Morgunblaðið - 16.06.1981, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.06.1981, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ1981 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavfk. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 80 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö. Ákvörðun Friðriks Friðrik Ólafsson forseti FIDE hefur frestað einvígi Viktor Kortsnojs og Anatoly Karpovs um heimsmeistaratitilinn í skák til að leggja áherslu á kröfuna um að kona Kortsnojs og sonur fái fararleyfi frá Sovétríkjunum. í viðtali við Morgunblaðið á sunnudag skýrði Friðrik Ólafsson forsendurnar fyrir ákvörðun sinni með þessum orðum: „Það er vilji FIDE, að þetta mál leysist og þess vegna setjum við þennan þrýsting á Sovétmenn. Ég tel það skyldu mína að sjá um, að aðstaða keppenda sé jöfn og ákvað því að gefa Rússunum aukinn tíma til að leysa málið." Þegar íslenskir stuðningsmenn Kortsnojs í baráttu hans við Sovétvaldið, ætluðu að afhenda bænarskjal fyrir hans hönd í sovéska sendiráðinu í Reykjavík, komu þeir að luktum dyrum og sendiráðs- menn létu ekki einu sinni svo lítið að veita bréfinu viðtöku. Þegar íslenskir þingmenn gengu á fund varaforseta Sovétríkjanna í Moskvu, var þeim sagt, að þeir mættu ekki minnast einu orði á mál Kortsnojs. Sovétmenn hafa byggt þessa þvermóðsku sína á því, að hér sé um innanríkismál að ræða, sem þeir þurfi ekki að ræða við aðra en þá, sem þeim sýnist. Að þessu leyti halla Sovétmenn réttu máli og kemur það í sjálfu sér ekki á óvart. Mannréttindamál eru ekki einkamál einstakra ríkisstjórna. Um þau hafa verið gerðir alþjóðasamningar og 1975 undirritaði sjálfur Leonid Brezhnev við hátíðlega athöfn í Helsinki svonefnda lokasamþykkt ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu. í þessari lokasamþykkt eru skýr fyrirmæli um það, hvernig ríkisstjórnir skuli bregðast við í tilvikum eins og deilu Viktor Kortsnojs við Moskvuvaldið. Samkvæmt Helsinki-samþykkt- inni á Sovétstjórnin að virða vilja Kortsnojs og fjölskyldu hans. Ákvörðun Friðriks Ólafssonar og stjómar FIDE í þessu máli er rétt. Það er með öllu óviðunandi að líða Sovétmönnum þann yfirgang, sem þeir hafa sýnt. Þeir hljóta nú að átta sig á því, að heimsmeistaraein- vígið er í veði. Sovétmenn ganga ávallt eins langt og þeim er fært og Jjúivel Iengra sé þess kostur, framkoma þeirra í garð íslensku þingmannanna í Moskvu staðfestir það. Ef að líkum lætur munu sovésk yfirvöld bregðast illa við ákvörðun Friðriks Ólafssonar og reyna að sverta hann og FIDE með einum eða öðrum hætti. Auðvitað hljótum við þó öll að vona, að sovéska stjórnkerfið bregðist við á hinn veginn og liðki um fyrir fjölskyldu Kortsnojs. Friðrik Ólafsson og félagar hans hafa boðið Sovétvaldinu byrginn með eftirminnilegum hætti, nú reynir meira á stuðning íslenskra skákmanna og þjóðarinnar allrar við Friðrik ólafsson en nokkru sinni fyrr. Reiðir ríkisstjórninni Um land allt gætir mikillar reiði hjá sveitarstjórnarmönnum vegna þeirrar ákvörðunar Svavars Gestssonar félagsmálaráðherra að skipa Inga R. Helgason í forstjóraembætti hjá Brunabótafélagi íslands. Arni Emilsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórn á Grundarfirði, komst þannig að orði í Morgunblaðinu á laugardag: „Þessi embættisveiting er svo forhert og pólitísk að það er ómögulegt að una henni. Ég vil senda flokksbræðrum mínum í ríkisstjórninni áminningu, nema þeir sjái um að þetta verði dregið til baka. Lýðræðissinnar í sveitarstjórnum, allir þeir sem ég hefi talað við, eru fjúkandi illir yfir þessu. Menn hafa haft á orði, og þar á meðal Morgunblaðið, að kommúnistar ráði öllu í þessari ríkisstjórn og ég sem stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar hef nú viljað draga það mjög í efa, en því er ekki að neita og verður að segjast eins og er, að þessi embættisveiting rennir stoðum undir þá fullyrðingu." » Hér er ekki töluð nein tæpitunga og annar sjálfstæðismaður, stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar á Snæfellsnesi, Sturla Böðvarsson, sveitarstjóri í Stykkishólmi, segir: „Við héldum, þegar þessi ríkisstjórn tók við völdum, að það gæti leitt til góðs að hafa Alþýðubandalagið í ríkisstjórn. Þetta rekur endahnútinn á það og ég tel að þeir Alþýðubandalagsmenn séu óhæfir til þess.“ Þessar yfirlýsingar eru ótvíræðar. Menn hljóta að spyrja: Hvernig bregðast sjálfstæðismennirnir í ríkisstjórninni við þeim? Éf að líkum lætur verður lítið um svör af þeirra hálfu og látið eins og ekkert sé unnt að gera, af því að félagsmálaráðherra, Svavar Gestsson, er erlendis. En einhvern tímann hefði nú þótt ástæða til þess fyrir ráðherra að sitja á sínum stað við ríkisstjórnarborðið, þegar embættisveiting af hans hálfu vekur reiðibylgju um land allt. Og hinu skyldu menn ekki heldur gleyma, að Svavar Gestsson er heilbrigðis- og tryggingaráðherra og á sjúkrahúsunum ríkir neyðarástand, sem ekki verður úr bætt nema fyrir afskipti ríkisstjórnarinnar. Búast má við frek- ari átökum í Ogaden eftir fíob Dietz Þriggja ára þurrkatími hafði hörmulegar afleiðingar i för með sér fyrir ibúa Ogaden-héraðsins og fleiri héraða Eþiópiu. Mynd þessi er tekin fyrir ári siðan en þá var álitið af um 95% barna á sumum þurrkasvKðunum væru vannærð en matvælaskortur fylgdi i kjölfar uppskerubrests af vöidum þurrkanna. Nú er þurrkatiminn iiðinn og líf aftur að færast i eðlilegt horf. Vöruflutningabílar og fólk fer gegnum þorpið Cross í Ogaden- héraðinu í Eþíópíu. Þar eru um það bil 30 kofar gerðir út stráum og leir. En fólkið hefur meiri áhuga á þvi að selja úlfalda og kaupa sykur en skæruhernaði sem alltaf má búast við að sé skammt undan. Þriggja ára þurrkatími, sem hefur haft í för með sér miklar hörmungar, er nú á enda. Ogaden er nú blómleg grasslétta og bú- peningur er farin að fitna. En þá má lika fara að búast við því að skæruliðar láti til sín taka á ný. „I þurrkunum höfum við misst sum neðanjarðarbyrgin okkar og fólkið hefur ekki haft krafta til að berjast. ÖIl orka þess fór í að bjarga því sem hægt var,“ segir herforinginn Ahmed Adidid sem er yfirmaður þess sem hann kailar stoltur „fjórðu herdeild Þjóðfrelsisfylkingar Vestur- Sómalíu". „Við viljum að flóttamenn snúi aftur til landsins. Þeir geta hjálp- að okkur í baráttunni við Abyss- íníumenn," segir hann. Að kalla Eþíópíumenn Abyssíníumenn er nokkuð niðrandi. Cross er í Eþíópíu eins og áður er greint frá, um 50 kílómetrum frá landamærum Eþíópíu og Sóm- alíu. Þorpið er þó undir stjórn skæruliða Þjóðfrelsisfylkingar- innar og þeir gæta þjóðveganna þar um kring. í Ogaden-striðinu 1977—1978 var Þjóðfrelsisfylkingin fyrir miklum áföllum eftir að Sovét- menn hættu að styðja hana en snerust á sveif með eþiópísku stjórninni. Nú gera skæruliðar fylkingar- innar árásir af og til en þeir hafa sl. 20 ár barist fyrir þvi að fá yfirráð yfir Ogaden-héraðinu. Skæruliðar mega ferðast að vild um sveitahéröðin en hinir fáu þéttbýlisstaðir eru undir stjórn Eþíópíumanna. „Meðan Sovétmenn og Kúbanir eru hér verður erfitt fyrir okkur að ná settu marki," segir Abdi Ismael Farah sem sér um utan- ríkismál í höfuðstöðvum Þjóð- frelsisfylkingarinnar i Moga- dishu. Þjóðfrelsisfylkingin er að reyna að fá í sínar raðir á ný hundruð þúsunda Ogaden-búa sem flúðu til Sómalíu í þurrkunum. Skærulið- arnir fá mestan stuðning frá Sómaliu og stöku sinnum hjálp frá Egyptum, írak og Saudi- Arabíu. Þegar Sovétmenn hófu stuðning við Eþíópíumenn í strið- inu 1977—1978 gerðust Sómalíu- menn þeim afhuga og síðan hefur Þjóðfrelsisfylking Vestur-Sóm- alíu verið ein af þeim frelsisfylk- ingum sem hliðhollar eru Banda- ríkjamönnum. I tíð Jimmy Carters fékk fylk- ingin engin hjálpargögn frá Bandaríkjunum. Eftir að Bandaríkjamenn og Sómalir höfðu gert með sér samkomulag um að Bandaríkjamenn mættu nota hafnaraðstöðuna í Berbera í norðurhluta landsins, héldu Ogaden-búar að sinn tími væri kominn. Sá sem þessa grein ritar er bandarískur og er hann var á ferð um Ogaden var hann oftsinnis spurður af því hvort og hvenær hjálpin kæmi. Andstaða við Sovétmenn skín alls staðar í gegn. Stuttu áður en við komum til Cross festist fjór- hjóladrifinn bíll okkar í leðju, í fjórða sinn þann daginn, og við vorum upp undir þrjá tíma að losa hann. „Ófétið hann Breznev,“ sagði einn af fylgdarmönnum minum. Þetta var sýnilega það eina sem hann kunni að segja á ensku. „Ef Rússarnir væru ekki hér,“ sagði túlkurinn minn, „ættum við þenn- an stað og þyrftum ekki að ferðast eins og asnar um skóglendi á versta tíma ársins." í Cross eru engin vatnsból, ekkert rafmagn, engir skólar og ekkert sjúkrahús. Það sýnir glöggt hversu lítið Eþíópíumenn hafa gert til að skapa betri lífsskilyrði og þægindi meðal hirðingjanna sem búa í Ogaden. Deria Magaar er 65 ára og eini íbúinn í Cross sem talar ensku. Hann sagðist ekki muna eftir því að Eþíópiumenn hefðu gert annað fyrir íbúana þar um slóðir en að neyða þá til herþjónustu annað slagið og innheimta af þeim skatta. Þýð. rmn. Garðar Cortes veitir bjart- sýmsverðlaununum viðtöku GARÐARI Cortes voru afhent bjartsýnisverðlaun Bröste-fyrirtæk- isins i Kaupmannahöfn i gær. Er þetta i fyrsta skipti sem verðlaunun- um er úthlutaö, en þau eru 25.000 danskar krónur að upphæð. Sam- kvæmt stofnákvæðum skal bjartsýn- isverðlaunum úthlutað árlega til islensks listamanns. sem með list sinni hefur stuðlað að bjartsýnu lifsviðhorfi. Afhendingin fór fram með viðhöfn í húsakynnum Bröste-fyrirtækisins á Kristjánshöfn. Formaður hinnar ís- lensku úthiutunarnefndar, Gunnar J. Friðriksson, sagði um verðlaunahaf- ann að auk þess að vera viðurkenndur óperusöngvari í heimalandi sínu, hefði hann átt frumkvæði að stofnun samtaka til styrktar framgangi is- lenskrar óperu. „Það þarf mikla Garðar Cortes bjartsýni til að gera slíkt í jafn fámennu samfélagi, sérstaklega þcg- ar um jafn erfiða og krefjandi listgrein og óperu er að ræða,“ sagði Gunnar. „Garðari Cortes og samverk- amönnum hans hefur þegar orðið mikið ágengt og þeir notið mikils almenns stuönings við frumkvæði sitt.“ Formaður borgarráðs Kaupmanna- hafnarborgar, Gerda Louw Hansen og Peter Bröste, forstjóri Bröste- fyrirtækisins, tóku einnig til máls og fjölluðu um hin margvíslegu tengsl íslands og Danmerkur. Garðar Cortes þakkaði verðlaunin og kvað þau mundu veita sér styrk til að halda áfram starfinu. Garðar kemur heim í dag, þriðjudag, en hann syngur um þessar mundir í óperunni La Boheme í Þjóðleikhúsinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.