Tíminn - 08.05.1960, Síða 5
T í MIN N, sunnudaginn 8. maí 1960.
5
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. Rit-
stjórar: Þórarinn Þórannsson (áb.), Andrés
Kristjánsson. Fréttastjóri: Tómas Karlsson.
Auglýsingastj.: Egill Bjarnason. Skrifstofur
í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305.
Auglýsingasími: 19523 Afgreiðslusími:
12323. — Prentsmiðjan Edda h.f.
_____________________________________________________*
Sigtir unninn
Það eru góð tíðindi. að brezka ílotamálaráðuneytið
hefur nú gefið brezkum togurum fyrirskipun um að
veiða ekki innan tólf mílna fiskveiðimarkanna. Þessi
íyrirmæli þýða raunverulega, að brezk stjórnarvöld eru
fallin að fullu og öllu frá þeirri röngu stefnu, er þau
fylgdu um skeið að veita brezkum togurum vernd við
veiðar í fiskveiðilandhelgi íslands.
Raunar kemur þetta ekki á óvart. Það hefur lengi
verið vitað, að brezk stiórnarvöld iðruðust þeirrar á-
kvörðunar að beita íslendinga umræddu ofríki. Þegar
sjóréttarráðstefnan hófst, notuðu þau líka tækifærið til
að draga herskipin í burtu. Yfirleitt var þá litið á þá
ákvörðun þannig, að brezku herskipín myndu ekki aftur
taka upp umrædda ,,vernd“, nema ef svo kynni að fara,
að niðurstöður sjóréttarráðstefnunnar gengju mjög í ber
högg við málstað íslendinga. Nokkur hætta var á því,
að brezkir togaraeigendur notuðu slíka átyllu til þess að
knýja stjórnarvöldin til að taka upp fyrri ráðabreytni
að nýju.
Sjóréttarráðstefnan gaf brezkum öfgamönnum hins
vegar ekki neitt slíkt tækifæri. Af því hafa brezk stjórn-
arvöld nú dregið réttar ályktanir.
íslendingar munu vissulega fagna þeirri niðurstöðu,
sem fengin er. Fullur sigur hefur nú raunverulega
unnizt í baráttunni fyrir 12 mílna fiskveiðilandhelginni.
Þessi sigur hefur fyrst og fremst unnizt vegna þess,
live einarðlega og einhuga þjóðin stóð saman um málið.
Þeir, sem vildu láta undan, voru vart finnanlegir. Hér
eftir eru þeir áreiðanlega engir.
Þótt brezk stjórnarvöld beittu okkur órétti um skeið,
munu íslendingar ekki erfa það til iangframa, ef Bretar
rétta nú einlæglega fram hendina tíl sátta og gera ekki
fleiri tilraunir, hvort heldur er með illu eða góðu til
að reyna að fá skerðingu á tólf mílna fiskveiðilandhelg-
inni. Sigurinn er íslendinga. Því geta þeir með góðum
vilja hjálpað til að byggja það upp að nýju í vinsamlegri
sambúð þessara þjóða, er ofríki Breta reif niður um
skeið.
Bandamennirnir
Mbl. spyr að því í fyrradag hverjir séu þeir banda-
menn okkar í landhelgismálinu, er Hermann Jónasson
hafi talað um í viðtali því, er Tíminn birti við hann um
sjóréttarráðstefnuna.
Þessu er fljótsvarað. Bandamenn okkar á sjóréttar-
ráðstefnunni voru fyrst og fremst þær 27 þjóðir, sem
hjálpuðu til þess að fella bræðingstiiiögu Bandaríkjanna
og Kanada um hinn svonefnda 10 ár^ „sögulega rétt“,
Afstöðu þessara þjóða eigum við það að þakka, að ekki
var neitt það samþykkt á Genfarráðstefnunni, er gat
'gefið andstæðingum okkar átyllu til að beita gegn okk-
ur ofríki að nýju.
Það var ekki sök þessara þjóða, þótt tillagan um sér-
stöðu íslands væri þannig, að sumar þeirra töldu sig
neyddar til að greiða atkvæði gegn henni. Þeir tóku
það einmitt skýrt fram eftir atkvæðagreiðsluna, að þeir
styddu tólf mílna fiskveiðilandhelgi íslands, en hefðu
samt orðið að greiða atkvæði gegn tillögunni vegna
þess, að hún hafði verið tengd við bræðinginn.
Það er alveg furðulegt, að Mbl skuli í sambandi við
landhelgismálin vera að kasta grjóti í þær þjóðir. sem
hjálpuðu okkur til að fella bræðingmn.
ERLENT YFIRLIT
ir valdamenn í Sovétríkjunum
Kosloif, Kosygin og Polyainsky koma næst Krustjoff
ÞAU TIÐINDI hafa nýlega
gerzt í Moskvu að þar hafa orð-
ið verulegar breytingar á skip-
un manna í valdamestu embætti
rfkisins, en slíkum breytingum
hefur jafnan verið veitt tals-
verð athygli, m. a. vegna þess,
að af þeim betfur oftast mátt
ráða, hvaða menn réðu þar
mestu og væru líklegastir til að
hreppa sæti aðalleiðtogans, ef
hann félli frá.
f samtoandi við breytingar
þær, sem nú hatfa orðið, hefur
það vakið mesta athygli, að
Frol. R. Kosloff, sem var fyrsti
varaforsætisráðherra, ásamt
Mikojan, hefur látið af því
startfi, en verið skipaður einn
af aðairiturum flokksins og sér
stakur aðalritari miðstjórn-
ar flokksins. Þessi nýja staða
hans er talin miklu valdameiri
en sú, sem hann gegndi áður,
og er almennt eftir breyting-
una litið á hann sem „krón-
prinsinn“ eða þann mann, sem
Krustjoff myndi helzt kjósa
sem eftirmann sinn, ef hann
fortfallaðist, en gæti samt ráðið
því, hver eftirmaðurinn - 'ði.
VIÐ SÆTI Kosloffs st n fyrsti
varaforsætisráðherra tekur
A.eehsei Kosygin, og þykir það
benda til, að hann standí nú
næst Kosloff, að mati Krust-
joffs. Þá hefur Dmitri
S. Polyansky hlotið sæti
í framkvæmdaráði flokksins,
sem er valdamesta stofnun
flokksins. Þessir þrír menn eru
nú taldir nánustu samverka-
menn Krustjoffs. Talið er að
hann hafi mjög styrkt aðstöðu
sína með því að hækka þá í tign.
Hins vegar er ekki víst, hve
Iengi þeir verða þessarar náðar
aðnjótndi. Til þess bendir það,
að sá maður, sem fyrir ári síð-
an var talinn líklegasti eftir-
maður Krustjoffs, Kirichenko,
var nú látinn tfíkja úr fram-
kvæmdaráði flokksins og gegn-
ir orðið þýðingarlitlu starfi
flokkserindreka í afskekktum
landshluta. Þannig kann einnig
að geta farið fyrir þeim þre-
menningunum, sem nú eru
mest í náðinni hjá Krustjoff,
ef hann heldur þá eitthvað
ótrygga sér.
Þótt Krustjoff ráði nú mestu
um má'Ietfni Sovétríkjanna og
skipun manna í helztu trúnað-
arstöður þar, eru völd hans
talin minni og öðru vísi en þau,
sem Stalin hafði. Krustjoff
Kosloff
verður að taka meira tillit til
samstarfsmanna sinna og til-
lagna þeirra. Sumpart kann
þetta að stafa af hví, að Krust-
joff er ekki eins skapi farinn
og Stalin. Stalin var einráður,
en þótt Krustjoff sé það einnig,
er hann miklu félagslyndari og
tekur því meira tiliit til ann-
arra.
ÞREMENNINGAR þeir, sem
nú eru taldir ganga næst Krust
joff að völdum, eru allir tiltölu
lega ungir. Þeir tilheyra allir
nýrri kynslóð, eða þeirri, .sem
var of ung til þess að taka þátt
í byltingunni, en ólst upp á
fyrstu árum hennar. Viðhorf
hennar er líklegt til þess að
verða talsvert annað en gömlu
byltingarleiðtoganna.
Frol. Kosioff er 51 árs gam-
ali. IL.nn er verkfræðingur að
menntun, en hetfur staHað á
vegum flokksins síðan 1944 og
gegnt mörgum þýðingarmiklum
embættum á vegum hans, m. a.
verið leiðtogi hans í Leningrad.
Ii.ann varð fyr.sti varal „rsætis-
ráðherra fyrir tveimur árum
síðan. Hann heimsótti Banda-
ríkin á síðastl. sumri og vann
.sér þar álit með viðfelldinni
og frjálslegri framgöngu. Hann
er mikill vexti og allur hinn
myndarlegasti.
Kosygin er nokkru eldri eða
56 ára gamall. Hann er ættaður
frá Leningrad. Hann er verk-
fræðingur að menntun og var
um skeið yfirmaður vefnaðar-
iðnaðarins. Hann naut um skeið
Kosygin
mikils álits hjá Stalin, en virt-
ist fallinn í ónáð hans rétt áð-
ur en hann féll frá. Síðan hefur
vegur hans aukizt að nýju.
Hann var á síðastl. ári skipaður
yfirmaður þeirrar stofnunar, er
hefur heildarstjórn fjárfesting
armálanna með höndum. Hann
er sagður njjög fylgjandi auk-
inni framleiðslu neyzluvara.
Polyansky er yngstur um-
ræddra þremenninga, fældur
sjáifan byltingardaginn 7. nóv.
1917. Hann er búfræðingur að
menntun, enda kominn atf
bændaættum. Hann hefur
lengstum unnið ýms erindreka
störf á vegum flokksins víða í
Covétrikjunum og virðist Krust
joff hafa lagt á hann sérstakt
ástfóstur seinustu árin. Fyrir
tveimur áruim varð hann for-
sætisráðherra .stærsta sambands
ríkisins í Sovétríkjunum, og
sem slíkur heimsótti hann
Bandaríkin fyrir fáum mánuð-
um síðan. Þeir, sem þekikja
hann, telja hann líklegan til
mikils frama.
AF ÖÐRUM breytingum, sem
nú verða á æðstu stjórn Sovét-
ríkjanna, vakti sú mesta at-
hygli að kona var nú skipuð í
.sæti menntaimálaráðherra, en
það er talið þýðin-garmikið emb
ætti. Konan, sem varð fyrir
valinu, var Furtseva, en hún
er eina konan, sem að undan-
förnu hefur átt sæti í fram-
kvæmdaráði flokksins. Hún er
fimmtug að aldri og þykir mik-
ill skörungur. Krustjoff er
sagður meta hana mikils. Þ.Þ.
Furtseva
Polyansky
Kirichenko