Tíminn - 07.10.1960, Síða 16
Þetta er frú McCleary með eplakökuna til Krustjoffs. Því miður var kakan
orðin skemmd er hún barst forsætisráðherranum, enda héldu menn, að
kökupakkinn innihéldi allt annað.
Nauðsynlegar úrbætur
á umferðinni í Evrópu
Umferðasérfræðingar halda
um þessar mundir þing í borg-
inni Nizza í Frakklandi. Eru
þar saman komnir verkfræð-
ingar og lögreglumenn alls
um 600 talsins til þess að ræða
um umferðina í Evrópu. Flest
lönd Evrópu eiga fulltrúa á
þessu þingi og þeim hefur á
lejðinni til fundarstaðarins
gefizt tækifæri til að kynnast
nokkru af því, sem þingið
mun fjalla um.
Flestir hafa nefnilega kom
ig til Nissa í bifreiðum eftir
þjóðvegum og þvi af eigin
raun kynnzt í hverju ástandi
umferðamál álfunnar eru og
að nauðsynlegt er að gera
róttækar skipulagsbreyting-
ar, ef umferðamálin eiga ekki
að lenda í skelfilegu öng-
þveiti. Eins og nú er ástatt
láta að j afnaði þrír menn líf-
ið á klukkustund i bifreiða-
slysum í álfunni.
Hraði og tillitsleys'
Það er annað og meira en
auglýsingaskrum eitt, að
menn eru kvattir til þess að
líftryggja sig, er þeir hyggj-
ast faxa í ökuferðir um álf-
una. Sannleikurinn er sá, að
yfirleitt tíðkast alltof hraður
akstur á vegunum sem hvorki
ökumenn né farartæki að
öllum jafnaði standa undir.
Það er ekki aðeins hraður
akstur á hinnm breiðu og vel
gerðu vegum álfunnar eins
og t.d. í Þýzkalandi heldur
einnig á þröngum og krók-
óttum fjallvegum s.s. í Ölpun
um. Þar gerast og oft þeir
atburðir, sem í'á hraustustu
menn til þess að skjálfa. Yfir
leitt bera menn ekki við að
aka með minni hraða en 100
km. á klukkustund og framúr
akstur er oft mjög ógætileg
ur og tillitssemin engin.
Þingið í Nissa mun fjalla
um hið alvarlega ástand, sem
ríkir á vegunum í álfunni og
gera tillögur til úrbóta. M.a.
er talið sennilegt, að þingið
leggi til, aö stórar og þungar
bifreiðir s.s. langferðabílar
og flutningabifrelðir aki á
sérstökum brautum en einka
bifreiðir á öörum.
Meira kaupog
frí um helgar
Þórshöfn 29.9. Einkaskeyti
til Tímans. — Verkfall verka-
kvenna heldur áfram í Þórs-
höfn og hefur staðið í 10 daga.
Öll vinna j frystihúsum Þórs
hafnar er lömuð vegna verk
fallsins. Konurnar krefjast
hækkunar á kaupi — vilja fá
þrjár krónur á klukkustund
í staö 2.65 króna og auk þess
frí á sunnudögum. Atvinnu-
rekendur telja sig ekki geta
samið um þessar kjarabætur
og heldur verkfallið þvi á-
fram. (John).
Húsið mun springa
klukkan hálftólf?
Reyndist gabb. Krustjoff voru aðems
send bætiefni í formi eplaköku
Bandaríska lögreglan á nú
í miklum önnum í heimaland-
inu og ástæðan til pessa er öll-
um kunn. Nikita Krústjoff
dvelst í New York og ýmsir
vilja gjarna koma honum fyrir
kattarnef. Eins og tram hefur
komið í fréttum eigi alls fyrir
löngu varð uppi fótur og fit
með lögreglumönnunum s. I.
laugardag. Það hafði nefnilega
borizt pakki til höfuðstöðva
sovézku sendinefndarinnar á
allsherjarþinginu og lögregl-
an hafði grun um, að í honum
væri tímasprengja send
Krústjoff til höfuðs
En þegar pakkinn var opn-
aður í bækistöðvum lögregl-
unnar reyndist hann síður
en svo innihalda sprengiefni.
Krustjoff hefði tæplega orðið
nokkuð illt af innihaldinu í
versta tilfelli fengið í mag-
ann, því honum var send epla
kaka ásamt nokkrum línum.
Reyndist aðeins gabb
Það, sem olli taugaæsingi
lögreglumannanna var hring
ing frá hóteli því, sem Krust
joff býr á. Þangað hafði ver-
ið hringt snemma á laugar-
dagsmorguninn og sagt * að
tekizt hefði að koma fyrir
sprengju 1 hótelbyggingunni
og myndi hún springa laust
fyrir klukkan hálftólf.
Nú var allt öryggiskerfið
sett 'í gang. í fullar þrjár
klukkustundir var leitað að
sprengjunni. Allt var í upp-
námi, aukalið var kvatt út og
umferð stöðvuð í nágrenni
byggingarinnar, enda var mik
ið í hættu. Væri sprengjan
öflug, var ljóst, að hún gæti
grandað fleirum en Krustjoff.
En leitin að sprengjunni
bar ekki árangur, Klukkan
varð hálf tólf og ekkert bar
við, dagurinn leið og ekkert
varð tíðinda. Lögreglan hafði
aðeins í höndunum einn
pakka, merktan Krustjoff,
og þegar sprenglærðir sér-
fræðingar opnuðu hann kom
þeim aðeins vatn í munn við
að sjá ljómandi eplaköku. —
Þægileg tilbreytni eftir allan
spenninginn.
Vopn friðarins
Við nánari athugun reynd
ist eplakakan vera komin
sunnna frá Texas og sendand
inn var kona nokkur að nafni
Virginia McCleary, tæplega
fertug húsmóðir.
Nú hefur McCleary sagt
nánar frá þessu öllu saman.
Hún segist hafa skrifað
Krustjoff og skorað á hann
í kappræður um líf manna í
Bandaríkjunum og Sovétríkj-
unum. Síðar datt henni svo
í hug, að senda honum eitt-
hvað táknrænt fyrir líf banda
rískra borgara og því sendi
hún eplakökuna. Einnig kom
hún fyrir tveimur bandarísk
um fánum í pakkanum, gjöf
til handa frú Krustjoff, sem
á voru skráð boðorðin. Auk
þess voru í pakkanum þrettán
blýantsstubbar, sem áttu að
tákna eldflaugar ásamt lend
ingarstaö fyrir jpær. Loks
fylgdu þessi orð:
Amerika tekur áskorun
yðar með þessum eldflaug-
um, sem hlaðnar eru friðar
vopnum. Styrkur Ameríku
speglast m.a. í því, sem þér
finnið undir miða þessum.
Leynivopn friðarins.
Var orðin meir
Eplakakan komst auðvitað
aldrei til Krustjoffs. Lögreglu
vörður tók á móti pakkanum
áður en hann kæmist í hans
hendur og trúði hvorki að í
honum væri eplakaka né held
ur að hann kæmi frá Texas,
þótt hvort tveggja væri á
pakkann skráð. En þetta
reyndist nú samt vera rétt,
en lögreglan varð að senda
þær athugasemdir til frú Mc
Clearý, að kakan væri eigin-
lega farin að glata lögun
sinni og nefndist nú meö
meiri rétti eplasósa og það
væri éisinlega ólíklegt, að
Krustjoff myndi leggja sér
hana til munns en hann
skyldi fá hana senda til sín.
Skýjað
Austan gola, skýjað, en
milt og úrkomulítiS, sögSu
þelr í 17000 í gærkveldi.
Margt er líkt meö
Sigtuna og Rvík
Það kannast flestir fslend-
lingar við danska töframann-
inn Truxa sem komið hefur
hingað til lands og leikið listir
I sínar. Nýlega var þessi góði
maður á ferð í Svíbjóð og var
þá sjónvarpað, er hann ók
með bundið fyrir augu um
mjóar götur Sigtuna, sem er
lítill bær í Svíþjóð.
Þetta er út af fyrir sig ekk-
ert merkilegt. Þetta er aðeins
eitt af töfrabrögðum Truxa
og hann mun hafa leikið það
hér í miðbænum um árið. En
út af þessum aksri Truxa í
Sigtuna er kominn mikill
kurr meðal sænskra lögreglu
manna. Lögreglan í Sigtuna
var farþegi Truxá í blind-
akstrinum. Þykir sænsku lög
reglunni þetta með öllu óvið
eigandi.
reglumennirnir í Sigtuna
verði kallaðir fyrir rétt og
látnir svara til saka, hvers
vegna þeir hafi hætt að gegna
skyldustörfum sínum til þess
að taka þátt í sirkussýningu.
Lögreglan telur félaga sína
í Sigtuna hafa gert sænsku
lögregluna hlægilega með
framferði sinu og sjónvarps-
áhorfendur hafi fengið al-
ranga hugmynd um störf lög
reglunnar. Engin reiði er í
garð Truxa eða sjónvarps-
stöðvarinnar. Það eru aðeins
lögreglumennirnir í Sigtuna,
sem ráðizt er á, enda hafði
enginn veitt þeim leyfi til
þess að skemmta sér í vinnu
tímanum.
Truxa hefur nú verið bann
aður fyrirhugaður blindakst
ur í Stokkhólmi.
Sænska lögreglaai virðist
sem sé vönd að virðingv sinni
og er það vel en vonandi eiga
lögreglumennimir í Sigtuna
einhverja kollega sem skilja
GerSi sig hlægilega
Málið er nú komið á það
stig að búizt er við, aö lög- þá og finna til samúðar.