Tíminn - 29.04.1960, Blaðsíða 16
fslenzka sveit-
in stendur sig!
Frammistaða íslenzku bridgesvelt-|
arinnar, sem um þessar mundir tek-^
ur þátt í hinu fyrsta Ólympíumóti, ]
sem háð hefur
verið í bridge,1
hefur vakið
mikla og verð-
skuldaða athygli
hér heima —
enda árangur
sveitarinnar hing
að til verið
framar vonum.
Mótið er haldið
í Torínó á Ítalíu.
íslenzka sveit-
in lenti í þriðja
riðli — en
vegna fjölda
þátttökuríkja
varð að skipta
sveitunum í rlðla
en síöan munu
Lárus
Einar
tvaer efstu sveit-
irnar í hverjum
riðli keppa til úrslita um ólympfu-
titilinn — ásamt sveitum frá Eng-
landi, Bandaríkjunum, Finnlandi,
Brazilíu, Filippseyjum, Austurríki,
Sviss, Kanada og Egyptalandl.
í fyrstu um-
ferð tapaði fs-
lenzka sveitin
með 15 stiga
mun fyrir þelrri
ensku, sem er
ágæt frammi-
staða, þar sem
enska sveitln er
ein sú bezta i
heimi, og hefur
á að skipa fjór-
um fyrrverandi
heimsmelsturum
f 2. umferð
vann ísland
Sviss með fjöru-
tíu stiga mun,
tapaði síðan fyr-
ir Brazilíu með
litlum mun f
þriðju umferð,
og vann Finnland og Austurriki í
fjórðu og fimmtu umferð.
Staðan i riðlinum eftir þá umferð
var mjög spennandi. England var að
visu nokkuð öruggt með sæti í úr-
slitakeppnina, þar sem sveitin hafði
hlotið 20 stig — eöa unnið alla leiki
sína. (Fjögur stig eru gefin fyrir unn
inn leik, þrjú fyrir leik með 1—5
stig yfir, tvo stig fyrir algert jafn-
tefli, og eitt stig fyrir 1—5 stlg
undir). Kanada var þá með 13 stig,
ísland, Bandaríkin og Finnland með
12 stig og Brazilía 11. Staðan virtist
því mjög opin i riðlinum.
Nú hafa hins vegar borizt þær
fréttir úr 6. umferð, að ísland hafi
tapað fyrir Fllippseyjum með 43
stigum gegn 27 og eftir þessl úr-
slit má segja, að næstum vonlaust
sé að sveitin komist í úrslitakeppn-
ina. England vann Sviss í þeirri
umferð, Kanada vann Finnland,
Bandarikin unnu Brazilíu og Austur
ríki og Egyptaland gerðu jafntefli.
England hefur þvi hlotið 24 stig,
Kanada 17, Bandarílrin 16, ísland og
Finnland 12 og Brazliía 11. ..
í sveit íslands eru .Einar Þorfinns-
son, sveifarstjóri, Gunnar Guðmunds
son, Kristinn Bergþórsson, Lárus
Karisson, Ásmundur Pálsson og
Hjalti Elíasson.
Hin nýja
fegurðar-
drottning
Danmerkur
Hún yerdur send í
„keppnina h]á Könum“
Þetta er fegurðardrottning
Danmerkur og heitir sú Sonja
Helene Margot Menzel og er
nítján ára gömul, 165 cm. á hæð.
Hún vegur 55 kg. og málin eru:
brjóst 92, mitti 55, mjaðmir 92.
Hún er dóttir vínkaupmanns í
Kaupmannahöfn. Hún mun taka
þátt í keppninni á Löngufjöru í
Kalífomíu.
Hún hefur gengið á húsmæðra-
skóla og einnig hefur hún gengið
á fyrirsætuskóla Astu Weiss.
Aðspurð að því, hvers sé kraf-
izt af keppanda um fegurðar-
drottningartitil segir hún: „Eig-
inlega ekki neips. Maður verður
að hafa sjálfsgagnrýni til að
bera. Ef ég hefði ekki vitað, að
ég hefði einhverja möguleika,
myndi ég aldrei hafa látið inn-
rita mig til keppninnar."
Gunnar
Kristinn
fef-S jp-.E” bí
• r Ugt /1
Skýjað
í dag verður hæg, breyti-
leg átt, skýjað. Það getur
rignt með köflum, eins og
veðurstofan orðar það.
Vonandi boðar það ekkl
annað eins skýfall og kom
um hádegið í gær.
FjölskyEdumorðin yfir-
bótagjörð. sagði Rhee
NTB—Seoul, 28. apríl.
Byitingin í S-Kóreu náði
hámarki við dögun í morgun,
er f jölskyldu harmleikur í
austurlenzkum stíl var leikinn
til loka í einni af álmum for-
setahallarinnar í Seoul. Rhee
Kang Suks. fóstursonur Syng-
mans Rhee, myrti föður sinn,
Lee Ki Poong varaforseta og
fornvin Rhees, móður sína og
yngri bróður Síðan skaut
Kang sig i hjartastað.
Fregnum ber saman um, að hér
hafi ekki verið um að ræða morð
í venjulegum skilningi, heldur
saman tekin fjölskylduráð. Sjáifur
sagði Syngman fthee við Huh
100 þúsund manns horfði þögull og þungbúinn á Rhee forseta
fara í skotheldri bifreið um götur Seoul til heimilis síns
Chung, handhafa forsetavaldsins,
að verknaðinn bæri að túlka sem
yfirbótagjörð við kóreönsku þjóð-
ina. j
I
Til „Periublómsins"
Varaforsetinn, sem sakaður hef
ur verið um að bera höfuðábyrgð
á fölsun forsetakosninganna og
verstu ofbeldisvenkum Rhee-stjórni
arinnar, hafði í fyrstu leitað til
bandarískra herbúða, en var vísað
þaðan. Leyndist hann þá í einni [
áknu forsetahallarinnar unz dró j
til áðurnefndra atburða. Talið var, j
að Rhee væri farinn úr höliinni, |
en svo var ekki.
í morgun, er atburðirnir höfðu
gerzt, heimtaði gamli maðurinn,
að fara fótgangandi ásamt konu
Áskriftasöfnunin
Hverfisstjórar! Áskriftasöfnunin er í fullum gangi. —
Hafið samband við skrifstofuna og tilkynnið bátttöku.
Símarnir eru 1-29-42 eða 1-55-64 en beinn áskrifta-
sími blaðsins er 1-23-23.
sinni uin götur Seoul til „Perlu-
blómsins", en svo heitir einka-
hús hans í úthverfi borgarinnar.
Ráðgjafar hans komu honum þó
ofan af þessu og fór hann í skot-
heldri bifreið. Hann veifaði oft
til mannfjöldans, sem safnazt
hafði saman með fram götunum,
um 100 þúsund manns, en flestir
voru þögulir og þungir á brún.
Enn forseti að lögum
Verið var að lesa upp yfirlýs-
ingu Rhees um valdaafsal í þing-
inu, er fréttin barst þangað um
fjölskyldumorðin. Varð slíkt upp-
þot í salnum, þingmenn þustu út,
að þingmenn voru ek-ki nægilega
margir eftir til þess að afgreiða
valdaafsalið á þinglegan og lög-
legan hátt. Rhee var því í kvöld
enn formlega forseti S-Kóreu.
Einstaka rödd hefur heyrzt í Seoul
sem vill að Rhee verði endurkjör-
inn forseti í kosningunum, sem
framundan eru.
Hin nýja stjórn er nú naestum
fuiimynduð. Kosningar eiga að
fara frarn fljótlega. Leitað er
valdamanna, sem sekir eru taldir
um ofbeldisverk í valdatíð fyrri
stjórnar.
Líkið fannst
undir Hvann-
dalabjargi
Ólafsfirði 28. apríl. — Laust
fyrir miðnætti í gærkvöldi kom
hingað leitarflokkur með lík Axels
heitins Péturssonar sem fórst
með trillubát undir Hvanndala-
bjargi um síðustu helgi. Þetta var
í briðja sinn, sem tilraun var gerð
nl þess að komast upp í fjöruna
innan við Sýrdalsvoðana, en þar
hafði sézt brak. sem álitið var vera
úr bátnum. 1 gær komst flokkur-
i/jn inn fyr'r skerjagarðinn og inn
á forvaða, og fundu þar lík Axels
hjá brakinu, rétt í sjólokunum.
Þarna út aí eru miklar grynningar
langt út á fjörð, og er talið að
Axel heitvnn hafi farið þar of
nærri, en hann var eins og kunn-
ugt er af fréttum, á leið á Gríms-
eyjarmið. BSt — s —