Tíminn - 18.07.1959, Síða 3
T í MIN N, laugardagmn 18. júlí 1959.
Dýrmætur flutningur Loftleiða
*
Fegurðardrottningar ým-
issa landa eru nú orðnar al-
gengur flutningur með flug-
vélum Loftleiða yfir Atlants-
hafið. Að undanförnu hafa
véíar félagsins ffutt margar
slíkar vesfur yfir haf frá Evr-
ópulöndum til þátttöku í
heimskeppninni á Langasandi
í Kaliforníu.
Síðast á sunnudagskvöld kom
fegurðardrottning Lúxemborgar,
sem m'un vera næst minnsta ríkið,
sem þátt tekur í keppninni. Hét
sú Josei Pundel, og var dökk á
fcrún og brá, eins og venja er
um suðursins börn.
— Hér er hrollkalt, sagði aum
»
er
fj
>n er óem uthafómó
thafóinó alda,
r
óíinaót u'dó Irynjancli ól?er.
— SætÍeild luenholdí.
ódfeidióljarcjd i
ómó óuer,
>7
rfur,
og vina er í ljós kom, að Jórunn
hafði orðið hlutskörpust.
Nú bíður hennar mikið ævin-
týri. Hún kvaðst eiga að koma
fram í sjónvarpi í Nevv York og
mer.
Ungfrú Noregur.
ingja stúlkan er hún steig úr Loft
leiðavélinni út í kvöldsólina. Af-
þakkaði boð félagsins um að
skoða borgina, langaði ekki til að
bæta miklu við þá litlu þekkingu
sem fyrir var um þetta kalda
land. _ ^ ^ ^ ^ ^
Ungfrú Lúxemborg var annars
að flýta sér til Ameríku, kunni
ekkert tungumál nema Lúxem-
borgsku og lítilsháttar í frönsku.
Yar þó ein síns liðs, en í öruggri
umsjá Loftleiða, — og hélt þó
raunar að belgískt flugfélag væri
að flytja sig yfir hafið. Fegurð-
ardrottningar fciugsa bersýnilega
ekki aliar um mikið annað en
sjónvarpstiiboð og kvikmyndir.
Hún hafði aidrei stigið upp í flug
vél fyrr og mætir nú fyrir land
sitt á Langasandi og síðar til Evr-
ópukeppni á Ítalíu og í Tyrk-
landi.
Frænka okkar frá Noregi
Meðal farþega I flugvél Loft-
leiða, sem kom hingað s.l. laugar-
dagskvöld á leið til New York
frá Osló var norska fegurðar-
drottningin „Ungfrú Noregur
1959“, en hún var á leið til þátt-
töku í „Miss Universe“ fegurðar-
samkeppninni á Langasandi í
Kaliforníu.
Meðan á viðdvölinni stóð átti
fréttaritari Tímans tal við þessa
ungu blómarós.
Námskeið í ræðumennsku
Allflestir eru því marki
brenndir, að beir taka til að
stama, fötin þrengja að þeim,
svitinn sprettur út á enni
þeirra, þorsti kvelur þá, og
margt annað illt og hábölv-
að gerir vart við sig hjá þeim,
um leið og þeir eiga að segja
nokkur orð úr ræðustól, eða
bara þaðan sem þeir eru.
En hér gefum við nokfcur góð
ráð um ræðumennsku, og höfum
tkkcrt minna fyrir okkur i því
efni en frásögn af amerísku ræðu
snámskeiði:
Reynið lað tala með saman-
bitnum tönnum. Þá neyðist þið
til að nota tunguna og varirnar
miklu meira en venjulega. Segið
til dæmis: Settu steiktan laxfisk
á biskupsdisk, eða Stebbi stóð á
ströndu, var að troða strý, strý
var ekki troðið, nema Stebbi
træði strý. Hættið ekki, fyrr en
þið talið það hát;t og greinilega,
fiö alilir skilji það. Reynið lika
að lesa þannig upphátt einhverja
kiausu úr bók eða blaði.
Rödd ræðumianna verður oft
skörp og hvöss. Orsökin er sú,
að taugarnar eru spenntar. ímynd-
ið ykkur, að þið talið við gamla,
(Þorbergur Þórðarson)
Hún heitir Jórunn Kristensen,
cr tæplega 19 ára gömul, fædd og
uppalin í Moss, þar sem faðir
hennar er glergerðarmaður. Börn
-hans eru þrjáir dætur, 22 áþa,
Jórunn og 7 ára. Að loknu námi
í gagnfræðaskóla gerðist Jórunn
aðstoðarstúlka í tannlæknastofu í
Moss'. Hún kvað fyrirkomulag
keppninnar í Noregi þannig, að
blaðið DET NYE biður lesendur
sína að senda myndir af þeim
stúlkum, sem þeir vilja velja. Úr
þessum hópi velur dómnefnd 9
stúlkur og eru svo birtar myndir
af þeim í blaðinu. Lesendur
senda blaðinu svo atkvæðaseðla
sína, en það veitir þeim rétt til
að velja þær þrjár stúlkur, sem
koma til úrslita. Sjö manna nefnd
ákveður svo hveir þeirra fær
fyrstu verðlaun.
Ein lítil mynd
Frænka Jórunnar sendi blað-
inu mynd að henni fornspurðri,
en eftir að Jjóst var orðið, að
Jórunn myndi verða í liópi hinna
þriggja þótti henni mikiu skipta | E
hver vinininginn fengi og varð
miikill fögnúður meðal frændliðs
hafa fengið ákveðið loforð um að
fá að hitta uppáhaldsleikarann
sinn, Kirk Douglas, í Hollywood.
„Það er karlmaður, sem segir
sex“ sagði hún. „Mig hefur lengi
langað til að sjá hann.“
Jórunn sagðist ekki gera ráð
fyrir að komast í úrslit. „En ég
vona, að ég verði Noregi ekki til
skammar", sagði hún. Og það
verður hún Jórunn áreiðanlega-
ekki.
Þegar Ameríkuævintýrinu lýk-
ur, ætlar Jórunn aftur heim til
Moss. Svo isegist hún fara Itil
Oslóar, en þar ætlar hún að hefja
nám í leikfimi. „Það er áreiðan-
lega giam,an að vera 1/ei'kfimi-
kennari", sagði hún. Svo tók hún
ao spyrja fréttamanninn um í-
þróttamál á íslandi og í ökuferð-
inni, sem Loftleiðir buðu henni
á eftir um bæinn var það íþrótta-
leikvangurinn í LaugardaJ, sem
henni þótti skemmtilegast að
skoða.
Ungfrú Luxembourg.
Leifar liöinna daga
Tveir menn á göngu. Allt
í einu ber fvrir augu þeirra
örlíiið aflangt stykki, hálf-
qrafið í jörð. Hvað er þetta?
Annar þeirra tekur það upp
til nánari rannsóknar. Það
var hans síðasta verk.
Þegar vinur hans vissi af sér
næst, var hann umbúðum vafinn
á sjúkrahúsi. Litli meinleysislegi
hluturinn var sprengja, leifar frá
þeim leik nokkurra valdafíkinna
manna sem kalJaður hefur verið
heimsstyrjöidin síðari.
Enn eru þessir drápshlutir að
finnast hingað og þangað um
heiminn. í norsku blaði var fyrir
nokkru grein um þessar Jeifar þar
i Jandi, en þar er ógrynni af
þeim, sérstaklega í Norður-Nor-
egi og Finnmörk. Þær hafa fund-
izt á ólíklegum stöðum ekkert síð
ur en Iíklegum, svo sem í þarf-
legri notkun sem kökukefli, sem
skraut á arinhillu, og jafnvel
hafa menn notað þær sem uppi-
stöður í hús sín’ Verkfræðinga-
herdeildin norska heldur uppi
mikilli aðvörunar og fræðslustarf
semi varðandi þessar sprengjur,
'sem geta legið í jörð allt að 20
árum, án þess að kraftur þeirra
dofni nokkuð að ráði. Af 86.000
sprengjum, sem fundust síðast
liðið ár, voru 80.000 enn í fuUu
íjöri.
Enn eru menn þó að fyrirkoma
sjálfum sér með fikti við þessa
hluti. En ekki vcrður ófeigum í
hel komið, eins og t.d. þessum
unga malnni, sem myndin sýnir, og
félaga hans. Þeir fundu þessa
sprengju, og fannst nú heldur en
ekki hlaupa á snærið fyrir sér!
Þeir þögðu sem fastast um þenn-
an gullvæga fund, en fóru til í
frístundum og hirtu úr henni
púðrið, til þess að geta framJeitt
hávaða á 17. maí. Það tókst, og
Nýtízku
„öskustó"
Eins og lýðum má vera
ljóst, hafa ofsahitar gengið
jdiir Evrópu vestanverða. The
Da'.\ly Sketch hefur fundið
ráð við því: Stól, sem virðist
vera útbúinn með öllum þeim
þægindum, sem letingjar alh’a
alda hafa óskað sér, en sann-
arlega er þá orðinn munur á,
frá því þeir lágu í öskustónni
í gamla daga. Stóll The Daily
Mail er með innbyggðum eft-
irfarandi þægindum:
1. Kæliskápur, sem tekur fjöJ-
margar ölflöskur.
E. Rafmaginsvifta í höfuðhæð.
þó ekki svo nærri, að höfðinu
stafi hætta af.
3. Sjónvarpstæki, sem hægt er
að færa nær stólnum og fjær, án
þess að standa upp, og stjórna
því að öllu leyti þaðan.
4. Útvarpsgrammófónn.
5. Úðari með heitu og köldu
vatni.
6. Risastór sólhlíf.
7. Leslamipi.
8. Grindur fyrir glös, sígarett-
ur, bækur og blöð.
— Hvernig lízt ykkur á?
þó var nóg eftir handa þeim til
hávaða á 17. maí næstu 50—C0
árin. En þetta komst upp, og nú
iskal drengurinn læna skynsam-
lega meðferð sprengiefna í hern-
um. Það gæti virzt sem svo. að
hann hefði svolitla xmdirstöðu!
Þetta er einn af þingmönnum þeirra Ameríkumanna. Þó er hann ekki hér
við sínar einkaathafnir, heldur mætti hann svona á þingfund, af því hann
hafSi heyrt, aS gera skytdi tilraun tll að þegja ákveðið mál í hel. Svo hann
bjó sig undir að vera í þinginu um nóttinal
Veikhurða kojiu eða barn. Þá
verður röddin ósjálfrátt mýkri.
Á umræddu námskeiði urðu allt
ir þátttakendur að stilla sér upp
með kertaljós logandi í 10 cm
fjarlægð frá andlitinu, og fara í
snarheitum með orðalista, þar sem
hvert einasta orð hafði p inni að
halda. Ef þetta slökkti Ijósið, var
andardrátturinn tekinn til endur-
skoðunar.
Hlustið á sjálf ykkur af segul^
bandi. Það kemur mörgum á ó-
vart.
Með því að hlusta með gagn-
rýni á útvarp, er hægt að skapa
sér hugmynd um, hvað rétt er
og hvað rangt, varðandi ræðu-
mennsku.
Að hvísla hátt er mjög góð æf
ing. Það þjálfar valdið yfir rödd
og andardrætti. Þetta getur líka
verið skemmtiatriði, ef tveir æfa
saman, hafa nógu Jangt á milli
sín og reyna að halda þannig,
uppi samræðum. I
Ekki verður ófeigum i hel komið. Það sannaðist á þessum pilti.