Tíminn - 07.10.1960, Side 3
TÍMINN, föstudaginn 7. október 1960.
3
Innbrotið í afgreiðslu Akraborgar:
T óbaksþ jóf naður-
inn upplýstur
Fjórir unglingar sitja í varðhaldi
16 menn riðnir við málið
Rannsóknarlögreglan hefur
nú upplýst innbrotið, sem
framið var í afgreiðslu Akra-
borgar 28. sept. s. I., en þar
var stolið 204 kartonum af
vindlingum auk nokkurs
magns af reyktóbaki og vindl-
um. Þrír unglingspiltar, allir
undir tvítugu, frömdu inn-
brotið í félagi og hafa þeir
setið í varðhaldi trá aðfara-
nótt s. I. sunnudags, ósamt
fjórða piltinum á svipuðum
aldri, sem mun hafa reynt að
selja tóbakið. Mál þetta er
mjög umfangsmikið og alls 16
manns við það riðnir.
100 manns vinna hjá
sláturhúsi R.S.
SauSárkróki í ,gær. — Haust-
slátrun hjá Kaupfélagi Skag
firðinga hófst 14. sept. s.l. og
áætlað er að slátrað verði 35
þúsundum fjár. Slátrun lýkur
um 18. okt., en í gær hafði
verið slátrað 27 þúsundum
fjár. Vænleiki dilka er í
meðallagi.
Um 100 manns vinna hjá
sláturhúsi kaupfélagsiiis og
er sláturhússtj óri Friðvin G.
Þorsteinsson. — í gær lestaði
skipið Zero 130 lestir af hrað
frystu dilkakjöti, sem skipið
flytur til Svíþjóðar. Þess má
geta að sláturhús K.S. er talið
eitt bezta frystihús hérlend-
is til þess að frysta kjöt til
útflutnings.
Eindæma veðurblíða hefur
verið hér að undanförnu,
logn og sólskin. Frostnætur
hafa verið fáar og mildar.
Þýfið er að mestu komið í leit-
írnar en þó vantar 35 karton á að
öilu sé skilað og er talið að ung-
lingarnir hafi selt þau eða losað
sig við á annan hátt.
Hélt a3 það væri smygl!
Piltarnir fluttu þýfið til og frá í
bænum, suður til Hafnarfjarðar,
rftur í bæinn og loks upp að Geit-
h.álsi. Notuðu þeir töskur kodda-
ver og annað slíkt til umbúða utan
rm farangurinn. Leigubílstjóri
Kosið í Fram á
Sauðárkróki
Á sunnudag og mánudag
var allsherjaratkvæðagreiðsla
í verkalýðsfélaginii Fram á
Sauðárkróki, um fulltrúakjör
á Alþýðusambandsþing. Tveir
listar komu fram, A-li’sti bor
inn fram af Sveini Sölvasyni
og fleirum, og B-listi, borinn
fram af meirihluta stjórnar
og trúnaðarmannaráðs. Úr-
slit urðu þau að A-listi hlaut
90 atkvæði en B-listi 81. —
Kjörnir voru Sveinn Sölvason
og Jón Friðbjömsson og til
vara þeir Skafti Magnússon
og Kári Steinsson.
Eins og kunnugt er hafa
kosningar í verkalýðsfélaginu
Fram á Sauðárkróki stundum
verið með sögulegum hætti.
Við stjórnarkjör í fyrrahaust
skiptust félagsmenn í tvær
svo hnífjafnar fylkingar að
kjósa varð þrisvar sinnum.
Úrslit tveggja fýrri kosninga
urðu þau, að hvor listi um
sig hlaut jafnmörg atkvæði.
í hinni þriðju skar eitt at-
kvæði úr. Úrslitin í kosning
unum nú sýna glögglega að
straumhvörf hafa orðið.
Efna til mót-
mælagöngu í dag
i.okkur er viðriðinn málið og mun
hafa ekið piltunum fleiri en eina
ferð með þýfið. Ber bílstjórinn því
\:ð að hann hafi ekki vitað að hér
væri um stolið tóbak að ræða,
heldur smyglað, enda hafi piltarnir
sagt sér að svo væri!
Eins og áður segir sitja piltarnir
fjórir í varðhaldi. Málið er mjög
umfangsmikið, en rannsókn er í
þann veg að Ijúka. — h.
r-
Há sala Isborgar
ísafirði, 6._okt. — ísafjarðar
togarinn fsborg, seldi afla
sinn í Bremerhaven í Þýzka-
landi í fyrradag. Afli skips-
ins var alls 70 lestir, en af
því reyndust 17 lejttir ónýtar.
Það sem eftir var, eða' 53
lestir, seldust þó fyrir 59 þús.
mörk, og er það geipihá sala,
einkum þegar þess er gætt að
mikill hluti aflans var isa.
Þessl mynd er frá flóðunum. Fljóflð Creuse hefur flætt yflr bakka sína
og flætt yflr bælnn Aubusson. Búlzt er vlð að úrkoma haldi áfram og
hætta á enn frekari skemmdum af völdum flóðanna.
Stórflóí á SuíJur-Frakklandi:
Fólkið flýr unnvörpum
Nokkrir hafa drukknað
-irxítomBD!
- 'q ooivl .iionuu.
Rúmlega þrettán þúsundir
manna eru nú á flótta í Suður-
Frakklandi undan geysilegum
flóðum — þeim mestu, sem
orðið hafa í Frakklandi síðan
árið 1921, Þessi flóð hafa þeg-
ar valdið gífurlegom skaða og
nokkrir menn hafa látið lífið
en segja má, að ekki sé enn
vitað með fullri vissu, hversu
miklu tjóni flóðin hafa valdið.
Að undanförnu hefur verið
gífurleg úrkoma í Suður-
Frakklandi og það hefur orð
ið til þess að flestar ár hafa
flætt yfir bakka sína. Heil
þorp hafa bókstaflega farið
í kaf vegna vatnsflaumsins
og fólkið hefur leitað hælis
á húsþökum og verið bjargað
þaðan í þyrlum, sem sendar
hafa verið á vettvang.
Mannskaði og eyðilegging
Eins og fyrr getur er ekki
enn vitag um hversu tjónið
,af völdum flóðanna er orðið
mikið. Hús hafa eyðilagst,
brýr sópazt burtu og vegir og
járnbrautir eru á kafi í vatni.
Þá hafa slitnað rafmagns-
og símalínur og stíflugarðar
hafa brostið.
Frá héraðinu Cahros ber-
ast þær fregnir að margir
hafi drukknað í flóðunum.
Nokkur uppstytta var á flóða
svæðinu í fyrradag en veður
fræðingar spá því að ekki
muni' líða á löngu unz taki
að rigna að nýju og fólkið
flýr unnvörpum.
Rauða Moskva og Kreml
Fyrir nokkru eru komin hér á
markað rússnesk ilmvötn — en
Rússar leggja nú orðið ekki síður
áheizlu á framleiðslu snyrtivara en
eidflauga og spútníka. En þessi
ijmvötn hafa fyrst og fremst vakið
athygli manna fyrir hin skemmti-
legu nöfn, sem þau bera. Þar má
finna tegundirnar Rauða Moskva,
Kreml, Steinblómið, Fyrsti maí,
Leningrad svo nokkur séu nefnd.
Blaðinu barst eftirfarandi
fréttatilkynning í gær:
Á fundi miðstjórnar Sam-
taka hernámsandstæðinga 5.
þ.m. var ákveðið, að efna til
hópgöngu um Reykjavík til
að mótmæla samningum við
Breta um landhelgi íslands.
— Safnast verður saman á
Arnarhóli kl. 6 e.h. í dag, og
þaðan verður gengið um eft-
irtaldar götur:
Upp Hverfisgötu, Klappar-
stíg, niður Skólavörðustíg,
Bankastræti, Kalkofnsveg,
yfir Skúlagötu, beygt til
vinstri og gengið meðfram
höfninni, upp Gróf, Vestur-
götu, Garðastræti, niöur Tún
götu, og staðmæmzt við Ráð
herrabústaðinn.
Forsætisráðherra, Ólafi
Thors, og formanni íslenzku
samninganefndarinnar, Hans
G. Andeirsen, ambassador,
hefur verið tilkynnt bréflega
um mótmælagönguna, og þess
óskað, ag þeir veiti viðtöku
mótmælaályktun samtak-
anna.
Að göngu lokinni mun síð-
an nokkur hópur manna
standa mótmælavörð fyrir
framan ráðherrabústaðinn við
Tjarnargötu, þar til Alþingi
íslendinga kemur saman,
verði samningaviðræðum
ekki slitið eða þeim lokið
fyrr.
Vélskólinn settur
Vélskólinn í Reykjavík var sett-
ur s. 1. þriðjudag. Skúlastjóri,
Gunnar Bjarnason, bauð kennara
og nemendur velkomna til starfs
á þessurn vetr'i. í vetur starfar skól
inn I 6 bekkjardeildum. í rafvirkja
deild verða 14 nemendur í fyrsta
bekk og er það með mesta móti.
í vélstjóradeild verða fimm bekk
ir. — SI. þrjá vetur hafa nýsvein-
ar í vélstjóradeild ver'ið talsvert
yfir 40, en meðaltal nemenda sl.
14 ár er rúmlega 32 í fyrsta bekk.
Aðsóknin í vetur losar því aðeins
að vera helmingur af meðalaðsókn
sl. 14 ára. — Nokkrar br'eytingar
verða á kennaraliði skólans. Nokkr
ir stundakennarar og einn fasta-
kennari (Ingvar Ingvarsson) láta
nú af störfum en þrír nýir kenn-
arar bætast í hópinn. Bríet Héðins
dóttir mun kenna þýzku og Runólf
ur Þórðarson efnafræði. Þá kemur
að skólanum nýr fastakennari, Jón
Ármann Jónsson. — Verklegar æf-
ingar í vélasal skólans verða aukn
ar að miklum mun í vetur.
Pe'ningarnir eru ekki
komnir fram enn
Eins og skýrt var frá hér í bæj-
arfrétt á dögunum tapaði gamall
maður tvö þúsund krónum á Lækj
artor'gi. Var þetta ellistyrkur
gamla mannsins, og var hann á
leið með peningana í banka. Veg-
farandi sá mann nokkurn taka pen
ingana upp af götunni og halda á
brott. Maður þessi hefur ekki enn
gefið sig fram með peningana en
rannsóknarlögreglan telur ekki
enn ástæðu til að ætla að þeim
verði ekki skilað. Fari hins vegar'
svo, að maður sá, sem um ræðir,
láti ekki frá sér \heyra innan
skamms, þá má hann allt að eins
búast við heimsókn lögreglunnar,
enda hefur sjónarvottur gefið
greinargóða lýsingu á honum og
þekkir hann í sjón.
Datt í stiga
Laust fyrir kl, hálffimm í fyrri-
nótt varð það sl'ys í Hafnarhvoli, að
maður, Guðbjarni Ólafsson, datt í
stiga og skarst á höfði. SjúkrabíU
flutti hann á slysavarðstofuna.
Fannst örendur
í fyrradag var lögreglan kvðdd
að húsi við Hringbraut hér í bæ,
en þar hafði verið komið að látnum
manni í íbúð sinni. Maðurinn bjó
einn í íbúðinni. Ekki er blaðinu
kunnugt um dánarorsök.