Morgunblaðið - 13.01.1965, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.01.1965, Blaðsíða 17
Miövikudagur 13. janúar 1965 MORGUNBLAÐIÐ 17 Guðrún Sigmundsdótt ir, Dratthalastöðum Gísli Helgason Skógargerði Fædd 14. júlí 1885. Dáin 13. nóvember 1964 Guðrún S i gm u ndsdó 11 ir var foedd í Gunrehildargerði í Hró- arstungu 14. júlí 1885. Foreldrar Ihennar voru - hjónin Guðrún Sigfúsdóttir frá Straumi og Sig- rnundur Jónsson í Gunnhildar- gerði. Þau stöfnuðu heimili sitt é fö'ðurleifð Sigmundar og bjuggu (þar allan búskap sinn við rausn og skörungsskap þrátt fyrir erf- iðar aðstæður á ýmsa grein. f>au hjón, Guðrún og Sigmund tir, eignuðust tíu börn. Af þeim komust til fullorðinsára sex dæt- ur og þrír synir. Öll voru þau bráðger og mannvænleg og báru eameiginlega sterkt ættarmót, sem fólgið var I gjörvileik þeirra og glæsibrag, enda systurnar tald ar í hópi allra glæsilegustu kvenna. Samfara þessu voru þau Gunnhildargerðissystkin mikil- bæf að manndómi og mannkost- um og áunnu sér virðingu og hyili allra, er þeim kynntust. Ætla má, a'ð þau hafi átt til kjör- viða að telja, og manndómur þeirra reyndist nægur til að varðveita þá ættairerfð. Og enn stefnir til sömu áttar um af- kvæmi þessa systkinahóps, og mun svo fram fara um ættliði þeirra á komandi tímum. Guðrún Sigmundsdóttir var næst elzt af systkinunum og átti ésamt þeim stöðuga dvöl í for- eidraihúsum til * fullorðinsaldurs. Það kom því snemma í hlut henn er að aðstdða móður sína við hin ýmsu húsmóðurstörf, enda margs eð gæta á svo fjölmennu heimili, eem auk þess var í þjóðbraut á þeim tíma, og hvers kyns fyrir- greiðsla búin hverjum þeim, sem eð garði bar. Mun þessi „heima- vistarskóli“ hafa orðið henni drjúgt veganesti við lausn þeirra erfiðu vi'ðfangsiefna, er biðu hennar síðar. En þar kom, að Guðrún hleypti heimdraganum og árið 1909, þá tuttugu og fjögra ára, giftist hún Guðmundi Halldórssyni á Sand- brekku í Hjaltastaðaþingfhá. Guð- mundur var góðrar ættar, vel gefinn og vaskur, en mun eldri en Guðrún (f. 1869). Ári síðar hófu þau hjón bú- skap að Unaósi og bjuggu þar í þrjú ár. Að þeim tíma liðnum Ifestu þau sér ábúð á jörðinni Dratthalastöðum, sem þau gerðu að eignarjörð sinni árið 1915, og þar varð dvalarstaður þeirra til íeviloka. Dratthalastaðir voru fremur lítil jörð, og hafði hún verið lítt eetin og umihirt, enda í eigu þess opinbera, þar til Guðmundur íesti kaup á henni. Jörðin krafð- ist því mikillar aðhlynningar og umbóta, auk þess, er ganga þurfti til endurgjalds á kaupverði henn ®r. Róðurinn til sjálfsbjargar var því aliþungur, en þó gekk allt til réttrar áttar, þar til alvarlegur ejúkdómur lagði húsföðurinn í rúmið árfð 1925 með þeim af- leiðingum að þar eftir náði hann aldrei verulegu starfsþoli og nokkrum árum síðar mæddi hann ejóndepra, serh dró til fullkom- ins sjónleysis. Við slíka raun lifði hann mörg síðustu ár ævinnar. Þau hjón, Guðrún og Guð- renmdur eignuðust sex börn, þrjá eonu og þrjár dætur. Voru þau fædd á árunum 1910 — 1922. Magnús Thorlacius hæstaréttarlögmaður Málflutningsskrifstofa Aðalstræti 9 — Sími 1-1875 RAGNAR JÓNSSON hæstare" • rlögmaður Hverfisgata 14 — Sími 17752 biogíræðistori og eignaumsýsia Elztur þeirra var Halldór, þá Sigmundur, næst Ingibjörg, Sig- fríð, Kristbjörg og Stefán yngst- ur. Hér blasa vfð aðstæður Guð- rúnar árið 1926, er bóndi hennar varð óvinnufær og hún stóð að heimilinu ein með sex börn, það elzta fimmtán ára, en það yngsta aðeins þriggja ára. Hér við bætt- ist, að í hönd fóru hin illræmdu kreppuár, sem þjökuðu búnaðinn svo freklega, áð hrikti í máttar- viðum gróinná búhölda. Lætur að líkum, að lítt hatfi Guðrún stoðað hóglífi, enda því óvön og henni sízt að skapi. Enda va.r það svo, að þeir, sem gerst þekktu, undruðust og dáðu af- bomu heimilisins, sem áð megin- þunga hvíldi á herðum hennar og auk þess þeirra barnanna, er þess voru umkomin að leggja henni lið. Öll voru börnin hin mannvænlegustu þegar á unga aldri. Það hefur og á þeim sann- azt, að sjaldan fellur eplið langt tfrá eikinni. Fór svo fram án þess, að veru lega bæri af leið, unz elztu son- unum, Halldóri og Sigmundi, óx svo ásmegin, að þeir gátu tekið við rekstri búsins, en móðir þeirra annáðist umsjá innan veggja ásamt tveiimur dætrum sínum sem þó voru enn ungar. Sú elzta þeirra var þá að heiman farin að Húsey í Hróarstungu og giftist síðar Sigurði Halldórssyni, bónda þar. Búið á Dratfhalastöðum var rekið sem félagsbú undir nafninu Bræðrabúið Dratthalastöðum. Breyttist nú al'lur hagur til betri vegar, og gerðust þeir bræður umsivifamiklir vi'ð búskapinn. Gekk svo, þar til Halldór stað- festi ráð sitt og ásamt konu sinni Guðrúnu Björnsdóttur frá Surts stöðum í Jökulsárhlíð, setti bú að Klúku árið 1948, en þá jörð höfðu þeir bræður keypt áður og nytjað ásamt heimajör’ðinni, sem var ofsetin, enda búið þá orðið það stærsta í sveitinni. Þetta tímabil var Guðrún tiltölulega létt, hvað bústarfa snerti, enda þótt hún hefði alla forustu um heimilishald og störf þess. En jafnframt komu til auknir örðugleikar vegna vaxandi sjúk- leika eiginmannsins, sem varð honum að aldurtila haustið 1942, og um þáð leyti kenndi yngsta dóttirin, Kristbjörg, sjúkdóms, sem leiddi hana til bana tæpu ári síðar. Þessi tvö dauðstföll og aðdrag- andi þeirra reyndu mjög á Guð- rúnu, sérstaklega fráfall dóttur- innar, sem var svo skyndiiega köl'luð burt í æskublóma sínum. Við burtför Halldórs frá Dratt- halastöðum var bræðrabúinu skipt. Bjó Sigmundur áfram á Dratthalastöðum. Bróðir hans, Stefán, var þar einnig, hafði sér bú, en var þó að nokkru í sam- vinnu við Sigmund. Að búinu stóð Guðrún, móðir þeirra, sem fyrr, en nú var hún orðin ein á þá höndina, þar sem Sigifríð var flutt burt og sezt að búi á Bónda stöðum ásamt manni sínum, Sigurði Karlssyni. Og enn var hafin sókn í bún- aði á Dratthalastöðum. íbúðar- hús og gripa voru endurbyggð úr steinsteypu og nýjar lendur tekn ar til ræktunar. Allt fór þar fram sem fyrr me'ð atorku og sérstök- um snyrtibrag. En á skammri stund skipast veður í lofti. Haustið 1958 veikt- ist Sigmundur og fór þá þegar á vit lækna til rannsókna og að- gerðar. Mein það, er sjúkdómn- um olli, reyndist læknunum otf- viða, og atf því lézt hann í apríl 1959 eftir miklar þjáningar. Hér var það, er næst var að Guðrúnu á Dratfhalastöðum gengið, enda hún langþreytt orðin atf eitfiði og mótgangi lífsins, nærri hálfátt- ræð að aldri. En einmitt við þetta áfall birtist mikilleiki Guð rúnar í sinni glæsilegustu mynd, og ljóst varð, hver hún í eigind sinni hafði verið og var. Viðbrögð hennar urðu ekki uppgjöf, heldur. sókn á sömu braut. Nú var það yngsti sonur- inn, Stefán, sem tók vi'ð búi, og ásamt honum hélt Guðrún við búi á Dratthalastöðum, unz Stefán kvæntist stuttu síðar Hállveigu Guðjónsdóttur frá Heiðarseli í Jökuldalsheiði, sem tók þá við búsforráðum með aðistoð hinnar langreyndu tengda mó'ður sinnar. Við þær aðstæður var síðan búið áfram á Dratthalastöðum við gagnkvæman skilning og sam.starf fjölskyldunnar, sem jafnan fyrr, unz Guðrún hneig án fyrirvara að hinzta beði sín- um að atftni hins 13. nóvember sl., á áttuigasta aldursári. Lífssaga Guðrúnar á Dratt- halastö'ðu'm, talin í árum, er öll. Löngu og lofsverðu starfi er lok- ið. Með henni er genginn dæmi- gerður persónuleiki þeirra kvenna, sem trúastan vörð hatfa staðið við vöggu kynslóðanna og stutt þær til vaxtar og þroska, samslungið þann örlagaþátt, sem traustastur hefur reynzt í til- verurökum þjóðarinnar frá öndver'ðu. Um hálfrar aldar skeið rækti hún sitt þýðingar- mesta starf þjóðfélagsins, móðuir- og hiúsfreyjustarfið, oft við mjög óhagstæð skilyrði, en ávallt af mikilli reisn og fölskvalausum trúnaði. Og söm var hún í hvívetna út á við. Vilji hennar til hvers kyns fyrirgreiðslu vi'ð náungann var frábær og geta hennar í þeim efnum undraverð. Áhugi hennar á félagslegum efnum var mikill og heill. Hún var ein atf stofnendum kvenfélags sveitar sinnar og í forustu.liði þess um langt skeið. Framganga hennar á þeim vettvangi var slík, að félags systrum hennar þótti skylt að heiðra hana sérstaklega á sjötugs afmæli hennar með heimsókn og gjöfum, og við það tækifæri gerðu þær hana að heiðursfélaga sínum. Var það að verðugu og einnig táknrænt fyrir atfstöðu annarra þeirra, sem kynnzt höfðu Guðrúnu og átt við hana sam- skipti á einn eða annan hátt. Og nú að lokinni samtfyLgd er hún heiðrúð »f vandamönnum sínum og vinum og henni fluttar alúðarþakkir fyrir allt og allt. Frá minningu Guðrúnar á Dratthalastöðum stafar björtum geislum, sem lýsa í skuggum skammdegisins og varpa bjarma langt um ófarinn veg. Ingvar Guðjónsson Dölum — Su!:arno Framh. af bls. 8 dag um stuðning Breta við Mal- aysíu: „Það mundi verða friði í Austurlöndum að falli ef við lét- um það viðgangast að smærri þjóðir yrðu troðnar í svaðið eftir því sem stærri þjóðum dettur í hug. „Bottomley sagði að Sukarno forseti hygðist leggja Malaysíu í rúst vegna drauma um að hann mundi öðlast „sæti sólarmegin". „Við höfum áður orðið vitni að slíkum áformum og afleiðingar hafa orðið hroða- legar fyrir heiminn", sagði Bottonley. EINN þeirra manna, er ég kann- aðist vel við af afspurn er ég fluttist úr Eyjafirði austur á Hérað vorið 1947, var Gísli í Skógargerði. Ég hafði því nokk- urn áhuga fyrir að kynnast mann inum nánar. Þótt þessi kynni hafi ekki orðið mjög náin þau tæp 17 ár, -sem við höfum verið Héraðsbúar báðir saman,þá voru þau á þann hátt að ég fæ naum- ast orða bundizt, þegar Gísli er fallinn frá. Hvar sem Gisli fór, vakti hann eftirtekt. Hann var hár maður, beinvaxinn og óvenju kempulegur, hvort sem maður sá hann í bak eða fyrir. Oft lék honum bros um vör er hann heilsaði og í hinum sterka rómi bjó óvenjulegt öryggi og kjark- ur. Hann var mjög ræðinn og talaði þá helzt um þau efni, er mættu verða þjóð og Héraði að gagni. Gísli sótti mikið mann- fundi þar sem mál voru rædd og tók til máls ög vakti jafnan at- hygli. Allur hans málflutningur var þrunginn bjartsýni og kjarki og hvatti hann jafnan til dáða. Ég minnist að hafa heyrt hann fyrirfram hreyfa merkilegum ný- mælum. T. d. mun hann fyrst hafa vakið máls á menntaskóla á Eiðum, svo að ég heyrði um rætt. íbréfi til mín vakti hann athygli á Tuskuvökunum í Ur- riðavatninu og beinlínis bað mig er ég var kominn í nágrennið að fara og skoða þær. Fyrir nokkr- um árum gaf hann Fellahreppi 100 gimbrar að hausti, sem hann afhenti á 4 árum til þess að mynda bústofnslánasjóð í lifandi peningi, sem síðan hefir verið til stuðnings nokkrum ungum bændum í hreppnum. Mér er Ijúft að játa að þessi gerð Gísla í Skógargerði átti mestan þátt í að ég beitti mér fyrir því á Alþingi að lögfest voru ákvæði um bústofnslána- sjóði hreppsfélaga í Stofnlána- deildarlögunum. Gísli kom nokkrum sinnum að máli við mig hin síðustu ár til að ræða um ýms mál, sem mættu verða Fljótsdalshéraði og Austurlandi til heilla og hagsbóta. Þau kynni og öll önnur hafa fest með mér þá skoðun að Gísli var óvenju- legt karlmenni, vitur, og víð- sýnn. Hann var íhaldsmaður og ég vildi segja táknrænn fyrir þá í þeirra hug allra, sem telja það — ÁfengJsbölið Framhald af bls. 11 kærur út atf meintum brotum í þeseuim efnum. Niðurlagsorð. Það er með nokkrum sökn- uði, og ekki af viljaleysi sprott- ið, að ég segi nú af mér for- mennsku Landssambandsins gegn áfengisbölinu, því að sam- búðin við mína ágætu samstarfs menn heflur verið hið ákjósan- Legasta og notið meira trausts hjá Landssambandinu, en ég tel mig eiga skilið, en mér finnst sjálfsagt, að einhver yngri mað ur taki þetta hlutverk að sér. Ég gæti fært fram nægar ástæð ur til þess, að ég tel skynsam- legt að ég létti af mér einhverj um störfum, en ætla mér þó ekki að Leggja árar í bát. Samsterfsimöreniuim minuim færi ég alúðarþaikkir fyrir á- nægjulegt samstarf, sem ég vlana að haldi áfram að einhverju leyti. Hér dugar ekki nein upp- gjöf. Öll þjóðin þarf að vakna upp til meðvitundar um, að henni er vissúlega háski búinn af áfengisneyzlu. Þjóðin verður að vera eins áhugasöm um það að útrýma fátækt, atvinnuleysi, sjúkdómum, slysum og öðrum ó- farnaði. En svo bezt vinnst sig- ur á öllum ófarnaði, að siðferð- isþroski og andleg menning þjóð arinnar í heild eflist sem bezt. —Veiti guð henni gæflu til þess. Pétur Sigurðsson. fremur virðingarheiti. Sérvitur var Gísli, svo sem mjög er títt með vel gefna menn, hrjúfur nokkuð og galt varhug við ýmis- legri nýbreytni, einkum í bú- skap. Hann var hamhleypa til starfa og entist óvenjuvel þrekið. Skógargerði verður tæpast í mín- um augum talin kostajörð, en þar bjó Gísli nær 60 ár með Dag- nýju konu sinni, sem í engu er eftirbátur Gísla. Þau eignuðust 12 börn sem öll komust upp og mun leitun á slíkum atgerfis- systkinahópi. Enginn sem eitt- hvað þekkir til lífsbaráttunnar fyrir 40—60 árum, gengur þess dulinn að systkinahópurinn frá Skógargerði, sem þau hjón færðu þjóðfélaginu var mikið afrek. Hin síðustu ár, sem ég þekkti til Gísla, veit ég að hann var efna- lega vel sjálfbjarga. Bóndastarf hans hafði fært honum þá reynslu að sauðkindin væri sú búfjártegundin sem hæfði land- inu bezt og stórum betur, en svín eða kjúklingar. Hann hafði bjargfasta trú á landbúnaðinum og taldi það honum fremur til gildis að nokkurrar forsjálni og atorku væri þörf í þeim störfum, ef vel ætti að fara. Hér verður ekki rakin ætt Gísla, né ævistörf að nokkru ráði. Til þess brestur mig þekk- ingu, enda vænti ég að það verði gert af þeim mönnum, er lengri kunnugleika hafa. Gísli var einn af þeim kjarna- kvistum er komu ókalnir úr harðræði því er kynslóðirnar margar bjuggu við. Og meira en það. Erfiðleikarnir virtust stækka hann. Aldrei varð ég var nokk- hendi til lífsins eða samtíðarinn- urs kala eða sárinda frá hans ar, né þeirra, sem sumir myndu telja að sól lífskjaranna hefði vermt betur. Mér er þetta glöggt vitni um andlegt þrek, sterkan pærsónuleika og vitsmuni. Margir kannast við áhuga Gísla á þjóðlegum fræðum, frá- sögnum af sérkennilegu fólki, afreksverkum og hetjusögum. Og oft hefir rödd heyrzt frá GLsIa í þáttum um íslenzkt mál. Allt ber þetta vitni, ekki einasta at- hygli hans og skarpleik, heldur einnig vilja og starfsáhuga, brennandi orku og framkvæmda- semi til að leggja stein í grunn hins nýja íslands, sem hver sam- tíð er að skapa — til að hafa áhrif á stefnuna — af því að hann vildi að fortíð hyggja "ér framtíð skyldi byggja. Gísli var tæpra 83 ára er hann varð bráðkvaddur hinn 30. des. sl. í fjárhúsi í Skógargerði, er hann hugðist gefa fé sínu síðari gjöf. Hann stóð að starfi frá vöggu til grafar. Á laugardag, 9. jan., fer útför hans fram í Skóg- argerði, þar sem hann verður moldu orpinn í heimagrafreit. Þeir, sem landið erfa, mega ekki láta merkið falla. Jónas Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.