Tíminn - 09.10.1960, Blaðsíða 7

Tíminn - 09.10.1960, Blaðsíða 7
TÍMINN, sunnudaginn 9. október 1960. 7 — SKRIFAÐ OG SKRAFAÐ — Þorir ríkisstjórnin að semja? - Samningum verði hætt en landhelgismálinu fsegar vísað til Al- jbingis - Ríkisstjórnin býr til kreppu - Sligaðir atvinnuvegir - Framsóknarflokkurinn benti á aðrar leiðir - Unnt að ná jafnvægi á miklu hagfelldari hátt með litlum fórnum Enginn veit, hvað er að ger- ast þessa dagana í ráðherra- bústaðnum við Tjarnargötu, þar sem fulltrúar brezku stjórnarinnar og hinnar ís- lenzku sitja við samninga- borð um fiskveiðilandhelgi ís- lands. Ríkisstjórnin heldur al- gerri leynd yfir samningun- um og þverskallast við eðli- legum kröfum um, að þjóðin fái einhverja vitneskju um þá. Og hún gerir meira. Hún neit- ar trúnaðarnefnd Alþingis, utanríkismálanefnd um alla vitneskju þrátt fyrir gefin loforð. Á síðasta fundi nefnd- arinnar var því heitið, að nefndinni skyldi gefinn kostur á að fylgjast með viðræðunum nákvæmlega.. Þetta heit var rofið og enginn fundur boðað- ur í nefndinni alla síðustu viku. Hermann Jónasson ritaði því utanríkisráðherra bréf í fyrradag og krafðist þess, að fundur yrði tafarlaust boðað- ur í nefndinni. Afstaða íslenzku þjóðarinn- ar í þessum málum er óbreytt. Um það vitna einróma sam- þykktir fjölmargra félaga um allt land, samþykktir sem dag- lega berast. Þar eru samninga viðræður fordæmdar með öllu og úr því til þeirra hefir kom- ið er lögð á það áherzla, að hvergi verði hvikaö frá 12 mílna fiskveiðilandhelgi um- hverfis landið allt án allra undantekninga. Er þar alls staðar lögð á það megin- áherzla, að ríkisstjórnin hafi enga heimild til þesasra samn inga, Alþingi hafi ekki gefið neina slíka heimild, heldur þvert á móti falið stjórninni að standa fast við 12 m. land helgina og reyna að afla henni viðurkenningar og vinna að áframhaldandi friðun land- grunnsins. Samningar við of- beldisþjóðina Breta eru ský- laust brot á vilja Alþingis og íslenzku þjóðarinnar. Samningar ógildir Á þessum forsendum var gerð sú eðlilega krafa hér í blaðinu í vikunni sem leið, aö þessum vansæmandi og heim- ildarlausu viðræðum væri taf- arlaust hætt en málinu öllu vísað til Alþingis, þar sem þingið er nú að koma saman. Allar viðræður og samningar ríkisstjórnarinnar eru ómerk orð, og engir samningar geta hvort sem er tekið gildi, fyrr en Alþingi hefir fjallað um þá og samþykkt þá. Þess vegna er það skollaleikur einn að sitja úti í ráðherrabústað og semja í heimildarleysi og án þess að vita, um hvað Alþingi vill semja eða hvort það vill svo mikið sem ræða við Breta. Það eru óhæf vinnubrögð af ríkisstjórninni að hefja þessa samninga án þess að hafa leitað samþykkis Alþingis til þeirra, og því verður vart trú- að, að Alþingi leggi blessun sína yfir þessar samningavið- ræður. Þess vegna er einboð- ið að hætta tafarlaust og vísa málinu til Alþingis. Það er orðið alveg augljóst, að þessar samningaviðræður fara fram gegn vilja þjóðar- innar og á bak við Alþingi. Svo lágt er ríkisstjórnin sokk in í meðferð mesta sjálfstæðis máls þjóðarinnar í dag. ís- lendingar telja þessar viðræð- ur hneyksli og ósæmandi að hafa ríkisstjórn, sem lætur berja sig með fallbyssum til hlýðni. Ekkert fer eins illa með sjálfstæðisvitund þjóðar- innar og þessi hraklega með- ferð á sjálfstæðismáli hennar, en fátt hefði gefið henni eins mikla reisn og glætt trú henn ar á mátt sjálfstæðis síns og það að vita og finna, að hún gat sigrað í viðureign við Breta, þótt þeir beittu vopn- uðu ofbeldi. Allir vita, aö þessi sigur var unninn, og að nú er verið að ónýta hann. Það er þetta, sem sárast svíður, og svona má ekki leika sjálfstæð iskennd þjóðarinnar. Ef samið verður nú við Breta mun um langa framtíð veröa til þess vitnað sem örlagaríks _ ósig- urs í sjálfstæðisbaráttu íslend inga. „Sporðreisnin” En þaö er fleira, sem ligg- ur þungt á huga manna þessa dagana en svikin í landhelg- ismálinu. Menn muna, að efna hagsráðstöfunum rikisstjórn arinnar var gefið glæsinafnið „viðreisn“ og stjórnin gaf út á kostnað þegnanna í heimild arleysi allstóran bækling til að gylla ráðstafanirnar og kall- aði hann „Viðreisn". Nú er þetta nafn orði eitt hið versta háðsyrði í eyrum manna, enda er það nú komið ljóslega á dag inn, að þetta er engin við- reisn, heldur fullkomin sporð- reisn og kollsteypa. Aðal-út- flutnings atvinnuvegur lands- manna er á heljarþröm, svo að gjaldþrot vofir yfir ef ekki koma sérstakar ráðstafanir þegar til — nýjar uppbóta- eða styrktarráðstafanir, sem áttu að vera úr sögunni. Út- vegsmenn hafa lýst því skil- merkilega yfir, að aðstaða til útgerðar hafi stórversnað við 3 ' ðstafanir ríkisstjórnarinnar. Þeir fá þá kveðju eina í Mbl. að þeir séu „samsafn fífla“.- Eitt hið versta ok á sjávarút- veginum nú svo og öðrum at- vinnuvegum og einstaklingum eru 12% okurvextirnir. Hinn margreyndi útgerðarmaður Haraldur Böðvarsson á Akra- nesi hefir lýst yfir í Mbl. að þá geti útgerðin ekki borið. Allir vita að orkurvextirnir á- samt öðrum kyrkingarráðstöf unum hljóta að buga útgerð- ina og hefðu blindir menn átt Þessi mynd var tekin, er ríkisstjórnin bauð hinum góSu gestum sínum, samningamönnum Breta, í flugferð fram með suðurströnd landsins. að sjá það fyrir. Nú er það helzta ráð ríkisstjórnarinnar að hefja eins konar kreppu- lánastjóðsstarfsemi fyrir út- veginn, helzt með erlendri lán töku, í því skyni að endurlána útveginum til þess að hann geti borgaö okurvextina, sem eru að sliga hann. Vitlausari efnahagsráðstöfunar hefir vafalaust aldrei heyrzt getið. Væri ríkisstjórninni ekki sæmra að fara að ráði Har- aldar Böðvarssonar og afnema okurvextina og reyna síðan að sjá útveginum fyrir lánsfé með sæmilegum kjörum? Tilbúin íhaldskreppa Ófarnaðurinn aí ráðstöfun- um íhaldsins er nú svo aug- ljós, að málgögn ríkisstjórn- arinnar þora ekki annað en viðurkenna vandræðaástand það, sem skapazt hefir. Hins vegar eru þau með alls konar undarlegar skýringar, svo sem aflabrest og verðfall á erlend um markaði, og einnig hitt, að viðskilnaður og langvarandi! ráð vinstri stefnuhnar í land- inu hafi verið þannig, að ekki sé von að „viðreisnin" takist í einu vetfangi. Hvort tveggja eru haldlaus- ar viðbárur einar. Afli er í góðu meðallagi, t. d. síldarafl- inn miðað við 10 s.l. ár, og verðfall hefir oft komið áður, meira að segja miklu meira en það, sem nú er. Auk þess var þetta verðfall á lýsi og mjöli komiö áður en efnahagsráð- stafanirnar voru gerðar að verulegu leyti og því séðar fyr- ir. Um viðskilnaö vinstri stjórn arinnar er það að segja að hann var mjög góður og auð- velt að gera léttbærar ráðstaf anir til þess að halda atvinnu vegunum gangandi og lífskjör unum í sama horfi. Þegar vinstri stjórnin fór frá fyrir áramót 1958—59 var verulegur greiðsluafgangur hjá ríkissjóði, eða um 60 millj. kr. og á honum lifði íhalds- stjórn krata blátt áfram árið 1959, bjargaði sér með því að éta hann upp. Skekkjan í efnahagskerfinu um þessi áramót var heldur ekki meiri en svo, að til þess að tryggja rekstur atvinnuveg- anna þurfti aðeins að færa til baka nokkur vísitölustig, sem beinlínis höfðu myndazt vegna kauphækkunar þeirrar, sem Sjálfstæðisflokkurinn barði fram með hinni einstöku I kauphækkunarbaráttu sinni. I Það var viðurkennt af hag- jfræðingum að með því var junnt að tryggja sömu lífskjör !og kaupmátt launa og verið ! hafði í febrúar 1958. j Einmitt á árinu 1958 haföi jorðið mikil framleðisluaukn- ing hjá þjóðinni vegna þeirra nýju atvinnutækja sem þá voru nýkomin í gagnið og ekki sízt vegna þess var unnt að halda lífskjörunum uppi. En þaö fékkst ekki að af- nema þau fáu vísitölustig, sem Sjálfstæðisflokkurinn átti sök á. Meira að segja eftir að nú- verandi ríkisstjórn tók við og hafði lokið sinni athugun mála, lýsti forsætisráðherra því yfir, að ekki vantaði nema 250 millj. til þess að jafna skakkann í efnahagskerfinu og tryggja rekstur atvinnuveg anna. En í stað þess að byggja á þeim grunni og snúast við því að rétta þennan 250 millj. kr. skakka í efnahagskerfinu, skellti stjórnin á 1100 millj. kr. álögunum, vaxtaokrinu, sam- drættinum og gengisfallinu. Með því var kreppt svo að at- vinnuvegunum og allri upp- byggingu þjóðarinnar, að nú blasir hörð kreppa við og sjáv arútvegurinn er blátt áfram á heljarþröm. Framleiðsluaukn ingin var stöðvuð að yfirlögðu ráði. Það var búin til kreppa og öngþveiti til þess að gamla og úrelta íhaldsstefnan fengi aftur að njóta sín til hagsbóta fyrir einkagróðann. En það er alveg vonlaust verk að kenna fyrrverandi rik isstjórnum eða ráðum vinstri stefnunnar um þetta eins og Mbl. er að burðast við. Hér er um að ræða heimagerða og til búna íhaldskreppu þeirrar rík isstjórnar sem nú situr við völd í landinu. Leið Framsóknar- flokksins Eins og kunnugt er af am- ræðum þeim, sem fram fóru á Alþingi s. 1. vetur um þess- ar efnahagsráðstafanir vildi Framsóknarflokkurinn fara allt aðra leið í efnahag^mál- unum. Hans leið var í stuttu máli þessi: Hann vildi miða allar að- gerðir við það að halda upp- byggingarstefnu síðustu ára áfram af fullum þrótti, en reyndist nauðsynlegt að draga eitthvað úr fjárfestingunni yrði það gert eftir vali, þann- ig að ónauðsynlegar fram- kvæmdir sætu á haka, en framkvæmdir almennings héldu áfram og uppbygging atvinnuveganna. Framsóknarflokkurinn vildi jafna þann skakka, sem fyr- ir var í efnahagskerfinu og tryggja rekstur útflutnings- atvinnuveganna með því að hækka yfirfærslugjaldið hóf- lega og afla þannig þeirra 250 millj. sem ríksstjórnin sagði að vantaði, en ekki skella yfir þjóðina 1100 millj. kr. í álög- um ofan á allt annað. Framsóknarflokkurinn vildi afnema uppbótarkerfið í á- föngum en ekki með hinni stórliættulegu stýfingu, og að þannig yrði leitað jafnvægis til frambúðar. í þessum umræðum lét Ey- steinn Jónsson, formaður þingflokks Framsóknarflokks ins m. a. svo um mælt í um- ræðunum á Alþingi: „Það hefði verið hægt að koma á fullu jafnvægi í þjóð- arbúskapnum með tiltölu- lega smávægilegum ráðstöf- unum samanborið við það, sem nú hefir verið gripið til“. Framsóknarflokkurinn gerði því glögga grein fyrir sinni leið í efnahagsmálunum þeg- ar í upphafi, eins og hann hefir jafn^n gert, bó að hann sé í stj órnarandstöðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.