Orð og tunga - 01.06.2014, Page 143
Kristín Bjarnadóttir: Beygingarlýsing íslensks nútímamáls
131
ingarlaus eða fá -i í þágufalli eintölu. E.t.v. ráða málhreinsunarsjón-
armið því að slíku efni er sleppt í málfræðiritum en jafnframt verður
áherslan á kerfið sem heild til þess að afbrigði og frávik verða út und-
an. Flækjustigið verður óneitanlega meira þegar í ljós kemur að töku-
orð haga sér ekki endilega alveg eins og erfðaorðaforðinn. Þetta gildir
líka um rótgróin tökuorð, t.d. orð sem er að finna í textum frá því
fyrir tíma Rasks skv. Ritmálssafni Orðabókar Háskólans, t.d. hvorug-
kynsorðin alkóhól, flannel, fennél, vitríól og indígó (sjá Kristín Bjarna-
dóttir 2010). Þágufallsafbrigðin af orðunum/rnne/ og arsenik eru t.d.
tvö í blaðatextum á Tímarit.is:
(1) a Hvönn er svolítið lík fennel<þgf.et.>
b ...ásamtbrytjuðu fenneli<þgf.et.>
(2) a .. .byrlað eitur, drepinn með arsenik<þgf.et>
b Hann var myrtur með arseniki<þgf.et>
Gagnaskorturinn birtist því með ólíkum hætti í heimildunum. í orða-
bókum og orðabókarefni er mikill orðaforði en upplýsingar um beyg-
ingu einstakra orða eru ekki tæmandi. I mállýsingum eru hins vegar
ítarlegar upplýsingar um hluta orðaforðans, þ.e. lýsing á kerfinu sem
slíku, en eins og dæmið um þágufalls-i sýnir er sú lýsing ekki heldur
tæmandi. Vegna þessa var óhjákvæmilegt að safna meiri gögnum við
gerð BÍN.
5 Rannsóknargildi BÍN
Gagnvart BIN er einkum þörf á því að leita að ófyrirsegjanlegum
beygingarmyndum en talsverð vinna fólst í því að fylla í þau göt sem
hér hafa verið nefnd í heimildunum. Til þessa eru öll gögn notuð sem
hægt er að komast yfir að skoða og á það bæði við um gögn innan
stofnunar og utan. Þar er fyrst að nefna söfn Orðabókar Háskólans,
sérstaklega Ritmálssafn, prentaðar orðabækur og rafræn textasöfn
(t.d. íslenskt textasafn og safn Landsbókasafns íslands - Háskólabóka-
safns af textum úr blöðum og tímaritum).14 Mat á gögnum styðst við
málkennd þess sem vinnur verkið og er hún stundum eina haldreipið
þegar engin dæmi finnast. Þá er oft leitað til allra þeirra sem gefa færi
á sér og notendur BIN á vefnum senda líka inn athugasemdir og við-
bætur. I neyð er stuðst við leit á vefnum (með Google), þrátt fyrir alla
14 Islcnskt textasafn: http://www.amastofnun.is/page/gagnasofn_textasafn; og Tíma-
rit.is.