Orð og tunga - 01.06.2014, Page 9
Formáli ritstjóra
Orð og tunga kemur nú út í sextánda sinn. Þema þessa heftis er „Mál-
stöðlun: Tilurð, viðhald og endurnýjun staðalmálsins" (e. Languagc
Standardization: The origin, maintenance and renewal of the standard
language). Mörg undanfarin ár hefur verið efnt til málþings um þema
hvers árs til undirbúnings heftisins en í þetta sinn var brugðið út af
vananum og kallað eftir greinum með boðsbréfi sem sent var fjöl-
mörgum sérfræðingum innan lands og utan. Þetta var viðleitni til
þess að stækka og breikka þann hóp sem boðið er að senda greinar
í þemahluta heftisins. I boðsbréfinu, sem sent var bæði á íslensku og
ensku, sagði m.a.:
Málstöðlun og staðalmál eru áhugaverð frá málfræðilegu og
félagsmálfræðilegu sjónarhorni en tilurð, viðhald og endur-
nýjun málstaðalsins tengist m.a. málrækt og málstýringu, við-
horfum til tungumálsins, mállýsingum og gerð orðabóka og
annarra uppflettirita um mál og málnotkun. Málstöðlun felur
í sér samræmingu og þar með val á milli afbrigða, hvort sem
það snýr að mismunandi málum og málbrigðum eða tilbrigð-
um í einstökum atriðum. Hlutverk málstöðlunar er yfirleitt
hvort tveggja í senn, hagnýtt og hugmyndafræðilegt. Hið hag-
nýta gildi felst í þ\u' að greiða fyrir samskiptum innan ríkisins
þvert á landfræðileg og félagsleg skil og auðvelda samræm-
ingu í menntakerfinu, opinberri stjórnsýslu, útgáfumálum
o.fl. Hinn pólitíski eða hugmyndafræðilegi þáttur snýr að því
að þjappa þjóðinni saman um eitt tungumál sem er sameigin-
legt öllum sem henni tilheyra og aðgreinir hana um leið frá
öðrum þjóðum.
Meðal þeirra sem fengu boðsbréfið voru þátttakendur í málstofunni
„Foundations of Language Standardization" (Grundvöllur málstöðl-