Tíminn - 29.04.1960, Blaðsíða 2

Tíminn - 29.04.1960, Blaðsíða 2
TÍMINN, föstudaginn 29. apríltÖ60) -r- Iðnskóla Isafjarðar sagt upp 8. aprd Iðnskólanum á ísafirði var sagt upp 8. þ. m. í húsakynn- um Gagnfræðaskólans, en þar er Iðnskóiinn til húsa. Skóla- stjórinn, Björgvin Sighvats- son, sem gegnt hefur starfinu i vetur í veikindaforföllum skólastjórans, Guðjóns Krist- mssonar flutti ræðu við skóla- uppsögnina og skýrði þar m. a. frá eftirfarandi atriðum: Kennsla í Iðnskólanum hófst 5. jan. s. 1. Þá höfðu farið fram inn- tökupróf, sem þrír nemendur gengu undir, og stóðust þeir allir prófið. Af þessum hópi eru 9 nem. við iðnnám utan ísafjarðarkaup- staðar. Stundakennarar, sem við skólann stórfuðu í vetur eru 10, þar af eru 3, sem kenna bókleg fög. 29 í próf Heilsufarið' í skólanum var ógætt. Prófin hófust 29. f. m. Allir nemendur skólans gengu undir prófið, og auk þess einn utanskóla nemandi. Einn nemandi, Benedikt Sigur- björnsson í 1. bekk hlaut ágætis- einkunn eða 9,26. 26 nem. hlutu I. einkunn, 8 hlntu II. eink., 5. nem. hlutu III. eink. Burtfararpróf tóku 11 nemend- ur, en þar af voru tveir, sem efeki Evrópufrímerki í júlímánuði 1959 var stofnað Evrópuráð póst- og símamála. f því eru 19 lönd og hafa þau að stefnuskrá að vinna að endurbót- um á póst- og símamálum innan samtakanna, samræma starfshætti og láta hvert öðiu í té upplýsingar um allar tæknilegar nýjungar á sviði póst- og símamála. Til þess að minnast þessa at- burðar var áaveðið að gefa út frí- merki á árinu 1960, með sameigin- legri mynd. Skyldu þau 19 lönd, sem í ráðinu eru efna til sam- keppni meðal listamanna heima fyrir og senda tillögur til stjórnar Evrópuráðsins. Hinn 8. okt. síðast liðinn var haldinn fur.dur í ráðinu og dæmt um sýnish.xn þau, er borizt höfðu. Varð sú mðurstaða að sýnishorn frá finnsku póst- og símamála- stjórninni varð fyrir valinu. Fylgir her með mynd af sýnishorninu. Er o-ið í orðinu Evrópa gert að vagn- bjóli en teir.arnir 19 tákna lönd f>au, sem að Evrópuráðinu standa. Á frímerkinu verður einnig skammstöfun ráðsins C.E.P.T. (Conférenee Européenne des Post- f s et Télégraphes). Þá var ákveðinn útgáfudagur samtímis fyrir öll þau lönd, sem ákveðið hafa að gefa frímerkið út og er hann mánudagurinn 19. sept. 1960. íslenzka póststjórnin mun gefa út merkið i tveim verðgildum. Er það burða’-giald undir 20 g bréf flugleiðis tú flestra Evrópulanda og almenn’ innanríkisburðargjald. hafa lokið prófi í öllum tilskyldum námsgreinum, sökum þess, að þær voru ekki kenndar í skólanum í vetur. Hæsta einkunn á brottfarar- prófi hlaut Óskar Ásgeirsson, ísaf. 8,77, næstir honum voru þeir Kristján Reimarsson, Bolimgarvík, 8,48 og Geir Guðbrandsson, ísaf., 8,47. Skólastjórinn afhenti þeim Benedikt og Óskari verð- launabæku’’ frá skólanum fyrir góðan námsárangur. Bárðar minnzt í ræðu sinni minntist skólastjór- inn Bárðar G. Tómassonar, skipa- verkfræðings, en hann átti nýverið 75 ára afmæli, en Bárður G. Tóm- asson var um margra ára skeið einn merkasti og fremsti iðnaðar- maður ísafjarðar, enda löngu landskunnur maður fyrir merkileg brautryðjendastörf í iðngrein sinni Jafnframt var hann um margra ára skeið kennari við Iðnskólann á ísafirði, og veitti honum forstöðu nokkurn'tíma, og lét sér ætíð mjög umhugað um fræðslu og skólamál ísfirzkra íðnaðarmanna. Skóla- stjórinn gat þess, að Iðnskólinn hafi sýnt Bárði G. Tómassyni þakklæti sitt, m. a. með því, að afhenda honum á 75 ára afmælinu fagra bókagjöf, ásamt með skraut- Mynd þessi er tekin fyrlr utan Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum en þaS er nýtt frystihús í eigu 50—60 útgerSarmanna. Þarna voru 125 stúlkur aS starfi viS aS pakka fiskinum, þegar Ijósmynd- ara Tímans bar þar aS. Hér siást nokkrar þeirra f fjörugum umræðum f kaffitímanum. Og einl karlmaSurinn í hópnum virSist kunna sér vel. (Ljósm.: TÍMINN KM). rituðu þakkarávarpi fyrir ómetan- ieg störf að menningarmálum iðn- aðarmanna. Sýning á auði úthafanna sjö Fiskiðnaðarsýnmg í Bergen seint í sumar Dagana 25. ágúst til 11. september verður haldin vold- ug fiskiðnaðarsýning í Berg- en. Þar verður flest allt sýnt, sem við kemur og snertir siávarútveg. afla og nýtingu hans. Blaðinu barst nýlega pési um þessa fyrirhuguðu fiskiðnaðarsýn- ingu, og þar segir m. a.: íslenzk tonlist erlendis Á tónleikum fílharmónísku hljómsveitarinnar í Dresden var '5. janúar s. 1. flutt hljómsveitar- verkið „Pastoítírtilbri'gði" op. 8 cítir Jón Leifs við tema eftir Beet- hoven. Stjornaði Heinz Bongartz Geperalmusikdirektor hljómsveit- inni við hinar allra beztu undir- tektir. Annað verk eftir Jón Leifs er á dagskrá Höndel-hátíðarinnar í Ilalle 25, apríl n. k. Verður þá minnzt 275 ára afmælis Höndels. Fluttur verður strokkvartett eftir níssneska tónskáldið Dmitri Schostakowitseh. Eínn bezti kvart- ett Þýzkalands, Schuster-kvartett- inn, l'eikur í februarmánuði lék Janka vVeinkauff píanisli frá Dresden 2. PÍanósónöcu Hallgríms Helgasonar ásamt verkum eftir Handel og Bramhs á hljómleikum í Ilannover og í Rínariöndum. Blaðaummæli um sónötu Hallgríms segja m. a.: „Það hefur verið sagt, að fer- mi.. af sjó gæfi af sér meiri fæðu fyrir sívaxandi -ólksfjölda jarðar en tilsvarandi stærð akurlendis. Tilganguririn með sýningunni er að sýna hvernig hægt er með ný- tízku aðferðum að gera sífellt meira af auðær úthafanna sjö aö góðri vöru fyrir kaupmenn heimsins, sem síðan annast dreif- ingu til neytenda um viða veröld“. Ein mesfa sýning Þessi fi'sldðnaðarsýning er hin rnesta, sem stofnað hefur ve ið til á Norðu’ ’ m nú um langt skeið, og er ekki nð efa að marg- ur .v.un leggja leið sína ‘ Bergen að ,!i sumri, og njóta sólar og sumar- þeirri fögru norsku borg og nágrenni hennar, ekki hvað sízt þar sem þeim gefst jafn hliða kostur a að kynna sér allt hið nýjasta í fiskveiði og fiskiðn- aðarmiálum. —s— „Þetta verk, sem var síðast á efn- isskránni, er djúpt í tjáningar- ínrmi. Þar kom í ljós ríkuleg Kontrapunktísk fegurð með sterk- um og göfugum svip.“ 14. marz lék hljómsveit útvarps- ins í Leipzig íslenzka svítu eftir Hallgrím Helgiason undir stjórn Dietrich Knothe á norrænum htjómleikum. í skýrslum þeim, sem hingað hafa síðast borizt frá erlendum höfundarréttarstofnun- um, sést, að verk Hallgríms Helga- sonar hafa verið margfalt meira flutt erlendis en eftir önnur ís- lenzk tónskáid á seinasta ári. Halldór Bas tvo tima samfleytt Kaupmannahöfn, 28. apríl. Félag íslenzkra stúdenta í Kaupmannahöfn hélt kvöld- vöku á Kannibalnum Heiðurs- meðlimur íélagsins er Halldór Kiljan Laxness, sem árum saman hefur skemmt stúd- entum með upplestri úr verk- um sínum, og það oft áður en bau voru fullgerð. Hafði haan nú einnig sama hátt á, og las úr nýrri skáldsögu sem á að heita Paradísarheimt. Aðal- persóna sogunnar er íslenzkur bondi, sem ferðast vítt um lönd og loks til Utah, þar s'em hann gerist mormóni. Gaf hestinn Meðal annars las Halldór þátt sem geirist á Þingvöllum á þjóð- hátíðinni 1874, þar sem hinn ís- lcnzki bóndi gefur Kristjáni kóngi aíunda hestinn sinn, og hittir í fyrsta sinni íslenzkan mormóna- trúboða, sera síðar meir hefur úr- sli'taáhrif á allan lífsferil hans. ÖlkelduvatniS Loks las Halldór kafla um för bóndans til Kaupmannahafnar, þar á meðal heimsókn hans til kóngs- ins, endurfundina við hestinn og loks annan fund við fyrrnefndan mormónatrúboða, sem eins og bóndinn hafði leitað til Klampen- borgar til þess að svala þorstanum i ölkelduvatni. Halldór las' sam- fleytt í tvo tíma, og hélt áheyrend- um föngnam með list sinni. Salurinn var eins fullur og fram- a.vt var hægt, og áheyrendur þökkuðu upplesturinn með dynj- andi lófataki. Aðils. Fiskur jókst, er lögsagan víkkaöi Tillögur og greinargerð frá Bátafél. Björg Blaðinu hefur nýlega borizt afrit áf bréfi, sem Bátafélagið Björg sendi skrifstofu Al- þingis vegna framkomins frumvarps, er varðar heimild til dragnótaveiða innan 12 mílna lögsögunnar. Bréfið ier hér á eftir, en millifyrir- sagnir eru blaðsins: Vegna framkomins frumvarps á Alþingi er varðar heimild til drag- nótaveiða inran 12 mílna fiskveiði- lögsögunnai, samþykkti aðalfund- ur Bátaféiagsins Bjargar eftirfar- andi tillöguT- Mótmæla dragnótaveiði Fundurinn mótmælir eindregið framkomnu trumvarpi á Alþingi íslendinga, þess efnis að dragnóta- veiði sé leyíð innan 12 mílna fisk- veiðilögsögu hér við land. Greinargeið: Það er kunnara en frá þurfi að segja að a þeim árum er drag- nótaveiðai voru leyfðar i Faxaflóa íninnkaði íiskveiði stórlega hjá þeim bátum sem stunduðu línu og handfæraveiðar þrátt fyrir bætt veiðarfæri og aðstöðu á ýmsan hátt. Augljósai eru orsakir þessa. Takmarkaiitii, óhófleg veiði á miðum hrygninga og uppeldis fiskjarins alli minnkandi afla. Fiskveiðilögsagan rýmkuð Staðfesting þessarar staðreynd- ar fékkst er fiskveiðilögsagan var rýmkuð úr 3 í 4 mílur og enn þeg- ar lögs'agan var færð út í 12 mílur þá jókst fislcur á grunnmiðum. Dragnótpveiði í skjóli flatfisk- veíða eða humarveiða lítur fund- urinn á sem tilraun til áframhald- andi leiðar til rányrkju, sem alltof lengi hefur veríð rekin hér við land. Auk þess lítur fundurinn svo á að vairt gæd verið um óheppilegri !íma að ræða um tilslakanir en einmitt nú og óþarft er að til- greina nánar Þess’ má geta að félagar í Báta- félaginu Björg eru nú 170 og fer peim fjölgandi. Stjórn Bátafélagsins Bjargar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.