Tíminn - 07.10.1960, Síða 2
2
j1 í.tlNN, föstu.dagiim 7. oktébor jL960.J
Þeir eru fullllíróar Frama
Ingjaldur Gísli Sæmundur Grímur Óskar Hafliði Jónas
ísaksson Brynjólfsson Lárusson Friðbjörnsson Sigvaldason Gíslason Sigurðsson
Kosið í Iðju
um helgina
Listi vinstri manna er A-listinn
Vinstrimenn sigruðu
glæsilega í „Frama”
íhaldið ærist
Fulltrúakosningu 1 bifreiða-
stjórafélaginu Frama lauk í fyrra-
kvöld. Úrslit urðu þau að B-listi
listi vinsíri manna, andstæðinga
núverandi ríkisstjórnar, hlaut 232
atkvæði og alla menn kjörna.
A-listi, listi meiri hluta stjórnar og
trúnaðarmannaráðs hlauf 227 at-
kvæði og engan kjörinn.
Við fulltrúakosninguna 1958
hlaut A-listinn 293 atkvæði en
B-listi 152.
Morgunbiaðið og Alþýðublaðið
skýra frá úrslitum kosninganna í
gær. Kalla bæði blöðin B-listann
„lista kommúnista", og segja að
kommúnistar hafi hlotið alla full-
trúana. Sýnir þetta bezt, að íhaldið
og kratar eru nú að ærast út af
fylgistapinu, því að þeir vita mæta-
vel, að af 14 aðal- og varamönnum
sem á lista vinstri manna voru, eru
9 Framsóknarmenn og þar af 4 af
sjö aðalfulltrúunum.
Einu rök íhaldsblaðanna við
fylgistapinu eru hin gömlu rök
razista: Þeír, sem eru á móti okk-
ur eru komúnistar — kommúnist-
ar! Fasistamarkið verður nú æ
greinilegra á málgögnum stjórnar-
f'.okkanna. Gagnrýni í formi álykt-
ana á núverandi stjórnarstefnu
segja þessi blöð að sé sett fram af
„samsafni fífla“ og ef andstæð-
ingar stjórnarstefnunnar, hvar í
flokki sem þeir eru. vinna saman í
kosningum, þá eru þeir allir með
tölu kallaðir: Kommúnistar! Hverj-
um er verið að þjóna með svona
blaðamennsku?
Guðmundur frá Mið
dal sýnir á Akureyri
í dag opnar Guðmuindur
Einarsson frá Miðdal mál-
verkasýningu í Landsbanka-
salnum á Akureyri. Sýningin
verður opnuð kl. 2, og stend
ur hún aðeins í fjóra daga.
Guðmundur sýnir 50 verk,
bæði olíumálverk og vatns-
litamyndir. — Guðmundur
frá Miðdal hélt síðast sýn-
ingu á Akureyri fyrir þrem-
ur árum og hlaut þá mjög
góða aðsókn o-g undirtektir.
E.D.
wm
UTAU UR UE/MI
Krústjoff skaut yfir
markií
Macmillan forsætisráðherra
Breta kom heim frá allsherjarþingi
S. Þ. í gærdag. Hann ræddi við
fréttamenn á flugvellinum og sagði
þar m. a. að þetta allsher’jarþing
hefði verið viðburðaríkara og
meira taugaæsandi en nokkuð ann
að í sögu samtakanna. Hann sa-gð
ist vona að þrátt fyrir allt myndi
þetta þin-g fjalla um afvopnunar-
málin eftir raunhæfum leiðum.
Macmillan kvað Krustjoff ekki
hafa náð settu marki á þinginu.
Hann hefði skotið yfir markið.
Honum hefði ekki tekizt að
splundra S. Þ. og Kongómálið væri
enn í höndum samtakanna, þrátt
fyrir árásir Krustjoffs á aðgerðir
S. Þ. suður þar. Macmillan sagði,
að þegar Krustjoff hefði ver'ið
farinn að~tala daglega, hefðu full
trúarnir á þinginu eiginlega verið
farnir að fá leið á honum.
Macmillan sagðist ekki vita hver
yrði árángur af viðræðum sínum
við Krustjoff en hann vildi hins
vegar undirstrika það, að tími
væri til kominn að æðstu menn
í kynþáttamálunum, þrátt fyrir
úrslit þessara kosninga.
Menderez fyrir rétt
þann 14.
Gursel forseti Tyrklands til-
kynnti í gær, að hinn 14. þ. m.
myndu hefjast í Tyrklandi réttar-
höld í máli 500 stuðningsmanna
stjórnar Menderez, sem steypt var
vr stóli í vor. Meðal þeirra sem
koma fyrir rétt eru Bayar fyrr-
verandi forseti og Menderez fyrrv.
forsætisráðherra auk nokkurra ráð-
herra í s'tjórn hans.
Allir eru þessir menn sakaðir
um margs konar stjómmálaleg af-
L-rot auk hermdarverka og ofsókna
á hendur andstæðingum sínum.
Þessir menn hafa setið í fangelsi
frá því er byltingin var gerð.
Franskir stúdentar
hef jast handa
Landssamband franskra stúdenta
hefur tilkynnt að það muni hefja
utifundi og aði'a baráttu til frið-
vnar Alsír. Skora samtökin á
verkalýðsfélögin og allt ungt fólk
kunnugt er1.
hitfust og ræddu ýmis mál, sem. *. , ,,, , .... . , ,
fyrirhugað hefði verið að riða á | styðja studentasamtokin i þess-
toppfundinum í París s L vor en ‘ MikU ólga virðist nú vera j
sa fundur for ut -um þufur sem Frakklandi vegna ást.andsins í
■ Alsír, listamenn hafa mótmælt her-
þjónustu franskra borgara þar og
hið opinbera beitt þessa menn
harðvítugum gagnráðsföfunum m.
a. svipt þá styrkjum. Þá haf-a og
stuðningsmenn „fransks Alsír“ lát-
íð að sér kveða og hótað öílu illu,
ef Alsír verði slitið úr sambandi
við Frakkland.
Lýíveldi! SutSur-Afríku
Nú er að m-estu lokið talningu
at-kvæða í Suður-Afríku, en þar
var kosið u-m, hvort landið skyldi
gerast lýðveldi eða ekki. Enda
þótt atkvæðatölur liggi ekki end-
anlega fyrir er fullljóst, að lýðveld
issinnar mun-u hljóta um 50 þús.
atkvæða meirihluta. Það eru eink-
um Búar í sveitum landsins, sem
styðja lýðveldisstofnunina, en
borgarbúar, s-em eru mestmegnis
Bretar, eru andvígir henni.
Blökkumenn, sem eru um 12
milljónir talsins og 80 af hundraði
íbúa landsins, hafa ekki kosninga-
rétt og þeir eygja engar úr'bætur
V erkamannaf lokkshingið
sambykkir afsal vetnis-
vopna
Flokksþing brezka Verkamanna-
fiokksins, sem haldið er þessa
dagana í bænum Scarborough,
samþykkti í gærdag með naumum
jneirihluta tillögu þess efnis, að
Bretar afsali sér kjarnorku- og
vetnisvopnum einhliða. Með þess-
ari samþykkt hefur foringi flokks-
ins á þingi Hugh Gaitskell hlotið
mikið áfall, enda hefur hér verið
felld hin opinbera stefna Verka-
mann-aflokksins í landvarnamál-
um.
Það voru tvær tillögur, sem
samþykktar voru í þessu efni,
Önnur var borin fram af fulltrúum
vélsmiða á þinginu og kvað á um,
að Bretar afsali sér öllum vetnis-
vopnum. Hin tillagan var flutt af
íulltrúum flutningaverkamanna og
þar lagt til að Bretar höfnuðu
stefnu í landvarnamálum, sem
byggðist á vetnisvopnum.
Hin opinbera stefna miðstjórn-
a r Verkamannaflokksins hefur
verið sú, að halda áfram þátttöku
í NATO og styðja þau samtök og
afsala sér ekki vetnisvopnum með-
an Rússar gerðu það ekki. Gait-
skell varði þessa stefnu áður en
tillögurnar komu til atkvæða í
gær. Sagði hann Bretum nauðsyn-
legt að haf-a vetnisvopn svo lengi
sem Rússar og kvað tillögurnar
beinlínis miða að því, að Bretar
gengju úr samtökum vestrænna
þjóða. Hann kvað flutningsmenn
hræsnara eða þeir vildu treysta
c.ngöngu á Bandaríkin en tillög- i
urnar væru beinlínis ósk um að j
ganga úr NATO. i
Coussins formaður flutninga-
vtrkamanna mælti fyrir tillögun-
um. Hann kvaðst vera andvígur
vetnisvopnum hver svo sem hefði
þau með höndum. Bretar eiga að
ganga á undan með að afsala sér
þeím, sagði hann. Ef Rússar og
Eandarikjamenn vilja láta til skar-
ai skríða eigum við að segja við
þá: Þið um ,það. Við erum ekki
með.
í þessu sambandi er þess eins
r.ð geta, að flokksþingið samþykkti
i fyrradag að miðstjórn. flokksins
væri ekki bundin af samþykktum
flokksþingsins. Gaitskell heldur
því velli þótt h-ann yrði undir.
AllsherjaratkvæSagreiðsla
um kjör fulltrúa Í8ju, félags
verksmiðjufólks, á 27. þing
Alþýðusambands íslands fer
fram á laugardag og sunnu-
dag. Tveir listar hafa komið
fram. A-listi, listi vinstri
manna, andstæðinga núver-
andi ríkisstjórnar og B-listi
borinn fram af stjórn og trún-
aðarmannaráði félagsins.
Kosningin hefst kl. 10 á laugar-
clag og stendur til kl. 7 e. h. Á
sunnudag hefst kosning einnig kl.
10 f. h. og lýkur kosningu kl. 10
um kvöldið.
A-listinn, listi vinstri manna,
andstæðinga núverandi ríkisstjórn-
ar er skipaður þessum mönnum:
Aðalfulltrúar:
Björn Bjamason, Sápugerðin
Frigg, Einar Eysteinsson, Blindra-
iðn, Arndís Kristjánsdóttir, Gefj-
un, Guðbrandur Benediktsson,
Víðir, Guðbjörg Jónsdóttir, Efna-
laugin Glæsir, Guðlaug Vilhjálms-
dóttir, Vinnufatagerðin, Halldóra
Danívalsdóttir, Eygló, Johann Ein-
arsson, Ölgerðin, Karl Magnússon,
Málningarverksm. Harpa, Marta
Þorleifsdóttir, Föt h.f., Rannveig
Guðmundsdóttir, Últíma, Sesselja
Halldórsdóttir, Nói, Sigiíður Otte-
sen, Dúkur, Sveinn Vigfússon, Jón
Loftsson, Vilborg Tómasdóttir,
Eelgjagerðin, Þórður Guðmunds-
son, Skógerðin, Sigurbjörn Knud-
sen, Hreinn h.f.
Víðir, Sigfús Brynjólfsson, Skó-
gerðin, Sigurður Valdimarsson,
Reyplast, Stefán Steinþórsson, Öl-
gerðin, Þuríður Vilhelmsdóttir,
Skírnir, Fanney Vílhjálmsdóttir,
Oddný Þorvaldsdóttir, Lady.
Varafulltrúar:
Bogi Sigurðsson, Stálumbúðir,
Guðmundur Erlendsson, Fálkinn,
Guðrún Einarsdóttir, Eygló, Jó-
hann V. Guðlaugsson, Svanur, Jó-
hanna Auður Arnadóttir, Eygló,
Ingibjörg Tryggvadóttir, Últíma,
Katrín Þórðardóttir, Gefjun, Jakob
Bragi Björnsson, Steinstólpar, Karl
Eiðsson, Ölgerðin, Kristján Matthí-
lasson, Freyja, Leifur Grímsson,
Skoðanamunur á
framtíð Norður-
landaráðs
HÖPN, 5. okt. — Einkaskeyti
til Tímans). — Aftonbladet
í Stokkhólmi gerir í dag að
umræðuefni fund stjórnar
Norðurlandaráðs, sem hefst
í Harpsund á morgun. Blaðið
segir, að ýmsir af ráðherrum
sænsku stjórnarininar vilji
takm-aaika starfssvið ráðsins
til muna þar sem árangur-
inn af starfi þess sé vafasam
ur. Hins vegar séu svo aðrir,
sem eru á andstæðri skoðun
og vilja auka áhrifavald ráðs
ins og gera það að virku afli
á sviði norrænnar samvinnu.
BLaðið telur sennilegt, að
Tage Erlander forsætisráðh.
Svía, muni bera fram miðlun
artillögu í þessu efni og muni
leggja til, að Norðurlandaráð
verði framvegis kallað sam-
an, þegar fyrir því liggi nægi
lega mörg mál til úrlausnar.
Erlander muni óska eftir frek
ari tilveru ráðsins en vill tak
marka nokkuð starfssvið
þess. Aftonbladet segir enn-
fremur, að ttin misheppnaða
tilraun til þcss að stofna nor
rænt tollabandalag hafi gert
margan svartsýnan á hlut-
verk Norðurlandaráðs.
— Aðils.
Áðalfundur FUF í Rvík
Aðalfundur Félags ungra Framsóknarmanna í Reykja-
vík verður haldinn í Framsóknarhúsinu miðvikudaginn
12. okt. 1960. Nánar auglýsf síðar.
STJÓRNSN
Almennur stjórnmálafundur aS Brón
í Bæjarsveit og aSalfundur FUF
Félag ungra Framsóknarmanna í Borgarfjarðarsýslu
heldur aðalfund sinn n.k. sunnudag að Brún í Bæjar-
sveit og hefst hann kl. 3 e.h.
Að loknum aðalfundi kl. 4 hefst svo almennur stjórn-
málafundur.
Meðal ræðumanna eru Ásgeir Bjarnason, alþm., sem
ræðir um efnahagsmál landbúnaðaríns, Haildór E Sig-
urðsson, albm., sem ræðir um þingmál, og Einar Ágústs-
son, sparisjóðsstjóri, sem ræðir um stjórnmálaviðhorfið
álmennt.