Tíminn - 29.04.1960, Qupperneq 1
BRETAR SENDA HER-
SKIP Á ISLANDSMIÐ!
Munu þó verða utan við 12 mílurnar
NTB—London, 28. apríl.
Brezk herskip munu ekki
— aS svo stöddu — fylgja
brezkum togurum inn fyrir
12 mílna fiskveiðimörkin viS
Kunnugt er, aS bandaríska
sendinefndin á sjóréttarráS-
stefnunni í Genf gekk aS því
með ofurkappi aS fá bræS-
ingstillögu Kanada og Banda-
ríkjanna samþykkta. Erlend
blöS, sem segja fréttir af eftir-
hreytum frá ráSstefnunni
bera þetta glöggt meS sér.
ísland. Þessa yfirlýsingu gaf
Sir John Hare fiskimálaráS-
herra í brezka þinginu í dag.
Ef ísl. varSskipin reyndu aS
taka togarana innan 12
Norskt blað hefur tii dæmis eft
ir fréttaritara sínum í London, a5
Bandaríkin hafi verið búin að fá
ákveðið loforð fyrir fylgi ChiLe
við bræðmgstillöguna. En af ein-
hverjum ástæðum sá ChiLe-stjórn
sig um hönd á alLra seinustu stund
og sendi fyrirmæli um að greiða
atkvæði á móti — fyrirmæiin bár-
mílna markanna, yrSi þaS á
valdi brezku herskipanna
hvaS gera skyldi í hverju
einstöku tilfelli, en vafalaust
myndu þau ekki láta slíkt
viSgangast.
Sir John gaf þessar yfirlýsingar,
er hann skýrði neðri málstofunmi
frá niðurstöðum Genfarráðs-tefn-
unnar. Meðan á ráðstefnunni stóð
hefðu Bretar Lýst sig fúsa að veita
íslendingum betri kjör, en fólust
í tillögu Bandarikjanna og Kan-
ada. Einnig hefði brezka stjórnin
’ýst sig fúsa til að faLlast á úrskurð
hlutlauss gerðardóms í málinu, en
því miður hefði þessum boðum
ekki verið tekið með góðvilja.
Fram rétt hönd
„Við erum fúsir til að semja,
sagði ráðherranm, „en við einhliða
aðgerðir getum við ekki sætt okk-
ur“. Þess vegna myndu Bretar
senda herskip sín aftur til íslands-
stranda til að aðstoða brezka tog-
ara. „En, sagði ráðherrann, „sem
vott um vinsemd af vorri hálfu
hefur stjórnin ákveðið, að herskip-
in skulu — fyrst um simn — ekki
fara inn fyrir 12 mílna mörkin“.
Aðmírálarnir ráða
Einn af þingmönmum Verka-
mannaflok'ksins spurði, hvað ger-
ast myndi, ef íslenzku varðskipin
reyndu að taka brezka togara.
Ráðherrann svaraði, að það yrði á
valdi yfiimanna herskipanna að
ákveða hverju sinni. Annars
myndu herskipin sjálfsagt láta til
sín tafca, ef falLbyssubátamir
reyndu hertöku. Ráðherrann
kvaðst eiga nánar viðræður við
önnur V-Evrópuríki um ástand
það, sem skapazt hefði, eftir lok
Genfar-ráðstefnuniíar.
Átök viS íslend-
inga í Grimsby?
NTB-Grimsby, 28. apríl. — Samn
band brezkra togaraeigenda sendi
í kvöld út yfirlýsingu vegna skýrslu
Sir John Hare ráðherra á þingi,
sem frá er greint hér að framan.
Þar s>egir, að brezkir togarar hafi
af góðgirni horfið af ísiandsmið-
um meðan á hafréttarráðstefnunni
stóð, án þess að í því fælist viður-
kenning á 12 mí'lna mörkunum.
En vegna hins óvissa ástands,
sem nú ríkir, varar sambandið þó
meðltmi sína við að senda togara
inn fyrir 12 mílna mörkin.
Sambandið hefur beðið um fund
með ríkisstjórninni hið bráðasta.
Dennis Welch, formaður tog-
araeigenda í Grimsby, sagði í
kvöld, að ckkert væri hægt að
gera fyrr en fyrir lægi endanleg
ákvörðun ríkisstjórnarinnar í
málinu. Þá ákvörðun verður að
taka strax, sagði Welch, svo að
koma megi í veg fyrir átök, þeg
ar íslenzkir togarar landa fiski
í Grimsby í næstu viku.
(Frauihald á 3. síðu).
Þegar brum á björkum springur
og börnin fara á kreik.
Þá er víst að vorið syngur
við þann undirleik.
„Verðum að færa út í
12 sjómílur strax“
Álit formanns sjávarútvegsn. Stórþingsms
Loforðin reynd-
ust þeim ótrygg
Eftir lok hafréttarráðstefn-
unnar í Genf, er mjög á dag-
skrá í Noregi, hvort ekki skuli
nú þegar færa fiskveiðiland-
heígina þar í 12 sjómílur. For-
rnaður sjávarútvegsnefndar
Stórþingsins, Johs. Olsen, hef-
ur lýst þeirri skoðun sinni, að
færa beri út fiskveiðilögsög-
una þegar í stað.
Annars hafa verið skiptar
skoðanir um málið. Togara-
eigendur og stórútgerðar-
rnenn hafa verið útfærslu
andvígir, en bátasjómenn
mjög fýsandi.
Blaðið Handels- og Sjö-
fartstidende leitaði álits
Johs. Olsen um niðurstöðu
Genfarráðstefnunnar. Að
hans áliti náðist ekki lög-
legt samþykki fyrir einhverri
niðurstöðu vegna þess, að
inn í fiskveiðilögsöguna
blandaðist stærð landhelgi,
sem væri hernaðarlegt atriði.
„Nú verður Noregur að sjálf-
sögðu að færa út fiskveiði-
lögsögu sína í 12 sjómílur
(Framhald á 3. síðu).
HERLÖG í TYRKLANDI
bls. 3