Tíminn - 08.05.1960, Síða 16
Flugmaður-
inn heill á húf i
Krústjoff lýsti jiví yfir í ÆSsta rá'ðinu, að
bandaríski flugmaðurinn hefði bjargast í
fallhlíf 02 verið handtekinn
í lokaræðu sinni í Æðsta-
ráði Sovétríkjanna lýsti Krúst
joff forsætisráðherra því yfir,
að bandaríski flugmaðurin'n,
sem stjórnaði flugvélinni, sem
skotin var niður í sovézkri
lofthelgi, 1 maí s.l. væri heill
á húfi og við góða líðan í
Moskvu. Hefði hann bjargazt
í fallhlíf og verið handtekinn.
Sagði Krústjoff eftir flug-
manninum, að hann hefði
haft fyrirskipun um að svipta
sig lífi frekar en lenda í hönd-
um yfirvalda í Rússlandi Þá
sagði forsætisráðherrann, að
flugvélin hefði verið njósna-
tlugvél og fór hann háðuleg-
um orðum um „afsakanir“
Bandaríkiamanna.
Moskvu, sagði Krustjoff og
yrði fréttamönnum leyft að
skoða það. í flugvélinni hafa
fundist Ijósmjmdir og IjOs-
myndatæki, sem sanna að
þetta er ekki nein venjuleg
rannsóknarflugvél. Sagði
hann, að fréttamönnum gæf-
ist einnig kostur á að sjá
sjálfsmorðstækið. Við rann-
sókn á flugvélinni hefði kom
ið í ljós, að hún hafi verið
mjög hraðfleyg og getað flog
ið í mikilli hæð. „Bandaríkja
mönnum hefur skjátlast
hrapalega að halda, að við
gætum ekki skotið hana nið
ur af þessum ástæðum. Við
hefðum undir öllum kringum
stæðum getað tortímt henni“,
sagði Krustjoff.
Fréttir frá Moskvu herma,
að á síðasta fundi Æðsta ráðs
ins, en fundir hafa staðið |
þar yfir s.l. tvo daga, hafi ^
Krustjoff lýst því formlega|
yfir fyrir þingheimi, vegna^
fjölda fyrirspuma, að bandaj
ríski flugmaðurinn hefði j
bjargast úr brennandi flugvél!
sinni, er hún var skotin nið-
ur með eldflaug yfir Síberíu,
s.l. sunnudag.
Siálfsmorðstæki
Sagði Krustjoff, að hann
hefði átt viðræður við flug-
manninn og bar hann ýmis
ummæli eftir honum. Sagði
hann, að flugmaðurinn héti
Harry Powers, 30 ára að aldri.
Hefði flugvélin verið á leið
frá Tyrklandi til Noregs. Flug
maðurinn hefði ungur byrj-
að að stunda flug, en ráðist
síðan í njósnaflug fyrir Banda
ríkin. í þessari flugferð hefði
honum verið falið að athuga
eldflaugastöðvar og skipulag
flugvalla í Sovétríkjunum.
Hafi samt fyrirskipunin haft
rannsóknir á áhrifum geim- j
geisla að yfirskini.
Sagði Krustjoff, að flug-
maðurinn hefði vlðurkennt,
að hann hefði fengið fyrir-
skipanir um að svipta sig lífi
frekar en verða tekinn fastur.
Fannst í fórum flugmannsins
lítil sprauta, en ein nálar-!
stunga hefði nægt til að gera
út af við hann á skammri
stund, að sögn Krustjoffs. ,
i
Flakið til sýnis
Flak flugvélarinnar er nú í í
Hæðir Bandaríkjamenn
Þá sagði forsætisráðherr-
ann, að sú viðbára Bandaríkj
anna, að flugmaðurinn hefði
fallið í yfirlið af súrefnis-
skorti og þess vegna ekki vit
að um, að hann væri kominn
í sovézka lofthelgi, væri fá-
ránleg í mesta máta. Sagði
hann, að nú gætu Banda-
ríkjamenn ekki lengur efast
um styrk Sovétríkjanna á
sviði eldflauga. Áherzla væri
nú lögð á smíði fjarstýrða eld
flauga, sem farið gætu heims
áífa á milli. Nýr yfirmaður
heíði verið skipaður yfir eld
flaugastöðvunum, og væri
hann fyrrverandi storskota-
liðsforingi.
Undirstrikaði hann enn
einu sinni fyrri aðvaranir
sínar um, að tiltæki sem
þetta gæti hæglega leitt til
styrjaldar. Einnig mundi ekki
bæta fyrir samkomulagi á
fundi æðstu manna sem
hefst innan skamms, sagði
Krustjoff að lokum.
KviknaSiíspónum
Laust fyrir kl. 5 í gær var
slökkviliðið kallað að tré-
smiðju Regins í Silfurtúni, en
kviknað hafði í spónum, sem
sogast frá vélunum gegnum
stokk, sem liggur niður í
kjallarann. Eldurinn var þeg
ar slökktur. Talið er að kvikn
að hafi út frá rafmagni, blý-
streng, sem liggur á stokkn-
um. Engar skemmdir urðu, en
nokkur reykur var kominn í
Um langt árabil hefur
Dagur á Akureyri verið
langsamlega stærsta og
myndarlegasta blað, sem
gefið hefur verið út utan
Reykjavíkur og jafnan
harðskeytt og rökfast mál-
gagn fyrir samvinnustefn-
una, bændur og verka-
menn. Framsóknarmenn á
Akureyri og í Eyjafirði
hafa ætið staðið að útgáfu
blaðs síns af miklum mynd
arskap, og það hefur frá
fyrstu tíð notið hinna ágæt
ustu manna, svo sem Ingi-
mars Eydal, Jónasar Þor-
bergssonar, Hauks Snorra-
sonar og Jóhanns Frímann.
„Dagur^ á Akureyri
Framau af árum var Dagur
eingöngu stjórnmálablað, en
Hauikur Snorrason gerði það
að al'hliða fréttablaði og efnis-
miklu um ýmis menmingarmál,
erlend sem innlend. Þá fékk
Dagur og betri aðstöðu til
prentunar en önnur blöð ut-
an Reykjavíkur og hefur notið
þess síðan hjá Prentverki Odds
Björnssonar á Akureyri.
UnJ:r ritstjórn Hauks heitins
Snorrasonar náði Dagur mjög
aukinni útbreiðslu bæði á Ak-
ureyri og nágrannahéruðum og
r.aut mikilla vinsælda. Þegar
Haukur gerðist ritstjórl Tím-
ans tók Erlimgur Davíðsson við
ritstjórn og hefur annazt hana
síðan, en hann hafði um skeið
unmið við blaðið með Hauki.
fcíV* '*+*.'*• •'*
Breytir um svip
í tilefni þess, að Dagur á
Akureyrí hefur nú enn einu
sivni breytt dáiítið um svip
og umbrot, þykir Tímanum rétt
að minna landsmenn á Dag á
Akureyri, því að sannast að
segja á hann erindi til miklu
fleiri landsmanna en í héruð-
unum hið næsta Akureyri,
ekki sízt til þeirra, sem fluttir
eru þaðan til annarra lands-
hluta en vilja fylgjast með
fréttum og málefnum þar. Til
þess er ekkert blað betur fært
en Dagur
Dagur er nú yfirgripsmeira
fróttablað um það sem gerist í
héruðunum noi'ðaustan lands
en nokkru sinni fyrr, og hefur
ritstjórino lagt á þá hlið
mikla aherzlu. Kaupendatala
Dags fer sífellt hækkandi, og
Erlingur Davíðsson, ritstjóri
munu fréttirnar eiga sinn þátt
í því.
Á Akureyri einni saman selj
ast á sextánda hundrað blöð
af Degi og er það meira en
eitt blað í hvert hús bæjarins
til jafnaðar, og mjög fáir mumu
þeir sveítabæir í Eyjafjarðar-
sýslu, bar sem blaðið er ekki
keypt, og útbreíðsla þess í
nœstu syslum að austan og vest
an er mjög mikil. Upplag Dags
er hátt á fimmta þúsund og er
miklu stæria en upplag allra
hinna Akureyrarblaðanna sam-
anlagt Útliit fctlaðsins hefur
íengi venð smekklegt, mikið
af myndum úr atvinnulífinu og
með fréttum, og eftir breyt-
inguna, sem nú hefur verið
gerð er yfirbragð blaðsins létt
og laðandi.
Dagui' er sönnun þess, að
unnt er að gefa út myndarleg
blöð amnars staðar en í Reykja
vík, ef góðir menn eru að
verki, dugnaður, hagsýni og á-
hugi. Tímanum þykir rétt að
minna menn í öllum landshlut-
um á Dag og hvetja þá til að
kaupa hann, einkum þá sem á
einhvern hátt eru tengdir mái-
um þar. En auk þess flytur
Dagur margvíslegt annað læsi-
legt efni tii skemmtunar og
fróðlei’ks. Dagur kemur út á
hverjum miðvikudegi, en einn-
ig alloft á laugardögum. Hann
er átta síður í hvert sinn í
sama broti og dagblöð landsins.
Esnn Egypti og
fimm þús. Danir
Hagtíðindi skýra frá farþegaflutningum
í nýútkomnum Hagtíðind-
um er skýrt frá farþegaflutn-
ingum til landsins og frá því
árin 1956—1959. Er þetta
yfirlit samið eftir skýrslum út-
lendingaeftirlitsins.
' Árið 1956 ktomu hingað 9517
erlendir og 8751 íslenzkur fanþegi.
1959 komu 12296 eiilendir og 9712
íslenzkir farþegar.
Farþegár til útlanda voru árið
1956 9607 útlendingar og 9041 ís-
lendingur en árið 1959 fóru 11818
erlendir farþegar héðan og 10107
íslendingar.
Meir en tveir þriðju hlutar af
ölium þessum farþegaflutningum
til og frá landinu hafa farið fram
með flugvélum.
Þá er getið um þjóðerni er-
lendra farþega til og frá landinu
á þessu árablii. Þar eru Danir í
yfirgnæfandi meirihluta og þar
næst Bandaríkjamenn. 3077 Dan-
ir fcomu hingað 1956 og 1959 komu
4811 Danir. Egyptar virðast allra
manna sjaldsénastir hér eftir þess
ari skýrslu að dæma. Árið 1956
fcom hingað einn egypzkur maður
og árið 1959 einn. Á árunum þar
á milli er enginn egypzkur far-
iþegi talinn. —b.
Morðinginn
Sátinn laus
Morðingi Leo Trotskys hef-
ur nú verið látinn laus eftir
nærri tuttugu ára setu innan
fangelsismúranna. Var hann á
sínum tíma dæmdur i túttugu
ára fangelsi vegna morðsins
og hefur afplánað refsingu
sína í Mexíkó. Fór hann í gær
flugleiðis tif Kúbu.
Skúrír
í dag má búast við austan
golu og suðaustan. Nokkur
hætta er á skúrum en
sennilegast verður bjart á
milli. Það fer að verða
nokkuð staðveðrasamt hér
á okkar landi,