kappeyramúla og Ljósafjalli við Gilsárdal. Sandfell Sandfell er eitt helsta einkenni Fáskrúðsfjarðar og sker sig úr landslaginu með sínum ljósa lit. Myndun Sandfells er talin hafa byrjað fyrir rúmum 11 til 12 milljón árum, þegar kvika úr Reyðarfjarðareldstöðinni tróðst upp undir jarð- lög sem þar voru fyrir. Kvikan hefur verið svo rúmmálsmikil að hún lyfti jarðlögunum upp, án þess þó að ná sjálf upp á yfirborðið. Talið er að þykkt jarðlaganna hafi verið meira en 500 metrar. Með tíð og tíma hafa jarðlögin veðrast og rofnað og eftir stendur Sandfell eins og við þekkjum það í dag. Slík jarðmyndun kallast bergeitill og er undirflokkur gangbergs. Bergeitillinn í Sand- felli er talinn vera um 600 metra þykkur og er eitt besta dæmi um bergeitil á norðurhveli jarðar frá þessum tíma. Kappeyrarmúli og Gilsárdalur Kappeyrarmúli myndaðist þegar aðfærsluæð frá Reyðarfjarðareldstöðinni náði upp á yfirborð þar sem Kappeyrarmúli er í dag. Aðfærsluæðin gaf kvikunni greiða leið upp á yfirborð og fór að hlaða upp hraunlögum. Tvö lög eru í Kappeyramúla. Neðra lagið er súrt og er um 90 metra þykkt. Ofan á því er blandað berg sem er bæði súrt og basískt og er um 52 metrar að þykkt. Í Gilsárdal er að finna bæði súrt og basískt berg og þar er einnig að finna um 40 metra þykkan samsettan gang. Talið er líklegt en óstað- fest að hér sé um aðfærsluæð Kappeyramúla að ræða. Berggangar Marga bergganga er að finna á Austfjörðum. Berggangar myndast þegar kvika storknar í að- færsluæðum eldstöðva eða fyllir upp í sprungu í hraunlögum. Berggangar eru því alltaf yngri en grannbergið. Berggangar eru ýmist lóðréttir á hraunlögin og kallast gangar, eða láréttir og kall- ast þá laggangar eða sillur. Hraunlög í kring um gangana veðrast oft hraðar en gangarnir sjálfir því bergið í þeim er þéttara og veðrast því ekki eins auðveldlega. Berggangar líkjast veggjum sem bæði standa stakir eða skaga út úr fjöllunum, þeir geta verið misþykkir en eru yfirleitt þynnri en 10 metrar. Víða er hægt að rekja bergganga þvert á firði og sést það einna best í fjöruborði beggja vegna fjarð- anna. Á Austfjörðum er einnig að finna samsetta ganga, en þá treðst kvika annarrar gerðar upp í gegnum eldri berggang. Þeir verða því meira en 10 metrar á breidd og oft í tveimur litum. Dæmi um samsetta ganga er hægt að finna ofarlega í árfarvegi Gilsár líkt og áður sagði og við Streitis- hvarf í Breiðdal. Skessutúff Stuðlaheiði liggur milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar. Þar er að finna víðáttumikið, súrt harnað gjóskulag sem kallast á fræðimáli túff. Túfflagið er ljóst að lit og kennt við fjallið Skessu sem er á heiðinni og kallast því Skessutúff. Flat- armál þess er meira en 430 ferkílómetrar og með- alþykkt þess er um 6 metrar. Talið er að túfflagið sé frá Breiðdalseldstöð og hafi myndast í einu stóru eldgosi fyrir meira en 8 milljón árum síðan þegar virkni Breiðdalseldstöðvarinnar var að byrja. Samsettur gangur í Gilsárdal. Samsettur gangur við Streitishvarf í Breiðdal.

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.