Tíminn - 02.10.1960, Qupperneq 2
2
TÍMINN, sunnudaginn 2. október 1960.
Ketill Jensson syngur
eftir fimm ára hlé
Ketill Jensson óperusöngv
ari, laeldur söngskemmtun í
Gamla Bíó n.k. þriðjudag, kl.
7,15. Ketill kom fyrst fram
sem einsöngvari árið 1948
með Karlakór Reykjavíkur. í
ársbyrjun 1949 hélt hann til
Ítalíu til söngnáms, kom
heim í árslok 1951 og hélt sín
ar fyrstu söngskemmtanir
með aðstoð Fritz Weisshappel
í Gamla Bíó í febrúar 1952.
Fór síðan tvívegis aftur til
ftalíu til frekari' söngnáms
og í febrúar 1955 hélt hann
aftur söngskemmtanir í
Gamla Bíó með aðstoð Fritz
Weisshappel. 1957 fékk hann
styrk frá Menntamálaráði til
söngnáms í V-Þýzkalandi og
dvaldist þar 3 mán. Meðan
Ketill var við nám á Ítalíu
söng hann m.a. aðal tenór-
hlutverkið (Egardo) í óper-
unni Luciá di Lammermoor
eftir Donnizetti í Ravello
Porro, sem er bær skammt
frá Mílanó. Hér heima hefur
hann sungiS i óperunni
Leðurblakan eftir J. Strauss
og óp. Cavalleria Rusticana
eftir Mascani í Þjóðleikhús-
inu og við fjölda mörg tæki-
færi bæði í Reykavík og úti
á landi.
ÆFT AF KAPPI
Undanfarin ár hefur Ketill
ekki haSft aðstæður til að
helga sig söngnum sem skyldi
vegna þeirrar atvinnu, sem
hann hefur stundað og sem
ekki mun vera einsdæmi með
al söngvara hér á landi. Það
er nú að ósk og áeggjan
margra vina og kunningja
Ketils Jenssonar, sem finnst
of hljótt hafi verið um hann
undanfarið, að hann nú eftir
nær fimm ára hlé hyggst gefa
bæjarbúum tækifæri til að
hlýða á söng sinn eftir að
hafa í sumar æft af kappi
með aðstoð Skúla Halldórs-
sonar tónskálds, sem og mun
leika á hljóðfærið undir söng
Ketils á þriðjudaginn kemur
kl. 7,15. — Á efnisskránni eru
mörg lög eftir erlenda og inn
lenda höfunda.
Næstkomandi mánudag,
hinn 3. október, mun Mann-
réttindadómstóll Evrópu taka
fyrir mál vegna samskipta
írska ríkisborgarans Gerard
Lawless og lýðveldisins fr-
lands. Er það fyrsta málið,
sem dómstólinn fær til með
ferðar. í dóminum eiga sæti
15 dómarar, og munu 7 þeirra
fjalla um Lawless-málið,
þeirra á meðal íslenzki dóm-
arinn, Einar Arnalds, borgar
dómari. Er hann farinn til
Frakklands að þessu tilefni.
Mannréttindadómstóll Ev-
rópu var settur á fót skv. á-
kvæðum í mannréttindasátt-
mála Evrópuráðsins, en ís-
land hefur fullgilt þann sátt
mála. Einstaklingar og ríki,
sem telja að sáttmálinn hafi
verið brotinn, geta sent sér-
stakri nefnd, Mannréttinda-
nefnd Evrópu, erindi þar að
lútandi. Nefndin fjallar um
málin og getur vísað þejm
til dómstólsins. Fulltrúi ís-
lands í mannréttindanefnd-
inni er Friðjón Skarphéðins-
son, fyrrverandi dómsmála-
ráðherra.
írinn Lawless var í sveit-
um írska lýðveldishersins
(IRA). Var hann handtek-
Landssal íhalds
og krata
Þeir sigla til lands og semja.
Sigur hjá Bretum fenginn.
Tókst þeim laglega að lemja
til lags við Moggadrenginn.
Og Gröndal i gegnum sáu
guðsvolað furðufés,
sem hræríst í Ijótu og lágu
lifsstríð! um Akranes.
— Árnesingur.
inn i heimalandi sínu og
hnepptur í varðhald 11. júll
1957. Sat hann í varðhaldi
um fimm mánaða skeið án
þess að vera nokkurn tíma
leiddur fyrir dómara. Taldi
Lawless, að með þessu hafi
mannréttindasáttmálinn ver
ið brotinn. — Aðalvörn ír-
lands er sú, að um brot hafi
ekki verið að ræða, þó að al-
mennt eigi að færa þá, sem
handteknir eru, fyrir dómara
án tafar. Byggist þessi skoð-
un írlands á því, að lýðveldis
herinn sé ofbeldisflokkur og
að starfsemi hans hafi skap-
að hættuástand. Eru ákvæði
um það í mannréttindasátt-
málanum, að á hættutímum
megi gera ráðstafanir, sem
fara í bága við almenn á-
kvæði hans.
Meirihluti mannréttinda-
nefndarinnar ákvað að skjóta
málinu til dómstólsins, og
mun munnlegur málflutning
ur hefjast á mánudaginn.
Fer hann fram í heyranda
hljóði Mannréttindadóm-
stóllinn situr í Strasbourgh.
Dómsforseti, þegar Lawless-
málið kemur fyrir, verður
Frakkinn Cassinn.
Hundurinn og hrúturinn
(Framh. af 1. síðu).
bergi og siðan 200 metra eftir
skriðu — en lifði samt. Nánari
tildrög eru þessi:
Er leitarmenn í innanverðri
Helgafellssveit voru. í göng-
um 19. sept. s.l. misstu þeir
tvo forustusauði í kletta efst
í norðanverðum Ljósufjöll-
um. Það mun vera fremur fá-
títt að kindur haldi sig svona
hátt á þessum stöðum, enda
Hundurinn Spori
— á ba tavegi
venjulega fönn þar, en vegna
hins góða sumars má nú
heita þarna snjólaust.
Ekki munu gangnamenn
hafa reynt að nú sauðunum
niður að sinni, enda mjög
erfitt um allar aðstæður og
tvísýnt að ná þaðan kindum
lifandi.
Sauðir þessir eru frá innsta
bænum 1 Helgafellssveit,
Kárastöðum, og er annar
svartur en hinn móhöttóttur.
Nokkrum dögum seinna
varð bóndinn á Kárastöðum
var við þann svarta á heim-
leið og fór hann einn saman.
Þótti þá sýnt að eitthvað
myndi hafa hent þann mó-
höttótta.
Á þriðjudaginn var fóru
svo fjórir menn velbúnir og
Fyrsta mál mannréttindadómstólsins:
Fimm mánaða varð-
hald án dóms-
t
MaÓurinn heitir „Lawless“ og er írskur
Dansskóli
RIGMOR HANSSON
Samkvæmisd anskennsla
hefst í næstu viku. fyrir
börn, unglinga og full-
orðna.
Byrjendur og framhald. Einnig hjónaflokkar og
smáhópar. Upplýsingar og innritun í síma 13159.
Drykkjarker
í fjós fyrirliggjandi.
BÚVÉLADEILD
*'V*,V«X*V‘V*V»V‘,V»V»,V*^A*V»'N.«‘V'V*X*'V*V*X*,W •\.»V«V»V*V*V*V»>
Vísitalan
Framhald af 1. síðu.
nú þegar þelr lækka, eru þelr teknlr me3 og þá miðaS vlð eln-
hverja hugsaða tölu áSur.
Þetta skiptir launþega auðvitaS litlu, þar sem engin vfsitölu-
uppbót er greidd, en eigi að slður gerð til þess að villa um fyrir
fóikl og láta lífskjaraskerðinguna sýnast minni en hún er í raun og
veru.
Fyrst belnu skattarnir voru ekkl hafðir með í vísitölu áður,
er undarlegt að taka þá inn núna.
Fundur í Framherja
FélagiS Framherji heldur fund sunnudaginn 2. október
kl. 2 e. h. í Edduhúsinu.
DAGSKRA:
1. Einar Ágústsson talar um efnahagsmál.
2. Félagsstarfið í vetur.
3. Önnur mál.
Félagar fjölmennið og mætið stundvíslega Takið með
ykkur nýja félaga.
STJÓRNIN.
hugðust ná þeim höttótta lif
andi eða dauðum. Einn þeirra
var góð skytta, vel vopnum
búinn. — Þeir fóru úr byggð
í góðu veðri, en er þeir komu
til fjalla var skollið á suð-
austan rok og því illt að at-
hafna sig.
Klaki er þarna nær upp
úr og því hætt við að mönn-
um skriki fótur. Þeir fundu
þó sauðinn brátt og var hann
á langri sillu eða klettabekk
og hátt standberg fyrir neð-
an. Athuguðu þeir fjn:st mögu
leika á því að klífa upp á
tindinn hinum megin í þeirri
von að geta þaðan sigið nið
ur til sauðsins, en leið sú
reyndist með öllu ófær.
Var þá helzt fyrir hendi að
skjóta sauðinn þar sem hann
var, þótt færi væri nokkuð
langt. Með þeim félögum var
stór og duglegur hundur,
Spori, Svelgsstöðum, og kom
þeim í hug að senda hann
upp, því líklegt væri að hann
mundi koma sauðnum niður,
ef hann kæmist til hans.
Gekk þetta vel í fyrstu, en
er hann hafði nokkuð farið
gekk á snarj/ur rokhnútur og
feykti honum á hliðina.
Missti hundurinn þá fótanna
og féM niður standbergið, 100
metra, og valt síðan eftir
skriðu 200 metra og lá þar
sem dauður.
Þegar sauðurinn sá til ferða
hundsins tók hann á rás
hærra í bergið og var ekki 1
skotfæri úr því. Urðu menn
irnir þá frá að hverfa.
Mennirnir þóttust hafa séð
merki þess, að svarti sauður
tnn hefði klifið upp á tind-
inn og komizt austur af hon-
um niður. Sá höttótti myndi
hafa ætlað á eftir honum
en hrapað niður og þá hvesst
og hann ekki lagt í það aftur,
enda stærri kind og þfngri á
sér.
Mennirnir hafa hug á að
fara aðra ferð innan skamms.
En ef fönn eða frost gerir er
talið ófært upp til sauðsins.
Af hundinum er það að
segja, að hann komst til með
vitundar innan skamms og
var studdur eða borinn til
byggða. Hafði hann hlotiB
slæm sár, en er nú á bata-
vegi. K.B.G.
Áralöng átök
(Framh. af 16. síðu).
fram og Nagalandsmenn á-
kæra indversku hermennina
fyrir hryðjuverk en þeir segja
aftur á móti, að Nagalands-
menn fari um með ógn og
skelfingu og eiri engu, sem
ekki vill ganga þeim á hönd.
Blaðið vill meina, að eng-
inn vafi sé um sannleiksgildi
frásagna Phizo um hryðju-
verkin, en bætir hins vegar
við, að indverska stjórnin
hafi upp á siðkastið verið mót
tækileg fyrir gagnrýni. Fram
til þessa hafa aðeins indversk
ir blaðamenn fengið að fara
inn í héraðið en á þessu kunni
ð verða breyting nú í haust,
segir blaðið, og væntanlega
verður þá allur sannleikur-
inn leiddur í Ijós. Er enginn
efi á því, að frétta um ástand
og gang mála í Nagalandi
svo og viðbrögð brezku stjórn
arinnar vekja mikla athygli.