Tíminn - 09.10.1960, Page 2
2
TÍMINN, sunnudaginn 9. októbcr 1960.
Brezkir gramir
(Framhald af 16. síðu).
beðig um, að landinu verði
haldið innan brezka samveld
isins.
Slæmt samkomulag
í raun og veru skiptir það
ekki svo ýkja miklu máli,
hvort Suður-Afríka er i
brezka samveldinu eða ekki.
Hæstiréttur Breta verður
ekki lengur æðsti dómstóll
landsins eins og nú er. Sam
bandið milli Suður-Afríku og
Bretlands hefur alla tið ver-
ið heldur stirt. Hvítir menn í
landinu virðast oftast hafa
verið sammála í afstöðunni
til blökkumanna þar en þeim
hefur aldrei komig of vel sam
an innbyrðis. Hollendingarn
ir, Búarnir, gerðust fyrstu
innflytjendur til landsins en
Bretar náðu þar síðar fót-
festu. Búamir vildu engin
samskipti eiga við Bretana,
sem komu til landsins þótt
þeir gætu allt eins flutt til
Kanada eða Ástralíu. Búarnir
hrökkluðust því norður á bóg
inn og stofnuðu ríki sín 1
Oranje og Transvaal
Bretarnir létu hins vegar
Búana ekki í friði þar, Þessi
héruð reyndust vera auðug
að ýmsum málum og brezk-
ir innflytjendur vildu leggja
héruðin undir sig. Það kost-
aði harðvítuga styrjöld um
aldamótin siðustu.
Árið 1910 stofnaði svo Church
hill Suður-Afríkusambandið.
Hugmynd hans með þessu var
ag reyna að skapa með þessu
svipað ástand í Suður-Afríku
og í Kanada, þar sem fransk
ir menn og enskir lifðu í sátt
o<? samlyndi. En þetta hefur
ekki tekizt. Frönsku innflytj
endurnir í Kanada urðu á-
gætir þegnar m. a. vegna
þess að þeir gátu ekki sætt
sig við meðferð landa sinna
heima í Frakkla^idi á konungs
fjölskyldunni i frönsku stjórn
arbyltingunni. En þessu var
ekki á sama veg farið með
Búana. Þeir hafa aldrei sætzt
við Bretann þótt þeir hafi
ekki eilíflega stritt við hann.
þar suður frá. T. d. var það
svo í báðum heimsstyrjöldun
um, að það voru aðeins brezk
ir menn í Suður-Afríku, sem
gegndu herþjónustu á vegum
brezka samveldisins. Búamir
komu þar hvergi nærri.
Sigur fyrir Búa
Enda þótt Suður-Afríka ger
ist lýðveldi breytir það engu
um efnahagssambönd lands-
ins við Bretland. Bretar eiga
miklar námur í landinu og
mikið af gulli og demöntum
frá Suður-Afríku ér selt í
Lundúnum. Þetta mun ekki
breytast a. m. k. ekki fyrst
um sinn.
Hins vegar hefur stjórn
stjórn Suður-Afríku mátt
þola margs konar mótlæti,
vegna stefnu sirinar í kyn-
þáttamálunum sem aðili að
brezka heimsveldinu. Stjórn-
in hefur mátt þola margar
harðar ákúrur frá Nehru og
Nkrumah svo einhverjir séu
nefndir, en þeir eru báðir for
svarsmenn þjóða, sem eru í
brezka samveldinu. Meg lýð-
veldisstofnuninni losnar dr.
Verwoerd við að sit>a til borðs
með þessum mönnum. Hann
getur því betur unnið að
framkvæmd skilnaðarstefnu
sinnar í kynþáttamálunum.
Með lýðveldisstofnuninni
mun og stjórn dr. Verwoerd
vilja vikja frá gömlum orð-
um MacMillans forsætisráð-
herra Breta um það, að nýr
vindur berist nú um Afríku
og verði ekki stöðvaður. Stjórn
arherrar Suður-Afríku munu
berjast gegn hvers konar fríð
indum til handa blökkumönn
um eins lengi og þeir geta.
Úrslit kosninganna þýða
því vafalaust það, að blökku-
menn mega vænta harðari
meðferðar og jafnframt það,
að bilið mun ekki minnka
milli Búanna og hinna brezku
íbúa ladsis.
Heilbrigði - Hreysti - Fegurð
Afiraunakerfi Atlas
30 æfingahréf metJ 60
skýringarmyndum.
Heilbrigði — Hreysti — Fegurð
Þetta er bezta og fljótlegasta að-
ferðin til að fá mikinn vöðvastyrk,
góða heilsu og fagran líkamsvöxt.
Engin áhöld. fingatími 10—15 mín.
á dag. .Árangurinn mun sýna sig
eftir viku. Bókin kostai kr. 120.00.
Pantið bókina strax i dag. Hún
verður send um hæl.
Utanáskrift okkar er:
Heilsurækt ATLAS
Pósthólf 1115 Rvík
Undirrit, . . oskar að sér verði
send bókin Heilsurækt Atlas
Nafn ........................
Heimili .....................
AkranesmáliS
(Framh. af 1 síðu).
hann fallizt á það sjálfur með því
að áfrýja ekki dómnum. Nýjar
kosningar eru því aðeins lögiegar
að meirihluti bæjarstjórnar komi
sér ekki saman um kjör bæjar-
stjóra. Slíkur ágreiningur er ekki
fyrir hendi að svo komnu máli.
Af framansögðu sér bæjarstjórn
sig ekki geta orðið við áskorun
þeirri, sem hér liggur fyrir, og
tekur því fyrir næsta mál á dag-
skrá“. — Tillaga þessi var sam
þykkt með 6:2 atkv. einn Sjálf-
stæðisfulltrúi sat hjá.
Vegna borgarafundarins á Akra
nesi 26. ágúst s. 1. viljum við und
irritaðir leyfa okkur að mótmæla
frávísunartillögu þeirri, sem meiri
hluti bæjarstjórnar Akraness sam
þykkti á fundi sínum þann 30.
sept. s. 1. þar sem því er haldið
fram, að frummælendur borgara-
fundarins hafi lagt á það megin
áherzlu, að gerffir meirihluta bæj-
arstjórnar um aff segja bæjarstjóra
upp starfi hafi ekki viff lög aff
styffjast", og að undirskriftirnar
séu byggðar á sömu rökum. Þetta
er alrangt og eingöngu sagt í blekk
ingaskyni. Ræðumenn borgarafund
arins átöldu það siðleysi, að segja
bæjarstjóra upp starfi fyrirvara-
laust og án allra saka, er aðeins
væri bæjarfélaginu til álitshnekkis
og tjóns.
Alveg sérstaklega kom það fram,
að hér voru frekleg svik framin
af hálfu Alþýðuflokksins, þar sem
fulltrúar hans hefðu verið kjörnir
á sameiginlegum lista með tveimur
öðrum flokkum og þá hafi jafn-
framt verið kosið um bæjarstjóra
efni þríflokkanna. Tillaga borgara
fundarins var svohljóðandi:
„Almennur borgarafundur á
Akranesi — haldinn í Bíóhöllinni
26. ágúst 1960, samþykkir að skora
á bæjarstjórn Akraness að falla frá
samþykktri tillögu, er flutt var af
fulltrúum Alþýðuflokksins á síð-
asta bæjarstjórnarfundi um að
víkja Daníel Ágústínussyni bæjar
stjóra úr starfi.
Að öðrum kosti verði bæjar-
stjórnarkosningar látnar fara
fram nú þegar“.
Tillaga þessi var síðan. send
bæjarstjórninni daginn eftir.
Krafa borgarafundarins var ein-
föld og án allra lögskýringa þessi:
Afturkallið uppsögnina eða látiff
kosningar fara fram.
Undirskriftirnar eru staðfesting
1030 kjósenda á Akr'anesi eða
53% kjósenda á þessari kröfu
borgárafundarins. Það er frekleg
og ósæmileg aðdróttun að kjósend
um bæjarins, að þeir hafi ekki
vitað hvað þeir voru að gera. Því
mótmælum við harfflega.
Akranesi, 7. okt. 1960.
F. h. hins aknenna borgarafundar.
Guffjón Hallgrímsson
fundarstjóri
(Sign.)
Adam Þorgeirsson
fundarstjóri
(Sign.)
Hvort bæjarstjóri áfrýjar dómn
um er þessu óviðkomandi og er
okkur ekki kunnugt um hvort
hann gerir það eða ekki, enda
enn tími til þess. Á hitt viljum við
þó benda í þessu sambandi, að
áfrýjun frestaði ekki innsetningu
og dómur hæstar'éttar kæmi vart
fyrr en eftir langan tíma. Hins
vegar voru höfuð ásakanir bæjar-
fulltrúa Alþýðuflokksins ómerktar
og málskostnaður felldur niður.
Hvers vegna áfrýja ekki bæjarfull
trúar Alþýffuflokksins til aff freista
þess að fá áburff sinn staðfestan?
Ennfremur er vert að geta þess, að
bæjax'stjóri hlýtur að fara í skaða
bótamál. Ef það færi svo að hon-
um yrðu dæmd full laun út kjör
tímabilið, orkar þá ekki uppsögn
hans mjög tvímælis lagalega séð?
Við teljum að almenningur í bæn
um líti svo á. Eftir dómi borgar-
fógetans getur meirihluti bæjar-
stjórnar aðeins „hafnað störfum
bæjarstjóra", en um bótarétt
vegna uppsagnarinnar fjallaði rétt
urinn ekki. Það er annað mái.
Nú hefur rúmur meirihluti kjós
enda á Akranesi hafnað störfum
bæjarstjórnarinnar. Okkur þykir
það furðu gegna og mjög einræðis
legt ef bæjarstjórnin ætlar að
hafa þann meirihluta að engu og
trúum því ekki enn. Og eitt er
víst. Það þarf haldbetri rök fyrir
slíku gerræði en þau, sem fram
koma í nefndri dagskrártillögu og
mótmælt er hér að fr'aman.
Akranesi, 7. okt. 1960.
F. h. fundarboðenda hins
almenna borgarafundar,
Halldór Þorsteinsson.
(Sign.).
Þessi greinargerð er send öll-
um dagblöðunum til birtingai'.
Auglýsið í Tímanum
Dömur athugiö
Þurrkhettan vi(S hárþurrkuna
sparar tíma og erfiði
Er fyrir allar gerðir af hárþurrkum.
Fæst nú þegar á eftirtöldum stöðum:
í REYKJAVÍK:
Verzl. S.Í.S. Austurstræti 10 Véla & Raftækjasalan Bankastr 10
Verzl. Hekla Austurstræti 14 Verzl. Ljós h/f Laugaveg 20
Verzl. Regnboginn Bankastræti 7 Verzl. Luktin Njálsgötu 87
Verzl. Raforka Vesturgötu 2
Rakarastofa Péturs & Vals Skóravörffustig 10
f HAFNARFIRÐI:
Stebbabúð.
I VESTMANNAEYJUM:
Verzl. Framtíðin.
Á AKUREYRI:
Kaupfélag Eyfirðinga.
VERKSMSBJAN SIGNA.
Pósthólf 958.
Fósturbörnin
(Framh. af 16. síðu).
að barnaeftirlitið hafi of mikil
völd. Samkvæmt lögum þess getur
það t. d. ákveðið að ekki megi
taka barn frá góðu fósturheimili
til foreldra sinna að nýju, enda
þótt þeir hafi þá orðið allar að-
stæður til þess að sjá barni sínu
farborða. Það er víða svo, að for
eldrar geta ekki séð fyrir börnum
sínum sem skyldi fyrstu árin og
koma þeim þá í fóstur. En þetta
þýðir ekki að erfiðleikarnir þurfi
að vara endalaust og ekki rætist
úr. Fólk gefur því ekki börn sín
en margir vara sig ekki á því, að
með því að láta þau í fóstur er
tekin sú áhætta að missa þau, þótt
fran\ vindi til hins betra í eigin
málum.
Barnaeftirlitið getur ekki tekið
fyrir foreldraréttinn en það getur
metið á hverjum tíma, hvar það
telur barninu bezt fyr'ir komið.
Síldarmjöl
(Framhi af 1. síðu).
um er auðvelt aff sjá, hvort nokk-
urt meindýr hefur komizt í mjöliff.
önnur lönd endurhita allt mjöl sem
keypt er, því sýkill þessi drepst
viff ákveffiff hitastig. ísland hefur
til þessa haft sérstöffu aff því leyti,
að a.m.k. sum viffskiptalönd hafa
ekki krafizt þess, að mjöl héffan
væri í pappírspokuin og jafnvel
ckki taliff nauffsynlegt aff endur-
hita íslenzkt síldarmjöl, því þaff
hefur haft mjög gott orff á sér.
Brugðu skjótf við
Það var því ekki aff furða, að
framleiðendum sildarmjöls brygði
i brún, en fréttir þessar komu frá
Finnlandi. Þó’rffur Þorbjarnarson
frá Fiskifélagi fslands, dr. Sigurð-
ur Pétursson gerlafræðingur, Sig-
urður Jónsson forstöffumaffur SR
og Friffrik Bertelsen, umboðsmaff-
ur finnska fyrirtækisins. fóru þeg-
ar út og gerðu nauðsynlegar ráff-
stafanir. Kröfffust þeir þess, að ný
sýnishorn yrðu tekin af öllu mjöl-
inu, og var það gerf. Sú rannsókn
leiddi það í ljóst, sem sagt er hér
að framan, að Salmonella var ekki
nema í litlum hluta af magninu,
eða um tveimur tonnum.
Enginn sýkill hérlendis
Að fenginni þeirri niðurstöðu
var hafin rannsókn á öllu mjöli
sem hér heima var, og heft á eftir-
lifi með því, sem þó var mjög ná-
kvæmt fyrir. Engin merki Salmon-
ellu fundust við þá rannsókn. Er
að sjálfsögðu brýn nauðsyn til þess
að slaka hvergi á því eftirliti, því
hætta sú, sem stafar af sýklinum,
þótf ekki væri í nema örfáum
sekkjum, er hverjum manni aug-
Þós. Er þess skemmst að minnast
er taugaveikibróðir kom upp í kúm
á Bakka á Seltjarnarnesi fyrir 6
árum, og fjöldi manns veiktist. Var
talið, að þar væri að verki Salmon-
eila, er borizt hefði með roftum, '
þótt það yrði aldrei fullsannað.
Er blaðið vann aö' því að afla
sér upplýsinga um þetta mál, tal-
aði það m. a við Sigurð Jónsson,
íorstöðumann SR. Vildi hann sem
nvinnst um þefta tala og sem fæst-
ar upplýsingar gefa, kvað þetta
engan blaðamat, og auk þess væri
of langt um liðið síðan þetta var.
(Hálfur annar mánuður), til þess
að það væri frétfnæmt. Einnig tal- •
aði blaðið við Þórð Þorbjarnarson,
vijdi hann heldur ekkert segja, og
kvað bezt fyrir alþjóð að um þetta
yrði þagað.
Blaðið leggur það hér með undir
dóm lesenda, hvort fréttir sem
þessar eiga erindi til almennings
cða ekki. Blaðið telur, að fréttir
um útflutningsvörur þjóðarinnar
eigi nokkurt erindi til manna, ekki
‘hvað sízt þegar hér er um að
ræða vöru, sem einnig er seld hér-
londis og notuð til skepnufóðurs.
Sannar fréttir og ýtarlegar eru lík-
legastar til að kveða niður kvik-
sögur, er á kreik komast. — S.