Orð og tunga - 01.06.2014, Page 109
Ari Páll og Haraldur: íslenska og enska í háskólastarfi
97
2.2 Skjalfest málstefna íslenskra háskóla
Sjö háskólar starfa á íslandi: Háskóli íslands (HÍ), Háskólinn á
Akureyri (HA), Háskólinn á Bifröst (HB), Háskólinn í Reykjavík
(HR), Hólaskóli — Háskólinn á Hólum (HH), Landbúnaðarháskóli
Islands (LBHÍ) og Listaháskóli íslands (LHI). Tafla 1 sýnir nemenda-
fjölda haustið 2011, hverjir þeirra eru hreinir ríkisskólar og hver
viðurkennd fræðasvið háskólanna eru (Ný sýn. Breytingar á vísinda-
og nýsköpunarkerfinu). 1 töflu 1 eru dregnar helstu línur um náms-
framboðið en myndin er flóknari. Ef t.d er litið til lista er ritlist einnig
kennd innan Hugvísindasviðs HI og nokkrar listgreinar eru kenndar
í tengslum við kennslufræði á Menntavísindasviði HI.
Ríkis- skóli Nemar 2011 Viöurkennd fræðasvið
Fél. vís. Heilb. vís. Hug- vís. Mennta- vís. Nátt. vís. Verk+ tæ.vís. Auðl.+ búvís. Listir
HÍ X 13.919 X X X X X X
HA X 1.493 X X X
HB 431 X
HR 2.468 X X
HH X 172 X
LBHÍ X 238 X X
LHÍ 414 X
Tafln 1. Yfirlit yfir rekstrarform, stærð og vísindasvið íslenskra háskóla.
Mennta- og menningarmálaráðherra beindi því til allra íslensku há-
skólanna árið 2010 að taka saman og birta málstefnu viðkomandi
skóla.
Á heimasíðum sex íslenskra háskóla af sjö er að finna skjalfesta
málstefnu sem samþykkt hefur verið af skólayfirvöldum. Hér er um
að ræða Háskóla íslands síðan 2004, Háskólann á Akureyri síðan 2008,
Landbvtnaðarháskóla íslands síðan 2011 og Hólaskóla — Háskólann á
Hólum, Háskólann á Bifröst og Listaháskóla Islands síðan 2012.
Háskólinn í Reykjavík sker sig úr. I Stefiiu Háskólans í Reykjavík er
ekki vikið beinlínis að tungumálum í kennslu og rannsóknum. Af
stefnunni almennt má þó ráða að starfsmenn og stúdentar reiði sig
töluvert á erlend tungumál auk íslensku: