Tíminn - 15.07.1960, Blaðsíða 8
8
T í MIN N, ÉSsto^aginn 15. júlí
mu
Hér er einn af mörgum ágætisgripum, sem
elliheimilið Stafholt á. Það er skipslíkan
gert af Einari Einarssyni, skipstjóra, og
segir undir myndinni, að þetta sé eftirlík-
ing af íslenzku seglskipi. Hér er 85 ára
gamatl maður, Sigurður Oddsson, að skoða
skipið, er honum þykir hin mesta gersemi.
í Stafholti á Kyrrahafsströnd
er spunnið, prjónað oghekiað
Vestur á Kyrrahafsströnd býr margt Islendinga, einkum norÖur í Seattle
og Vancouver. Hefur íslenzkt fólk flutt á þessar slótSir frá Dakota og
Manitoba hina siðustu áratugi. Á þessum slótSum er fagurt landslag, ve(S-
urblíða mikil og loftslag vel viS hæfi NorSuriandabúa.
Þarina er nú íslenzkt elliheimili í Blaine, sem heitir Stafholt, og þar
dvelja tveir eÖa þrír tugir aldraðra íslendinga. BlaSiS Seattle Time birti
s. 1. vor allmikla myndagrein um þetta elliheimili og Islendingana þar.
Hér birtast allmargar þeirra mynda, se^ voru í blafönu, og geta kannski
einhverjir sé<S þar ættingja e«Ja kunningja, er þeir eiga barna vestra.
Einn glaðasti og skrafhreyfasti heimilis-
maðurinn í Stafholti er Vigfús Vopni, 87
ára að aldri, segir Seattle Time. Hann kom
þangað frá Kanada. — íslendingar eru sí-
talandi, segir hann við blaðamann Seattle
Time.
Frú Sigríður Björnson, 84 ára að aldri, unir
enn löngum við íslenzka rokkinn sinn og
raular vafalaust vísuna alkunnu: Úr þeli
þráð að spinna. Maður hennar, Runólfur
Björnsson, einnig 84 ára að aldri er einnig
heimilismaður í Stafholti.
Hér er frú Björg Þórðarson, 87 ára að aldri, hin snjallasta
hannyrðakona og hefur löngum fengizt við prjónaskap, hekl,
vefnað og sauma. Þessar hannyrðir allar lærði hún á ung-
lingsárum heima á íslandi. Hún saumar nú mjög falleg
brúðuföt og vefur og prjónar ýmislegt smálegt. Hún ber á
herðum íslenzka, heklaða hyrnu.
Og hér að neðan bera íslenzkar konur 5 íslenzkum þjóðbún-
ingum fram kökur handa gestum. Vafalaust eru þar á meðal
gómsætar íslenzkar pönnukökur.
Eins og auglýst hefur verið í
blöðum og útvarpi undanfarið,
hefur Styrktarfélag vangefinna
efnt til happdrættis í fjáröflunar-
skyni, til þess að koma í fram-
kvæmd áhugamálum sínum, til
hagsbóta fyrir vangefið fólk í
landinu. Má þar nefna byggingu
dagheimilis í Eeykjavík, bygg-
ingu starfsmannahúss við Kópa-
vogshæli, sem þegar er hafin fyrir
nokkru, og vonir standa til að á
þessu ári verði hafizt handa um
byggingu nýs hælis fyrir van-
gefna að Skálatúni í Mosfellssveit.
Happdrættí Styrktarfélags vangeflnna
Til þessara framkvæmda þarf
mikið fé, og er happdrætti Styrkt
arfélagsins einn liður í fjáröflun
íii þessara framkvæmda.
Happdrættið er þannig skipu-
lagt, að bifreiðareigendur um land
allt eiga þess kost að kaupa einn
happdrættismiða á númer bifreiða
sinna. Miðinn kostar kr. 100.00 og
vinningar eru að '"lrðmæti 320
þús. krónur Aí‘>' -■ - s» Op-
el Kapitan de ^axt sex. manna
bifreið, að verðmæti kr. 250 þús.
Aðrir vinningar 9 talsins eru að
verðmæti kr. 70 þús. Ákveðið er
að dráttur iari fram 1, nóv. n.k.
í Reykjavík eru happdræftis-
niiðarnir afgreiddir á skrifstofu
félagsins A ikólavörðustíg 18. sím-
ar 15941 ->g 3435'. Enn fremur
má panta r;ða á öilum benzínaf-
greiðslum ; Reykjavík. HappdraRt
ismiðarnir verða sendir heim til
þeirra er pantanir hafa gert.
Úti á landi hefur Styrktarfélag
ið umboðsmenn á þessum stöðum:
Akureyri: Frú Björg Benedikts-j
dóttir, Bjarkarstig 1. Ólafsfjörður:;
Frú Ragna Pálsdóttir, verzl. Lín.
S.glufjörður; Frk. Kristín Hannes-
dóttir bóksali. Húsavík: Frú Þóra
Hallgrímsdóttir. Reyðarfjöiður:
Sigurður Sveinsson bifr.eftirlm.
Neskaupstaður: Pétur Waldorff
kt upm Vík í Mýrdal:' Oddur Sigur
bergsson kaupfélagstj. Selfoss:
Grímur Thórarensen. Hvolsvöllur:
Magmús Kristjánsson kaupfélags-
stj. Vestmannaeyjar: Már Frí-
mannsson bifr.elm. Kópavogur:
Sigurður Ólafsson, Bræðrafungu
47. Hafnarfjörður: Frú Lilja
Ejarnadóttir, Hraunkambi 7. Kefla
vík: Haukur H. Magnússon, Faxa-
braut 22. Keflavíkurflugvöllur:
Þórður Halldórsson póstm. Akra-
nes: Helgi Júlíusson úrsm. Borgar-
nes: Þorleifur Grönfeldt verzlm.
Búðardalur: Frú Kristjana Ágústs
dóttir. Pafreksfjörður: Bogi Þórð-
(Framh á 15. síðu.)