Tíminn - 02.10.1960, Side 3
TytWINN, sunnudagmn 2. október 1960.
3
Formannsskipti
í varnarmála-
nefndinni
Lúðvík Gizurarson héraðsdóms-
lögmaður, sem í fyrra haust féllst
á að gegna formannsstörfum í
varnarmálanefnd um eins árs skeið
í saimbandi við breytingar á skipun
nefndarinnar, lætur af því starfi
samkvæmt eigin ósk um þessi mán-
aðarmót.
Hefur Hörður Helgason sendi-
ráðunautur tekið við formennsku
varnarmálanefndar af Lúðvík. Jafn
framt hefur Hörður verið settur
deildarstjóii varnarmálanefndar
utanríkisráðuneytisins frá 1. októ-
ber 1960 að telja.
Örlygur Sigurösson, listmálarl, hefur opnað sýningu í sýningarsal Guð-
mundar Árnasonar á Týsgötu 1. Örlygur sýnlr 65 vatnslitamyndir, allt ný
verk.
Engar kartöflur í
búöum í Reykjavlk
Það er erfitt að trúa því. en
frá og með deginum á morgun
verða engar kartöflur seldar í
verzlunum í Reykjavík, og er
óvíst hve lengi það ástand
iielzt. Ástæður eru fyrst og
fremst þær, að því er Sveinn
Snorrason, forsvarsmaður
kaupmannasamtakanna, tjáði
blaðinu 1 gær, að „kaupmenn
og kaupfélög treystast ekki
lengur til þess að borga með
hverri einustu kartöflu, sem
seld er.“
Sveinn skýrði m. a. svo frá:
Grænmetissaian hefur um langan
tíma látið i veðri vaka, að hún
myndi taka upp pökkun á kartöfl-
um. Þegar þetta dróst ár frá ári,
gerðu kaupmennirnir ákveðnar
kröfur um þetta, og ítrekuðu þær.
Síðast var krafa gerð 7. sept., og
þé gefinn frestur til 15. okt. Ef
ekki yrði komið eitthvað jákvætt
fram þá, yrði hætt að selja kartöfl-
ur í búðum ' Reykjavík um þessi
mánaðamót. Grænmetissalan hefur
ölltaf svarað því til, að um hús-
næðisskort væri að ræða. og svar-
aði því enn nú. Þá var ekki um
snnað að ræða en stöðva söluna.
Það er gert bæði af fjárhags og
hreinlætisástæðum. Uppvigtun á
kartöflum er að mörgu leyti ekki
hreinleg, og ýmsar verzlanir hafa
ekki húsnæði til að uppfylia þær
kröfur sem gerðar eru.
Söluprósenta hérlendis á kart-
öflum er mjög lág. Auk þess er
þetta niðurgreidd vara, svo sölu-
prósentan er reiknuð af tilbúnu
verði en ekki af hinu raunveru-
lega. Það munar miklu, hvort sölu-
laun eru reiknuð af rúmri krónu
eða fjórum ki ónum.Dæmi umpökk
en á 1. fl. kartöflum í 1 kg. um-
búðir: Hvert kíló af kartöflum verð
ur að setja í l1/-. kg poka. til þess
eð hægt sé að loka honum. Hver
poki kostar 23 aura. Það gerir kr.
23.00 á tunnuna. Einn maður er
iy2 tíma að vigta upp úr tunnu.
Samkvæmt 2 launaflokki á hann
r.ð fá kr. 38.13 með orlofi fyrir
þann tíma. Varlega áætluð rýrnun
er 5%, eða kr. 8,25 á tunnuna.
Þetta gerir samtals kr. 69.38. Sölu-
laun eru 32.19 kr. fyrir tunnuna,
þannig að kaupmaðurinn greiðir
kr. 37.18 með hverjum 100 kg. bara
fyrir þessa þrjá liði. Þessi kostnað-
ur minnkar eitthvað við stærri um-
búðir, en ekki nema til þess að
gera lítið.
Nú mun Grænmetissalan hafa
fengið eitthvert húsnæði, og pökk-
unarvél á hún. Hún getur að vísu
ekki annað eftirspurn í Reykjavík
hvað þá víðar, en er ekki betra að
hafa alla þcssa pökkun á sama
stað, jafnvel þótt ekki sé um vél-
pökkun að ræða, heldur en 300?
Síðan sneri blaðið sér til Græn-
metisverzlunar landbúnaðarins og
fékk þar eftirfarandi upplýsingar:
Það er rétt, að Grænmetissalan
hefur allt frá stofnun haft hug á
að byggja dreifingarmiðstöð, og
pakka kartöflurnar þar fyrir verzl-
anir. Fór það þess að leit að fá að
byggja slíka miðstöð á landi sínu
icn við jarðhús, en bæjarstjórn
dró þetta á langinn þar til í fyrra-
liaust, að hún gaf afdráttarlausa
r.eitun fyrir því. Hins vegar skyldi
Grænmetissalan fá að byggja slíkt
hús, en þar sem bænum sýndist á
•svæði sem skipulagt skal á næstu
þremur árum. Sem sagt, það getur
dregist í þrju ár að byggingarfram-
kvæmdir geti hafizt.
Það er rétt, að Grænmetissalan
hefur nú tekið á eigu bráðabirgða-
húsnæði, go á eina pökkunarvél.
Bikarkeppnin heldur áfram
fara þá fram tveir leikir. Fyrri
leikurinn er milli Fram *og
Vals, og ætti þaS að geta orðið
skemmtileaur og tvísýnn leik-
ur, einkum þar sem Valur
hefur á að skipa öllum beztu
leikmönnum sínum. og ætti að
geta gefið Fram harða keppni.
Þessi leikur hefst kl tvö.
Strax að honum loknum
leika hinir nýbökuðu fslands
meistarar frá Akranesi við
Keflvíkinga. Þótt Kefl/tvíkur
liðið hafi fallið niður í 2. deild
eftir íslandsmótið er ekki úti
lokað að lekurinn geti orðið
skemmtilegur. Keflvíkingar
Er. eins og áður er komið fram,
mun hún ekki fullnægja nema litl-
um hluta eftirspurnar.
Forráðamönnum kaupmannasam
takanna mun nú vera orðið Ijóst,
að ekki er við Grænmetissöluna að
sakast um þetta mál, heldur er
þefta mál sem Grænmetissalan og
kaupmannasamtökin verða að leysa
í sameiningu.
Yeturliði sýnir
á Selfossi
Veturliði Gunnarsson list-
málari opnaði í gær málverka
sýningu í samkomusal Kaup-
félags Árnesinga á Selfossi.
Sýningin stendur aðeins tvo
daga og lýkur henni því í
kvöld kl. 11. — Veturliði sýn
ir þarna um 80 olíumálverk
og vatnslitamyndir. Flestar
myndirnar munu vera til
sölu.
eiga nokkra unga, efnilega
leikmenn, sem í dag fá tæki-
færi til að leika í fyrsta skipti
með liðinu í þýðingarmiklum
leik, auk þess, sem hinir
reyndari leikmenn liðsins
verða að sjálfsögðu með. —
Akurnesingar munu stilla upp
sama liði og sigraði KR á dög
unum.
Þar sem hér er um bikar-
keppni að ræða, og þar með
útsláttarekppni, þarf að fá
úrslit í leikina. Ljúki þeim
með jafntefli eftir venjuleg
an leiktíma, tvisvar sinnum
fjörutíu og fimm minútur,
verður framlengt, þar til ann
as hvort liðið fer með sigur
af hólmi.
íslandsmeistararnir
ieika við Keflavík
Tveir bikarleikir á Melavelli í dag.
Jón Kr. Gunnars
son látinn laus
Tveir bílar þrotabúsins seldir á uppbo'ði
í fyrradag
í fyrradag fór fram í Hafn-
arfirði uppboð á tveimur bíl-
um úr þrotabúi Jóns Kr.
Gunnarssonar útgerðarmanns.
Uppboðið fór fram fyrir utan
skrifstofur bæjarfógeta að við-
stöddu margmenni.
Jón Finnsson, fulltrúi
gegndi hlutverkí uppboðs-
haldara. Seldur var Ford-vöru
bíll ’54 og átti Landsbank-
inn hæsta boðið, kr. 67 þús.
Einnig var seldur Chevrolet-
fólksbíll ’58 o.g var hann sleg
inn Sigurði Haraldssyni, ung
um Hafnfirðingi á 106 þús.
kr. Bíll þessi er notaður Ieiðu
bíll, sem hingað var fluttur
frá New York, en nokkuð hef
ur borig á innflutningi slíkra
bíla að undanförnu.
Laus úr gæzluvarðhaldi
Jón Kr. Gunnarsson var lát
inn laus í fyTrakvöld en svo
sem kunnugt er hefur hann
setið í gæzluvarðhaldi 1
Reykjavík að undanfömu.
Talið var að rannsókn máls-
ins væri komi ná það stig
að gæzlu væri ekki lengur
þörf.
f viðtali við blaðið í gær
sagði Gunnar Sæmundsson,
fulltrúi bæjarfógeta í Hafnar
firði, að fátt nýtt væri um
mál Jóns að segja. Rannsókn
er umfangsmikil og gera þarf
nákvæma endurskoðun á bók
haldi o.fl. —h.
Dinus saga
drambláta
Við Háskóla íslands starf-
ar nefnd, sem annast um út-
gáfu fslenzkra handrita. Nýtt
rit er að koma út á vegum
nefndarinnar um þessar
mundir, og er það upphaf að
útgáfu á óprentuðum ridd-
arasögum. Fyrsta sagan í
flokknum er Dínus saga
drambláta, en Jónas Krist-
jánsson cand. mag. gefur út.
Nefndarmenn skýrðu frétta
mönnum frá þessari útgáfu
í gær, og hafði Einar Ólafur
Sveinsson prófessor orð fyrir
þeim, en auk hans skipa
nefndina prófessorarnir^ Al-
exander Jóhannesson, Ólaf-
ur Lárusson og Þorkell Jó-
hannesson. Nefndin hefur
starfað undanfarin fimm ár
og er veitt til hennar hundr-
að þúsund krónum árlega á
Bndgekeppnin
Einmenningskeppni Tafl og
bridgeklúbbsins er nú lokið,
og urðu úrslit sem hér segir:
1. Tryggvi Þorfinnsson 1480
2. Guðlaugur Níelsen 1478
3. Böðvar Guðmundss. 1441
4. Kristján Guðmunds 1425
5. Reimar Sigurðsson 1422
6. Gunnar Vagnsson 1414
7. Benóný Magnússon 1413
8. Björn Benediktsson 1410
9. Björn Kristjánsson 1380
10. Ingi Jónsson 1371
11. Vilhj. Aðalsteinsson 1366
12. Gísli Hafliðason 1357
13. Aðalst. Snæbjörnss. 1356
14. Bjarnl. Bjarnleifsson 1350
15. Ingi Eyvinds 1342
16. Guðm. Danlelsson 1339
Tvímenningskeppni félags
ins hefst á morgun, mánu-
daginn 3. okt., í Sjómanna-
skólanum.
fjárlögum. Útgáfustarf henn
ar er tvíþætt, annars vegar
gefnar út vísindalegar texta
útgáfur og hins vegar ljós-
prentuð handrit. Hefur nefnd
in áður gefið út ljósprentun
á tveimur handritum að
íslendingabók og útgáfu Jak
obs Benediktssonar á Skarðs
bók.
Merkar bókmenntir.
Prófessor Einar sagði, að
til væri mikið af óprentuð-
um og óþekktum riddarasög-
um, en nauðsyn bæri til að
þær væru gefnar út og gerð-
ar aðgengilegar vísindamönn
um, og því hefði verið ráðist
í þessa útgáfu. Þesar bók-
menntir eru að ýmsu merkar,
einkum fyrir skyldleika sinn
við evrópskar miðaldabók-
menntir og ærið viðfangs-
efni fræðimönnum á því
sviði. Verður þessari útgáfu
riddarasagna haldið áfram á
næstu árum. — Þá hefur
nefndin í ráði að hefja út-
gáfu rímna síðan fyrir siða-
skipti, en sama máli gegnir
um þær og sögurnar, að þær
eru allmiklar bókmenntir, ó-
kunnar og ókannaðar. Finn-
ur Jónsson gaf út á sinni tíð
allmikið af fornum rímum,
og er nú ætlunin að halda
því starfi áfram. Þá hefur
nefndin á prjónunum út-
gáfu á sýnishornum hand-
rita. allmikið verk.
í þessari útgáfu af Dfnus
sögu eru prentaðar tvær af
þremur gerðum sögunnar
með stafsetningu handrita,
en bókin hefst á ítarlegum
inngangi eftir Jónas Krist-
jánsson. Kvað Einar Ólafur
Sveinsson útgáfuna svo
trausta og nákvæma sem
föng væru á og hefði útgef-
andi unnið mikið og gott
starf með henni. — ó.