Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 38

Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 38
38 Franskir dagar Les jours français Holufyllingar Holufyllingar eru steindir sem fallið hafa út úr vatni eða í gufu í holrúmum í bergi. Úrkomuvatn seitlar niður í berglögin og því dýpra sem það fer og heitara sem það verður leysir það bergið upp og til verður vatnslausn með þessum uppleystu efnum. Þegar vatnslausnin kólnar falla efnin úr henni og nýjar steindir, síðsteindir, verða til í holum og glufum í berginu. Þessar steindir eru kallaðar holufyllingar. Zeólítar (geislasteinar) Zeólítar er flokkur holufyllinga sem eru mjög al- gengir á Austfjörðum og oft kallaðir geislasteinar. Walker skýrgreindi og teiknaði upp zeólítabelti í fjöllum á Austfjörðum. Zeólítar eru oft geisla- eða nálalaga og er þeim skipt í flokka eftir útliti þeirra; geislazeólítar eða geislasteinar, blaðzeólítar og teningszeólítar. Orðið zeolíti er dregið af gríska orðinu zeo-liþos sem merkir suðusteinn en það er vegna þess að vatnið sem er í zeólítunum er laust bundið og það þarf ekki mikla upphitun til þess að þeir bólgni út og vatnið „sjóði“ úr þeim. Silfurberg Silfurberg er eitt afbrigði kalsíts sem er ein al- gengasta holufyllingin hér á landi. Það er sjald- gæft út í heimi og er líka kallað Iceland spar. Þetta er tær kristall sem hægt er að kljúfa í ská- teninga/samsíðunga og helsti eiginleiki þeirra, sem hefur komið því á kort vísinda, er svonefnt tvöfalt ljósbrot sem nýttist til dæmis við smásjár- rannsóknir á steindum. Smá- sjár með austfirsku silfurbergi eru taldar hafa verið undir- staða margra rannsókna og uppgötvana sem veitt voru Nóbelsverðlaun fyrir. Í Helgustaðanámu í Eskifirði var að finna silfurberg í miklu magni. Vegna umfangs bergs- ins hefur eflaust mikið magn vatns farið um bergið og er það ein vísbending um nálægð við miðju megineld- stöðvar. Mulningur sem varð afgangs við námuvinnslu var nýttur með því að bæta honum við annan mulning og blandan svo notuð til að steina byggingar, þar á meðal Þjóðleikhúsið. Helgustaða- náman hefur verið friðlýst náttúruvætti síðan árið 1975. Fjörumörk Pleistósen tímabilið hófst fyrir rúmlega 2,6 milljón árum síðan og síðasta jökulskeiði hennar lauk fyrir um 11 þúsund árum síðan. Á síðasta jökulskeiði var mest allt landið hulið samfelldum jökli, en vegna þunga hans ýttist landið niður. Þegar jökullinn byrjaði að hörfa undir lok jökul- skeiðsins reis landið á ný. Þetta landsig og landris er ein helsta orsök hærri fjörumarka og finnast slík víða á Austfjörðum. Þessi ummerki eru í allt að 52 metra hæð yfir núverandi sjávarmáli í Fáskrúðsfirði og er það á milli Víkurgerðis og Fögrueyrar. Yst í Daladal og við Tungu eru um- merki um sjávarstöðu í um 36 metra hæð og við Sævarenda í 48 metra hæð. Jökulgarðar og jaðarhjallar Jökulgarðar myndast við jaðra skriðjökla. Þeir myndast annars vegar þegar jökull gengur fram og hleður upp efninu sem hann ýtir á undan sér og hins vegar þegar jökull er lengi kyrrstæður og jökulframburður hleðst upp á sama stað í langan tíma. Jaðarhjallar eru aflíðandi sethjallar sem geta verið hver niður af öðrum. Þeir myndast gjarnan þegar leysingarvatn hleður upp seti á milli jökuls og hlíðar þegar þeir hörfa og þynnast í áföngum. Rétt innan við Víkurgerði eru ummerki um fornan jökulgarð sem tengja má við jökulgarða sem staðsettir eru hinum megin við fjörðinn, milli Heljarár og Höfðahúsaár. Talið er að þessir jök- ulgarðar hafi myndast þegar jökull var að skríða út fjörðinn. Við Eyri er einnig að finna hluta af jökulgarði og er talinn tengjast jaðarhjalla sem finna má við Brimnes á norðurbyggðinni. Fyrir innan Sævarenda er stór jaðarhjalli og niður með honum er jökulgarður sem talinn er hafa myndast við jaðar jökuls sem skreið niður úr Flensdal og beygt út fjörðinn. Ummerki um þennan jökul er einnig að finna fyrir innan og ofan Kirkjuból. Jökulgarður er á milli Kirkju- bóls og Búðakauptúns eftir jökul sem skreið út frá Hoffellsdal. Innst í Fáskrúðsfirði er mikill jökulruðningur og yst í Daladal eru greinilegir jaðarhjallar sem tengjast hólaröð sem nefnist Gesststaðahöfðar. Þetta er allt hluti jökulgarðs sem beygir þvert fyrir Daladal til móts við Gests- staði og Tungu. Talið er að hörfun jökla og lækkun sjávarborðs megi skipta í þrjá áfanga. Ummerki um elsta stigið eru við utanverðan Fáskrúðsfjörð og er nefnt Fá- skrúðsfjarðarstig. Miðstigið er nefnt Breiðdalsstig og það yngsta Berufjarðarstig. Talið er að jök- ulgarðar Fáskrúðsfjarðarstigs hafi myndast við framrás jökuls fyrir rúmum 12.000 árum síðan. Lokaorð Auðvelt er að gleyma sér í fegurð Austfjarða og ótrúlegt hvað máttur náttúrunnar getur með tíð og tíma myndað stórbrotið landslag. Þeir sem gefa því gaum geta séð hve mikla sögu svæðið hefur að geyma og geta Austfirðingar verið stoltir af því að lifa í nálægð við slíkar náttúruperlur. Frá höfundi Sérstakar þakkir fá Vilborg Eiríksdóttir, Hregg- viður Norðdahl, Guðbjörn Margeirsson og Þóra Björg Andrésdóttir fyrir aðstoð við upplýsinga- öflun og góðar ábendingar. Helstu heimildir George P. L. Walker (1962). Tertiary welded tuffs in Eastern Iceland. Quarterly Journal of the Geological Society, bls 275-290. Guðbjartur Kristófersson (2005). Jarðfræði. Reykjavík: Offsetfjölritun. Hjörleifur Guttormsson (2002). Ferðafélag Íslands árbók 2002, Austfirðir frá Álftafirði til Fáskrúðsfjarðar. Reykjavík: Ferðafélag Íslands. Hreggviður Norðdahl og Þorvaldur Einarsson (1988). Hörfun jökla og sjávarstöðubreytingar í ísaldarlok á Austfjörðum. Náttúrufræðingurinn, 58. Árgangur (2. tölublað), bls. 59-80. Leó Kristjánsson (2002). Um silfurberg frá Helgustöðum og þróun vísinda. Glettingur 31, 3.tbl., bls. 35-39. Ítarlega heimildaskrá veitir höfundur góðfúslega á iriseinars@gmail.com. Berggangar sem ganga útí sjó í landi Brimness. Geislasteinar. Jaðarhjallar fyrir neðan Hólagerði.

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.