Tíminn - 17.06.1951, Side 12
12
TÍMINN, sunnudaginn 17. júní 1951
AUKABLAÐ
RÍKI MITT VAR f FJÓSINU
ENDURREISNARTÍMABILIÐ
Pramhald af 9. síðu
■ Eftir að kýrin var komin i
fjósið, vorum við mjög önnum
kafin yfir umbótahugsjón-
um okkar, húsbóndinn og ég.
Það held ég, að hafi meðfram
stafáð af því, að Milla var svo
yndisleg persóna, að það hefði
verið ósæmilegt að láta hana
iekki búa við svo góð skilyrði,
sem verða mátti.
f Mest kallaði það að, að gera
fjósið bjartara og vistlegra
ínnarí, og þegar veður leyfði
fim vorið, að kýrin mætti vera
úti, fékk húsbóndinn sér kalk
og verkið hófst. Húsbóndinn
aupir alltaf kalkið eins og
að keiríur úr námunum eft.ír
að það hefir verið brennt. Þá
er þáð i stórum, óreglulegum
kögglum, sem virðast halda í
sér hita þeim, sem það hefir
þlotið Við brennsluna, þar til
það hefir verið slökkt í vatni.
, Það er skemmtilegt verk að
sjökkva kalk. Við slökkvum
það alltaf í ruslatunnu, sem
við látum nokkra köggla í óg
hellum svo vatninu á. Strak
og vatnið kemur á kalkið taka
kögglarnir að springa og sjóða
og hiti þeirra brýzt út í gufu-
mekki miklum. Síðan hrærum
við í blöndunni með járn-
stöng, svo að þá rýkur ennþá
nieira, og kalkið vellur og
kraumar stórfenglega. Mér
fínnst alltaf létt að ímynda
Sér, að tunnan sé vítiskverkar
og mig langar þá til að spyrja
eirís og nornirnár í Macbet:
Hvenær sjáumst við aftur?
Þegar kalkið hefir verið
siökkt, verður það grautur,
sem tekinn er í Smáskömmt-
um í fötu og þynntur út með
vatni, unz hann ér svo þunn-
fir, að spræna má honum úr
dælu. Síðast er þynnkan síuð,
svo að ekki verði í henni agn-
ir, sem stífli dæluna. Loks er
ofurlítið af bláma látið í
blönduna, og þá er kalkinu
ekki neitt að vanbúnaði fram
ar. Sá, sem kalka skal, tekur
hergögn sín: Stiga og elztu
fötin sfn, og hjálparmann til
að stjórna dælunni.
Bezta kölkunarskrúða, sem
ég hefi heyrt getið um, fann
uþp fjósamaður einn, á bæ
nokkrum, þar sem vinkona
mín ein dvaldi. Fjósamaður
þessi var lítill maður vexti og
nostursamur með fötin sín.
Hann lét skera sér úlpu eina
forkunnargóða til að vera í,
er hann kalkaði. Vinkona mín
skar gat á stóran poka, sem
maðurinn fann sér, og hvolfdi
hönum síðan yfir höfuð hon-
fifn. Síðan risti hún sitt gatið
fýrir hvora hendi og út um
þau stakk hann handleggjun-
um berum. Þar sem maðurinn
var lítill vexti, svo sem fyrri
er frá sagt, huldi úlpan hann
allan og nam við jörðu, sVo
að eini gallinn á þessum
skrúða var sá, að maðurinn
steyptist á nefið, hvenær sem
hánn ætlaði að stíga spor,
þegar hann var í honum.
Arty var hjálparmaður
minn, þegar ég var að kalka.
mArty er ofurlítill spjátruríg-
ur, ekki nema fimm feta hár,
með góðlátlegt greppitrýn.
Merkilegast við hann var der-
húfan og stígvélin. Hvort-
tveggja var nokkrum númer-
um of stórt. Arty var hjá for-
eldrum húsbóndans þegar
hann var ungur, og þegar hús
bóndinn flutti til Bath Farm,
fór Arty að verða þar á sumr-
in. Auknefni hans var blöðru-
belgur og ekki einu sinni hús-
bóndinn mundi hvernig stóð
á þeírri nafngift, nema ef hún
skyldi vera af því, að hann
blés upp svínsblöðrurnar, sem
feitin var geymd í.
Arty vann frá morgni til
kvölds af mikilli elju. Hann
gekk sex kílómetra til vinnu
sinnar og frá á litlu, bognu
fótunum í margrifnum stíg-
vélagámum. Jafnskjótt og
hálfsexlestin var farin fram
hjá, sleppti Arty því, sem
hann hafði í höndunum, hvað
sem það var. Svo sneri hann
heim á leið, og ef einhver
spurði hann einhvers, fékkst
aldrei annað svar en her-
mannleg kveðja og ofurlítið
uml, sem táknaði: Góða nótt.
Svo var blöðrubelgur farinn.
Alltaf er Arty önnum kaf-
inn og virðist vera ánægður
með allt, en einu sinni sagði
hann mér, að bezti tími ævi
sinnar hefði verið þegar hann
var í hernum.
— í hernum, Arty? Ég hefi
víst orðið dálitið undarleg á
svip. Arty var ekki stærri en
dvergur. Hvenær varst þú í
hernum?
— í gamla stríðinu, sagði
Arty.
— Hvað gerðirðu þar?
— Hreinsaði salerni.
— Ekki annað?
— Flysjaði jarðepli og þar
fram eftir götunum, sagði
hanrí. Rlörgum finnst óver-
andi í hernum, en mér þótti
það ósköp gott.
Húsbóndinn kann margar
sögur um Arty litla. Einu sinni
voru þeir að vinnu úti á akri,
þegar farandsala nokkurn bar
þar að. Hann hafði rakvélar
til sölu á einn shilling hverja.
Arty þótti rétt að fá sér eina
og sagði við húsbóndann:
— Lánaðu mér shilling. Ég
ætla að fá eina.
Húsbóndinn lánaði honum
peninginn og Arty keypti rak-
vélina. Siðar kom í ljós að
hánn gat ekki notað gripinn.
— Jæja. Skilaðu mér nú
shillingnum, sem þú skuldar
mér, sagði húsbóndinn.
— Hann færðu ekki, sagði
Arty. Bölvuð vélin var ónýt.
Húsbóndinn og bræður
hans fóru til Liverpool á
hverjum jólum og horfðu þá
á látbragðsleik. Einu sinni var
Arty með þeim. í sýningunni
kom fram línudansari, sem
var I þröngum buxum með
silfurglingri á.
Þegar heim var komið
strengdu þeir bræður reipi
um þvera hlöðu og reyndu að
ganga eftir því. Arty kom þar
og þeir töldu hann á að reyna.
Það varð konungleg skemmt-
un og þeir hlógu allir að hon-
um.
— Ja, sagði Arty í fyllstu
alvöru. Þetta skyldi ég svei
mér hafa gert, ef ég hefði við-
eigandi buxur.
Á Bath Farm var Arty
stundum látinn taka til úti
við og einu sinni lagði hús-
bóndinn fyrir hann að
hreinsa kringum gróðurhúsið.
í gróðyrhúsinu óx vínviður,
sem átti rætur sínar utan
húss, en stofninn iá inn um
göt á veggnum. Arty lét hend-
ur standa fram úr ermum
þennan dag, og hefir sjálf-
sagt fundizt óþrifnaður að rót
um vínviðarins. Hann reif
þær upp og íleygði þeim út á
haug. Húsbóndinn þuldi for-
mælingar yfir honum látlaust
í hálftíma, en þegar hann var
búinn, hvein Arty.
— Sagðirðu mér ekki, að ég
ætti að hreinsa til?
Arty liafði ærin heilabrot
eitt sumarið af því, að hann
vissi ekki hve gamall hann
var, og var því smeykur við
að tapa ellilaunum, sem hann
ætti tilkall til. Einhver ráð-
lagði honum að leita til mann
talsskrifstofunnar og það
gerði hann. Þegar heim kom
bar hann sig upp undan því,
að skrifstofumennirnir hefðu
bara sagt sér hvaða dag og ár
hann væri fæddur, en það
þótti honum koma fyrir lítið.
Þá fórum við að reikna fyrir
hann og komumst að þeirri
dapurlegu niðurstöðu, að
hann væri ekki nema sextíu
og tveggja ára, og því ýrði
hann enn að bíða þess í þrjú
úr að fá sína 10 shillinga á
viku. Það tók hann nærri sér
í fyrstu, en hann ber það
sennilega betur nú, því að
hann hefir „skrambans góða
atvinnu“ á járnbrautarstöð-
inni við „að hreinsa óg þVí
um iíkt.“ Hann gengur í ein-
kennisbúningi, sem er auðvit-
að allt of stór á hann, og hann
borðar miödegisverð í veitinga
húsi (— kjöt, grænmeti og
graut á eftir, — alit fvrir eitt-
hvert lítilræði). Hanrí fær far
miða með lestinni ókeypis,
svo að hann kemst til vinnu
sinnar og frá með góðu móti,
og honum finnst þetta nærri
því eins gott og að hreinsa
salerni hjá hernum.
Arty ber litla virðingu fyrir
reglugerðum járnbrautanna.
Hann hefir sína aðferð, ein-
falda og óbrotna. Einu sinni
sá hann vagn húsbóndans hjá
verzlun einni í námd við
brautarstöðina. Hann vissi, að
með einni lestinni hafði kom-
ið pakki, sem merktur var
töfraorðunum Bath Farm. Nú
tók hann pakkann og fór með
hann að vagni húsbóndans.
Þar stóð hann þegar húsbónd
inn kom út úr búðinni.
— Þetta er til þín, sagði
hann.
— Já, en Arty, sagði hús-
bóndinn. Það þarf að kvitta
fyrir bögglinum.
— Hvers vegna það? Stend
ur ekki óbrenglað þítt tétta,
bölvaða nafn á honum?
Hjálpsemi er ein af fremstu
dyggðum Artys. Hann fná
engan sjá erfiða, án þess að
bjóða hjáip sína. Stundum
takmarkast lrjálpin af smæð
hans og litlum kröftum( en
aldrei lætur hann slík sjónar-
mið á sig fá.
Einu sinni var ég að hlaða
kössum með útsæðisjaröepl-
um í háan hlaða. Ég teygði
mig eins og ég gat með hend-
urnar langt upp fyrir höfuð,
og þó að ég sé nærri 170 sénti-
metra há, dugði það varla til.
Arty kom að, og greiðvikinn
að vántía sagði hann með höf
uð sítt í hæð við maga minn:
— A ég að létta undir með
þér?
Hvernig hann héfir hugsað
sér að léfta undir með mér er
hulið, en þetta ávarp hans var
að orðtaki haft á bænum.
Þegar við vorum að kalka
vár Artý óþreýtandi og alltáf
ánægður. Engin kalkdæla var
til á heimilinu en húsbóndinn
lét^kkur hafa garðdælu, sem
ætluð var fyrir ávaxtatré, en
var farin að láta sig. Minnstu
korn og kögglar settust í hana
og stífluðu hana og þá varð
að hreinsa pipuna svo að dæl-
an yrði virk á ný.
Arty stóð hjá kalkfötunni
utah við dyrnar og dældi, én
ég tildraði mér upp í stiga og
beindi hlaupi dælunnar á við-
eigandi staði, en því var fest
á erídann á gúmmíslöngu.
Lengi vel vildi Arty standa í
súgnum, sem lagði gegnum
fjósið og ber með sér kalk, svo
að hann kalkaðist hátt og
lágt, en um siðir gat ég talið
hann á að færa sig bak við
karminn, þangað sem skjól
var. Þaðan sá hann raunar
ekki hvað gerðist við hinn
endann á slöngunni, og mátti
ég fljótlega harma það. Arty
hafði sína eigin aðferð til að
hreinsa hlaupið.
Okkur hafði gengið vel um
hríð, þegar hlaupið allt í einu
þaut af slöngunni, svo að ég
varð öil löðrandi í kalkinu,
sem stréymdi úr slöngunni í
þykkum úða' Arty varð þess
ekki var, að neitt væri að, og
dældi í grfð og ergi. Hann
hélt, að neyðaróp mín væru
eggjunarorð.
Loksins komst ég út.
— Hættu Arty. Hættu, kall-
aði ég.
Arty leit upp frá dælunni
og athugaði ástandið með
hægð. Svo kinkaði hann kolli
af næmum skilningi.
— Ég hélt hún væri að
þessu venjulega. Ég fann hún
þyngdist.
— Já, en hvers yegna í ó-
sköpunum hættirðu ekki að
dæla? spurði ég,
— Ég hélt hún gæti ’bíásið
þessu úr sér sjálf, sagði Arty
og fór að þurrka mig með ó-
hreinni strigatusku, svo að ég
varð ennþá verri en áður.
Þegar piltarnir sáu okkur,
spurðu beir auðvitað með
ríkri hluttékningu, hvort það
hefði nú verið til nóg kalk á
fjósið, fyrst við hefðum .kalk-
áð okkur sj,álf svona rækilega
en við varðveittum með tig-
inni þögn vitundina um það,
að fjósið yrði eins og nýtt þeg
ar við værum búin,
Við urðum að halda hvort
aftur af öðru, húsbóndinn og
ég og stiila umbótaviljanum í
hóf. Húsbóndinn var hand-
laginn og hafði yndi af að
smíða alls konar hluti. Hann
smíðaði margar hillur undir
hitt og þetta. Hann festi upp
snaga til að hengja fötu á og
rak nagla í veggina fyrir alla
skapaða hluti. Svo fann hann
upp stækkanlegan kálfsbás.
Ég varð að vera vel á verði
gegn uppfinningum og endur-
bótum hans, því að annars
hefði kýrin ekki komizt fyrir
í fjósinu.
Einu sinni tók húsbóndinn
Þessaf stúlkur eru I fallhlífahersveitum Bandaríkjanna og eru að halda til æfinga-
flugvéla þegar myndin var tckin.