Tíminn - 08.05.1960, Page 2
2
TÍMINN, smmtidaginn 8. jgflBL
KatalínafSugbáfur F.l.
er þyngstur á fóðrunum
Frá aðalfundi Flugfélags íslands fyrlr áriS 1959
Mikið tap af Katalínu
Aðalfundur Flugfélags fs-
lands h.f. fyrir árið 1959 var
haldinn í dag í Kaupþings-
salnum í Reykjavík. Formað-
ur félagsstjórnar Guðmundur
Vilhjálmsson setti fundinn og
stjórnaði honum. Fundarrit-
ari var Jakob Frímannsson.
Forstjóri félagsins Örn Ó.
Johnson flutti skýrslu um
rekstur félagsins á árinu og
skýrði efnahags- og reksturs-
reikninga.
Farþegar innanlands voru
51.195 árið 1959 og er það 8%
minna en árið áður. Fækkun
var aðallega á flugleiðum til
Vestfjarða og Siglufjarðar.
Flugsamgöngum þangað var
haldið uppi með Katalínuflug
vél. Nokkrar tafir urðu á flug
inu þangað vegna viðhalds
og skoðana.
Fjölfarnasta flugleið
Fjölfarnasta flugleið innan
lands var sem fyrr milli
Reykjavíkur og Akureyrar,
15.064 farþegar. Önnur að far
þegafjölda varð flugleiðin
milli Reykjavíkur og. Vest-
mannaeyja með 12740 far-
þega. Þriðja var Reykjavík—
Egilsstaðir með 6325 far-
þega og milli Reykjavíkur og
ísafjarðar flugu 4850 farþeg-
ar. Vöruflutningar minnkuðu
á árinu um 23% miðað við
árið áður. Fluttar voru 1146
lestir af vörum. Póstflutning
ar námu 181 lest og jukust um
26 af hundraði.
FélagFramsóknar
kvenna
heldur síðasta fund sinn á
starfsárinu miðvikud. 11. þ.
m. kl. 8,30 í Framsóknarhús-
inu. Mörg mál á dagskrá, er
konur varðar.
Heildartekjur innanlands-
flugs námu 19.975 millj. kr.
en rekstrarkostnaður 'að með
töldum afskriftum, kr. 1,15
millj., varð 23,1 millj. og varð
því halli á rekstri innanlands
flugsins 3 millj. og 125 þús.
kr. Það er athyglisvert að
tveir þriðju hlutar hallans er
tap á rekstri Katalínaflug-
bátsins. Rekstur hans kost-
aði kr. 5555,00 pr. flugstund
en tekjur pr. flugstund námu
kr. 3586,00. Lætur nærri að
hleðslunýting flugbátsins
hefði átt að vera 96% í hverri
ferð til þess að rekstur hans
bæri sig. Heildarhleðslunýt-
ing i innanlandsflugi árið
1959 var 56% allt árið.
Millilandaflug
Rekstur millilandaflugs
gekk mjög vel árið 1959. Alls
voru 29,495 farþegar fluttir
milli landa og er það 22%
aukning frá fyrra ári. Flug
vélar félagsins héldu uppi
áætlunarflugi til sömu staða
og áður þ.e. Glasgow, Kaup-
mannahafnar, Osló, Hamborg
ar og London. Fjölfarnasta
leið félagsins milli landa er
Reykjavík— Kaupmannahöfn
með 11249 farþega. Milli
Glasgow og Kaupmannahafn
ar flugu 3608 farþegar með
„Föxunum" og er það 80%
aukning frá árinu áður.
80 Græniandsferðir
Flugvélar félagsins fluttu
á árinu 959 251 lest af vör-
um milli landa. Aukning 8%.
Póstflutningar námu 55 lest
um og jukust um 17%. Heild-
arhleðslunýting millilanda-
flugsins varð 63,3% allt árið.
Leiguflug Flugfélags íslands
jukust verulega árið 1959 og
voru farnar yfir 80 ferðir til
Grænlands. Annaðist Sky-
masterflugvélin Sólfaxi meg-
í inhluta þess.
Fundur Nehrú
og We Brandts
NTB—LONDON, 6. maí. —
Willy Brandt borgarstjóri í
Berlín kom til Lundúna í
morgun og ræddi við Nehrú
að ósk hins síðarnefnda. í
tilkynningu segir, að Brandt
hafi skýrt ítarlega Berlínar-
málið, ástandið í A-Þýzka-
landi og sameiningu lands-
hlutanna. Við fréttamenn
sagði Brandt, að hann hefði
haft mikið gagn af samtal-
inu við Nehrú. — Stjórn-
málafréttaritarar ræða mjög
um þennan fund og telja
hann mikilvæfean, einkum
þar sem ríkisleiðtogafundur
inn sé rétt framundan.
Þau leiðu mistök urðu hér í biaðinu í gær, að þessi mynd villtist f um-
broti blaðsins milli greina í blaðinu. Hún átti að fylgja grein, sem birtist
á 16. síðu blaðsins, þar sem sagt var frá æfingastöð fatlaðra og lamaðra,
en myndin átti alls ekki að fylgja greininni á 9. síðu um Styrktarfélag
vangefinna. Myndin er af Guðbjörgu litlu, 6 ára, sem er hið mesta efnis-
barn og hög í höndum við að gera tágakörfur eins og myndin sýnir. —
Biður blaðið afsökunar á mistökunum.
Karlakórinn Fóstbræður í
söngför til Norðurlanda
Karlakórinn Fóstbræður
ieggur upp í söngför n.k. laug
ardag 14 maí og er förinni
heitið til Norðurlanda. Söng-
stjóri er Ragnar Björnsson,
einsöngvarar Kristinn
í útvarp
konsertar.
og haldnir voru
Syngja í norska útvarpið
Að þessu sinni er förinni
heitið til Stavanger í Nor-
Hails- egi’ Þa®an verður síðan ferð
ast yfir Noreg og haldnir þar
son og Sigurður Björnsson. margir konsertar m.a. í Ála
Undirleik annast Carl Billich. sundi, Haugasundi, Bergen,
|Lillehammer og Osló. Á þjóð
erlend og innlend lög |hátíðardegi Norðmanna 17.
Á söngskrá kórsins eru mab verður kórinn í Bergen
og tekur þátt í hátíðahöldum
Aðalfundur
arfélags Borgarfjarðar
Aðalfundur Framsóknarfélags Borgarfjarðar verður hald-
Félagsheimili Skilmannahrepps í dag, 8. maí, og hefst
mn i
kl. 3.
DAGSKRÁ:
1. Lagabreytingar.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Verðlagsmál landbúnaðarins Framsögumaður Sverr-
ir Gíslason, form. Stéttarsambands bænda
4. Stjórnmálaviðhorfið. Framsögumaður Halldór Ás-
grímsson alþm.
5. Ýmis mál.
Framsóknarmenn í Borgaifirði og á Akranesi eru hvattir
til að fjölmenna á fundinn.
Ferðir frá Bifreiðastöð ÞÞÞ, Kirkjubraut 16, Akranesi, kl.
2,30.
bæði innlend og erlend lög.
Meðal höfunda eru Páll ís-
ólfsson, Jón Leifs, Jón Norð-
dal, Þórarinn Jónsson og Emil
Thoroddsen. Af erlendum höf
undum má nefna Schubert,
Reger, Grieg o. fl. Kórinn
hefur áður farið í slíkar söng
ferðir til annarra l.anda, síð-
ast 1954, þegar farið var til
Vestur-Evrópulanda, Hol-
lands, Belgíu, Þýzkalands og
Englands. Þá söng kórinn m.
a. í sjónvarp í París óg Lond
on auk þess söng hann víða
þar. Sungið verður í norska
útvarpið og þeim söng út-
varpað beint.
Frá Osló verður haldið til
Kaupmannahafnar. Þar kem
ur kórinn fram í útvarpi og
í konsertsalnum í Tívolí. í
ráði er einnig að Fóstbræð-
ur heimsæki Svíþjóð og
syngi í sænska útvarpið.
ans, einsöngvara og undir-
leikara, sem áður var getið.
Fararstjóri verður Ágúst
Bjarnason, skrifstofustjóri.
Stjórn kórsins er skipuð
Sigurði E. HaraJdssyni, Þor-
steini Helgasyni, Ásgeiri
Hallssyni og Ágústi Bjarna-
syni. — í utanfararnefnd
krósins er Hreinn Pálsson,
Ágúst Bjarnason og Sigurð-
ur Waage, en kórinn hefur
fengið styrk til fararinnar,
bæði frá ríki og bæ.
Á mánudag, þriðjudag og
miðvikudag heldur kórinn
samsöngva fyrir styrktarmeð
limi sína í Austurbæjarbíó
kl. 7.
í nánum tengslum við kór
inn starfar söngdeild, sem
nefnist Gamlir Fóstbræður.
Formaður hennar er Hreinn
Pálsson, en aðrir í stjóm eru
Gottfreð Bernhöft, stórkaup-
Samsöngur fyrir sfyrkiar- maður, Garðar Þorsteinsson,
meSlimi prófastur, Sigurjón Guð-
Þátttakendur í förinni eru mundsson forstjóri og Björn
38 söngmenn auk söngstjór i Árnason endurskoðandi.
Karlakórinn Fóstbræöur.