Tíminn - 17.06.1951, Side 9
AUKABLAÐ
TÍMINN, sunnudaginn 17. júní 1951
9
RACHEL KNAPPELT:
£íki tnitt ðar í föóAinu
KafEi úr bókinni „A. Pullet on the Midden”
í aukablaði Tímans 17. júní í fyrra var kafli úr þess-
ari sömu bók. Hún er lýsing borgarstúlku á svcitalífinu
eins og þaS kom henni fyrir sjónir og rcynsla hennar
var af þvi, en hún vann la'ndbúnaSarvinnu á sveitabæ
í Suður-Englandi á stríðsárunum. Að þessu sinni' birtir
Tíminn aðalþættina úr kafla hennar um fjósið.
MILLA
Ég var hálft ananð ár á
Bath. Farm án þess að hafa
nökkruxh föstum skyldum að
gegna umfram það að gera j
það, sem mér var sagt hverju
•sinni og gera það vel. Það er
þægilegt hlutskipti um stund-
arsakir, en það getur orðið
leiðinlegt þegar til lengdar
lætur.
Þegar átta mánuðir voru
liðnir, fór mig að íanga tií að
hafa mitt einkasvið eins og
aðrir heimamenn. Enginn
nema húsbóndinn átti með að
skipta sér af þeim, sem hést-
ana hirti, þegar hann var 1
hesthúsinu eða störfum Jóa
við dráttarvélina, Tomma í
hænsnahúsinu og svínasti-
unni. Ef eiuhver kemur þar
inn fyrir vébönd með íhlutun
sína, fær hann fljótt ákveðið
svar, að hann skuli hugsa um
sitt. En allir áttu með að
skipta sér af mínu starfi og ég
gat engum sagt, að honum
kæmi það ekki við. Hann
skildi hugsa um sjálfan sig.
Mjólkurkýr höfðu ekki ver-
ið á bænum í mörg ár. Á
hverjum morgni var mjólkur-
brúsi látinn við bæjardyrh-
ar hkt og tíðkast í borgúm.
Einu sinni var mjólkuriðnað-
ur á þessum bæ, en gamla
fjósið hafði nú verið notað
sem skrangeymsla um langa
hríð.
Ekki man ég fyrstu tildrög
þess, áð farið var að taía um
að fá kýr á heimilið. Ef til
vill hefir það staðið í sam-
bandi við smjörskömmtun eða
mjólkur-leysi, en strax og það
kom til mála, fylgdi ég því
fast fram. Ég þreytti alla með
kúatali mínu, sem ég klifaði
alltaf á í tíma og ótíma, en
svo fór húsbóndinn að hafa
áhuga á kúm og við töluðum
oft saman um þau efni.
Svo var það einn vætugró-
inn, ómerkilegan september-
dag, að falleg Jerseykýr
flutti á heimilið.
Föstudagur þessi var í lok
kornsláttarins, en rigningar-
dagur við kornsláttinn er
hræðilegt fyrirbæri, — jafn-
vel þó að ekki sé verið að bú-
ast við nýrri kú. Kornið á
akrinitm vat með döþfu ýfit-
bragði og jörðin varð því
blautari, sem lengur rigndi.
Vagnarnir hímdu tómir og
verklausir á hlaðinu. Hest-
arnir biðu á báshum án eirðar
og tilgangs. Húsbóndinn var
óþjáll og önugur. Vanmáttur
og úrræðaleysi grúfði yfir
bænum eins og þrútinn skýja-
fcakki.
Öil vorum við eitthvað að
snúast og iétum eins og við j
ættum annríkt, en að lokum
entumst við þó ekki til að
gera okkur læti lengur og
stöðum í hnöppum, aðgjörða-
!aus, studdum okkur við sópa
og rekur og horfðum út í sort-
ann.
Allt í einu snerist húsbónd-
inn að mér með mæðugróinn
þjáningasvip. Útlit hans
sýndi, að nú var mælirinn
skekinn og fleytifullur.
—- Rachel, sagði hann. Nú
kemur beljuskömmin í dag.
Farðu og hafðu básinn henn-
ar í lagi.
— Fara og hafa básinn í
lagi. Ójá.
Ég stillti milli pollanna út
að fjósinu. Þar opnaði ég
dyrnar en hörfaði á hæli,
þegar ég sá inn.
Það kom mér hálfgért á ó-
vart, að kýr væri að koma.
Ég hafði vonað, að eitthvað
slíkt méetti verða, þegat búíð
væri að bjarga korninu í hús
og ná upp jarðeplunum. Fyrir
þann tíma hefði verið hægt
að hreinsa fjósið og kalka það.
Það hefði mátt steypa gólfið.
í krafti vísindalegra fram-
fara hefði mátt gera ýmsar
verulegar endurbætur og um-
skapa þessa ruslaskonsu, svo
að hún yrði ljómandi ný-
tízkusalarkynni.
Og nú var ekki einú sinni
búið að hreinsa gólfið.
Fjósið var mikið hús, fer-
h-yrnt óg upþhaflega byggt
yfir 12 kýr,. sem stóðu beggja
mégin við rnjóan gáng. Þar
voru ennþá járnþollar múrað-
ir niður og frá þeim lágu
hálsfestar þær, sem kýrnar
voru bundnar við forðum tíð.
Hlekkirnir voru þaktir þykku
ryði og múrsteinsflórinn ó-
sléttur og holóttur. Lágt var
til bjálkaloftsins, sem var
ríkulega skreytt köngulóar-
vefjum. Allt var fullt af rusli,
gömlum dósum og bunkum,
járnarusli, áteknum áburðar-
pokum og svo framvegis.
Rotturnar ráfuðu fram og
aftur um, gólfið,.. og regnið
átti opna leið- ihn um brotná
gluggana. Og í dag átti kýrin
að koma!
Ég var ákveðin í því með
sjálfri mér, að nú væri ein-
mitt rétta stundin til að ráð-
ast gegn öllu þessu drasli hér
inni, hversu verðmætt sem
Ilöfundurinn og ein helzta
söguhétjan.
það kynni annars að vera. Ég
ók nokkrum hjólbörum af því
út á éinmanalegan og afvik-
inn stað og hvolfdi farminum
þar. Ég sýndi köngurlóar-
fjölskyldunum enga miskunn.
Ég tróð upp í rottuholur og
einstakar mýs, sem reikuðu
heillum horfnar um gólfið, sló
ég til bana með skóflunni.
Þegar þessi herferð mín hafði
staðið í nokkrar stundir fór
ég að finna til, eins og ég
hefði áhdað að mér og nærst
á ryki alla mína ævi. Ég var
smurð írá hviríli til ilja með
ryki, sem bundið var rigning-
arvatni og fjósið leit enn ver
út en nokkru sinni fyr.
Þegár ég hafði klórað upp
þurra mold í einn poka yfir i
hesthúsinu og stráð henni á
gólfið, dreift hálmi yfir og
byrgt verstu blettina á veggj-
unum með heyi, tókst mér
loks að láta þennan stað líta
nokkurn veginn sæmilega út,
þó að ekki væri hann góður.
Rétt í því, að ég var að troða
gömlum poka upp í gluggann
heyrði ég úti fyrir skröltið í
vagninum, sem flutti búféð.
Vagndyrunum var lokið upp
og kýrin Milla, sem var frem-
ur angurvær á að sjá, var
leidd niður af vagninum.
Þegar kýrin kom inn í f j ósið
rann það upp fyrri mér, að
þetta byrjunarstarf, að gera
hreint í fjósinu, var svo sem
ekkert hjá því starfi,' sem
fram undan var. Eiginlega
vissi ég ekki neitt um kýr.
Aðeins í eitt einasta skipti á
ævinni hafði ég gerd tilraun
til að mjólka kú. Það var
þegar ég dvaldi einn yndis-
legan mánaðartíma á land-
búnaðarskóla. Sá mánuður
var af einhverri dularfullri
ástæðu kallaður þjálfunar-
tími. Hver getur þj álfað mann
til landbúnaðarstarfa á einum
einasta mánuði?
Ég hugsaði með nokkurri
beizkju til fyrirlestranna, sem
ég hafði heyrt, og um allar
glósurnar, sem ég hafði skrif-
að af mikilli samvizkusemi
um það hvernig við fóðrum
kýr og hvernig skuli haga sér,
þegar kýr eru keyptar á upp-
boði. Ég rifjaði upp fyrir mér
aftur og aftur þýðingarmestu
atriðin, sem okkur höfðu ver-
ið lögð á hjarta. Þýðingar-
mest við nautgriparækt var að
hafa bjart, loftgott og hrein-
legt hjá þeim. Þeir vísu menn
hefðu áreiðanlega jafnað fjós
ið okkar við jörðu með einu
gjöreyöandi augnatilliti.
Sjálf var kýrin indæl og
nett, ekki kynhrein Jersey
kýr, en þó með flestum ein-
kennum þeirra. Felldurinn
var hunangsgulur nema á
maganum var hún hvít og
loðin. Hefði hún verið hrein
Jerseykýr hefði halinn átt að
enda með svörtum skúf, en í
þess stað hafði hún þar hvít-
an, langan lokk. Hornfn Kenh
ar lögðust fínlega í mildan
boga. Hún hafði hvíta stjörnu
í enni, brún, flauéismjúk
augu, gljáandi svartar granir,
granna, fíngerða fætur, sem
enduðu með svörtum klauf-
um. Hún var einhver falleg-
asta skepna, sem ég hefi séð.
Því miður var hún fyrsta
kálfs kvíga og féll ekki að
vera tilraunadýr fyrir þann,
sem ekki kunni að mjólka.
Þaö var mikið áfall fyrý: mig,
og ég var ósköp niðurdregin.
Húsbóndinn sendi mig til
vinar síns eins, sem bj'ó 1
grenndinni.
Sá bær er skemmtilegt
heimili, þar sem allt gerist
með góðu skapi, og stórt er
litið á smámunina. Bóndi er
mikill á velli og málhreifur
og sjór að skrítlum og gaman-
sögum. Honum er það mikið
yndi að útvarpa nýjustu frá-
sögnum um nokkrar dagslátt-
ur.
Ég skýrði honum frá raun-
um mínum með kúna, að ég
kynni ekki að mjólka og illt
myndi vera að læra mjaltir á
henni. Hann átti nokkrar kýr
og þær voru allar vanar
klaufaskap byrjenda.
— Komdu bara til okkar,
stúlka mín, sagði hann. Þá
skulum við ekki vera lengi að
kenna þér þetta.
Þennan mann mun ég
blessa það sem ég á eftir.
Húsbóndinn mjólkaði sjálf-
ur heima í nokkrar vikur og
ég varð að þola góðlátlega
hæðni kvölds og morgna,
végna þess, að ég færi á ann-
an bæ til að læra að mjólka.
Það er bæði ögrandi og eft-
irvæntingarfullt hlutskipti að
læra að mjólka. Hinir eldri og
reyndari geta sýnt nemand-
anum nákvæmlegá hvernig
hann eigi að sitja á lágum
skemlinum, hvernig hann eigi
að halda höndunum og hvern
ig fatan eigi að skorðast milli
hnjánna. Nemandinn íærir af
þeim hvernig höfðinu er þrýst
að síðu kýrinnar, hvernig
vinstri fóturinn er hafður við
kýrfótinn og hvernig hægri
handleggur er alltaf reiðubú-
inn að verjaSt sparki. Héhdúr
nemandans eru líka lagðar
rétt að spenanum, og það er
útlistað í smæstu atriðum
hvernig fingur og handleggir
skuli starfa. En að fá mjólk-
ina til að streyma úr spenun-
um verður ekki kennt munn-
lega. Það verður að kóma af
sjálfu sér. Og það tekur sinn
tíma. Dögum saman neitar
mjólkin að streyma, en lekur
niður í fötuna með ergjandi
dropahljóði. Dögum saman
getur enni manns svitnað aí'
átökum þeirra krafta, sem
eytt er til einskis — og’maður
situr í stöðugri angist og skelf
ingarugg um það, að óhreinar
klaufirnar komi ósæmilega
nærri fötunni. Þreytuverki
leggur um fingur og úlnliði.
Og allt það, sem hlýzt af öllu
þessu stríði, er mjólkurseitill
;á fötubotninn, ógeð í kúnni,
kjarklaus byrjandi og röð al'
hlæjandi andlitum.
Svo er það dag nokkurn,
þegar tilraunirnir hafa mis-
heppnast sérstaklega, að fing
urnir finna loksins eins og af
sjálfum sér til hvers er ætlast
af þeim. Allúr líkaminn sveig-
ist ljúflega við starfið, fætur
og herðar fínna sér þægilega
stellingu og mjólkin flæðir
með jöfnum, hrynjandi klið í
fötuna og þýkkir froðuturnar
myndast ofan á henni.
Þegar þetta kom fyrir mig
leit ég upp á kennifeðurna og
andvarpaði af undrun.
— Drottinn minn, kallaði.
ég. Ég kann að mjólka!
Kennarar mínir hlógu.
— Nú hefirðu takið, sögðu
þeir. Því týnirðu aldrei.
Þetta segja allir. Hafi menn
einu sinni lært takið gildir
það að eilífu. Þó að maður
snerti ekki á mjöltum í 20 ár,
en byrji þá aftur, kann mað-
ur það alltaf, þó að vöðvarnir
séu ef til vill orðnir slappir af
æfingarleysi.
Auðvitað er mikill munur á
því, að kunna að kunna að
því, að kunna að mjólka og að
vera góður mjaltamaður. Þeg-
ar góður mjaltamaður gerir
fyrstu tilraun sína, stendur
hann milli fóta þeim, sem.
situr á mjaltaskemlinum, og
veitir ekki af báðum litlu
höndunum sínum til að halda,
um einn speha. StraX og þrótt
ur hans leyfir fer hann að
mjólka reglulega og heldur
því áfram í uppvekti sínum
alla tíð þar til hann er full-
orðinn. Aldrei gæti ég gert
mér vonir um aö geta mjólkað
þannig, en það skipti mestu
máli, að ég gat mjólkaö
þrautalaust fyrir kúna og mig.
Sælustu stundir minar á
Bath Farm voru, þegar ég
fékk fyrst að mjólka Millu
alein og þegar hún kom i
fyrsta skipti til mín, þegar ég
kallaði á hana úti. Þannig
komst ég til tignar í fjósinu,
sem varð ríki mitt: Billy og
Bill áttu hvor sitt sérsvið' 1
hesthúsinu, svo var dráttar-
vélin Kahs Jóa, hænsnin háns
Tomma og fjósið hennar
Rachelar.