Morgunblaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 72. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is -Hátækni iðnaður á Íslandi föstudaginn 18. mars Sjá dagskrá á www.si.is Alheims- friðarteppi Bútarnir í það berast frá öllum heimshornum | Daglegt líf Íþróttir í dag Kári Árnason eini nýliðinn í lands- liðshópnum  Jóhannes fyrsti kostur  Puð, púl og samvinna GÓÐAN árangur Finna í grunnskólanámi má meðal annars rekja til þess að finnskir kennarar bera meiri ábyrgð og þeim er sýnt meira traust og virðing en kennurum annars staðar á Norður- löndunum, auk þess sem allir kennarar þar þurfa að ljúka meistaranámi til þess að fá kennsluréttindi. Þetta er á meðal þess sem kemur fram á ráð- stefnu um árangur Finna í Pisa-rannsókninni, sem hópur Íslendinga sækir heim, en Finnar urðu í 1. sæti af 41 landi þegar árangur 15 ára nemenda var rannsakaður á vegum OECD árið 2003. Ísland var þá í 12. sæti. Jouni Välijärvi, forstöðumaður rannsóknar- stofnunar menntamála við Háskólann í Jyväsk- ylä, lagði áherslu á ábyrgð finnskra kennara og það traust og virðingu sem þeim er sýnd. Að sögn hans bera finnskir kennarar meiri ábyrgð en kennarar annars staðar á Norðurlöndunum, t.d. á kennsluaðferðum og námsmati. Engin samræmd próf eru haldin í Finnlandi og hefur m.a. verið giskað á að það sé ein af ástæðunum fyrir góðu gengi Finna í PISA-rann- sókninni. Lögð er áhersla á sjálfsmat skóla en opinbert eftirlit eða mat er í lágmarki. Hver og einn skóli fer eftir námskrá sem gildir í landinu, en hver skóli setur sér einnig skólanámskrá, og þar er þáttur kennara stór. Allir með meistaranám  Traust/6 Kennurum er þakkaður góður árangur Finna í grunnskólanámi FRANSKUR vefjariðnaður mun „leysast upp í reyk og ösku“ á næstu tveimur árum vegna gífurlegs inn- flutnings frá Kína. Kom þetta fram í gær hjá Charles Melcer, formanni í Samtökum franskra fataframleið- enda. Raunar er þessi holskefla frá Kína ekki aðeins að færa í kaf vefj- ariðnaðinn á Vesturlöndum, heldur einnig mörgum þróunarlöndum. Melcer sagði, að vefjariðnaðurinn, ekki aðeins í Frakklandi, heldur í allri Evrópu, myndi lognast út af á næstu tveimur árum. Eftir að inn- flutningskvótar í vefjariðnaði voru afnumdir um síðustu áramót, hefur útflutningur Kínverja til Bandaríkj- anna aukist um 65,2% og til Evrópu um 46,5%. Samtök fyrirtækja í vefjariðnaði og verkalýðsfélög í Bandaríkjunum og í Evrópu vara mjög við þessari þróun og benda á, að brátt muni hilla undir algera kínverska einokun á þessum markaði. Aukinn útflutningur Kínverja á vefnaðarvöru hefur nú þegar svipt hundruð þúsunda manna í þróunar- löndunum atvinnu sinni. Sem dæmi má nefna, að útflutningur frá Bangla- desh á vefnaðarvöru minnkaði um 21% í janúar, hvorki meira né minna. Kína einokar vefjariðnað París. AFP. Hrun blasir við í mörgum löndum NÆR ein milljón manna eða um fjórðung- ur þjóðarinnar í Líbanon safnaðist í gær saman í höfuðborginni Beirút til að minn- ast morðsins á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir mánuði og mót- mæla sýrlensku herliði í landinu. Götur borgarinnar voru þaktar rauðum, hvítum og grænum litum – en það eru litirnir í þjóðfána Líbanons. Nýlega efndu stuðn- ingsmenn Sýrlendinga til útifunda og voru þar einnig hundruð þúsunda manna. Sam- tök herskárra múslíma, Hezbollah, skipu- lögðu þau mótmæli. Stjórnvöld í Damaskus hafa lofað Sam- einuðu þjóðunum að láta samtökunum í té skýra tímaáætlun þar sem fram komi hve- nær Sýrlendingar hyggist fara með allt herlið sitt og leyniþjónustumenn á brott. Nær milljón á útifundi Beirút. AP, AFP. STÓR hætta er á að siglingaleiðin fyrir Horn lokist hvað úr hverju vegna hafíss, sagði Jón- atan Ásgeirsson, skipstjóri á Andey ÍS 440, í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær. Skip- ið var þá nýkomið fyrir Horn á leið til Súðavík- ur eftir erfiða siglingu frá Óðinsboða í gegn- um miklar ísdreifar. „Þetta er allt að lokast hérna, “ sagði Jónatan og bætti við að ísinn væri orðinn þéttur fyrir utan Horn. „Þetta er samfelldur ís. Þó vakir séu inn á milli, þá eru þetta miklar ísspangir,“ sagði hann. Í ískönn- unarflugi Landhelgisgæslunnar í gær kom í ljós að meginísröndin úti fyrir Norðurlandi hefur færst norðar frá því um helgina en ís- spangir og ísdreifar eru víða. Frá Geirólfsnúp að Hornbjargi er ísinn að meira eða minna leyti orðinn landfastur, að sögn Auðuns Krist- inssonar, yfirstýrimanns og leiðangursstjóra í eftirlitsflugi Gæslunnar. Flugvél Landhelgisgæslunnar leiðbeindi Andeynni ÍS í gegnum ísdreifarnar við Óðins- boða í gær. Mikið íshrafl hefur rekið upp að landi í Tré- kyllisvík undanfarna tvo daga og eru stórir jakar komnir alveg upp í fjöru, að sögn Jóns G. Guðjónssonar, veðurathugunarmanns í Litlu- Ávík á Ströndum, sem sést á meðfylgjandi mynd tylla sér á myndarlegan hafísjaka í fjör- unni í Ávík, þegar ljósmyndari Morgunblaðs- ins átti þar leið um í gær. Morgunblaðið/RAX „Þetta er allt að lokast“ FYRIRTÆKI í eigu Íslendinga, sem tengd eru millilandaflugi, hafa nú yfir að ráða nærri 100 þotum og er áætluð velta þeirra á árinu um 140 milljarðar króna. Tilkynnt var um kaup eigenda Ice- land Express á lágfargjaldaflug- félaginu Sterling í gær. Samanlagt hafa þessi tvö félög 12 þotur í sinni þjónustu en að meðtöldum þotum Avion Group og FL Group hafa millilandaflugfélög í eigu Íslendinga yfir að ráða 99 þotum. Alls starfa 6.400 manns hjá þessum félögum. Salan á Sterling hefur vakið mikla at- hygli og var ítarlega fjallað um hana í fjöl- mörgum fjölmiðlum á Norðurlöndum í gær. Mikill fjöldi blaðamanna kom á blaða- mannafund í Kaupmannahöfn þar sem þeir Pálmi Haraldsson og Jóhannes Kristinsson kynntu kaupin á Sterling. Umráð yfir nærri 100 þotum Kaupin á Sterling vekja eftirtekt á Norðurlöndum  Kaupin/6  Hræringar/13        Tilfinningaleg rússíbanareið Idolstjarnan Hildur Vala í samtali við Arnar Eggert | Menning ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.