Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 35

Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 35
35 Franskir dagar Les jours français Á haustmánuðum 2013, fékk Viðar Jónsson kennari og fótboltaþjálfari hugmynd að því hvernig hægt væri að skapa aðstæður til þess að leyfa gestum og gangandi að njóta norðurljósa jafnt að sumri sem vetri. Þessa hugmynd bar hann upp við Jóhönnu Kristínu Hauksdóttur kennara og áhugaljósmyndara og Jónínu Guð- rúnu Óskarsdóttur hjúkrunarfræðing og áhuga- ljósmyndara og saman gengu þau af stað í þá átt að láta þessa hugmynd, sem fljótlega breyttist í draum, verða að veruleika. Á seinni stigum gekk til liðs við hópinn Ingimar Guðmundsson við- skiptafræðingur. Sleitulaust var unnið við hugmyndasköpun, ljós- myndun og fjáröflun. Og þar sem þessi draumur þeirra var jú aðeins draumur og skaffaði ekki salt í grautinn var vinnan leyst af hendi á þeim tíma sólarhrings þegar norðurljósin dansa og sólin sefur. Ákveðið var að opna sýningu á ljósmyndum af norðurljósum og einnig að bjóða upp á norður- ljósaferðir, það er að segja ferðir þar sem áhuga- samir geta séð, ljósmyndað og fræðst um fyrir- bærið og notið náttúrunnar um leið. Hentugt húsnæði undir starfsemi sem þessa getur verið erfitt að finna í þorpi á stærð við Búðir, en hópurinn fékk fljótlega augastað á svokölluðu Bryggjuhúsi sem stendur á Tanga- bryggju og er í eigu Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga. Eftir skoðun á húsinu var fljótlega ljóst að ekki næðist að koma því og starfseminni sem það ætti að hýsa í horf á þeim tíma og með þeim fjármunum sem hópurinn hafði yfir að ráða, þannig að annað hús í eigu Loðnuvinnslunnar varð fyrir valinu að svo stöddu, hús sem kallað er Wathnes sjóhús. Wathnes sjóhús er fallegt endurgert hús frá nítj- ándu öld sem heldur afar vel utan um starfsemi Norðurljósahúss Íslands eða Auroras Iceland. Hópurinn sem stendur að Norðurljósahúsi Ís- lands á Fáskrúðsfirði uppskar ríkulega á glæsi- legri opnunarhátíð sem haldin var 15. maí síð- astliðinn. Þar fögnuðu gestir framtakinu um leið og þeir upplifðu sögulega stund, stund þar sem draumur varð að veruleika. Norðurljósahús Íslands Texti: Berglind Agnarsdóttir Myndir: Jónína Óskarsdóttir og Albert Kemp Frá opnun sýningarinnar í maí 2016. Stofnendur Norðurljósahúss Íslands. Viðar Jónsson, Jónína Óskarsdóttir, Jóhanna Kr. Hauksdóttir og Ingimar Guðmundsson.

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.