Ljóðormur - 01.07.1988, Blaðsíða 60
58
Um höfundana
Baldur Óskarsson, f. 1932. Sjö ljóðabækur hafa komið út
eftir Baldur, hin fyrsta Svefneyjar 1966 og hin nýjasta
Döggskál í höndum 1987. Áður hafði hann sent frá sér
skáldsögu og smásagnasafn.
Berglind Gunnarsdóttir, sjá Ljdðorm 2. Nýjasta bók
Berglindar er Ljóðsótt, 1986.
Eyvindur Eiríksson, f. 1935. Hefur ort og skrifað, m.a. gefið
út ljóðabókina Hvenær? 1974. Nýjasta bók hans er P-
Árbók I, 1988. í haust er væntanieg skáldsaga frá hans
hendi.
Franz Gíslason, f. 1935. Hefur þýtt bæði ljóð og laust mál.
Gerður Kristný, f. 1970, menntaskólanemi. Ljóð eftir hana
hafa birst í blöðum og tímaritum.
Halla Jónsdóttir, f. 1954. Hún stundar doktorsnám í hug-
mynda- og vísindasögu við Uppsalaháskóla. Áður hefur
hún birt ljóð í Lesbókinni og skólablöðum.
Isak Harðarson, f. 1956. Eftir ísak hafa komið út funm
ljóðabækur, hin fyrsta Þriggja orða nafn 1982 og hin
nýjasta Útganga um augað læst 1987.
Jakob S. Jónsson, f. 1956, búsettur í Stokkhólmi og hefur
verið við nám þar. Ljóð eftir Jakob hafa birst í tímaritum.
Kjartan Ámason, f. 1959. Gaf út Dagbók Lasarusar 1986.
Pjetur Hafstein Lárusson, f. 1952. Sjá kynningu í Ljóðormi,
2. Nýjasta ljóðabók Pjeturs Daggardans og darraðar
kom út á síðastliðnu ári.
Ragnhildur Ófeigsdóttir, f. 1951. Andlit í bláum vötnum
heitir ljóðabók Ragnhildar, sem út kom á síðastliðnu ári.
Áður hafði hún sent frá sér ljóðabókina Hvísl.