Orð og tunga - 01.06.2014, Síða 111
Ari Páll og Haraldur: íslenska og enska í háskólastarfi
99
Háskóli íslands: Málstefnan hefur að leiðarljósi að talmál
og ritmál Háskólans er íslenska, jafnt í kennslu, rannsóknum
sem stjómsýslu.
Háskólinn á Akureyri: Háskólinn á Akureyri starfar innan ís-
lensks samfélags, á íslensku málsvæði, og íslenska er opinbert
tungumál skólans.
Háskólinn á Bifröst: íslenska er opinbert tungumál Háskól-
ans á Bifröst og íslenska er almennt tal- og ritmál á öllum svið-
um skólans í kennslu, rannsóknum og stjórnsýslu.
Hólaskóli — Háskólinn á Hólum: íslenska er tungumál skól-
ans en vald á öðrum málum verður einnig að vera til staðar
[...] íslenska er [...] opinbert tungumál Hólaskóla [...] skulu
öll skjöl sem skólinn lætur frá sér fara teljast vera í frumriti á
íslensku. [...] Fundir innan stjórnsýslunnar skulu að jafnaði
fara fram á íslensku en fari þeir fram á ensku eða öðru erlendu
tungumáli skal þess getið sérstaklega í fundarboði.
Landbúnaðarháskóli íslands: íslenska er almennt tal- og
ritmál á öllum sviðum skólans, í kennslu, rannsóknum og
stjórnsýslu.
Listaháskóli íslands: íslenska er helsta samskiptamál í
skólanum, bæði sem talmál og ritað mál, hvort sem er í
kennslu, rannsóknum eða stjórnsýslu.
Allir hvetja skólarnir erlenda starfsmenn sína til íslenskunáms. Fastast
er kveðið að orði í málstefnu HA þar sem erlendum starfsmönnum er
settur tiltekinn tímarammi til að ná árangri í íslenskunáminu:
Ætlast er til að fastráðnir, erlendir kennarar leggi sig fram
um að læra íslensku enda veitir Háskólinn þeim aðstoð í
þeim efnum. Fastráðnir kennarar sem ekki hafa íslensku að
móðurmáli skulu innan fimm ára hafa öðlast nægilega færni
í tungumálinu til að eiga almenn samskipti, geta setið fundi
og geta hagnýtt sér upplýsingar frá stjórnsýslu háskólans
[...] Háskólinn býður upp á námskeið í íslensku og íslenskri
menningu fyrir fastráðna kennara erlendis frá.
Að því er varðar val á kennslutungumáli gera Háskóli íslands, Háskól-
inn á Akureyri, Hólaskóli — Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskóli
íslands og Listaháskóli íslands með einhverjum hætti greinarmun
á grunnnámi og framhaldsnámi, þ.e. lögð er enn ríkari áhersla á