Tíminn - 15.07.1960, Qupperneq 3
3
Hvar á boli að vera?
Eftirfarandi athugasemd
barst til blaðsins í gær, út af
fréttinni um átök út af nauti
í Skorradal, og er hún birt
hér orðrétt:
Hr. ritstjóri.
Vegna fréttar er birtist í
blaði yðar í dag, um átök í
Skomadal út af nauti, vildi
ég biðja yður að birta eftir-
farandi atlrugasemd. Veit ég
að ég mælf þar fyrir munn
allra, sem hlut eiga aQ máli,
bæði hreppsbúa og hinna
mörgu ferðamanna, sem um
þetta fagra hérað ferðast.
Eg vil beina þeirri spum-
ingu til hinna „ágætu“ for-
ráðamanna Sæðingarstöðvar.
innar að Hvanneyri, hvort
þeir geri sér IJóst, hvaða á-
byrgð þeir eru að taka sér
á herðar, að láta sllka háska
gripi, sem svona naut eru,
ganga — mér liggur við að
segja — laus. Gera þeir sér
grein fyrir því, að fyrir svona
skepnum eru fullorðnir alls
ekki óhultir, hvað þá heldur
börn. Það á því ekki að eiga
sér stað, að þau séu látin út
fyrir hússins dyr. Engin girð
ing er fullkomlega held fyrir
þeim, hvað vel sem frá henni
er gengið. Liggur því í aug-
um uppl, að sú girðing, sem
um ræðir í fréttihni er ekki
beinlínis heppileg til að halda
9 vetra gömlum nautum.
Vítavert er það ábyrgðar-
leysi umrædds „tarfsstjóra“
að ætla að setja nautið í girð
inguna aftur, þegar sýnt var,
að hún var eins og fis, er
nautið ætlaði út úr henni.
Það er skýlaus krafa allra,
að þau naut, sem eftir eru I
girðingunni, verði fjarlægð
þaðan tafarlaust. Þó ekki hafi
Hjó á vörpuna
CFramh. af 1. síðu).
dró brátt undan Albert.
Pétur Sigurðsson skýrði
blaðinu svo frá í gær að tíð-
indalaust væri innan land-
helgi. Við Langanes voru 8
—9 togarar að veiðum, en all
ir uban línu, og í eftirlitsflugi
hafði ekki örðið vart við
neina landhelgisbrjóta. Ó.
hlotizt slys af i þetta skipti,
er enginn komihn til að segja
um, hvað af getur hloti'zt, ef
annað eins endurtekur sig. Þá
er of seint að ranka við sér.
Ef ráðamenn nautanna eru
svo skyni skroppnir, að þeir
sjái' ekki hættuna og fjarlægi
nautin úr girðingunni, verða
viðkomandi yfirvöld að grípa
í taumana.
Með þökk fyrir birtinguna.
Ferðamaður.
Flytja fisk loft-
leiðis til Evrópu
Sólfaxi fór fyrstu förina til Amsterdam-1’
Nýtt skip til
Sauðárkróks
Sauðárkróki, 14. júlí. — Um
miðjan dag í gær kom hingað
nýtt fiskiskip, vandað að öll-
um búnaði. Það er athyglis-
vert að tveir af éígendum
skipsins eru bændur sem ekki
hafa fyrr fengizt við útgerð,
en hinn briðji er skipstjórinn.
Skipið fer á veiðar á næst-
unni.
Hið nýja skip, Pálína SK-2, er
stálskip, 180 lestir að stærð og
smíðað í Hargenfeld í Hollandi af
fyrirtækinu Böero Veritas. Það er
32 metrar á lengd, ristir 2,9 metra
og er búið öllum nýjustu leitar-
og siglingatækjum, þar á meðal
liósmiðunairstöð. Það gengur 11
s.iómílur og var rétta 5 sólar-
hringa á heimleið frá Hollandi.
Bændur gera út
Pálína virðist mjög vandað skip
enda er skipasmíðastöðin sem
skipið byggði þekkt fyrir sérstaka
vandvirkni. Skipstjórinn, Valdi-
mar Friðbjörnsson, hefur dvalizt
í Hollandi undanfarna fjóra mán-
uði og fylgzt með gerð skipsins.
Eigendur þess auk hans eru þeir
Skarphéðinn Pálsson, Gili, og Har-
aldur Ámason, Sjávarborg, en þeir
eru báðir búandi menn og hafa
ekki staðið í útgerð áður. — 12
manna áhöfn er á skipinu, en það
fer á togveiðar á næstunni. Mun
það leggja upp aflann hjá Fisk-
iðju, Sauðárkróks. Margt manna
fagnaði skipinu þegar það kom til
hafnar. Forseti bæjarstjómar,
Guðjón Sigurðsson bauð skipið
velkomið og óskaði eigendum til
hamingju. Auk hans töluðu Gunn-
ar Guðmundsson oddviti á Reykj-
um í Skarðshreppi, en þar er
skipið skrásett, Jóhar.tn Salberg
Guðmundsson sýslumaður og Gutt
ormur Óskarsson. Haraldur Áma-
son þakkaði fyrir hönd eigenda.
G.Ó.
í fyrrinótt hófst útflutning-
ur á íslenzkum fiski flugleiðis.
Fór þá Sólfaxi Flugfélags Is-
iands með um 7 tonn af fiski
áleiðis til Amsterdam, þar
sem fiskurinn verður seldur
til veitingahúsa og hótela.
Jón Loftsson h.f. stendur
að þessum útflutningi, og fór
framkvæmdastj. fyrirtækis-
Ins, Loftur Jónsson, sjálfur
utan til að sjá um söluna. Er
I ráöi að fara fleiTi slíkar
ferðir á næstunni, ef vel tekst
í þetta sinn. Fiskurinn sem
fluttur er út, er mest rauð-
spretta og koli, en einnig dýr
ari ffsktegundir, lax, humar
og rækja. — Markaður er góð
ur erlendis fyrir ferskan fisk,
ef tekst að koma honum ó-
skemmdum utan. Hafa ýms-
ir fleiri aðilar slíkan útflutn
ing í huga, þ.á.m. útgerðar-
menn I Vestmannaeyjum,
sem fyrir skemmstu gerðu út
menn til markaðskönnunar.
Þá hefur heyrzt að fleiri að-
ilar í Reykjavík hugsi sér
gott til glóðarinnar ef þessi
markaður opnast, en gott
verð er í boði fyrir nýja vöru.
Þernur í
verkfall?
Verkfall það sem þernur á
skipum Eimskipafélags ís-
iands höfðu boðað átti að
hefjast á miðnætti í nótt ef
samningar tækjust ekki áður.
Höiðu þernurnar þá fellt að
fresta verkfalli til 1. nóv. n. k.
Samningafundir stóðu lengi dags
í gær og enn í gærkvöldi. Þegar
blaðið spurðist fyrir um sam-
komulagshorfur á tíunda tíman-
um stóð enn í járnum og var ekki
vitað hvort gengi saman fyrir
miðnættið. Höfðu þernur þá fallið
frá kröfum sínum flesfum nema
þeirri að fá hækkaða greiðslu af
íæðiskostnaði farþega. Þernur á
rkipum Eimskipafélags íslands eru
16 talsins. — Þegar blaðið fór í
prentun í gærkvöldi höfðu ekki
borizt frekari fregnir af s-amning-
unum, og var því ekki vitað hvort
verkfall yrði um miðnættið.
Utan úr heimi
HerlitJ S.Þ. til Kongó
Leopoldville, 14. júlí. — Til-
kynnt var í dag, að innan
sólarhrings kæmi til Kongó
herlið Sameinuðu þjóöanna,
skv. beiðni Kongó-stjórnar.
Sænskur hershöfðingi, Van
Horn, verður æðsti maður
þess, en það verður eingöngu
skipað hermönnum frá Afríku
löndum, m.a. Ghana. Belgíska
stjórnin hefur lýst yfir, að
hún muni draga allt belgískt
herlið til baka smám saman
og byrja slíka liðsflutninga
þegar er herlið S.þ. kæmi til
landsins. Ríkisstjórn Katanga
héraðs lýsti því yfir í dag, að
hún myndi ekki leyfa herliði
S.þ. að koma til þess lands-
hluta. 1600 manna herlið frá
Ghana bíður þess albúið að
fara til Kongó.
Koagó slítur stjórn-
málasambandi
Kongó-stjórn lýsti því yfir
í dag, að hún hefði slitið
stjórnmálasambandi við Belg
íu. Belgir hefðu gert sig seka
um ofbeldisárás á Kongó og
ættu þeir eftir að svara til
saka. Belgíustjórn hefur sagt,
að henni hefði borið skýlaus
réttur til að senda her til
landsins hvítum mönnum þar
til bjargar.
Perú bo'ðar til fundar
Perú-stj órn lagði til 1 dag,
að utanríkisráðherrar Ame-
ríkuríkjanna kæmu saman
hið fyrsta til að ræða af-
skipti þau er Rússar væru
famir að hafa af málefnum
Kúbu og ógnanir þær er slík
afskipti hefðu i för með sér.
Bandaríkjastjórn hefur fagn
að þessari tillögu Perú.
I
Það varð umferðarstöðvun á Amager i Kaupmannahöfn, er álftahjón nokkur fóru á sunnudagsgöngu með alla fjölskylduna. Auðvitað fór fjölskyldan
eftir umferðarregiunum og gekk yfir götuna, þar sem hún er merkt fyrir fótgangandi með hvítum strikum. Aldrei þessu vant var engin óþolin-
mæði í þeim, sem urðu fyrir töfum, — það var enginn, sem þeytti hornið, heldur lék bros um varir manna og þeir virtust hafa nógan tíma í þetta
sinn. Það er ekki sama hver það er, sem stöðvar umferöina.
Frú Eichmann biíur
um aíisto'ð
Frú Veronica Eichmann,
kona þýzka stríðsglæpa-
mannsins er nú situr í fang-
elsi Gyðinga, sakaður um
milljónamorð á Gyðingum,
sneri sér í dag til stjórnar-
innar í Buenos Eires, og fór
þess á leit, að stjómin leit-
aði réttar síns á lögfræðileg-
an hátt í sambandi við brott
námið á Eichmann. Stjórnin
hefur beðið þekkta lögfræð-
inga að taka að sér málið.
Symington varafor-
setaefni?
Flokksþing demókrata í Los
Angeles átti í gærkvöldi að
taka ákvörðun um framboð
varaforsetaefnis flokksins.
Síðustu fréttir hermdu, að lík
legur frambjóðandi yrði
Situart Symington, fyrrver-
andi flugmálaráðh. í stjórn
Trumans.