Morgunn - 01.06.1958, Blaðsíða 52
H. Addington Bruce:
Leyndardómur snilligáfunnar
★
Höfundur þessarar ritgerðar, H. Addington Bruce,
hefir lagt stund á sálfræði og rannsóknir á sálrænum
fyrirbærum um langt skeið. Um árabil veitti hann for-
stöðu rannsóknastarfi sálarrannsóknafélagsins í Boston,
en það félag hefir átt á að skipa sumum merkustu sálar-
rannsóknamönnum, sem uppi hafa verið, og leyst af hendi
mjög merkilegar, vísindalegar rannsóknir á fyrirbærum
víðkunnra miðla. Meðal bóka hans eru: The Riddle of
Personality, 1908, og Adventures in the Psycical, 1914.
Hann hefir notið mikils álits. Þýð.
Eitt allra erfiðasta viðfangsefni sálarfræðinnar er að
leysa vandamálið mikla um hvernig á því stendur, að öðru
hvoru koma fram á sjónarsviðið menn, sem fara svo lang-
ar leiðir fram úr fjöldanum, að vér köllum þá snillinga,
og gáfu þeirra snilligáfu. í rauninni gerði sálarfræðin
enga tilraun til að leysa þetta vandamál fyrr en um miðja
síðustu öld, þegar flokkur sérfræðinga um afbrigðilega
sálarfræði tók málið til meðferðar. Merkasta þessara
manna má telja: Moreau frá Tours, Hagen, Cesare Lom-
broso og Max Nordau lærisvein hans.
Þar sem þessir menn gengu út frá því, að sálarlíf snill-
inganna væri afbrigðilegt, er ekki að undrast, að þeir
byrjuðu á því að leita eftir hinu afbrigðilega, kenjótta,
óvenjulega í fari þessa fólks. Þeir þóttust finna svo mikið
af hinu kenjótta, undarlega, afbrigðilega í fari snilling-
anna, að þeir töldu sig geta flokkað þá undir afbrigðilega
menn, jafnvel úrkynjaða, á mörkum þess að vera geð-
sjúklingar, svo að þeir hlutu að telja, að fremur bæri að