Tíminn - 07.10.1960, Page 10
10
T f MIN N, fimmtudaginn 6. október 1960;
GULLBRÚÐKAUP
Gullbrúðkaup eiga í dag hjónin
Þórarinn Einarsson og Guðrún Þor-
valdsdóttir, Höfða á Vatnsleysu-
strönd.
Þórarinn er fæddur að Stóra-Nýja
bæ í Krisuvik, en Guðrún að Lamba-
stöðum í Álftaneshreppi í Mýrar-
sýslu. Bæði eru þau • af tápmiklu
bændafólki komin, enda hefur það
ekíki leynt sér á liðnum árum, að
þau tóku í arf þá eiginleika og mann
kosti í rfkum maeli, sem verið hafa
höfuðprýði og styrkur íslenzkrar
bændastéttar fyrr og síðar í harðri
baráttu og sókn til manndóms og
sæmdar.
Þau hafa aldrei verið mörg stór
býlin á Vatnsleysuströnd en löng-
um voru smábýlin þeim mun fleiri.
Örlítill túnbleðill fylgdi hverju koti,
sem ekki var algjör þurrabúð, og
það var ekkert áhlaupavetik að vinna
að túnrækt og auka grasnyt í úfnu
hrauni. En með þrotlausri vinnu og
óbilandi þrautsegju voru þó við þessi
erfiðu skil'yrði þau afrek unnin, sem
oftar mætti vitna til en gjört er,
þá er brýna skal tii duks og dáða.
Fyrir rúmlega 50 árum reistu þau
Þórarinn og Guðrún bú í Bergs-
koti, sem var eitt af þessum smá-
býlum. Þar mun þá ekki hafa verið
glæsilegt umhorfs, eða lífvænlegt
og eitt kýrfóður gaf túnið af sér.
En hvorugu þeinra hjóna uxu erfið
leikamir í augum og þeim tókst
að bæta þessa litlu jörð svo að
undrun sætir. Síðar eignuðust þau
einnig jörðina Höfða, sem var öllu
minni en Bergskot, sameinuðu báð
ar þessar litlu jarðir, en byggðu upp
í Höfða, þar sem þau síðan hafa
búið. Nú er hægt að hafa 12—14
nautgripi í Höfða og alimargt sauðfé
að auki þar sem áður var knappur
heyfengur fyrir 2 kýr.
En baráttan í Höfða hefir ekki
aðeins verið við úfið hraun, heldur
engu síður við úfinn sæ og fast hef
ir Þórarinn í Höfða sótt sjóinn allt
frá fermingaraldri. Fimm börn hafa
þau hjón átt og lifa þau öll. En
þau eru Þorvaldur héraðsdómslög-
maður i Reykjavík, Margrét hús-
freyja í Minna-Knarramesi, Anna,
verzlunarmær í Reykjavík, Unnur,
húsfreyja í Borgarnesi og Ásta hús-
freyja í Höfða. En auk bama sinna,
hafa þau Guðrún og Þórarinn alið
upp svo mörg fósturböm, að nokkru
eða öllu leyti, að of langt yrði hér
upp að telja. En þannig hefir það að
jafnaði verið með þau hjón bæði, að
þótt húsakosturinn í Bergskoti og í
Höfða væri lengst af þröngur, þá
var hjartarúmið ótakmarkað og hjá
þeim sannaðist það áþreyfanlega, að
þar sem það rúm er fyrir hendi,
verður alltaf eitthvert ráð til þess
að skjóta skjólshúsi yfir lítinn gest,
sem að garði ber. Og fátt lýsir betur
hjartagæzku þessara merku hjóna en
það ástríki, sem hin mörgu fóstur-
börn hafa hjá þeim notið í jafn
ríkum mæli og þeirra eigin börn.
Þolgæði og þrek, góðhugur og
fómarlund, trúarstyrkur og bjart-
sýni, hafa einkennt hálfrar aldar
harða lífsbaráttu þessara merku
mannkostahjóna og árvekni og sam-
heldni í hverju starfi hefur veitt
þeim sigur í hverri raun. Á síðast-
liðnu ári tók dóttir þeirra og tengda-
sonur við búforráðum hjá þeim, en
í Höfða dvelja þau áfram og sveit-
ungar þeirra og við vinir allir ósk-
um þess að sú dvöl þeirra megi
verða sem lengst, farsæl og björt,
þeim stað, þar sem þau hafa svo
mörg og glæst afrek unnið.
Guð blessi þennan heiðursdag
þeirra og.alla þekra daga.
Garðar Þorsteinsson.
Konur í Styrktarfélagi vangefinna
halda fund í Aðalstræti 12 kl. 20,30
í kvöld, föstudag 7. okt. Fundarefni:
Fréttir af félagsstarfsemi, frú Sig-
ríður Ingimarsdóttir. Frú Sigríður
Thorlacius sýnir skuggamyndir frá
Indlandi. Kósið í bazarnefnd o. fl.
Frá Guðspekifélaginu.
Fundur verður í stúkunni Mörk í
kvöld kl. 8,30 stundvíslega í húsi
félagsins, Ingólfsstræti 22. Grétar
Fells flytur erindi: Meðan l'íkami sef
ur. Frú Hanna Bjamadóttir syngur
einsöng við undirleik Skúla Halldórs
sonar. Kaffiveltingar á eftir. Utan-
félagsfólk velkomið.
MINNISBÓKIN
NyrTURLÆKNIR er á sama stað kl.
18—8. Siml 15030.
SLYSAVARÐSTOFAN á Heilsuvernd
arstöðinnl er opin allan sólarhrlng
inn.
Næturvörður vikuna 1.—7. október
verður í Vesturbæjarapóteki.
Næturlæknir í Hafnarfirði vikuna
1.—7. október er Eiríkur Björnsson,
sími 50235,
Listasafn Einars Jónssonar,
Hnitbjörg, er opið á miðvikudög-
um og sunnudögum frá kl. 13,30
-15,30.
Þjóðminjasafi. íslands
er opiö á þriðjudögum, fimmtudög
um og laugardögum frá kl. 13—15,
á sunnudögum kl. 13—16.
ÁRNAÐ HEILLA
Sjötíu og fimm ára varð í fyrradag
frú Guðrún Stefánsdóttir, HávaRa-
götu 24, kona Jónasar Jónssonar,
fyrrverandi ráðherra.
— Hurðu, heldurðu að það væri DENINI
ekki spennó að sjá þjóðsögurnar í /C A I A I I C2 I
litmynd, á breiðtjaldi? LJ Æ |V| L_/\ LJ ÍZI I
Helsinki 4. 10 til Ventspils og Riga.
Selfoss fer væntanlega á morgun
7. 10 frá Hamborg til Reykjavíkur.
Tröllafss fór frá Akureyri í gær-
fcvöldi 5. 10 til Seyðisfjarðar og
Norðfjarðar og þaðan til Avonmouth,
Rotterdam, Bremen og Hamborgar.
Tungufoss kom til Reykjavíkur í
morgun 6. 10. frá Hull.
Skipadeild SÍS:
Hvassafell kemur í dag til Gdynia.
Amarfell er á Akranesi. Jökul'fell
lestar og losar á Eyjafjarðarhöfnum.
Dísarfell er .í Ólafsvík. Litlafell er í
olíuflutningum á Norðurlandsliöfn-
um. Helgafell' er í Onega. Hamrafell
fór 2. þ. m. frá Hamborg áleiðis til
Batumi.
Eimskipafélag Islands h. f.
Dettifoss fór frá Stykkishólmi um
bádegi í dag 6. 10. til Patreksfjarðar,
Bíldudals, Fi'ateyrar, Súgandafjarðar,
ísafjarðar, Hólmavíkur, Norður- og
4usturlandshafna. Fjallfoss kom til
ántwerpen 6. 10. fer þaðan til Hull
og Reykjavíkur. Goðafoss fór frá
Fáskrúðsfirði í morgun 6. 10 til
Aberdeen, Bremen og Tönsberg.
Gullfoss fer frá Leith á morgun 7.
10. til Reykjavíkur. Lagarfoss fer
frá Reykjavík kl 20.00 í kvöld 6. 10.
til New York. Reykjafoss fór frá
Jose L.
Sohnos
80
D
R
r
K
I
Lee
Falk
80
Slúlkan slapp.
Fínt!
Það var ekki okkur að kenna.
Hún....
— Gott!
•#$1 Srf '
— Við lief'ðum....
— Þegiðu, asninn þinn. Hann sagði
„gott“.
AIN'T VDU HEARDí
— Jæja? Það er engan bíl að fá leigð-
an innan 100 mílna.
— Þú misskilur okkur. Við viJjum fá
fá ÞINN bíl.
— Og við viljurn fá þennan skipti-
myntakassa. Getur komið sér vel.
— Bíddu!
— Hefurðu ekki heyrt, að viðskipta-
vinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér?
— Ó!