Tíminn - 01.07.1960, Qupperneq 3
í í
1 I i
IVÍ'MIN-N, fostudagínn 1. júlí 1960.
SíTdm
(Framh. af 1. síðu).
síldarm&gn SA af Grímsey,
en síldin stendur mjög djúpt
og hefur ekki verið reynt við
hana.
6—7 daga bræðsla
Löndun er nú langt komið
á Raufarhöfn, en síldarverk
smiðjan hefur tekið við 32—
35 þúsund málum. Hefur hún
undan að bræða þetta magn
á 6—7 dögum. Aðeins einn
bátur var á leið þangað í gær
dag, en síldar hafði orðið
litillega vart austur af Langa
nesi og út af Sléttu. Ekki var
þar þó um verulegt magn að
ræða. Gert er ráð fyrir að
söltun geti hafizt á Raufar-
höfn upp úr mánaðamótum.
Brætt á Seyðisfirði
og í Eyjafirði
9—10 skip bíða löndunar
á Seyðisfirði, en fáir bátar
hafa komið þangað síðan í
fyrrakvöld. Verksmiðjan þar
hefur nú hafið bræðslu. —
Til Eyjafjarðarhafna hefur
nú borizt allmikil síld, en eng
in á sama tíma í fyrra. Verk-
smiðjan í Krossanesi hafði
í gær tekið við rúmlega 13000
málum, en þar höfðu landað
siðan í fyrradag: Björgúlfur
•1184; Björgvin, 1235; Súlan,
1120; Sigurður Bjarnason,
958 og Gunnar, 776. -r Þá
hefur einhver síld borizt til
Hjalteyrar, en þar hafði í
12 mílna mörk við Plöreg
ekki fyrr en í árslok 1961
Norska stjórnin hefur enn
ekki tekið neina ákvörðun frá
hvaða tíma fiskveiðimörkin
skuli færast út í 12 sjómílur.
Við verðum líka að taka þessa
ákvörðun með hliðsjón af efl-
ing landhelgisgæziunnar, sem
nú stendur yfir. Þannig fórust
fyrradag verið landað 6 þús.
málum. —ó.
SííJustu íréttir
Þegar hlaðið átti tal við
stldarleitina á Rawfarhöfn
í gœrlcvöldi, var litið um
að vera á miðunum. Skipin
vo.ru enn um 60 sjómílur út
af Glettinganesi, og var
afli heldur rýr þótt sum
fengju sœmileg köst. Þá
hafði Ægir lóðað einhverja
síld út af Dalatanga, og leit
arflugvél sá í gærkvöldi
torfu út af Skaga. Veður var
gott á mi&unum.
Þess má geta að á miðnætti
í nótt átti að taka til starfa
talbrú á Raufarhöfn. Geta
skipin talað beint í land um
hana, en landsíminn sér um
þessa þjónustu.
Samningar við ríki, sem hagsmuna eiga
að gæta, taka marga mánuði og efla á
varðskipaflotann
Nils Lysö fiskimálaráðherra
Moregs orð, er fréttaritari
blaðsins Norsk Handels- og
Sjöfartstidende ræddi við
hann í fyrradag.
Hér fam á eftir nokur at-
riði úr grein þessari:
Ekki rætt nema við Breta
Ráðherrann upplýsti, að
norska stjórnin hefði ekki
tekið landhelgismálið upp við
aðrar þjóðir en Breta, sem
hefðu formlega snúið sér að
fyrra bragði til norsku stjórn
innar. Aðrar þjóðir, sem
stunduðu togveiðar við Noreg,
myndu þó vafalaust áhuga-
samir að komast að einhverju
samkomulagi við Norðmenn,
áður en hinn nýju fiskveiði-
mörk taka gildi. Lysö ráð-
herra sagði að lokum, að
Utan úr heimi
Hammarskjöld neitar
NTB—New York, 30.
júní. Hammairskjöld
sagði við blaðamenn
dag, að hann sæi ekk-
ert unnið með því, að
afvopnunarnefnd S. þ.,
þar sem fiilltrúar allra
aðildarríbja eiga sæti,
kæmi saman til að ræða
afvopnun, en það er
krafa Rússa eftir endalokin í Genf.
Hammanskjöld kvaðst ekki heldur
sjá neitt umnið með því að kalla
saman þing S.þ. né öryggisráðið.
Bezt væri að lofa skapsmunum
manna að róast.
Castro fíjóínýtir
NTB—New York, 30. júní. Shell-
olíufélögin utan Kúbu segjast ekki
lengur senda Kúbu .eina hráolíu.
Þetta gerðist eftir að Castro hafði
þjóðnýtt bandaríska olíufélagið Te-
kaco á Kúbu, en þac, ásamt tveim
öðrum olíu félögum, þar á meðal
Shellfélaginu, hafði neitað að
vinna hráolíu, sem Castro hefur
samið um kaup á í Sóvétríkjunum.
Ferrhat Abbas
vonsvikinn
NTB-París og
Túnis, 30. júní
— Sendinefnd
útlagastjórnar
innar fór frá
París til Tún
isborgar í dag.
Útlagastjórnin
heldur ráðu-
neytisfund um
helgina og athugar. hvað gera
skuli. Fullyrt fer, að Ferrhat Abb
as telji sig ekki geta farið til
Farísar eins og skilyrðum Frakka
er nú háttað, en vilji ekki taka
á sig ábyrgðina af því að slíta frek
ari viðræðum.
Gaitskelf öruggur
NTB-Londr
on, 30. júní
Sýnt þykir
nú, að Gait
skell er
fastur í for-
ingj asessi_ Verkamannaflokksins
brezka. Á fundi í þingflokknum
var honum vottað traust með 178
atkvæðum gegn 7.
Safna hermönnum
í V-Berbn
NTB—Moskvu
30. júní. —
Sovétstjórnin
hefur sent
vestur veld-
unum nótu,
þar sem hún
segir, að herútboð fari fram
meðal æskumanna í V-Berlín og
sé þeim ætlað að ganga í her- V-
Þýzkalands. Ekki er talið að Sovét
stjórnin beri fram bein mótmæli,
er. vekur athygli á málinu.
Krustjoff í Vínarborg
/■
NTB—Vínarborg, 30. júní. —
Krustjoff kom með föruneyti til
Vínar í dag í opinbera heimsókn.
Fátt var á flugvellinum og með-
fram vegum inn í borgina, flest
kommúnist.ar. Kaþólska kirkjan
hafði líka hvatt fólk til að fagna
ekki Krustjoff, Hann sagði, að sam
búð ríkjanna væri ágæt og fyrir-
rayndardæmi.um það, hvernig frið
samleg sambúð ríkja ætti að vera.
LiÖssamdráttur Kínverja
NTB—New Del-
hi, 30. júní. Fregn
ir frá New Delhi
herma, að Peking
stjórnin safni
saman hersveitu
saman hersveit-
um og hergögn-
um við landa-
rnæri Indlands,
einkum í Yatung
dalnum, sem ligg
ur að _Sikkimhér-
aði. Áreksturinn
við Nepal er tal-
inn vísbending
um hvers Ind
verks blöð rætt árásina á Nepal
ítarlega og telja ilian fyrirboða.
Nýr sendiráðunautur
Sigurður Hafstað deildarstjóri í
utanríkisráðuneytinu hefur verið
skipaður sendiráðunautur í Osló
frí 1. júlí 1960.
Þorleifur Thorlacius, sem verið
hefur sendiráðunautur í Osló, tek-
u- við störfum í utanríkisráðu-
neytinu.
þar sem viðræðunum í
London væri ekki lokið, væri
ómögulegt á þessu stigi að
þeirra yrði.
Ekki fyrr en 1961
Blaðið heldur síðan áfram
ag ræða málið frá eigin sjón
arhól og segir, að af ummæl
Norrænir samvinnumenn
(Framh. af I. síðu).
stofur í London, Valencia og
Santos.
Norræna samvinnusambandið
var stoínað árið 1918, sem sam-
e ginlegt innkaupafyrirtæki sam-
vmnuhreyfinganna í Svíþjóð, Nor-
egi og Danmörku. Tíu árum síðar
bættust bæði finnzku samvinnu-
samböndin i hópinn og 1949 Sam-
band íslenzkra samvinnufélaga.
N.A.F. er þane.ig ínnkaupasam-
band allra samvinnusambandanna
á Norðurlöndum. Tekjurnar eru
umboðslaun og afslættir frá selj-
endum. Samkvæmt venju endur-
greiddi N.A.F. helming umboðs-
launa til meðlimanna og nam sú
i'pphæð rúmum tveim milljónum
danskra króna. Endurgreiðsla til
S.Í.S. varð rúmlega 73 þúsund d.
kr. af vörukaupum að upphæð d.
kr. 6,1 milljón.
Umsefning N.A.F. á árinu varð
332 millj. danskar krónur og er
það 24 milij. d. kr. hærri upphæð
en árið 1958. Magnumsetning
um ráðherrans megi ráða, að j jökst nokkuð meira en krónuupp-
naumaist kiomi til þess að
fiskveiðimörkin verði færð út
í ár. Samningar við þau ríki,
sem harðast verði úti vegna
útfærslunnar muni taka
marga mánuði. Og ef þar við
bætist, að ekki eigi að færa
út fyr en landhelgisgæzlan
hefur verið efld megi reikna
með því að útfærslan komi
ekki til framkvæmda fyrr en
í árslok 1961.
5-1
í gærkvöldi lék úrvalslið
S-Vesturlands við Red Boys
frá Luxemburg, á Laugardals
velli. Úrvalsliðið vann með
5 mörkum gegn 1.
Belgíska Kongó
(Framh. af 16. síðu).
yfirlit yfir stjórn Belga á ný
lendunni í 60 ár og hverju
þeir hefðu til vegar komið,
Konungur varaði við ýmsum
hættum, sem biðu ríkisins,
ekki sízt sökum reynsluleysis
leiðtoganna. Hættulegastur
væri þó rígur ættbálkanna og
tálsnörur erlendra ríkja, sem
myndu reyna að seilast til á-
hrifa. Hann bauð óeigin-
gjarna og heiðarlega aðstoð
Belgíu við uppbyggingu hins
nýja ríkis.
Kasavubu forseti talaði
næstur. Mesta athygli vakti,
að hann þakkaði konungi
ekki fyrir, að Belgar skyldu
veita landinu sjálfstæði á svo
friðsamlegan hátt. Segir, að
Lumumba forsætisráðherra
hafi látið strika þann kafla
ræðunnar út. Lumumba hélt
því næst ræðu. í ræðu hans
kom fram skörp gagnrýni á
nýlendustjórn Belga og ný-
lenduveldin yfirleitt. Flutti
hann stefnuyfirlýsingu hins
nýja ríkis og var mjög bjart-
sýnn á framtíð þess. Svertingj
ar m'yndu nú sýna, hvers þeir
væru megnugir og skapa fyr-
irmyndarríki í hjarta Afríku.
Konungur hafði varað við að
afnema í skyndi hin gömlu
lög. Lumumba lýsti yfir þvert
ofan i ræðu konungs, að öll
hin gömlu og ranglátu lög
yrðu þegar i stað endurskoð-
uð og ný sett í staðinn, rétt-
lát og betri.
Fréttamenn segja, að kon
ungur hafi tekið nœrri sér,
hxe Lumumba var hvassyrt-
ur, og að ekki skyldi eínu
orði þakkað, að Belgir veita
landinu sjálfstœði á friðsam
legan hátt. Hann sat þó ró-
legur undir rœðu Lumumba
og sat siðan veizlu, þar sem
bœði Kasavubu og Lumum-
ba þökkuðu honum komuna
og vinsemd i garð Kongos.
hæðin gefur til kynna vegna verð-
lækkana á nokkrum vörutegund-
um.
Brúttótekjur N.A.F. urðu d. kr.
4.0 millj. á árinu og reksturskostr.
aður d. kr. 1.548 þúsund.
Helmingur umboðslauna
endurgreiddur
Eftir að búið er að endurgreiða
n eðlimum helming umboðslaun-
anna er tekjuafgangur á reksturs-
reikningi d. kr. 458 þúsund og
vsr þeirri fjárhæð, ásamt vaxta-
tekjum og tekjum yfirfærðum frá
fyrra ári ráðstafað á aðalfundinum
í gær þannig, að um helmingur
fjárhæðarionar var yfirfærður til
næsta árs, en afganginum varið til
ýmissa framkvæmda í þágu sam-
takanna.
Nordisk Andels-Export — út-
flutningsdeild samvinnusamband-
anna á Norðurlöndum — var stofn
að í nóvember 1954 og hóf síarf-
semi sína . mai 1955. Stjórn og
framkvæmdastjórn þess er hin
sama og N.A.F.
Umsetning N.A.E. varð d. kr.
.28,0 millj. á árinu 1959, og er þar
um verulega aukningu að ræða
Lá fyrra ári. Brúttótekjur, að við
bættum vaxtatekjum námu d. kr.
344 þúsund, reksturskostnaður
\arð d. kr. 169 þúsund og nettó
tekjuafgangur d. kr 175 þúsund.
Þar af varð hluti S.Í.S. d. kr. 8
þúsund.
Hinir erlendu fulltrúar og gesfir
komu flestir hingað til iands í
fyrradag og var komu þeirra fagn-
að með kvöldverðarboði í Fram-
sóknarhúsinu. Þar flutti Erlend-
ur Einarsson, forstjóri S.Í.S. nokk
ur ávarpsorð og sagði m.a.:
„Höfum hagnazf á sam-
starfinu"
„Fyrir ísl. samvinnuhreyfinguna
hefur aðild að NA.F. og N.A.E.
verið gagrneg á margan hátt. Við
erum yngst- og minnsti meðlim-
urinn. N.A F hafði starfað í 30
r áður en S.Í.S. gerðist meðlim-
ur. Á þessum 12 árum höfum við
bagnazt viðskiptalega á samstarf-
inu í N.A.P' Við höfum einnig
haft óbeinan hagnað af þessu sam
starfi. N.A.F hefur verið tengi-
Þður í sambandi við margháttaðar
upplýsingar og fyrirgreiðslu. sem
við höfum notið frá samvinnu-
hreyfingunni á Norðurlöndum.
Þessa fyrirgreiðslu ber að þakka
sérstaklega."
Að loknum fundi í gær sátu full
tiuar hádegisverðarboð viðskipta-
málaráðherra i ráðherrabústaðn-
i.m við Tjarnargötu. og síðdegis
í gær voru beir ásamt öðrum gest
tim fundarms boðnir til forseta-
hionanna að Bessastöðum.
f dag ferðast fulltrúarnir um
nágrenni Reykjavíkur og Borgar-
fiörð.
Flestir fulltrúanna halda heim-
leíðis á sunnudag
i