Tíminn - 12.04.1960, Blaðsíða 1
xseammma^x
wmmmmmmmmmmm
TÍMINN flyfur daglega
meira af fnnlendum frétt-
um en önnur blöö. Fylgizt
meö og kauplö TÍMANN.
> jltfÍMilg^iliSMÍiÍÉÍIÍMBMSÉÉlÉÉÉÍM
84. tbl. — 44. árgangur.
TÍMINN er sexfán siöur
daglega og flyfur f|öl.
breytt og skemmtilegt efnl
sem er við allra hæfl.
I
Þriðjudagur 12. apríl 1960.
HVAL-
REKINN
Á VOPNA-
FIRÐI
Vopnafirði, 11. april.
í gær var lokiS viS aS drepa hvalina, þaS
er aS segja þaS sem ekki hafSi drepizt af
sjálfsdáSum. Var þaS gert meS löngum lens-
um, sem hvalirnir voru stungnir meS. Þeir,
sem ekki voru dauSir um þaS leyti, voru
orSnir harla líflitlir, þegar lensan veitti
þeim náSarstunguna. HingaS kom maSur
frá Hval h.f. meS tæki tíl þess aS vinna hval-
inn og kenna VopnfirSingum handbrögSin
viS aS skera hann. MaSurinn er nú farinn
aftur, en tækin eru kyrr.
— Sjá nánar á síSu 16. —
ENGIN NIÐ-
URSTAÐA?
Farið að flokka
fisk í bátunum
Sú kynmngarstarfsemi, sem
hafin var á vegum fisksölu-
samtaka í landinu, virðist hafá
borið nokkurn árangur, segir
í nýútkomnu fréttabréfi frá
Sjávarafurðadeild SÍS. Fisk-
sölusamtökin vöktu athygli á
missmíðum á fiskveiðimálum
og fisksölu, með auglýsingu
og greinargerð í dagblöðunum
Aðalfundur
Mjólkurbús
Flóamanna
Aðalfundur Mjólkurbús Flóa-
manna verður haldinn í dag í fé-
lagsheimilinu á Flúðum. Hefst
fundurinn kl. 2 síðd. en fyrir há-
degi verður haldinn stjórnarfund
ur%
Á dagskrá fundarins eru að
sjálfsögðu fyrst og fremst reikn
ingar og yfirlit um rekstur bús-
ins, svo og önnur mál, er mjólkur
framleiðsluna snerta. Aðalfundir
mjólkurbúsins eru ævinlega mjög
fjölmennir, einhverjir fjölmenn-
ustu bændafundir, sem haldnir
eru. Og mun svo vafalaust verða
í dag.
hinn 27. marz s. 1., og virðist
hún hafa vakið allsherjar-
athygli og borið nokkurn ár-
angur.
Næstu daga voru flest blöð
in með ritstjórnargreinar um
málin, og Thorolf Smith og
Stefán Jónsson tóku málið til
meðferðar í útvarpsþætti,
sem nefnist: Um fiskinn.
Árangur af þessu hefur
þegar gert vart við sig, og
kemur hann aðallega fram á
fernan hátt. Sumar verstöðv-
ar hafa tekið
upp þann sið,
að láta bát-
ana flokka
fiskinn um
borð, í bátun-
um, j lifandi
blóðgaðan
fisk og annan
fisk. Mun meiri áherzla er
lögð á að draga öll net úr
sjó á fyrsta degi. Alvarlegar
ráðagerðir eru um að fækka
netum hjá bátunum, og loks
eru margir farnir að velta
því fyrir sér, hvort neta-
kostnaðurinn, sem oft er um
50 aurar til króna á hvert
fiskkíló, sé ekki svo mikill að
línan geti ekki borgað sig
betur. — s —
Á morgunfundi sjóréttar-
ráðstefnunnar í Genf talaði
Sir John Hare ráðherra, aðal-
fulltrúi Breta, og lýsti fylgi
við bræðingstillögu Banda-
ríkjanna og Kanada, en hafn-
aði forgangsréttartillögu ís-
lands. Á blaðamannafundi
sagði hann, að Bretar áskildu
sér rétt til að taka aftur upp
3 mílna regluna, ef ráðstefnan
endaði án niðurstöðu, en neit-
aði að svara því að svo stöddu,
hvort Bretar myndu þá senda
herskip sín á íslandsmið. Guð-
mundur í. Guðmundsson svar-
ar ræðu Sir John á morgun.
Fregnir þessar og þær, sem á
eftir fara, eru samkvæmt einka-
skeyti til fréttastofu ríkisútvarps-
ins.
Bretinn ber sig illa.
Sir John saknaði bandarísku til-
lögunnar, kvað sérréttindaákvæði
sambræðslutillögunnar um 10 ára
veiðirétt of stutt. 15—20 ár hefðu
verið nær lagi og veitt betra ráð-
rúm til öflunar nýrra tækja og af-
skrifta skipa. En Bretar vildu
semja og því hefðu þeir slakað til.
Til að sanna, hve íslandsmiðin
væru Bretum mikilvæg, skýrði
hann frá því, að fyrstu vikuna
eftir að brezkir togarar hættu veið
um í 12 mílna fiskveiðilandhelg-
inni við ísland, hefði magnið af
fiski, miðað við meðaltal 4 síðustu
ára, sem landað var í Grimsby
minnkað um 27%, í Hull um 61%
og í Fleetwood um 89%.
(Framhald á 3. síðu).
170 látnir inn það sem
af er vertíðinni í Eyjum
VERÐHÆKKANIR
Tómatsósa í flöskum hefur hækkað um kr. 3.95 eða
um rúma 20 af hundraði, úr kr. 19 65 í kr. 23.60. Nylon-
sokkar, sem áður kostuðu kr. 62.00 kosta nú kr. 95.00.
Þeir hafa sem sagt hækkað um 33 krónur eða 53 af
hundraði. Haframjöl í hálfkílóspökkum hefur hækkað
úr kr. 3.05 í kr. 4.25. Hækkunin er kr. 1.20
Frá fréttaritara TÍMANS í Vestmanna-
eyjum í gær.
Hér er dag eftir dag hafátt og brim og
erfitt um sjósókn. Stóru bátarnir róa þótt
móti blási, en í dag tóku þeir að tínast inn
upp úr hádeginu með lítinn afla, enda stór-
brim.
Illa lítur út fyrir færabátum, þeir hafa
ekki komizt á sjó í háa herrans tíð. Eiginleg
landlega hefur þó ekki verið.
Innbrot
í hádeginu í gær var brotizt inn á skrif-
stofu Helga Benediktssonar og stolið 3.700
krónum úr peningakassa — öllum seðlun-
um, sem í kassanum voru. Fljótlega hafðist
upp á þjófnum, sem játaði á sig brotið og
vísaði á stað þann, þar sem hann hafði falið
megnið af þýfinu — yfir 3000 krónur —
undir netadræsu niður á bryggju.
Annar maður er og-i gæzluvarðhaldi hér
núna, grunaður um að hafa stolið fjármun-
um af drukknum manm.
Hér á lögreglustöðinni er góð aðstaða til
að taka á móti brotamönnum, fangaklefar
(Framhald á 3. síöu).
wmmrnmmimmmmmiBBB)
I frystihúsi á Akranesi - bls. 8-9
■"■illn III inHriiriitmf .........