Tíminn - 16.03.1960, Síða 1
TÍWltMN fíytur daglega
meira af Innlendum frétt.
um en önnur blöð. Fylgizt
með og kaupið TÍMANN.
44. árgangur — 61. tbl.
TÍMINí daglega J er sextán síður \ og flytur fjöl-
sem er vlð allra hæfi.
Miðvikudagur 16. marz 1960.
—.... aMmmmlBlmilaiMM>nt| |L i iimimhi wnini uii
wwittnawKetr"
Snjórinn hefur verið sjald-
gæfur gestur hjá okkur hér
í Reykjavík í vetur, en í
gærmorgun breiddi hann
sig yfir bæinn og færði
yfir hann hvíta kyrrS og ró.
En hvíti liturinn er ekki
lengi flekklaus í höfuðborg-
inni, og í gærkvöldi var
mesta fegurðin farin af
snjónum, enda var naumast
hægt aS kalla hann hvítan
lengur.
Hvetur til
bæna fyrir
ráðstefnunni
á morgun
Tímanum hefur borizt afrit af
bréfi biskups, sem hann hefur
sent öllum þjónandi prestum og
próföstum þjóSkirkjunnar. Æsk-
ir biskup þess, að klerkar biðji
fyrir ráðstefnunni í Genf og lykt
um þeirra málefna hennar, sem
snerta lífshagsmuni þjóðarinnar.
Fer bréfið hér á effir:
Hinn 17. þ. m. hefst í Genf al-
þjóðleg ráðstefna um réttarfar á
höfunum og fiskveiðilögsögu.
Vér íslendingar eigum mikið
undir þvi, að þar verði góðum,
sanngjörnum og viturlegum ráð-
um ráðið. Fulltrúar vorir á þess-
ari ráðstefnu eiga vandasömu
hlutverki að gegna. Ég vil því
hvetja presta og söfnuði þjóð-
kirkjunnar til þess að mlnnast
þeirra í bænum sínum og mælist
til þess, að við messur sunnudag
inn 20. þ. m. verði beðið fyrir
ráðstefnunnj og réttlátum lykt-
um þeirra málefna hennar, sem
sérstaklega snerta lifshagsmuni
þjóðar vorrar.
GUNNAR THOR ORÐINN
AÐ ALGJÖRU VIÐUNDRI
Fjármálaraðherra beitir fáheyrð-
um blekkingum í málflutningi sín-
Þeir drógu
vorpurnar
Brezku togararnir fóru út
fyrir fiskveiðitakmörkin í gær,
eins og ákveðið hafði verið.
Ekki gerðu þeir það þó þegj-
andi og hljóðalaust, heldur
með hundshaus og mörgum
orðum, því afli var ágætur á
miðunum við Ingólfshöfða og
þar vildu þeir vera kyrrir.
Þegar kom að þeim tíma, að
togararnir skyldu fara út fyrir,
kölluðu þeir á herskipið og báðu
um framhaldandi vernd, því að
þeir væru í mokafla. Yfirmaður
herskipsins anzaði af bragði og
sagði þeim, að ef þeir gerðu ekki
svo vel að taka inn vörpurnar og
það í snatrí, skyldi hann koma-’og
gera það fyrir þá. Og hann fékk
sitt mál fram, því að síðasti togar-
inn var kominn út fyrir fiskveiði-
takmörkin.
John Hare fer til Genfar
Um sama leyti fer John Hare,
landbúnaðarráðherra Breta til
Genfar, til þess að reyna að koma
ár Breta þar þannig fyrir borð,
að eftir ráðstefnuna þurfi ekki
lengur herskipavernd til þess að
brezkir togarar geti veitt innan 12
mílna fiskveiðitakmarkanna. Enn
þá veit enginn um úrslit ráðstefn-
unnar, en almenningsálitið virðist
heldur á móti Bretum, og er það
góðs viti.
um fyrir söluskattsfrumvarpinu.
Kallar hinar stórkostlegu nýju
álögur bara tilfærslur og hagræðir
tölum, og leggur saman og dregur
frá óskylda liði og fær út núll.
Sömu „röksemdirnar" eru born-
ar fyrir nú eins og fyrir gengisfell-
ingunni. Þetta eru engar álögur,
aðeíns tilfærsla fjár.
Gengisfellingin átti að hafa í för
með sér 14% dýrtíðaraukningu, en
móti henni áttu fjölskyldubæturn-
ar og lækkun tekjuskattsins að
vega. Það hefur áður verið sýnt
fram á það, að dýrtíðaraukningin
vegna gengisfellingarinnar muni
verða meiri. — Þá var ekki reikn-
að með áhrifum almenna sölu-
skattsins og þá kom engum til
hugar að innflutningssöluskattur-
inn yrði hækkaður um meira en
helming, enda gaf fjármálaráð-
herra yfirlýsingu um, að sá skatt-
(Framhald á 3. síðu).
Brezkur togari siglir út fyrir fiskveiðitakmörkin. Vonandi kemur hann aidrei aftur.