Morgunblaðið - 11.03.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 11.03.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990 C 7 börnum í langskólanám nema að flytja suður. Og það var þá sem ég kynntist fyrst leikhúsinu. Maður átti náttúrulega enga aura til að kaupa sig inn á sýningar, en pabbi þekkti dyravörð í Iðnó og við fengum að standa meðfram veggjunum. Og Þjóðleikhúsið þekkti ég bara af efri svölunum, eins og algengt var um marga á þeim árum. Þar var maður yfirleitt, því að í gegnum skólana fengu krakkar að sjá sýningar fyrir lítið verð á efri svölunum og þær voru þá alltaf fullar. Það er meðal annars vegna þessa sem ég er andvíg öllum breytingum á salnum og framhúsi Þjóðleikhúss- ins. Með breytingununm er gert ráð fyrir að fækka sætum og hafa þau öll jafn dýr. Ástæðan fyrir því að maður fór yfirleitt í leikhús hér áður fyrr var að það voru til ódýr sæti, og þannig finnst mér að það eigi að vera áfram. Vandi Þjóðleikhúss- ins felst ekki í innréttingunum.. Mat- urinn verður ekkert betri þótt þú fáir þér nýja eldhúsinnréttingu. Eg er að minnsta kosti þeirrar skoðunar að aðalatriðið sé góður kokkur í eld- húsinu og svo auðvitað að hráefnið sé fyrsta flokks. Ekki þar fyrir að mér hefur alltaf fundist Þjóðleik- húsið fallegt og ég get ekki séð og skilið, þó ég hafi reynt að láta sann- færa mig og velt þessu mjög fyrir mér á alla kanta, að þessar breyting- ar séu til bóta. Og mér finnst hræði- legt að peningarnir skuli alltaf fara í steinsteypuna og ytri umgjörðina, en ekki í listsköpunina sjálfa og hin andlegu verðmæti. Auðvitað er Þjóð- leikhúsið bara spegilmynd af þjóð- félaginu og þetta er allt bara and- skotans taugaveiklun og við verðum að fara að snúa af þeirri braut.“ Því eldri, þvi betri Hún spgist hafa lent í leikhúsinu fyrir tilviljun. Fyrst lék hún í skóla- leikritum í Laugarnesskólanum eins og gengur og síðar í Menntaskólan- um í Reykjavík án nokkurra áforma um að leggja leiklist fyrir sig. Að loknu stúdentsprófi ætlaði hún í arkitektúr og var eitt ár í verk- fræðideild og vann fyrir sér sem tækniteiknari og stærðfræðikennari í Iðnskólanum. Einnig vann hún nokkur sumur sem flugfreyja og kveðst hafa byggtjeikritið Flugleik á þeirri reynslu. Ég bendi henni á að ég hafi heimildir fyrir því að sum- ir flugliðar hafi ekki verið yfir sig hrifnir af þeirri túlkun og þótt sem kveðjur Brynju til fyrrum kollega sinna væru þar heldur kaldar. „Þetta var nú fyrst og fremst skopleikur þar sem hlutirnir voru ýktir talsvert eins og gengur. Ég held líka að mörgum flugliðum hafi bara þótt þetta fyndið. Leikritið samdi ég í samvinnu við Þórunni Sigurðardóttur og Erling Gíslason og tónlistina samdi Karl Sighvats- son. Við frumsýndum í Cardiff í Wales sem er kannski nokkuð sér- stakt. Ég notaði auðvitað reynslu mína sem flugfreyja og þannig er það yfirleitt, að reynslan kemur fram í verkunum þótt maður færi stund- um í stílinn. En þessi störf, sem ég vann hér fyrr á árum og sú reynsla sem ég fékk af þeim, hefur skilað sér leikhússtarfinu. Og þótt það hljómi einkennilega þá finnst mér stundum að Guðmundur Arnlaugs- son, sem kenndi mér stærðfræði í menntaskóla, hafi verið einn besti leiklistarkennarinn minn. Hann kenndi stærðfræðina eins og færasti látbragðsleikari og varpaði línum og plönum, tangentum og parabólum aftur fyrir bak, undir fót og allt um kring. En svo gerðist það bara að ég ákvað að fara út í leiklist. Ég hafði komið fram sem dansari í Þjóðleik- húsinu og Bidsted ballettkennari hafði hvatt mig til að fara út á þá braut. En ég valdi leiklistina, sem betur fer, getum við sagt, því sem dansari væri ég útbrunnin í dag. Starfsaldur dansara er búinn um fertugt, en leikarinn verður verð- mætari því eldri sem hann verður. I leikiistinni, og raunar fleiri listum, er það þannig að menn útskrifast aldrei. Það tekur leiklistarnemann tíu ár eftir útskrift að verða leikari og síðan er hann að bæta við sig alla ævi eftir það.“ Að loknu námi í Leiklistarskóla Þjóðleikhússins fór Brynja í fram- haldsnám í París, hjá látbragðs- meistaranum Lecoq. Éftir að hafa leikið íjölmörg hlutverk á sviði fór hún smám saman að snúa sér að leikstjórn og frumraun hennar á því sviði var hjá leikfélaginu Grímu árið 1967 á leikritinu „Eg er afi minn“ eftir Magnús Jónsson. Fyrsta verk undir hennar leikstjórn í Þjóðleik- húsinu var hins vegar „Eftirlitsmað- urinn“ eftir Gogol árið 1970. Brynja hefur leikstýrt á annað hundrað uppfærslum við leikhús, sjónvarp og útvarp og er nú annar af tveimur fastráðnum leikstjórum Þjóðleik- hússins, ásamt Benedikt Árnasyni. Hún segir að sér hafi gengið vel sem leikkonu áður en leikstjórinn tók yfir. „Þetta skiptist eiginlega í tvö tímabil hjá mér og upp úr þrítugu fer ég að leikstýra meira, einmitt á þeim tíma sem mér gekk hvað best sem leikara. En það er nauðsynlegt að sinna hvoru tveggja því maður vill stundum gleyma þeim vandamál- um sem leikarinn á við að glíma. Þegar maður fer aftur á svið rifjast það upp og á eftir er auðveldara að setja sig í spor leikarans. Svo hef ég verið að skrifa leikrit og þetta er eiginlega allt samhangandi og bara tilviljun í hvaða formi maður tjáir sig. Leikhúsið er svo marg- slungið að þar mætast ótal margar listgreinar og maður þarf einhvern veginn að geta stokkið á milli þeirra. Ég hef meira að segja búið til leik- myndir, en tek það ekki að mér aft- ur, fyrr en félagi minn, Sigurjón Jóhannsson, tekur að sér leikstjórn og velur mig sem leikmyndateikn- ara.“ — Það má þá kannski segja að leikhúsið sé runnið þér í merg og bein? AUÐVITAÐ ER ÞJÓDLEIKHUSID BARA SPEGIL- MYADAFÞJÓÐ- FÉLAGIMJ OG ÞETTAERALLT AAD8KOTAA8 IAIGAVEIKLIA OG VID VERDIAI AÐFARAADSMIA AFÞEIRRI BRAIT. „Ég hef lifað og hrærst í þessu í áratugi og tel mig því hafa öðlast sterka tilfínningu fyrir öllum þáttum leikhússtarfsins. Ég held ég fmni á mér hvaða fólk er leikhúsfólk, og þá á ég ekki bara Við leikarana held- ur einnig allt hitt fólkið sem vinnur við leikhúsið. Það er ómetanlegur kostur fyrir hvert leikhús að hafa á að skipa góðu leikhúsfólki, allt frá útidyrum og inn að baksviði. Þetta fólk hefur í sér hjartslátt leikhúss- ins. Það er til dæmis ekki sama hvernig dyravörður opnar og lokar dyrum í leikhúsi. Það er ekki sama hvernig hann tekur á móti gestun- um. Hjartsláttur hans, eins og allra annarra starfsmanna, verður að slá' í takt við hjartslátt leikhússins. í þessu sambandi dettur mér í hug ungur sýningarstjóri í öðru húsi þar sem ég var að vinna, sem var leik- húsmaður af guðs náð, þótt hann hefði lent í þessu starfi fyrir tilvilj- un. Það var allt rétt sem hann gerði og hjarta hans sló í takt við alla sýninguna. Þessi maður hafði verið stýrimaður á skipi en orðið að hætta af einhveijum ástæðum. Hann sagði mér meðal annars frá því að fyrrum skipsfélagar hans hefðu orðið undr- andi og jafnvei hneykslaðir þegar þeir fréttu að hann væri farinn að vinna í leikhúsi. Hann kvaðst þá hafa farið að hugsa um hvers vegna hann hefði valið sér þetta og komist að því að leikhússtarfið og sjó- mennskan, sem honum líkaði mjög vel, væru nákvæmlega eins: „Þetta er allt upp á líf og dauða,“ sagði hann og það er einmitt svona sem sannur leikhúsmaður hugsar. Starfið í leikhúsinu er svo sannarlega upp á líf og dauða. Leikstjórinn tekur til dæmis að sér ákveðið verkefni og hann leggur nótt við dag og ekkert annað kemst að, alveg fram að frum- sýningu. Þá hefst fæðingin og á næsta klukkutíma ræðst hvort af- kvæmið lifir eða deyr.“ Leikhúsumræóa i garóhúsi — Eiginmaður þinn, Erlingur Gíslason, fer með hlutverk Zdenjek skipulagsstjóra í Endurbyggingunni og þykir standa sig mjög vel í því hlutverki. Er ekki óþægilegt fyrir þig að leikstýra Erlingi, manni með slíka reynslu og þá hæfíleika sem hann hefur. Fer hann nokkuð eftir því sem þú segir? „Þú meinar þá af því hann er maðurinn minn. Við erum bæði mjög skapmikil, en hann fer nákvæmlega eftir því sem ég segi þegar ég er í hlutverki leikstjórans. Hann er líka svo góður leikari og mikill leik- húsmaður að maður má bara þakka fyrir að hafa hann í leikhópnum. En þetta byggist auðvitað allt á mjög náinni samvinnu og gagn- kvæmum skilningi milli leikarans og leikstjórans, hvort sem hann er mað- urinn manns eða ekki.“ — Nú lifið þið bæði og hrærist í leikhúsinu og hafið gert í öll þessi ár. Er ekki heimilislífið orðið gegn- sýrt^tf leikhúsumræðu? „Sjáðu garðhúsið hérna fyrir ut- an. Það er óupphitað. Til að forða heimilinu frá þessari leikhúsumræðu- ákváðum við að fara út í þetta garð- hús ef við þyrftum að ræða slík mál. En það er bara alltaf svo kalt þar á veturna að við höldumst ekki við og svo er leikhúsinu lokað á sumrin. Þetta er svona hin opinbera skýring á leikhúsumræðunni á heim- ilinu, en auðvitað tölum við Erlingur oft saman um leikhús." — Kynntust þið Erlingur á leik- sviðinu? „Nei, og við vorum nú eiginlega komin til „elliáranna", segi ég oft, þegar við kynntumst. Við höfðum ekkert leikið saman, vorum í sitt hvorri áttinni, en við vissum hvort af öðru eins og gengur innan leik- hússins. Og reyndar höfum við ekki unnið mikið saman eftir að við kynntumst. Við vorum einmitt að ri§a þetta upp um daginn og Erling- ur sagði: „Það er alveg skömm að þessu Brynja, hvað við höfum unnið lítið saman,“ því við höfum eiginlega bara unnið saman utan leikhússins. Við höfum skrifað saman leikrit og sett upp sýningar, en ótrúlega lítið innan leikhússins miðað við það að hann er einn af aðalleikurum Þjóð- leikhússins. Ef til vill höfum við líka ómeðvitað verið að veija hvort ann- að, kannski til að halda heimilinu saman, þannig að við værum ekki bæði frá í einu.“ — Núertþúfyrstogfremstþekkt sem leikstjóri, en Erlingur aftur á móti í hópi okkar þekktustu leikara. Er þetta eitthvað sem menn ákveða sjálfir eða er það háð tilviljun hvoru megin menn lenda á leiksviðinu? „Það er kannski bæði og. Erlingur leikstýrði meira hér áður fyrr og mér finnst eiginlega synd og skömm að hann skuli ekki hafa leikstýrt meira nú á seinni árum.“ HiliUl stiU yfir Haraldi — Nú er þetta starf afar frá- brugðið þessu venjulega mynstri, til dæmis hvað varðar vinnutíma og eins býr þarna oft mikill tilfinninga- hiti á bak við. Telur þú það kost eða löst að leikarar séu giftir innbyrðis? „Ég held að það gæti varla nokk- ur verið giftur manni utan leik- hússins og það hlýtur að vera rosa- lega erfitt að vera bundinn mann- eskju sem hefur Thaliu fyrir guð sinn, nema að vera sjálfur á sama báti. Það fólk er aðdáunarvert sem þolir slíkt. Og þá er ég ekki að tala um að það sé meira fjör eða djamm á leikurum en öðrum, heldur er þetta bara svo hræðilega krefjandi starf að maður skilur það ekkert eftir í leikhúsinu.“ — Þú nefndir fjör og djamm. Nú hefur það orð legið á ykkur leikurum að það sé oft mikið stuð í kringum ykkur utan leikhússins og skrautlegt samkvæmilíf? „Ég held nú að mesti glansinn sé farinn af því. Ég var einmitt að tala um það við einhvern um daginn: „Var þetta ekki skárra í gamla daga, er ekki orðið eitthvað fjörlaust og gelt hérna hjá okkur. Ætli hljóti ekki að vera meiri pótens á öðrum vinnustöðum?" Nei, án gamans, þá finnst mér eins og samkvæmislífið hafi verið miklu fjörugra innan leik- hússins í gamla daga. Það var í það minnsta meiri sjarmi og elegans yfir því og ég minnist sérstaklega „grand“ samkvaéma hjá Haraldi Björnssyni, en við Erlingur vorum svo heppin að hann kenndi okkur báðum. Það var mikill stíll yfir öllu hjá Haraldi. Hann bauð okkur í garð- inn sinn og tíndi hvítvínsflöskur út úr runnunum og setti mann á gæru- skinn á grasflötina. Það var alltaf svona einhver hástemmd stemning og gleði yfir þessu. Það er eins og fólk hafi haft meiri tíma til að rækta svona hluti með sér en nú er. Kannski er það bara það, að þjóð- félagið er orðið svo taugaveiklað að þótt manni finnist að maður ætti að gleðjast þá gefur maður sér ekki tíma til þess í öllum látunum. Ég veit það ekki, en einhvern veginn gaf maður sér meiri tíma áður og reyndi ekki að gleypa allt í einu eins og mér finnst við gera núna. Mér datt þetta líka í hug um daginn þeg- ar ég var að tala við Havel, að þrátt fyrir alla erfiðleikana og mótlætið fannst mér hann á margan hátt hafa verið öfundsverður, að hafa haft frið til að hugsa og frið til að vera»ekki alltaf að flýta sér. í þessu sambandi dettur mér í hug að þegar við Erlingur kynntumst, snemma á starfsferli okkar, þá fór- um við til útlanda í eitt ár til þess að mennta okkur í leikhúsum Évr- ópu. Við vorum skítblönk og höfðum úr nægum verkefnum að spila hér heima þegar við tókum okkur upp og fórum. Við vorum bara á einum dásamlegum Skoda-bíl, sem við sváfum stundum í, og ferðuðumst vítt og breitt um álfuna. Þessi reynsla var ómetanleg. Það var eins og eitthvert glópalán væri yfir okkur allan tímann og við vorum yfirleitt stödd þar sem eitthvað markvert var um að vera. Þarna hittum við til dæmis Havel í fyrsta skipti, kynnt- umst leikkonunni Helenu Weigel, ekkju Bertolds Brecht og Strehler, einum frægasta leikstjóra í Milano. Og við vorum á námskeiði hjá fræg- um leikhúsmönnum í London svo nokkuð sé nefnt. Það er svo undar- legt þégar ég hugsa til baka, til þessa tíma, að það er eins og við höfum einhvern veginn alltaf lent í hringiðu þess sem var að gerast í leikhúslífinu í Evrópu. Seinna lagðist ég svo í ferðalög með Inuk-hópnum og þræddi þær leiklistarhátíðir sem þá voru merkilegastar og það var auðvitað alveg sérstök upplifun líka, þótt með öðrum hætti væri.“ Aú er ég hætt Það er stundum talað um að lista- menn fórni sér fyrir listina og ég spyr Brynju hvort henni fínnist hún hafa fórnað einhveiju af sjálfri sér fyrir leiklistina og hvort hún hafi einhvern tíma séð eftir að hafa lagt út á þessa braut. „Ég get sagt þér að í hvert skipti sem ég er búin að frumsýna þá segi ég við sjálfa mig: „Ég skal aldrei, aldrei gera þetta aftur. Nú er ég hætt. Nú get ég ekki meira." — Þetta tekur svo á mig og getur ver- ið svo djöfullegt að manni er öllum lokið. En svo jafnar maður sig og fer aftur af stað.“ — En nú hefur Endurbyggingin hlotið jákvæða umfjöllun. Slík viður- kenning hlýtur að hvetja þig til frek- ari dáða. „Ég hef oftar og fyrr en með þessu verki náð árangri þótt ég sé vissulega þakklát fýrir þá athygli sem það hefur hlotið. Inuk-verkið var til dæmis miklu meiri listasigur ef tekið er mið af þeirri eftirspurn og móttökum sem það hlaut erlend- is, þótt ég sé löngu orðin leið á að vera að tíunda það. Og ef miðað er við aðsókn, burtséð frá allri gagn- rýni, má segja að Hárið hafi slegið öll met, en verkið gekk í tvö ár og hefði getað gengið í fleiri ár hefði Glaumbær ekki brunnið. Ég les yfir- leitt ekki blaðagagnrýni fyrr en löngu eftir frumsýningu enda dreymir mig oftast fyrir því hvernig húri verður. Það eru kettir sem vitja mín í svefni og annað hvort ráðast þeir á mig eða láta vel að mér. Fyr- ir Havel-sýninguna dreymdi mig tvo fressketti og þeir voru með slaufu bundna í skottið og gengu lúpulegir í burtu frá mér. Þeir létu mig að minnsta kosti í friði.“ — Ertu viðkvæm fyrir gagmýni? „Þegar maður er búinn að eyða mörgum mánuðum í svona einbeitta vinnu þá verður maður bara að taka gagnrýni eins og hún er skrifuð. Hún getur verið leiðbeining fyrir áhorfandann um hvort það sé þess virði að fara á sýninguna. Hún getur líka verið skrifuð af beiskju og jafn- vel illgirni og stundum finnst manni það eitt vaka fyrir viðkomandi gagn- rýnanda að vekja á sér athygli. Ég vil alls ekki setja alla gagnrýnendur undir sama hatt enda skrifa þeir út frá mismunandi forsendum, og fáir út frá forsendum leikhússins. Eg tek skrif þeirra því aldrei sem leiðbein- ingu fyrir mig, því það er ég sem er sérfræðingurinn og við í leik- húsinu, en ekki þeir. Leikhúsgagn- rýni er hins vegar nauðsynleg sem leynd auglýsing, hvort sem hún er jákvæð eða neikvæð, þótt manni finnist stundum að blöðin hafi ekki á nægilega hæfu fólki að skipa til þessara hluta. Mér finnst miklu hættulegri sú þróun sem orðið hefur samfara aukinni samkeppni fjöl- miðla, að það er farið að etja lista- mönnum saman, þar sem einn lista- maður kemur fram með opinberan óhróður um annan. Þetta er auðvitað til háborinnar skammar og segir meira um þann sem eys aurnum en hinn sem fyrir honum verður, enda er þetta gert fyrst og fremst til að auka sölu blaðanna. Eg held að lista- mönnum veiti svo sannarlega ekki af að standa saman í því að fá ráða- menn og almenning til að skilja verð- mæti listsköpunar, því næg eru vandamálin sem við er að etja í þeim efnum.“ — Þú sagðir áðan að eftir hveija frumsýningu værir þú alltaf ákveðin í að hætta. Hvernig ertu stemmd núna, ertu búin að ná þér? „Nei, nú er ég alveg ákveðin í að hætta. Það er svo margt annað sém mig langar til að gera. Ég gæti til dæmis vel hugsað mér að snúa mér alfarið að kartöflurækt. Við erum með kartöflugarð á Eyrarbakka og ég hef lært alveg sérstaka aðferð til að geyma kartöflur fram á vor. Það er ekki nóg að setja niður á vorin og taka upp á haustin. Aðal- kúnstin er að geyma kartöflurnar yfir veturinn og það getur verið býsna mikil vinna í því skal ég segja þér.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.