Tíminn - 07.10.1960, Side 11
T.ÍMINN, föstudaginn 7. október 1960,
11
sC
rCZ
rf~~
Hansahillur fást settar upp að eigin ósk.
I Híbýladeild Markaðsins
geta menn fengið f lestallt til heimilis-
ins - og húsnæðið meS
Ekki alls fyrir löngu mátti
enn sjá glæsilegum dömu-
klæðna'ði stillt út í sýningar
glugga verzlunar einnar við
Hafnarstræti. Nú gefur þar
að líta ýmsa húsmuni. Einn
.gluggi er borðstofa, annar
•setustofa, enn einn svefn-
herbergi. Það er híbýladeild
Markaðsins, sem þama hef-
ur verið til húsa undanfarn-
ar vikur.
í fljótu bragði mætti líta
svo á, að þama væri um
húsgagnaverzlun að ræða,
eins og finna má víðar. En
því fer víðs fjarri. Það verð
ur mönnum ljóst um leið og
þeir ganga inn í verzlunina.
Þar stendur ýmislegt á vegg
gegnt dyrunum, sem bendir
til þess, hversu ólíkt starfs
svið Híbýladeildarinnar er
öðrum húsgagnaverzlunum.
Fasteignasala. Eignaumsjón.
Leigumiðlun. Byggingar-
frmkvæamdir. Híbýlaskreyt-
ingar. Við skrifborð þar fyrir
neðan situr stúlka, sem er að
gefa upplýsingar um íbúð.
Sé gengið innar í búðina,
kemur ýmislegt fleira » ljós.
Þarna virðist ve'ra verzlað
með margs konar listverk,
málverk, veggteppi o. fl. Á
svefnherbergisrúminu liggur
teppi. Bak við borðstofusett
ið stendur skermur.
— Við seljum því sem
næst allt, sem hér er inni,
segir Axel Sigurösson, verzl
unarstjóri. — Líka gólfteppi
og lampa. Gólfteppin eru frá
Vefaranum og Axminster,
það hefur verið talsverð sala
í þeim. Lamparnir eru er-
lendir, nema þessi þarna,
hann bendir á keilulaga loft
lampa úr einhvers konar
berki, frá Agli Bachmann.
— Hvað um allt hitt. Fast
eignasöluna og það?
— Fasteignasalan gengur
vel. Leigumiðlunin er hálf
stir<5 enn. Það er alltaf nóg
af fólki, sem vill leigja, en
fáir, sem láta. Fólk, sem hef
vur húsnæði til leigu, ætti að
gera meira af því að hafa
samband við okkur. Hér get
ur það valið úr heilu hópun
um af leigjendum, hér geta
allir fundið rétta leigjand-
ann. Þá yrði þetta á báða
bóga.
Svo sjáum við um bygging
arframkvæmdir.
— Útvegið iðnaðarmenn?
— Já, hér kemur t. d. mað"
ur, sem segir: Eg er að
byggja, en ég hef ekki að-
stöðu til að útvega mér iðn
aðarmenn. Mig vantar
einhvern til að byggja ar-
inn, — o. s. frv. Þá sendum
yið þá menn, sem vantar,
fáum prósentur af kaupi
þeirra, en byggjandinn þarf
ekkert að borga fyrir milli-
(Framhald á 15. síðu).
— En húsgögnin, eru þau
öll innlend?
— Já. Frá Valbjörk, Hús-r
gagnavinnsutofa S. G. i
Hafnarfirði, og svo er Sindri
að bætast við. Þau húsgögn
verða í allt öðrum stíl en
þau, sem hér eru fyrir.
— Frá hverjum er teppið
þarna á rúminu?
— Frá Guðrúnu Jónasdótt
ur. hún vefur þau.
— Listaverkin? Gerir fólk
sér almennt grein fyrir þvi,
að hér eru til sölu listaverk?
— Kannski ekki nóg. Þó
hefur margt selzt, mest vegg
teppi frá Barböru Ámason.
Við höfum líka mottur frá
henni, og málverk, hér er
Jón Engilberts og Kristján
Davíðsson.
Meiningin er að vera allt-
af með eitthvað sérstakt,
eitthvað, sem ekki fæst hvar
sem er. Eins og til dæmis
þessa afríkönsku styttu úr
íbenholt-viði, sem einn
hinna innfæddu skar. Eitt-
hvað sérstakt.
Sýning Sveins
Það gerist nú skammt högga í milli hjá Sveini Björns-
syni. Á sýningu hans í Listamannaskálanum eru 77 mvnd
ir, flestar unnar í olíu, og mega það kallast mikil afköst
á ekki lengri tíma en liðinn er frá síðustu sýningu mál-
arans.
Svo sem á fyrri sýningum Sveins er teikningu og mynd
byggingu ábótavant, málarinn hefur látið undir höfuð
leggjast að aga þrótt sinn, litagleði og óhemju vinnuþrek,
og eru þá taldir ókostir sýningarinnar, en hitt ótalið sem
gleður augað: æskufjör Sveins, litagleði, kjarkur, og
síðast og ekki sízt heilbrigt lífsviðhorf, en þetta eru
þættir, sem með hverju ári verða fáséðari á sýningum
ungra manna.
Ég hef skoðað sýninguna fjórum sinnum og haft gam-
an af, það gerir ferskleiki sumra myndanna, og máttug
stemning annarra. Ég hef undrazt áræðið og skemmt
mér við að skoða hvernig Sveinn stundum leysir mynd-
fræðileg vandamál með instinktinu einu, og eins hvernig
það bregzt honum í sumum myndanna
Sveinn þarf nauðsynlega að fullnema sig í myndbygg-
ingu og teikningu, það má læra, og þegar hann hefur
gert það, munu eðliskostir hans. þetta sem ekki verður
lært í skólum: fjörugt litaskyn, áræði og ódrepandi vilja-
þrek, gera honum mögulegt að gera góða hluti. mjög
góða.
Á næstu sýningu Sveins vonast ég til að sjá fjör hans
beizlað og agað, og ef sú von rætist, er rík ástæða til að
hlakka til þeirrár sýningar.
Jón Engílberts.
Svefnherbergissett frá Húsgagnavinnustofu