Þjóðmál - 01.09.2011, Blaðsíða 22
20 Þjóðmál HAUST 2011
Núverandi sjávarútvegs- og landbún-að a r ráðherra, Jón Bjarnason, lagði
fram á Alþingi tvö stjórnarfrumvörp um
stjórn fiskveiða 19 . maí sl ., annars vegar
hið svokallaða stóra kvótafrumvarp1 og hins
vegar hið svokallaða minna kvótafrumvarp .2
Fyrstu umræðu á Alþingi um stóra kvóta-
frumvarpið var frestað fyrir þinglok í júní en
minna kvótafrumvarpið tók umtalsverðum
breytingum áður en það var samþykkt á
Alþingi 11 . júní 2011 sem lög nr . 70/2011
um breytingu á lögum nr . 116/2006, um
stjórn fiskveiða, með síðari breytingum
1 Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, lagt fyrir
Alþingi á 139 . löggjafarþingi 2010–2011, þskj .
1475 — mál 827 .
2 Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr .
116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breyt-
ing um, lagt fyrir Alþingi á 139 . löggjafarþingi
2010–2011, þskj . 1474 — mál 826 .
(strand veiði, aflamark, samstarf, tekjur af
veiði gjaldi, tímabundin ákvæði) .3
Að beiðni ritstjóra Þjóðmála hef ég samið
þetta greinarkorn um efni stóra kvóta frum-
varpsins . Markmiðið með skrifunum er
aðallega að veita heildarmynd af frum varps-
3 Með umsögn, sem ég sendi landbúnaðar- og
sjávarútvegsnefnd Alþingis, dags . 3 . júní sl ., gerði
ég alvarlegar athugasemdir við nánast öll ákvæði
minna kvótafrumvarpsins og lagði til að það yrði í
heild fellt eða þá að það tæki verulegum breytingum
í meðförum þingsins
(sjá http://www .althingi .is/pdf/umsogn .php4?lthin
g=139&malnr=826&dbnr=2868&nefnd=sl, síðast
skoðuð 23 . ágúst 2011) . Alls hafði frumvarpið að
geyma sjö efnisgreinar og voru m .a . eftirtalin ákvæði
frumvarpsins, sem ég gerði alvarlegar athugasemdir
við, felld niður í meðförum þingsins: a-liður 1 . gr .,
3 . gr ., b-liður 5 . gr . og b-liður 7 . gr . Ýmis önnur
ákvæði frumvarpsins, sem ég gerði athugasemdir við,
tóku breytingum .
Helgi Áss Grétarsson*
Um stóra
kvótafrumvarpið
* Ég er lögfræðingur og sérfræðingur (rannsóknalektor) við Lagastofnun Háskóla Íslands . Skoðanir, sem settar
eru fram í þessari grein, eru mínar og þurfa ekki að endurspegla viðhorf Lagastofnunar Háskóla Íslands . Staða
mín við Lagastofnun hefur verið fjármögnuð með tveim samstarfssamningum Lagastofnunar og Lands sam-
bands íslenskra útvegsmanna . Fyrri samstarfssamningurinn gilti frá 1 . ágúst 2006 til 31 . júlí 2009 en sá síðari
gildir frá 1 . ágúst 2009 til 31 . júlí 2012 . Síðari samstarfssamningurinn er aðgengilegur á heimasíðu Háskóla
Íslands . Um störf mín, m .a . rannsóknir, gilda viðeigandi laga– og siðareglur um akademíska starf smenn Há-
skóla Íslands . Vorið 2009 fékk ég styrk að fjárhæð 1 .000 þús . kr . úr sjóðnum Rannsóknarstyrkir Bjarna Bene-
dikts sonar til að sinna doktorsnámi mínu við lagadeild Háskóla Íslands .