Tíminn - 08.05.1960, Blaðsíða 4
4
TÍMINN, sunnudagmn 8. maí 1960.
Tízkunjósnarar viKUBLAÐIÐ
Einn af foringjum Parísar-
lögreglunnar, Jacques Besson,
hefur þann stárfa aS elta uppi
þá, sem njósna um tízkunýj-
ungar og gera teikningar eða
taka á laun myndir þegar ver-
ið er að sýna nýju tízkuna í
stóru tízkuverzlununum.
Þessar myndir eru keyptar
dýru verði og eftir þeim fram
leiða fataverksmiðjur snið,|
sem áttu að vera lengi enn
einkaeign tízkuverzlananna.
Pyrir þremur árum náðu
tízkunjósnarar helmingi allra
nýjunga, sem koma áttu á
markaðinn um vorið og er,
talið að hagnaður þeirra hafi j
sízt verið minni en tízkuhús j
anna'það árið.
Áttatíu af hundraði af söku j
dólgunum, sem Besson eltist!
við, eru konur. Hann segir,1
að það sé erfitt að yfirheyra j
þær, því þær sé ekki hægt að j
binda við rökréttar umræður!
í yfirheyrslum. Hins vegar
komi þær oft upp um sig
vegna tilfinninga sinna.
Ekki alls fyrir löngu gerði
hann og menn hans húsrann
sókn hjá grunuðum kven-
manni. Félagar hans þrir,
leituðu í íbúðinni í þrjá tíma
en Besson sat reikjandi út
við dyr og horfði á konuna.
Hann varð þess var, að hún
gerðist alltaf óróleg þegar
þeir nálguðust gluggann í dag
stpfunni. Þangað fór hann og
litaðist um. Græn jurt var
i potti og leit vel út, en mold
in var þurr. Hann tók í jurt-
ina og heyrði konuna taka
andköf fyrir aftan sig. Und-
ir moldinni í j urtapottinum
voru meira en sextíu teikn-
ingar af fötum frá Dior, Bal
main og Belenciaga, vafðar
í sellofan.
ísskápa athugar Besson
alltaf vandlega. Einu sinni
fann hann mikrofilmu í ís-
skúffunni.
Besson vill helzt gera hús-
rannsóknir um fimmleytið á
morgnana, þá er mótstöðuafl
manna minnst. Nú orðið tel-
ur hann sig þekkja flesta felu
staði, sem fólk velur og eink
um rannsakar hann baöher-
bergin vel. Einu sinni var
hann að leita hjá kven-
manni, sem bjó í gömlu húsi
á „vinstri" bakka Signu. Kon
an bað hann að hafa sig af-
sakaða og fór inn á bað. —
Besson stóð frammi á gangi
og horfði á skugga hennar á
gleri í hurðinni. Allt í einu
hvarf skuggipn. Hann hlust
aði, ekkert hljóð. Um stund
hvarlaði hann milli skyldu
og kurteisi, svo braut hann
upp hurðina. Konan var horf
in. í klukkutíma leituðu lög
reglumennirnir sem óðir. Ör-
magna hallaðist Besson að
veggnum, jakkaermi hans
festist á hnúð í þilinu og allt
í einu datt hann aftur á bak
inn í leynigöng, sem lágu inn
í næsta hús.
Göngin höfðu verið sett
þarna í gamla daga ein-
hverjum elskendum til þæg-
inda. Hann hitti konuna síð-
ar, hún hló upp í opið geðið
á honum og sagðr: „Ástin
sigraði yður, herra Besson“.
Besson nær venjulega að-
eins i milligöngumenn njósna
hringa, sjaldnast í upphafs-
menn og kaupendur stnygl-
vörunnar — tizkuhugmynd-
anna. Fatnaðarframleiðandi í
New York sendir árlega á
markaðinn verðlista með
myndum af Parísartízku,
stundum áður en hún er sýnd
í París. Besson getur ekki
haft hendur í hári hans
vegna þess, að bandarísk lög
viðurkenna ekki að fatnaðar
teikningar eigi að njóta lög-
verndar. Besson segir, aö
mörgu fólki, sem aldrei dytti
í hug að stela vélum og öðr-
um munum, finnist að um
hugmyndir gildi allt öðru
máli, þær sé öllum frjálst að
nota, sem það geti.
Margir tízkunjósnarar eru
■afburða góðir teiknarar og
hafa gott sjónminni, svo að
þeir geta setið á sýningum
og teiknað upp eftir minni
allar nýjungar. Um tíma
minnkaði útflutningur á
höttum einkennilega mikið í
París. Besson komst í málið
og fann svissneskan náunga,
sem árum saman hafði ofið
merkjabönd með nöfnum
frægustu tízkuhúsa og selt
þau hinum og þessum hatta-
gerðarmönnum, sem skelltu
böndunum á framleiðslu
sína.
ER EINA blaðið hér á landi sem eingöngu er helgað
málefnum íþróttahreyfingarinnar og íþrótta-
fólks.
BLAÐIÐ kemur reglulega út hvern laugardag. í því
birtast nýjustu fréttir, auk ýmsra fræðandi
greina um íþróttamál, innlend og erlend.
GERIZT áskrifendur. — Áskriftarverð er aðeins kr.
10,00 á mánuði. — Árgjald 1960 kr. 90,00.
Ég undirr. .. . óska að gerast áskrilandi að IÞRÖTTUM
Nafn ....................................
Heimili .................................
Utanáskriftin er: Vikublaðið ÍÞRÓTTIR,
Birkihvammi 4, Kópavogi.
.s. „Helgafeil“
fer frá Reykjavík þriðjudaginn 10. maí til Vestur-
og Norðurlandshafna.
Viðkomustaðir:
Súgandafjörður,
ísafjörður,
Skagaströnd,
Sauðárkrókur,
Siglufjörður,
Ólafsfjörður,
Dalvík,
SvaJbarðseyri,
Akureyri,
Húsavík,
Raufarhöfn.
Skipadeild S. f. S.
MELAVÖLLUR
\ f i
Reykjavíkurmót meistaraflokks.
,í kvöld kl. 8,30 keppa
Fram — Þróttur
Dómari: Grétar Norðfjörð
Línuverðir: Einar H. Hjartarson og Valur
Benediktsson
Mótanefndin
ÞAKKARÁVÖRP
Hjartanlega þakka ég öllum þeim er minntust
mín á 85 ára afmæli mínu 29. f.m., með heim-
sóknum, gjöfum, skeytum og óska þeim öllum
guðs blessunar.
Markús Þórðarson,
Grímsfjósum, Stokkseyri.
Þökkum hjartanlega ötlum þeim, sem hafa auðsýnt vináttu og
samúð við andlát og jarðarför t
Skúla Ágústssonar
frá Birtingaholti.
Elín Kjartansdóttir og fjölskylda.
Utför föður okkar,
Páls Pálssonar,
frá Stærri-Bæ,
er lézt að heimili sínu, Sigtúni 39, 3. þ. m., fer fram frá kapellunni
í Fossvogi miðvikudaginn 11. maí kl. 1,30 e. h.
Ólafur Pálsson, dætur
og aðrir vandamenn.
. Margrét Hjartardóttir
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 10. maí kl.
1,30 síðdegis.
Lára Jóhannesdóttir.