Tíminn - 16.03.1960, Side 16
61. blaS-
Miðvikudaginn 16. marz 1960.
Áskriftarverð kr. 35.00.
Það var heldur subbulegt á götunum, er menn fóru á fætur í
gærmorgun. Snjóað hafði um nóttina, en mikill bloti var í
snjónum, svo upp vall úr sporum manna. Ljósmyndari blaðs-
ins sá sér leik á borði og tók mynd af þessum manni, sem
öslar sína leið gegn um krapið og styðst við staf sinn.
Trukkar yfir í
Fagradal
ReySarfirði, 9. marz. — Fjóra
undanfarna daga hefur verið
hálka og auðnast mjög. Trukk-
bílar hafa farið yfir Fagi'adal og
verið 6 klst. með hlass, en 4 klst.
tómir. Hafa þeir flutt benzín og
margs konar búðarvarning o.fl. f
gær kom Hvassafell hingað með
kol frá Gydnja, voni losuð 180
tonn. M.S.
Sænsku konungshjónin
heimsækja Osló i dag
Tvisvar sinnum á einum
mánuði hefur Osló-borg búið
sig undir veizlur og konunga-
heimsóknir, í fyrra skiptið var
Tók sæti á Al-
þingi í dag
Bjarni Guðbjörnsson, banka
stjóri, tók sæti á Alþingi í gær.
Bjarni Guðbjömsson er fyrsti
varamaður Framsóknarflokksins
í Vestfjarðakjördæmi og mun
sitja á þingi í fjarveru Her-
manns Jónassonar, sem farinn
er utan til setu á hafréttarráð-
stefnunni í Genf. Þessi mynd
af Bjarra var tekin í gær í efri
deild Alþingis.
Unnar Stefánsson tók einnig
sæti á Alþingi í gær í fjarveru
Guðmundar f. Guðmundssoaar.
] það við komu dönsku kon-
' ungshjónanna, en nú eru það
Gústaf 6. Adolf, konungur
Svíþjóðar og Louise drottning,
sem verða boðin velkomin til
liöfuðstaðar Noregs. Eru
sænsku konungshjónin vænt-
anleg kl. 10.50 í fyrramálið.
Hin nánu tengsl milli konungs
fjölskyldnanna á Norðurlöndum
og íbúanna gera heimsókn þessa
að miklum viðbur'ði. Þegar hefur
Bjarni Guðbjörnsson
verið sett dagskrá yfir dvöl kor,-
ungshjónanna, en Gústaf konung
ur sjálfur, sem er mikill listunn
andi, hefur farið þess á leit að
inn í dagskrána verði felld heim
sókn hans á listasafn Gústafs
Vigelands og safn bróður hans
Emúanel Vigelands. Allt fr’á
fyrstu tíð hafa konungsfjölskyld-
urnar skipzt á heimsáknum, en
þegar Gústaf Adolf kom fyr*st í
opinbera heimsókn var hann þar
sem prins af Svíþjóð í Noregi.
Harald krónpr’ins mun bjóða
(Framhald á 15. síðu)
Hér er Gustav Sviakóngur að skoða máfverk á málverkasafni ríkisins, er
hann kom hingað til iands fyrir um fjórum árum.
Eldurinn kom
um Beið og aflinn
V.b. Vísunthir dreginn logandi til hafnar
Um tvöleytið á
tóku skipverjar á v.b. Vísundi
frá Reykjavík eftir því, að eld-
u.r var laus í vélarúmi skips-
ins. Reykur var of magnaður
til þess að þeir kæmust niður
með slökkvitæki, og tóku þeir
mánudaginn þá til þess ráðs áð sigla upp að
v.b. Reyni frá Akranesi og
fara um borð í hann. Skömmu
siðar kom varðskipið Gautur á
vettvang, og dró logandi skipið
til Reykjavíkur, og var slökkt í
(Framhald á 15. síðu).
Tvisvar verður gamall maður barn
Þegar veðrið er eins gott og það hefur verið hér hjá okkur undanfarna daga, fer ekki hjá því að strákarnir grípi færi sín og arki niður að höfn
til þess að gá hvort ekki leynist þar einn eða tveir kolar. Én fieiri eru ungir en þeir, sem aðeins eru ungir að árum, og eldri kynslóðin hrífst með
— og fær lánuð færin hjá strákunum. Hver veit nema þeir dragi líka kola, þótt eldri séu — eða fá þeir kannske aðeins marhnút? (Ljósm.: KM)