Tíminn - 28.05.1960, Blaðsíða 4
4
T í MIN N, laugardaginn 28. maí 1960.
Ciird Jiirgens - heimsborgarinn
meðal kvikmyndaleikaranna
Hann er heimsborgarinn
meSal kvikmyndaleikaranna.
Hann hefur leikið í um 100
kvikmyndum og konuhjörtu á
t'llum aldri hafa slegið hraðar
vegna töfra hans. Hann er
tæddur í Munchen, alinn upp
í Berlín, menntaður í Vín, og
jafn vinsæll í London sem
Hollywood. Hann hefur verið
giftur fjórum sinnum, fyrsta
kona hans var þýzk. önnur var
austurrísk, þriðja ungversk
og sú fjórða frönsk.
Hann er ekki maður, sem
setur ljós sitt undir mæliker
og þaö hafa forsvarsmenn
hinna stóru kvikmyndafélaga
fengið að reyna. Þegar þeir
hafa setið andspænis honum
hafa þeir séð hinn glaðlynda
heimsmann breytast í stál-
harðan kaupsýslumann, sem
hefur vit á því að selja sjálf-
an sig dýrt.
En selji hann sjálfan sig
dýrt, þá lætur hann líka eitt-
hvað í staðinn. Hann er ár-
risull og stundvís, hann geng-
ur af lífi og sál að hinum
erfiðustu hlutverkum.
„Ljóshærði risinn"
Englendingar hafa sérstakt
gælunafn á Júrgens. Þeir
kalla hann: „The blond gi-
ant“ Ijóshærða risann.
Bandaríkjamenn segja að
hann sé „The male sexbomb“
og Gurd Júrgens finnur sig
í þessu, að minsta kosti svo
lengi sam hann getur verið
forsíðuefni, því að hann kann
vel að meta gildi auglýsinga.
Aðeins eit’t nafn getur komið
honum úr jafnvægi. Það er ef
krafa hans um að nafn hans
standi efst á auglýsingaspjöld
um er ekki tekin til greina.
Aðeins einu sinni hefur hann
vikis frá þessari kröfu sinni.
Curd Jurgin
Það var er hann lék í „Og Guð
skapaði konuna1 á móti Birg-
itte Bardot.
blskar Mozart og Beethoven
En sem sagt, til þess hefur
hann „Der Wunderknabe“ en
það kalla Þjóðverjar hann,
enga löngun. Hann þiggur að
vísu góða skíðaferð, en helzt í
félagsskap kvenna, og hann
slær hendinni heldur ekki á
móti tennisleik ef þrýst er á
hann, en ekki lengi í einu.
Hins vegar elskar hann Mo-
zart, Beethoven og Bach og
hann er listelskur og sérfræð-
ingur í Goya og Gauguin. Ef
hann finnur verðugan mót-
leikara, teflir hann gjarna og
hann gleymir aldrei að skýra
frá því, að hann hafi verið
meistari í þessari grein í
skóla. Ef hann er spurður að
því hvert sé helzta tómstunda
gaman hans, segir hann að
það sé að fá góða vini í heim-
sókn og keyra bil. Hann á sex
bíla, einn Jagúar, þrjá Mer-
cedes og tvo BMW.
Kaúpmannssonur
egar ég var ungur, segir
hann um sjálfan sig, leit ég
of vel út, persónuleikann fær í
maður með tímanum og kon- !
um geðjast að reyndum
manni, sem getur leyst úr
vandamálum þeirra. Menn
hafa kallað Cúrd Júrgens
lukkuriddara, og hann hefur
kannske verið það, en frami
byggist líka að miklu leyti á
vinnu.
Faðir Cúrd Júrgens var
kaupmaður, og hann vildi að
sonur sinn gengi inn í fyrir-
t?ekið, en það vildi Cúrd ekki.
Hann vildi verða blaðamaður.
Hann byrjaði sem sjálfboða-
liði við blað í Berlín. Eitt sinn
átti hann að hafa haft viðtal
við hina ungu leikkonu Lulu
Baesler. '
Þessu lyktaði þannig, að
Cúrd Júrgens ákvað að helga
sig leiklistinni, eftir að Lulu
(F’-amhaJd !> tö -iðu >
Jeppi
Vegna brottflutnings af
landinu, er til sölu ódýr
jeppi í góðu lagi.
ViðskiptamiSlunin
Hallveigarstíg 9.
Sími 23039.
ÞAKKARAVQRP
Öllum konunum, sem sendu mér höfðinglegar
gjafir, og öðrum þeim, sem sýndu mér vinarhug á
50 ára ljósmóðurafmæli mínu, þakka ég hjartan-
lega.
Innilegustu kveðjur og blessunaróskir til ykkar
heima með þökkum fyrir liðin ár.
Björg Magnúsdóttir.
Hugheilar þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig
með heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum á
sextíu ára afmæli mínu, og gerðu mér daginn
ógleymanlegan.
Anna Jóhannesdóttir,
Vindheimum.
Hjartkaer eiginmaður minn, faSir okkar og tengdafaðir,
Jens E. Nielsson
kennari,
andaðist í Landakotsspitala 26. þ. m.
Elín Guðmundsdóttir
Sigríður Þorkeisdóttir Guðmundur Jensson
Skúli Jensson
Margrét Ólafsdóttir Ólafur Jensson
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og útför
Guðjóns Úlfarssonar.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
Maríu Þ. Jónsdóttur,
frá Stóru-Reykjum.
Sérstaklega þökkum við hjúkrunarfólki og læknum Elli- og hjúkr-
unarheimilisins Grundar og Sjúkrahúss Selfoss fyrir góða umönnun
í veikindum hcnnar.
Gísli Jónsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
r
ERU LIF OG
BRUNATRYGGINGAR
YÐAR NÆGILEGA HÁAR?
Ef svo er ekki, þá vinsamlegast snúið yður til
umboðsmanna vorra, eða skrifstofunnar, Lækjar-
götu 2, sími 1-3171,
Vátryggingaskrifstofa
Sigfúsar Sighvatssonar h-f.
Tilboð óskast
í nokkrar rafsuðuvélar, er verða til sýnis í Rauð-
arárporti, þriðjud. 31. maí kl. 1—3 síðd.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama
dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
9 sinnum í viku
fljúga Viscount skrúfuþoturnar vinsælu til Kaup-
mannahafnar í sumar og 2 ferðir í viku til Ham-
borgar.
og Rolls-Royce eru trygging fljótrar ferðar
til meginlands Evrópu.
vw/e/aff A/a/idí.
//.F
ICE.LANDAÍR