Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 46

Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 46
46 47 Bifreiðaverkstæði Sigursteins ehf. Breiðdalsvík Símar 475-6616 og 899-4300. Allar almennar bílaviðgerðir og rennismíði. Franskir dagar Les jours français Franskir dagar ∞ Les jours français 8 SÖLUSKÁLI S . J . FÁSKRÚÐSF IRÐI & 475 1490 OPNUNARTÍMI KL. 9-22 ALLA DAGASKYNDIBITASTAÐUR OG BENSÍNSTÖÐ VIÐ ÞJÓÐVEGINN Tilboð um Franska daga. Frönsk lauksúpa Hamborgaratilboð · Pizzatilboð Pylsutilboð · Réttur dagsins Áprentaðir bolir o.fl. Lengi voru rúturnar tvær. Önnur rútan fór í veg fyrir flugið en hin var að mestu notuð í hópferðir, stundum var farið með Leiknislið í keppnir, eða með hljómsveitir til að spila á böllum. Jón skildi aldrei við bílana á kvöldin nema allt væri í lagi í þeim. Hann eyddi ófáum stundum í að þvo og laga bílana. Lítið var um frístundir og þau bundin dag og nótt yfir rekstrinum. „Eftir að Víðir og Sigga stækkuðu fórum við í stuttar sumarferðir norður í Skagafjörð eða til Hornafjarðar.” Anna var í kvenfélaginu á Búðum, var þar lengi gjaldkeri og formaður í eitt ár. Hún var virk í kirkjunni, sóknarnefndarformaður um tíma og meðhjálpari síðustu árin. „Við stofnuðum félagsskap þegar ákveðið var að reisa dvalarheimili fyrir aldraða á Fáskrúðsfirði. Hópurinn var með vinnukvöld, var stundum heila helgi í skólanum og hélt basar í lokin. Við gáfum ýmislegt til heimilisins, meðal annars öll gluggatjöld og eitt og annað í eldhúsið. Heilan dag unnu kvenfélagskonur við að skafa móta- timbur á meðan húsið var í byggingu. Sjálfboða- liðar á vegum hópsins máluðu með málningu sem við gáfum.“ Ein jól voru öðrum eftirminnilegri. Á jólanótt árið 1988 fórst flutningaskipið Syneta við Skrúð. „Björgunarsveitin ræsti okkur út um klukkan hálf tvö. Við tókum ýmsan varning úr sjopp- unni, settum í rútu sem Jón fór á og hélt til í Skriðunum á meðan á leitinni stóð. Við létum þau hafa allt sem við gátum og vorum á vakt í sjoppunni þangað til seinni partinn á jóladag þegar leitinni lauk. Nokkrir skipverjar fundust með lífsmarki en létust fljótlega. Alls fórust tólf manns í þessu hörmulega slysi.“ Og enn verða kaflaskil Svo lauk sjoppu- og rútuævintýrinu og Anna og Siggi ákváðu að leggja niður fyrirtækið og flytja. Í byrjun febrúar 1991 fluttu þau í íbúð í Breiðholti sem þau keyptu nokkrum árum áður. „Við seldum rúturnar 1986 og Indriði Margeirs- son tók við akstrinum. Fljótlega hættum við með flugafgreiðsluna og bensínafgreiðsluna.“ Jón keypti húsið Sólvang við Skólaveg og flutti þangað en Anna og Siggi fluttu suður. Anna Björk segir að þau hafi gengið að þessum flutningum eins og hverju öðru verki og þetta hafi verið enn eitt upphafið. Anna vann við að- hlynningu á hjúkrunarheimili eftir að hún kom suður, allt þar til hún fór á eftirlaun sumarið 2006. Tengdaforeldrar Önnu eru jörðuð í grafreitnum á Hafranesi. Þegar Kristinn lést var útförin frá Hafranesi, bæði húskveðja og útförin. Erfitt gat verið á vetrum að koma líkum yfir fjallið til greftrunar á Kolfreyjustað, þess vegna var útbúinn grafreitur á Hafranesi. Daníel Sigurðsson(1830-1925) á Kolmúla var fyrstur grafinn í grafreitnum í lok janúar 1925. Það var föst trú manna hérlendis, að sá sem fyrstur væri grafinn í nýjum kirkjugarði yrði „vökumaður" hans. Átti hann að taka á móti öllum er síðar væru þar grafnir og vaka stöðugt yfir garðinum. Bræðurnir Stefán og Jón á Berunesi eru þeir síðustu sem voru grafnir í garðinum. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 16 17 18 19 20 21 22 23 24 Efsta röð frá vinstri: 1. Friðmar Gunnarsson Tungu 2. Ragnar Malmquist Lækjamóti 3. Hörður Garðarsson Ljósalandi 4. Jónas Jónasson Höfðahúsum 5. Vilhjálmur Gunnarsson Tungu 6. Kjartan Úlfarsson Vattarnesi 7. Páll Gunnarsson Tungu 8. Þorsteinn Óskarsson Hafranesi (sonur Laufeyjar Kristinsd. Þernunesi) 9. Ágúst Karlsson Búðum, sumardrengur á Kolmúla 10. Þorgeir Guðmundsson Brimnesi 11. Vigni Lúðvíksson Vattarnesi 12. Haraldur H aldsson Kolfreyjustað 13. Óskar Jónsson Kolfreyju 14. Guðgeir Daníelsson Kolmúla Miðröð frá vinstri: 15. Óþekkt 16. K istín Einarsdóttir Kappeyri 17. Aðalbjörn Úlfarsson Vatt nesi 18. Viðar Sigbjö nsson Höfðahús m 19. Gísli Kristinsson Hafranesi 20. Jónas Jónasson Kolmúla 21. Sigurður Úlfarsson Vattarnesi 22. Elís Daníelsson Kolmúla 23. Ragnar Haraldsson Kolfreyjustað 24. Daníel Sigurðsson Kolmúla Neðsta röð frá vinstri: 25. Guðrún Stefánsdóttir Kappeyri 26. Valborg Jónsdóttir Kolfreyju 27. Margrét Sigbjörnsdóttir Vattarnesi 28. Erla Lúðvíksdóttir Vattarnesi 29. Helena Hálfdánardóttir Vattarnesi 30. Guðný Hálfdánardóttir Vattarnesi 31. Þórey Haraldsdóttir Kolfreyjustað 32. Jenný Haraldsdóttir Kolfreyjustað 33. Rannveig Haraldsdóttir Kolfreyjustað 34. Olga Sigurbjörnsdóttir Höfðahúsum 35. Ragnhildur Gunnarsdóttir Tungu 36. Steinunn Úlfarsdóttir Vattarnesi 37. Elínborg Stefánsdóttir Búðum 38. Elínborg Gunnarsdóttir Tungu 39. Óþekkt Mynd er tekin á stofnfundi Ungmennafélagsins Árvakurs á Kolfreyjustað árið 1949. Eigandi ljósmyndar: Sigrún Haraldsdóttir Ung n afélagið Árvakur

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.